John 21 (BOILNTAP)

1 Seinna birtist Jesús lærisveinunum á ný og þá við Galíleuvatnið. Það gerðist á þennan hátt: 2 Nokkrir okkar voru þar, Símon Pétur, Tómas, „tvíburinn“, Natanael frá Kana í Galíleu, Jakob bróðir minn og ég, og tveir aðrir lærisveinar. 3 „Ég ætla út að fiska,“ sagði Símon Pétur.„Við komum með þér,“ sögðum við hinir. Við fórum en urðum ekki varir alla nóttina. 4 Við sólarupprás sáum við mann standa á ströndinni en við þekktum hann ekki. 5 Hann kallaði til okkar og sagði: „Hafið þið fengið nokkuð, drengir?“„Nei,“ svöruðum við. 6 „Kastið þá netinu hægra megin við bátinn og þá munuð þið fáʼann!“ kallaði hann. Þetta gerðum við og þá fylltist netið af fiski og var mergðin slík að við gátum ekki innbyrt það. 7 Þá sagði ég við Pétur: „Þetta er Drottinn!“ Þá snaraði Pétur sér úr treyjunni, stökk út í og synti að landi. 8 Við hinir vorum kyrrir í bátnum og drógum netið, sem var alveg fullt, á eftir okkur þennan spöl, sem við áttum ófarinn í land. 9 Þegar þangað kom, sáum við að þar hafði verið kveiktur eldur. Einnig var þar steiktur fiskur og brauð. 10 „Komið hingað með nokkra af fiskunum, sem þið veidduð,“ sagði Jesús. 11 Símon Pétur fór þá og dró netið á land og taldi úr því 153 stóra fiska. En þótt fjöldinn væri slíkur, hafði netið ekki rifnað. 12 „Komið, við skulum fá okkur að borða,“ sagði Jesús. Enginn okkar þorði að spyrja hann, hvort hann væri Drottinn í raun og veru, við vorum reyndar vissir um að svo væri. 13 Og hann skipti á milli okkar fiskunum og brauðinu. 14 Þetta var í þriðja sinn sem Jesús birtist okkur eftir upprisuna. 15 Að morgunverðinum loknum, sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jónasson, elskar þú mig meira en þeir hinir?“„Já,“ svaraði Pétur, „þú veist að ég elska þig.“Þá sagði Jesús við hann: „Gættu lamba minna.“ 16 Jesús endurtók spurninguna og sagði: „Símon Jónasson, elskar þú mig í raun og veru?“„Já, Drottinn,“ svaraði Pétur, „þú veist að ég elska þig.“ „Annastu sauði mína,“ sagði Jesús. 17 Og í þriðja sinn spurði Jesús hann: „Símon Jónasson, ert þú sannur vinur minn?“Pétur varð hryggur þegar hann heyrði Jesú spyrja þess sama í þriðja sinn og svaraði: „Drottinn, þú þekkir hjarta mitt og veist að ég elska þig.“„Gæt þú sauða minna,“ svaraði Jesús. 18 Síðan bætti hann við og sagði: „Þegar þú varst ungur, gerðirðu það sem þig langaði til og fórst hvert sem þú vildir. En þegar þú eldist muntu verða að rétta út hendur þínar og aðrir munu taka þig með valdi og fara með þig þangað sem þú vilt ekki.“ 19 Þetta sagði Jesús til að láta hann vita með hvaða hætti hann mundi deyja og vegsama Guð. Síðan sagði Jesús við hann: „Fylgdu mér!“ 20 Pétur sneri sér þá við og sá mig, lærisveininn sem Jesús elskaði, koma á eftir sér, en það var ég sem hafði hallað mér upp að Jesú við kvöldmáltíðarborðið og spurt: „Meistari, hver af okkur mun svíkja þig?“ 21 Pétur spurði því Jesú: „Hvað með hann, Drottinn? Hvernig mun hann deyja?“ 22 Jesús svaraði: „Hvað varðar þig um það, ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem aftur? En þú skalt fylgja mér.“ 23 Þetta varð til þess að sá orðrómur barst út meðal bræðranna að þessi lærisveinn mundi ekki deyja, en það hafði Jesús ekki sagt. Hann sagði aðeins: „Hvað varðar þig um það, ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem aftur?“ 24 Ég er þessi lærisveinn! Ég sá þessa atburði gerast og hef ritað um þá hér. Við vitum að frásögn mín er sönn. 25 Ég býst við að heimurinn mundi varla rúma allar þær bækur sem til yrðu, ef skrifa ætti allt sem gerðist í lífi Jesú.

In Other Versions

John 21 in the ANGEFD

John 21 in the ANTPNG2D

John 21 in the AS21

John 21 in the BAGH

John 21 in the BBPNG

John 21 in the BBT1E

John 21 in the BDS

John 21 in the BEV

John 21 in the BHAD

John 21 in the BIB

John 21 in the BLPT

John 21 in the BNT

John 21 in the BNTABOOT

John 21 in the BNTLV

John 21 in the BOATCB

John 21 in the BOATCB2

John 21 in the BOBCV

John 21 in the BOCNT

John 21 in the BOECS

John 21 in the BOGWICC

John 21 in the BOHCB

John 21 in the BOHCV

John 21 in the BOHLNT

John 21 in the BOHNTLTAL

John 21 in the BOICB

John 21 in the BOITCV

John 21 in the BOKCV

John 21 in the BOKCV2

John 21 in the BOKHWOG

John 21 in the BOKSSV

John 21 in the BOLCB

John 21 in the BOLCB2

John 21 in the BOMCV

John 21 in the BONAV

John 21 in the BONCB

John 21 in the BONLT

John 21 in the BONUT2

John 21 in the BOPLNT

John 21 in the BOSCB

John 21 in the BOSNC

John 21 in the BOTLNT

John 21 in the BOVCB

John 21 in the BOYCB

John 21 in the BPBB

John 21 in the BPH

John 21 in the BSB

John 21 in the CCB

John 21 in the CUV

John 21 in the CUVS

John 21 in the DBT

John 21 in the DGDNT

John 21 in the DHNT

John 21 in the DNT

John 21 in the ELBE

John 21 in the EMTV

John 21 in the ESV

John 21 in the FBV

John 21 in the FEB

John 21 in the GGMNT

John 21 in the GNT

John 21 in the HARY

John 21 in the HNT

John 21 in the IRVA

John 21 in the IRVB

John 21 in the IRVG

John 21 in the IRVH

John 21 in the IRVK

John 21 in the IRVM

John 21 in the IRVM2

John 21 in the IRVO

John 21 in the IRVP

John 21 in the IRVT

John 21 in the IRVT2

John 21 in the IRVU

John 21 in the ISVN

John 21 in the JSNT

John 21 in the KAPI

John 21 in the KBT1ETNIK

John 21 in the KBV

John 21 in the KJV

John 21 in the KNFD

John 21 in the LBA

John 21 in the LBLA

John 21 in the LNT

John 21 in the LSV

John 21 in the MAAL

John 21 in the MBV

John 21 in the MBV2

John 21 in the MHNT

John 21 in the MKNFD

John 21 in the MNG

John 21 in the MNT

John 21 in the MNT2

John 21 in the MRS1T

John 21 in the NAA

John 21 in the NASB

John 21 in the NBLA

John 21 in the NBS

John 21 in the NBVTP

John 21 in the NET2

John 21 in the NIV11

John 21 in the NNT

John 21 in the NNT2

John 21 in the NNT3

John 21 in the PDDPT

John 21 in the PFNT

John 21 in the RMNT

John 21 in the SBIAS

John 21 in the SBIBS

John 21 in the SBIBS2

John 21 in the SBICS

John 21 in the SBIDS

John 21 in the SBIGS

John 21 in the SBIHS

John 21 in the SBIIS

John 21 in the SBIIS2

John 21 in the SBIIS3

John 21 in the SBIKS

John 21 in the SBIKS2

John 21 in the SBIMS

John 21 in the SBIOS

John 21 in the SBIPS

John 21 in the SBISS

John 21 in the SBITS

John 21 in the SBITS2

John 21 in the SBITS3

John 21 in the SBITS4

John 21 in the SBIUS

John 21 in the SBIVS

John 21 in the SBT

John 21 in the SBT1E

John 21 in the SCHL

John 21 in the SNT

John 21 in the SUSU

John 21 in the SUSU2

John 21 in the SYNO

John 21 in the TBIAOTANT

John 21 in the TBT1E

John 21 in the TBT1E2

John 21 in the TFTIP

John 21 in the TFTU

John 21 in the TGNTATF3T

John 21 in the THAI

John 21 in the TNFD

John 21 in the TNT

John 21 in the TNTIK

John 21 in the TNTIL

John 21 in the TNTIN

John 21 in the TNTIP

John 21 in the TNTIZ

John 21 in the TOMA

John 21 in the TTENT

John 21 in the UBG

John 21 in the UGV

John 21 in the UGV2

John 21 in the UGV3

John 21 in the VBL

John 21 in the VDCC

John 21 in the YALU

John 21 in the YAPE

John 21 in the YBVTP

John 21 in the ZBP