Galatians 1 (BOILNTAP)

1 Frá Páli, boðbera Krists, og öðrum kristnum mönnum sem hér eru. 2 Til safnaðanna í Galatalandi.Köllun mína til kristniboðs fékk ég ekki frá hópi manna eða félagi, heldur frá Kristi Jesú sjálfum og Guði föður sem reisti Krist upp frá dauðum. 3 Friður og blessun Guðs föður og Drottins Jesú Krists sé með ykkur. 4 Kristur dó fyrir syndir okkar eins og Guð faðir hafði ætlast til, og frelsaði okkur frá öllu því illa sem ræður ríkjum í þessum heimi. 5 Dýrð sé Guði um aldir alda. Amen. 6 Ég undrast hve fljótt þið hafið snúið ykkur frá Guði, sem af kærleika sínum og miskunn bauð ykkur hlut í eilífa lífinu, sem hann gefur í Kristi. Þið eruð strax komin út á annan „veg til himins“, – veg sem hreint ekki liggur til himins! 7 Það er ekki um neina aðra leið að ræða en þá sem við bentum ykkur á. Þið hafið látið blekkjast af þeim sem rangsnúa sannleikanum um Krist. 8 Ef einhver boðar aðra leið til Guðs en þá sem við boðuðum ykkur, þá sé hann bölvaður, jafnvel þótt það væri ég eða engill frá himni. 9 Ég endurtek: Ef einhver boðar annað fagnaðarerindi en það sem þið hafið tekið á móti, þá komi bölvun Guðs yfir hann. 10 Ykkur er ljóst að ég er ekki að reyna að þóknast ykkur með fagurgala og smjaðri. Nei, ég reyni að þóknast Guði. Ef ég væri enn að reyna að þóknast mönnum, þá gæti ég ekki verið þjónn Krists. 11 Kæru vinir, sú leið til himins, sem ég predika, er ekki byggð á hugmyndum eða óskhyggju manna. 12 Boðskapur minn er frá sjálfum Kristi Jesú og engum öðrum! Það var hann sem lagði mér orð í munn. Hann einn uppfræddi mig. 13 Þið vitið hvernig ég var meðan ég var í Gyðingdómnum. Ég elti hina kristnu miskunnarlaust, kom þeim á kné og gerði mitt besta til að útrýma þeim. 14 Ég var einn trúhneigðasti Gyðingur landsins og reyndi eins og ég gat að fara eftir öllum gömlu siðareglum trúar minnar. 15 En skyndilega breyttist allt! Sannleikurinn er sá, að áður en ég fæddist, hafði Guð af miskunn sinni útvalið mig sér til eignar. 16 Síðan kallaði hann mig, því hann ætlaði mér að bera syni sínum vitni meðal heiðingjanna og kynna þeim gleðitíðindin um Jesú.Fyrst í stað sagði ég engum frá þessu. 17 Ég fór ekki til Jerúsalem til að ráðgast við þá sem höfðu orðið postular á undan mér, heldur fór ég til Arabíu. Síðan fór ég aftur til Damaskus. 18 Og loks þrem árum síðar fór ég til Jerúsalem til að heimsækja Pétur og dvaldist hjá honum í fimmtán daga. 19 Ég hitti aðeins einn annan postula, Jakob, bróður Drottins. 20 Þetta sem ég nú hef sagt ykkur er satt, það veit Guð. Þannig var þetta nákvæmlega, ég lýg ekki. 21 Eftir þessa heimsókn fór ég til Sýrlands og Kilikíu. 22 Hinir kristnu í Júdeu þekktu mig ekki persónulega. 23 Allt sem þeir vissu um mig, voru þessi ummæli: „Sá sem áður ofsótti, boðar nú trúna.“ 24 Og þeir lofuðu Guð vegna mín.

In Other Versions

Galatians 1 in the ANGEFD

Galatians 1 in the ANTPNG2D

Galatians 1 in the AS21

Galatians 1 in the BAGH

Galatians 1 in the BBPNG

Galatians 1 in the BBT1E

Galatians 1 in the BDS

Galatians 1 in the BEV

Galatians 1 in the BHAD

Galatians 1 in the BIB

Galatians 1 in the BLPT

Galatians 1 in the BNT

Galatians 1 in the BNTABOOT

Galatians 1 in the BNTLV

Galatians 1 in the BOATCB

Galatians 1 in the BOATCB2

Galatians 1 in the BOBCV

Galatians 1 in the BOCNT

Galatians 1 in the BOECS

Galatians 1 in the BOGWICC

Galatians 1 in the BOHCB

Galatians 1 in the BOHCV

Galatians 1 in the BOHLNT

Galatians 1 in the BOHNTLTAL

Galatians 1 in the BOICB

Galatians 1 in the BOITCV

Galatians 1 in the BOKCV

Galatians 1 in the BOKCV2

Galatians 1 in the BOKHWOG

Galatians 1 in the BOKSSV

Galatians 1 in the BOLCB

Galatians 1 in the BOLCB2

Galatians 1 in the BOMCV

Galatians 1 in the BONAV

Galatians 1 in the BONCB

Galatians 1 in the BONLT

Galatians 1 in the BONUT2

Galatians 1 in the BOPLNT

Galatians 1 in the BOSCB

Galatians 1 in the BOSNC

Galatians 1 in the BOTLNT

Galatians 1 in the BOVCB

Galatians 1 in the BOYCB

Galatians 1 in the BPBB

Galatians 1 in the BPH

Galatians 1 in the BSB

Galatians 1 in the CCB

Galatians 1 in the CUV

Galatians 1 in the CUVS

Galatians 1 in the DBT

Galatians 1 in the DGDNT

Galatians 1 in the DHNT

Galatians 1 in the DNT

Galatians 1 in the ELBE

Galatians 1 in the EMTV

Galatians 1 in the ESV

Galatians 1 in the FBV

Galatians 1 in the FEB

Galatians 1 in the GGMNT

Galatians 1 in the GNT

Galatians 1 in the HARY

Galatians 1 in the HNT

Galatians 1 in the IRVA

Galatians 1 in the IRVB

Galatians 1 in the IRVG

Galatians 1 in the IRVH

Galatians 1 in the IRVK

Galatians 1 in the IRVM

Galatians 1 in the IRVM2

Galatians 1 in the IRVO

Galatians 1 in the IRVP

Galatians 1 in the IRVT

Galatians 1 in the IRVT2

Galatians 1 in the IRVU

Galatians 1 in the ISVN

Galatians 1 in the JSNT

Galatians 1 in the KAPI

Galatians 1 in the KBT1ETNIK

Galatians 1 in the KBV

Galatians 1 in the KJV

Galatians 1 in the KNFD

Galatians 1 in the LBA

Galatians 1 in the LBLA

Galatians 1 in the LNT

Galatians 1 in the LSV

Galatians 1 in the MAAL

Galatians 1 in the MBV

Galatians 1 in the MBV2

Galatians 1 in the MHNT

Galatians 1 in the MKNFD

Galatians 1 in the MNG

Galatians 1 in the MNT

Galatians 1 in the MNT2

Galatians 1 in the MRS1T

Galatians 1 in the NAA

Galatians 1 in the NASB

Galatians 1 in the NBLA

Galatians 1 in the NBS

Galatians 1 in the NBVTP

Galatians 1 in the NET2

Galatians 1 in the NIV11

Galatians 1 in the NNT

Galatians 1 in the NNT2

Galatians 1 in the NNT3

Galatians 1 in the PDDPT

Galatians 1 in the PFNT

Galatians 1 in the RMNT

Galatians 1 in the SBIAS

Galatians 1 in the SBIBS

Galatians 1 in the SBIBS2

Galatians 1 in the SBICS

Galatians 1 in the SBIDS

Galatians 1 in the SBIGS

Galatians 1 in the SBIHS

Galatians 1 in the SBIIS

Galatians 1 in the SBIIS2

Galatians 1 in the SBIIS3

Galatians 1 in the SBIKS

Galatians 1 in the SBIKS2

Galatians 1 in the SBIMS

Galatians 1 in the SBIOS

Galatians 1 in the SBIPS

Galatians 1 in the SBISS

Galatians 1 in the SBITS

Galatians 1 in the SBITS2

Galatians 1 in the SBITS3

Galatians 1 in the SBITS4

Galatians 1 in the SBIUS

Galatians 1 in the SBIVS

Galatians 1 in the SBT

Galatians 1 in the SBT1E

Galatians 1 in the SCHL

Galatians 1 in the SNT

Galatians 1 in the SUSU

Galatians 1 in the SUSU2

Galatians 1 in the SYNO

Galatians 1 in the TBIAOTANT

Galatians 1 in the TBT1E

Galatians 1 in the TBT1E2

Galatians 1 in the TFTIP

Galatians 1 in the TFTU

Galatians 1 in the TGNTATF3T

Galatians 1 in the THAI

Galatians 1 in the TNFD

Galatians 1 in the TNT

Galatians 1 in the TNTIK

Galatians 1 in the TNTIL

Galatians 1 in the TNTIN

Galatians 1 in the TNTIP

Galatians 1 in the TNTIZ

Galatians 1 in the TOMA

Galatians 1 in the TTENT

Galatians 1 in the UBG

Galatians 1 in the UGV

Galatians 1 in the UGV2

Galatians 1 in the UGV3

Galatians 1 in the VBL

Galatians 1 in the VDCC

Galatians 1 in the YALU

Galatians 1 in the YAPE

Galatians 1 in the YBVTP

Galatians 1 in the ZBP