Hebrews 2 (BOILNTAP)
1 Munum þennan sannleika sem við höfum heyrt, svo að við villumst ekki burt frá honum. 2 Við vitum að boðskapur englanna reyndist sannur og við vitum líka að fólk hefur aldrei komist hjá hegningu, hafi það óhlýðnast honum. 3 Hvers vegna höldum við þá að við getum komist upp með kæruleysi, varðandi þetta mikla hjálpræði, sem sjálfur Drottinn Jesús flutti fyrst og þeir síðan, sem heyrðu hann tala? 4 Frá byrjun hefur Guð sýnt sannleiksgildi boðskaparins með táknum, undrun og margvíslegum kraftaverkum. Einnig hefur hann gefið þeim sem trúa sérstakar gjafir heilags anda, og slíkum gjöfum hefur hann úthlutað sérhverju okkar. 5 Hinn komandi heimur, sem við höfum talað um, mun ekki verða undir stjórn engla. 6 Það sést í Sálmunum. Þar spyr Davíð Guð: „Hvers virði er maðurinn, fyrst þú lætur þér svo annt um hann, sem raun ber vitni? Hver er þessi mannssonur sem þú metur svo mikils? 7 Þótt þú gerðir hann englum lægri skamma stund, hefur þú nú krýnt hann heiðri og dýrð 8 og sett hann yfir allt sem til er, og þar er ekkert undanskilið.“Enn höfum við ekki orðið vitni að öllu þessu, 9 en þó sjáum við Jesú – hann sem um stund var gerður englunum lægri – krýndan heiðri og dýrð af hendi Guðs, vegna þess að hann leið þjáningar dauðans okkar vegna. Vegna hins mikla kærleika Guðs, gekk Jesús í dauðann fyrir alla menn á þessari jörð. 10 Það var rétt af Guði, sem skapað hefur alla hluti sér til dýrðar, að láta Jesú þjást, því að á þann hátt fékk hann leitt mikinn fjölda af fólki sínu til himna – þá sem honum treysta. Vegna þjáninganna varð Jesús fullkominn leiðtogi, fær um að leiða fólkið til hjálpræðis. 11 Nú eigum við, sem Jesús hefur helgað, sama föður og hann og því blygðast Jesús sín ekki heldur fyrir að kalla okkur bræður og systur. 12 Hann segir í Sálmunum: „Ég vil tala við systkini mín um Guð, föður minn, og við munum lofsyngja hann sameiginlega.“ 13 Í annað sinn sagði hann: „Ég mun halda áfram að treysta Guði.“ Og í enn eitt skipti sagði hann: „Sjá, hér er ég og börnin, sem Guð gaf mér.“ 14 Fyrst við, börn Guðs, erum mannlegar verur holdi klæddar, þá varð hann einnig hold og blóð er hann fæddist sem maður, því aðeins á þann hátt gat hann dáið og með dauða sínum brotið vald djöfulsins, sem hafði vald dauðans. 15 Þetta var eina leið hans til að frelsa þá, sem hafa lifað allt sitt líf í stöðugum ótta við dauðann. 16 Við vitum öll að hann kom ekki sem engill, heldur sem maður – sem Gyðingur. 17 Það var nauðsynlegt að Jesús yrði líkur okkur bræðrum sínum, til þess að hann gæti orðið okkur trúr og miskunnsamur æðsti prestur, frammi fyrir Guði, prestur, sem bæði væri okkur náðugur og Guði trúr í því að friðþægja fyrir syndir mannanna. 18 Sjálfur stóðst hann allar þjáningar og freistingar. Hann þekkir vel líðan okkar þegar við þjáumst og verðum fyrir freistingum og þess vegna er hann fær um að hjálpa þeim, sem er freistað.
In Other Versions
Hebrews 2 in the ANGEFD
Hebrews 2 in the ANTPNG2D
Hebrews 2 in the AS21
Hebrews 2 in the BAGH
Hebrews 2 in the BBPNG
Hebrews 2 in the BBT1E
Hebrews 2 in the BDS
Hebrews 2 in the BEV
Hebrews 2 in the BHAD
Hebrews 2 in the BIB
Hebrews 2 in the BLPT
Hebrews 2 in the BNT
Hebrews 2 in the BNTABOOT
Hebrews 2 in the BNTLV
Hebrews 2 in the BOATCB
Hebrews 2 in the BOATCB2
Hebrews 2 in the BOBCV
Hebrews 2 in the BOCNT
Hebrews 2 in the BOECS
Hebrews 2 in the BOGWICC
Hebrews 2 in the BOHCB
Hebrews 2 in the BOHCV
Hebrews 2 in the BOHLNT
Hebrews 2 in the BOHNTLTAL
Hebrews 2 in the BOICB
Hebrews 2 in the BOITCV
Hebrews 2 in the BOKCV
Hebrews 2 in the BOKCV2
Hebrews 2 in the BOKHWOG
Hebrews 2 in the BOKSSV
Hebrews 2 in the BOLCB
Hebrews 2 in the BOLCB2
Hebrews 2 in the BOMCV
Hebrews 2 in the BONAV
Hebrews 2 in the BONCB
Hebrews 2 in the BONLT
Hebrews 2 in the BONUT2
Hebrews 2 in the BOPLNT
Hebrews 2 in the BOSCB
Hebrews 2 in the BOSNC
Hebrews 2 in the BOTLNT
Hebrews 2 in the BOVCB
Hebrews 2 in the BOYCB
Hebrews 2 in the BPBB
Hebrews 2 in the BPH
Hebrews 2 in the BSB
Hebrews 2 in the CCB
Hebrews 2 in the CUV
Hebrews 2 in the CUVS
Hebrews 2 in the DBT
Hebrews 2 in the DGDNT
Hebrews 2 in the DHNT
Hebrews 2 in the DNT
Hebrews 2 in the ELBE
Hebrews 2 in the EMTV
Hebrews 2 in the ESV
Hebrews 2 in the FBV
Hebrews 2 in the FEB
Hebrews 2 in the GGMNT
Hebrews 2 in the GNT
Hebrews 2 in the HARY
Hebrews 2 in the HNT
Hebrews 2 in the IRVA
Hebrews 2 in the IRVB
Hebrews 2 in the IRVG
Hebrews 2 in the IRVH
Hebrews 2 in the IRVK
Hebrews 2 in the IRVM
Hebrews 2 in the IRVM2
Hebrews 2 in the IRVO
Hebrews 2 in the IRVP
Hebrews 2 in the IRVT
Hebrews 2 in the IRVT2
Hebrews 2 in the IRVU
Hebrews 2 in the ISVN
Hebrews 2 in the JSNT
Hebrews 2 in the KAPI
Hebrews 2 in the KBT1ETNIK
Hebrews 2 in the KBV
Hebrews 2 in the KJV
Hebrews 2 in the KNFD
Hebrews 2 in the LBA
Hebrews 2 in the LBLA
Hebrews 2 in the LNT
Hebrews 2 in the LSV
Hebrews 2 in the MAAL
Hebrews 2 in the MBV
Hebrews 2 in the MBV2
Hebrews 2 in the MHNT
Hebrews 2 in the MKNFD
Hebrews 2 in the MNG
Hebrews 2 in the MNT
Hebrews 2 in the MNT2
Hebrews 2 in the MRS1T
Hebrews 2 in the NAA
Hebrews 2 in the NASB
Hebrews 2 in the NBLA
Hebrews 2 in the NBS
Hebrews 2 in the NBVTP
Hebrews 2 in the NET2
Hebrews 2 in the NIV11
Hebrews 2 in the NNT
Hebrews 2 in the NNT2
Hebrews 2 in the NNT3
Hebrews 2 in the PDDPT
Hebrews 2 in the PFNT
Hebrews 2 in the RMNT
Hebrews 2 in the SBIAS
Hebrews 2 in the SBIBS
Hebrews 2 in the SBIBS2
Hebrews 2 in the SBICS
Hebrews 2 in the SBIDS
Hebrews 2 in the SBIGS
Hebrews 2 in the SBIHS
Hebrews 2 in the SBIIS
Hebrews 2 in the SBIIS2
Hebrews 2 in the SBIIS3
Hebrews 2 in the SBIKS
Hebrews 2 in the SBIKS2
Hebrews 2 in the SBIMS
Hebrews 2 in the SBIOS
Hebrews 2 in the SBIPS
Hebrews 2 in the SBISS
Hebrews 2 in the SBITS
Hebrews 2 in the SBITS2
Hebrews 2 in the SBITS3
Hebrews 2 in the SBITS4
Hebrews 2 in the SBIUS
Hebrews 2 in the SBIVS
Hebrews 2 in the SBT
Hebrews 2 in the SBT1E
Hebrews 2 in the SCHL
Hebrews 2 in the SNT
Hebrews 2 in the SUSU
Hebrews 2 in the SUSU2
Hebrews 2 in the SYNO
Hebrews 2 in the TBIAOTANT
Hebrews 2 in the TBT1E
Hebrews 2 in the TBT1E2
Hebrews 2 in the TFTIP
Hebrews 2 in the TFTU
Hebrews 2 in the TGNTATF3T
Hebrews 2 in the THAI
Hebrews 2 in the TNFD
Hebrews 2 in the TNT
Hebrews 2 in the TNTIK
Hebrews 2 in the TNTIL
Hebrews 2 in the TNTIN
Hebrews 2 in the TNTIP
Hebrews 2 in the TNTIZ
Hebrews 2 in the TOMA
Hebrews 2 in the TTENT
Hebrews 2 in the UBG
Hebrews 2 in the UGV
Hebrews 2 in the UGV2
Hebrews 2 in the UGV3
Hebrews 2 in the VBL
Hebrews 2 in the VDCC
Hebrews 2 in the YALU
Hebrews 2 in the YAPE
Hebrews 2 in the YBVTP
Hebrews 2 in the ZBP