Acts 26 (BOILNTAP)

1 Þá sagði Agrippa við Pál: „Gjörðu svo vel. Segðu okkur nú sögu þína.“Páll rétti fram höndina til kveðju og hóf varnarræðu sína: 2 „Það er mér gleðiefni, Agrippa konungur, að fá að kynna þér mál mitt, 3 því að ég veit að þú gjörþekkir lög og siði Gyðinga. Sýnið nú þolinmæði og hlustið á mig. 4 Eins og Gyðingarnir vita, fékk ég gyðinglega uppfræðslu frá fyrstu bernsku í Tarsus en seinna meir í Jerúsalem og lifði ég lífi mínu í samræmi við hana. 5 Þeim er líka fullljóst að ég var strangastur allra farísea í hlýðni við lög og siðvenjur þjóðar okkar. 6 Ástæðan fyrir því að ég er lögsóttur, er sú von mín að Guð muni standa við loforðið sem hann gaf forfeðrum okkar. 7 Það er loforðið sem allar tólf ættkvíslir Ísraelsmanna bíða eftir að verði uppfyllt. En konungur, nú segja þeir að með því hafi ég gerst afbrotamaður! 8 Hvað er glæpsamlegt við að trúa upprisu dauðra? Finnst þér ótrúlegt að Guð geti reist menn frá dauðum? 9 Ég leit svo á að mitt hlutverk væri að ofsækja fylgjendur Jesú frá Nasaret. 10 Ég fékk leyfi hjá æðstu prestunum til að varpa mörgum hinna heilögu í Jerúsalem í fangelsi og samþykkti svo að þeir yrðu teknir af lífi. 11 Ég notaði pyntingar til að neyða kristna menn, hvar sem þeir fundust, til að formæla Kristi. Slíkt æði hafði gripið mig að ég elti þá jafnvel til fjarlægra borga í öðrum löndum. 12 Eitt sinn fór ég til Damaskus í slíkum erindagjörðum með sérstakt leyfi og umboð frá æðstu prestunum. 13 Þá gerðist það einn daginn, um hádegisbilið, að ljós, bjartara en sólin, birtist á himninum og skein á mig og félaga mína. 14 Við féllum allir til jarðar og ég heyrði rödd, sem sagði við mig á hebresku: „Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? Það verður aðeins sjálfum þér til tjóns.“ 15 „Hver ert þú herra?“ spurði égDrottinn svaraði: „Ég er Jesús, sem þú ofsækir. 16 En stattu upp! Ég hef birst þér til að útnefna þig þjón minn og vitni. Þú átt að segja heiminum frá þessari opinberun, og öðrum, sem þú munt fá í framtíðinni. 17 Ég mun vernda þig bæði fyrir heiðingjunum og þinni eigin þjóð. Ég ætla að senda þig til heiðingjanna 18 til þess að þeir sjái hið sanna ástand sitt, geri iðrun og lifi í ljósi Guðs en ekki í myrkri Satans. Þeir munu taka við fyrirgefningu syndanna og þeim arfi, sem Guð vill veita öllum, hvar sem þeir eru, fyrir trúna á mig.“ 19 Agrippa konungur, þessari himnesku sýn óhlýðnaðist ég ekki. 20 Fyrst predikaði ég í Damaskus, síðan í Jerúsalem og um alla Júdeu og að lokum meðal heiðingjanna. Ég hvatti alla til að snúa sér frá syndinni og til Guðs og sanna afturhvarf sitt með því að ástunda góð verk. 21 Fyrir að predika þetta, handtóku Gyðingarnir mig í musterinu og reyndu að drepa mig. 22 En Guð verndaði mig, svo ég er enn á lífi og vitna um þetta fyrir háum og lágum. Í kenningu minni er ekkert sem ekki er frá Móse eða spámönnunum. 23 Þeir sögðu að Kristur yrði að þjást og myndi rísa upp frá dauðum, fyrstur allra, til að verða ljós bæði Gyðingum og heiðingjum.“ 24 „Þú ert búinn að missa vitið, Páll!“ hrópaði Festus allt í einu. „Allur þessi bókalestur hefur gert þig ruglaðan!“ 25 „Ekki er ég vitskertur, göfugi Festus,“ svaraði Páll, „ég er með fullu viti og er aðeins að segja sannleikann. 26 Agrippa konungur skilur þetta allt mætavel. Ég tala hreinskilnislega, því að ég er viss um að hann er þessu vel kunnugur, enda hafa þessir atburðir ekki gerst í leynum heldur fyrir allra augum. 27 Agrippa konungur, trúir þú spámönnunum? Ég veit að þú gerir það…“ 28 Þá greip Agrippa fram í og sagði: „Heldurðu að ekki þurfi meira til að gera mig kristinn?“ 29 „Þess bið ég Guð,“ svaraði Páll, „að hvort sem rök mín eru veik eða sterk, þá mættir þú og aðrir, sem hér hlusta, verða eins og ég, að undanskildum hlekkjunum.“ 30 Þá stóð konungurinn upp ásamt landstjóranum, Berníke og öllum hinum og fór. 31 Þegar þau ræddu málið eftir á, urðu þau sammála um að Páll hefði ekkert aðhafst, sem réttlætti dauðadóm eða fangelsisvist. 32 Síðan sagði Agrippa við Festus: „Nú hefði verið hægt að sleppa honum, ef hann hefði ekki skotið málinu til keisarans.“

In Other Versions

Acts 26 in the ANGEFD

Acts 26 in the ANTPNG2D

Acts 26 in the AS21

Acts 26 in the BAGH

Acts 26 in the BBPNG

Acts 26 in the BBT1E

Acts 26 in the BDS

Acts 26 in the BEV

Acts 26 in the BHAD

Acts 26 in the BIB

Acts 26 in the BLPT

Acts 26 in the BNT

Acts 26 in the BNTABOOT

Acts 26 in the BNTLV

Acts 26 in the BOATCB

Acts 26 in the BOATCB2

Acts 26 in the BOBCV

Acts 26 in the BOCNT

Acts 26 in the BOECS

Acts 26 in the BOGWICC

Acts 26 in the BOHCB

Acts 26 in the BOHCV

Acts 26 in the BOHLNT

Acts 26 in the BOHNTLTAL

Acts 26 in the BOICB

Acts 26 in the BOITCV

Acts 26 in the BOKCV

Acts 26 in the BOKCV2

Acts 26 in the BOKHWOG

Acts 26 in the BOKSSV

Acts 26 in the BOLCB

Acts 26 in the BOLCB2

Acts 26 in the BOMCV

Acts 26 in the BONAV

Acts 26 in the BONCB

Acts 26 in the BONLT

Acts 26 in the BONUT2

Acts 26 in the BOPLNT

Acts 26 in the BOSCB

Acts 26 in the BOSNC

Acts 26 in the BOTLNT

Acts 26 in the BOVCB

Acts 26 in the BOYCB

Acts 26 in the BPBB

Acts 26 in the BPH

Acts 26 in the BSB

Acts 26 in the CCB

Acts 26 in the CUV

Acts 26 in the CUVS

Acts 26 in the DBT

Acts 26 in the DGDNT

Acts 26 in the DHNT

Acts 26 in the DNT

Acts 26 in the ELBE

Acts 26 in the EMTV

Acts 26 in the ESV

Acts 26 in the FBV

Acts 26 in the FEB

Acts 26 in the GGMNT

Acts 26 in the GNT

Acts 26 in the HARY

Acts 26 in the HNT

Acts 26 in the IRVA

Acts 26 in the IRVB

Acts 26 in the IRVG

Acts 26 in the IRVH

Acts 26 in the IRVK

Acts 26 in the IRVM

Acts 26 in the IRVM2

Acts 26 in the IRVO

Acts 26 in the IRVP

Acts 26 in the IRVT

Acts 26 in the IRVT2

Acts 26 in the IRVU

Acts 26 in the ISVN

Acts 26 in the JSNT

Acts 26 in the KAPI

Acts 26 in the KBT1ETNIK

Acts 26 in the KBV

Acts 26 in the KJV

Acts 26 in the KNFD

Acts 26 in the LBA

Acts 26 in the LBLA

Acts 26 in the LNT

Acts 26 in the LSV

Acts 26 in the MAAL

Acts 26 in the MBV

Acts 26 in the MBV2

Acts 26 in the MHNT

Acts 26 in the MKNFD

Acts 26 in the MNG

Acts 26 in the MNT

Acts 26 in the MNT2

Acts 26 in the MRS1T

Acts 26 in the NAA

Acts 26 in the NASB

Acts 26 in the NBLA

Acts 26 in the NBS

Acts 26 in the NBVTP

Acts 26 in the NET2

Acts 26 in the NIV11

Acts 26 in the NNT

Acts 26 in the NNT2

Acts 26 in the NNT3

Acts 26 in the PDDPT

Acts 26 in the PFNT

Acts 26 in the RMNT

Acts 26 in the SBIAS

Acts 26 in the SBIBS

Acts 26 in the SBIBS2

Acts 26 in the SBICS

Acts 26 in the SBIDS

Acts 26 in the SBIGS

Acts 26 in the SBIHS

Acts 26 in the SBIIS

Acts 26 in the SBIIS2

Acts 26 in the SBIIS3

Acts 26 in the SBIKS

Acts 26 in the SBIKS2

Acts 26 in the SBIMS

Acts 26 in the SBIOS

Acts 26 in the SBIPS

Acts 26 in the SBISS

Acts 26 in the SBITS

Acts 26 in the SBITS2

Acts 26 in the SBITS3

Acts 26 in the SBITS4

Acts 26 in the SBIUS

Acts 26 in the SBIVS

Acts 26 in the SBT

Acts 26 in the SBT1E

Acts 26 in the SCHL

Acts 26 in the SNT

Acts 26 in the SUSU

Acts 26 in the SUSU2

Acts 26 in the SYNO

Acts 26 in the TBIAOTANT

Acts 26 in the TBT1E

Acts 26 in the TBT1E2

Acts 26 in the TFTIP

Acts 26 in the TFTU

Acts 26 in the TGNTATF3T

Acts 26 in the THAI

Acts 26 in the TNFD

Acts 26 in the TNT

Acts 26 in the TNTIK

Acts 26 in the TNTIL

Acts 26 in the TNTIN

Acts 26 in the TNTIP

Acts 26 in the TNTIZ

Acts 26 in the TOMA

Acts 26 in the TTENT

Acts 26 in the UBG

Acts 26 in the UGV

Acts 26 in the UGV2

Acts 26 in the UGV3

Acts 26 in the VBL

Acts 26 in the VDCC

Acts 26 in the YALU

Acts 26 in the YAPE

Acts 26 in the YBVTP

Acts 26 in the ZBP