Luke 13 (BOILNTAP)

1 Um þetta leyti frétti Jesús að Pílatus hefði látið drepa nokkra Galíleumenn, sem voru að bera fram fórnir í musterinu í Jerúsalem. 2 „Haldið þið að þeir hafi verið meiri syndarar en Galíleumenn almennt?“ spurði hann. „Er það ástæðan fyrir þjáningum þeirra? 3 Nei, alls ekki! Skiljið þið ekki að sjálfir munuð þið farast, nema þið snúið ykkur frá syndinni og til Guðs? 4 Hvað um mennina átján, sem dóu þegar Sílóamturninn hrundi? Voru þeir verstu syndarar í Jerúsalem? 5 Nei, hreint ekki! Og þið munuð sjálfir týna lífi og glatast, ef þið gerið ekki iðrun.“ 6 Því næst sagði Jesús þeim þessa dæmisögu: „Maður nokkur gróðursetti fíkjutré í garði sínum. Oft leitaði hann ávaxta á því, en sér til mikilla vonbrigða fann hann enga. 7 Að lokum skipaði hann garðyrkjumanni sínum að höggva tréð upp. „Ég hef beðið í þrjú ár og það hefur ekki borið eina einustu fíkju,“ sagði hann. „Til hvers er að standa í þessu lengur? Það er bara fyrir.“ 8 „Gefum því enn eitt tækifæri,“ sagði garðyrkjumaðurinn. „Látum það standa eitt ár enn og við skulum hugsa sérstaklega vel um það og bera vel á. 9 Ef við fáum fíkjur eftir árið, þá er allt í lagi. Ef það ber ekki ávöxt, þá fellum við það“.“ 10 Helgidag einn var Jesús að kenna í einu af samkomuhúsunum. 11 Tók hann þá eftir konu sem var illa bækluð. Hún hafði verið krypplingur í átján ár og gat ekki rétt úr sér. 12 Jesús kallaði hana til sín og sagði: „Kona, þú ert læknuð af sjúkdómi þínum.“ 13 Og um leið og hann snerti hana rétti hún úr sér og lofaði Guð! 14 En forstöðumaður samkomuhússins varð mjög reiður vegna þess að Jesús skyldi hafa læknað hana á helgidegi og hrópaði: „Við höfum sex daga til að vinna í viku hverri! Komið þá og látið lækna ykkur, en ekki á hvíldardögum.“ 15 „Hræsnarar,“ svaraði Jesús, „þið vinnið á helgidögum. Leysið þið ekki nautgripina af stalli til að brynna þeim jafnt á helgidögum sem aðra daga? 16 Er þá rangt af mér að leysa þessa konu úr fjötrum, sem Satan hefur haldið henni í, í átján ár, aðeins vegna þess að það er hvíldardagur?“ 17 Óvinir hans urðu skömmustulegir við þessi orð, en fólkið gladdist vegna dásemdarverkanna sem hann vann. 18 Jesús tók á ný að ræða við fólkið um guðsríki og spurði: „Hverju líkist guðsríki? Við hvað á ég að líkja því? 19 Það er líkt örsmáu sinnepsfræi, sem sáð er í mold. Áður en langt um líður er það orðið að hávöxnum runna, þar sem fuglarnir byggja hreiður sín. 20 20,21 Því má einnig líkja við ger sem hnoðað hefur verið saman við deig, svo það hverfur í deigið, en samt lyftir það öllu deiginu.“ 22 Eftir þetta lagði Jesús af stað til Jerúsalem og kom við í mörgum bæjum og þorpum á leiðinni. 23 Eitt sinn var hann spurður þessarar spurningar: „Verða þeir fáir sem frelsast?“ 24 24,25 „Reynið að komast inn um þröngu dyrnar,“ svaraði Jesús, „því að margir munu reyna að komast þangað inn án árangurs, og þegar húsbóndinn hefur læst dyrunum verður það ekki lengur hægt. Ef þið standið þá fyrir utan, berjið og hrópið: „Drottinn, opnaðu fyrir okkur,“ mun hann svara: „Ég þekki ykkur ekki.“ 26 „Já, en… við átum og drukkum með þér og þú kenndir í þorpinu okkar,“ segið þið. 27 En ég svara: „Ég segi ykkur satt: Ég þekki ykkur ekki. Þið getið ekki komist hingað inn, því að þið eruð sekir. Burt með ykkur.“ 28 Þið munuð gráta og kveina þegar þið standið fyrir utan og sjáið Abraham, Ísak, Jakob og alla spámennina í guðsríki. 29 Því þangað mun fólk streyma hvaðanæva, úr öllum heiminum, og taka þar sæti sín. 30 Takið eftir: Sumir sem nú eru fyrirlitnir, munu þá hljóta heiður, en aðrir sem nú eru í hávegum hafðir, verða þá taldir sístir allra.“ 31 Í sama bili komu nokkrir farísear til hans og sögðu: „Ef þú vilt sleppa lifandi, komdu þér þá héðan sem fyrst, því Heródes konungur situr um líf þitt.“ 32 „Farið og segið þeim ref,“ svaraði Jesús, „að ég muni halda áfram að reka út illa anda og lækna í dag og á morgun, en þriðja daginn lýk ég mér af. 33 Jafnframt þessu mun ég halda áfram ferð minni til Jerúsalem, því ekki hæfir að spámaður láti lífið annars staðar en þar. 34 Ó, Jerúsalem, Jerúsalem! Borgin, sem líflætur spámennina og grýtir þá sem sendir eru henni til hjálpar. Oft hef ég viljað safna börnum þínum saman, rétt eins og hæna verndar unga sína undir vængjum sér, en þið hafið ekki viljað það. 35 Hús ykkar skulu verða skilin eftir í eyði og þið munuð ekki sjá mig aftur fyrr en þið segið: „Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins.“ “

In Other Versions

Luke 13 in the ANGEFD

Luke 13 in the ANTPNG2D

Luke 13 in the AS21

Luke 13 in the BAGH

Luke 13 in the BBPNG

Luke 13 in the BBT1E

Luke 13 in the BDS

Luke 13 in the BEV

Luke 13 in the BHAD

Luke 13 in the BIB

Luke 13 in the BLPT

Luke 13 in the BNT

Luke 13 in the BNTABOOT

Luke 13 in the BNTLV

Luke 13 in the BOATCB

Luke 13 in the BOATCB2

Luke 13 in the BOBCV

Luke 13 in the BOCNT

Luke 13 in the BOECS

Luke 13 in the BOGWICC

Luke 13 in the BOHCB

Luke 13 in the BOHCV

Luke 13 in the BOHLNT

Luke 13 in the BOHNTLTAL

Luke 13 in the BOICB

Luke 13 in the BOITCV

Luke 13 in the BOKCV

Luke 13 in the BOKCV2

Luke 13 in the BOKHWOG

Luke 13 in the BOKSSV

Luke 13 in the BOLCB

Luke 13 in the BOLCB2

Luke 13 in the BOMCV

Luke 13 in the BONAV

Luke 13 in the BONCB

Luke 13 in the BONLT

Luke 13 in the BONUT2

Luke 13 in the BOPLNT

Luke 13 in the BOSCB

Luke 13 in the BOSNC

Luke 13 in the BOTLNT

Luke 13 in the BOVCB

Luke 13 in the BOYCB

Luke 13 in the BPBB

Luke 13 in the BPH

Luke 13 in the BSB

Luke 13 in the CCB

Luke 13 in the CUV

Luke 13 in the CUVS

Luke 13 in the DBT

Luke 13 in the DGDNT

Luke 13 in the DHNT

Luke 13 in the DNT

Luke 13 in the ELBE

Luke 13 in the EMTV

Luke 13 in the ESV

Luke 13 in the FBV

Luke 13 in the FEB

Luke 13 in the GGMNT

Luke 13 in the GNT

Luke 13 in the HARY

Luke 13 in the HNT

Luke 13 in the IRVA

Luke 13 in the IRVB

Luke 13 in the IRVG

Luke 13 in the IRVH

Luke 13 in the IRVK

Luke 13 in the IRVM

Luke 13 in the IRVM2

Luke 13 in the IRVO

Luke 13 in the IRVP

Luke 13 in the IRVT

Luke 13 in the IRVT2

Luke 13 in the IRVU

Luke 13 in the ISVN

Luke 13 in the JSNT

Luke 13 in the KAPI

Luke 13 in the KBT1ETNIK

Luke 13 in the KBV

Luke 13 in the KJV

Luke 13 in the KNFD

Luke 13 in the LBA

Luke 13 in the LBLA

Luke 13 in the LNT

Luke 13 in the LSV

Luke 13 in the MAAL

Luke 13 in the MBV

Luke 13 in the MBV2

Luke 13 in the MHNT

Luke 13 in the MKNFD

Luke 13 in the MNG

Luke 13 in the MNT

Luke 13 in the MNT2

Luke 13 in the MRS1T

Luke 13 in the NAA

Luke 13 in the NASB

Luke 13 in the NBLA

Luke 13 in the NBS

Luke 13 in the NBVTP

Luke 13 in the NET2

Luke 13 in the NIV11

Luke 13 in the NNT

Luke 13 in the NNT2

Luke 13 in the NNT3

Luke 13 in the PDDPT

Luke 13 in the PFNT

Luke 13 in the RMNT

Luke 13 in the SBIAS

Luke 13 in the SBIBS

Luke 13 in the SBIBS2

Luke 13 in the SBICS

Luke 13 in the SBIDS

Luke 13 in the SBIGS

Luke 13 in the SBIHS

Luke 13 in the SBIIS

Luke 13 in the SBIIS2

Luke 13 in the SBIIS3

Luke 13 in the SBIKS

Luke 13 in the SBIKS2

Luke 13 in the SBIMS

Luke 13 in the SBIOS

Luke 13 in the SBIPS

Luke 13 in the SBISS

Luke 13 in the SBITS

Luke 13 in the SBITS2

Luke 13 in the SBITS3

Luke 13 in the SBITS4

Luke 13 in the SBIUS

Luke 13 in the SBIVS

Luke 13 in the SBT

Luke 13 in the SBT1E

Luke 13 in the SCHL

Luke 13 in the SNT

Luke 13 in the SUSU

Luke 13 in the SUSU2

Luke 13 in the SYNO

Luke 13 in the TBIAOTANT

Luke 13 in the TBT1E

Luke 13 in the TBT1E2

Luke 13 in the TFTIP

Luke 13 in the TFTU

Luke 13 in the TGNTATF3T

Luke 13 in the THAI

Luke 13 in the TNFD

Luke 13 in the TNT

Luke 13 in the TNTIK

Luke 13 in the TNTIL

Luke 13 in the TNTIN

Luke 13 in the TNTIP

Luke 13 in the TNTIZ

Luke 13 in the TOMA

Luke 13 in the TTENT

Luke 13 in the UBG

Luke 13 in the UGV

Luke 13 in the UGV2

Luke 13 in the UGV3

Luke 13 in the VBL

Luke 13 in the VDCC

Luke 13 in the YALU

Luke 13 in the YAPE

Luke 13 in the YBVTP

Luke 13 in the ZBP