Luke 5 (BOILNTAP)

1 Dag einn var hann að predika niðri við strönd Genesaretvatnsins. Fólkið þyrptist að og þrengdi að honum, því allir vildu heyra orð Guðs. 2 Hann tók þá eftir tveim mannlausum bátum í fjörunni – áhafnirnar voru þar skammt frá að þvo net sín. 3 Jesús fór út í annan bátinn og bað eigandann, Símon, að leggja lítið eitt frá landi, svo hann gæti setið í bátnum og talað þaðan til mannfjöldans. 4 Þegar hann hafði lokið máli sínu sagði hann við Símon: „Farðu nú út á dýpið og leggðu netin.“ 5 „Herra,“ svaraði Símon, „við höfum verið að í alla nótt og ekki orðið varir, en fyrst þú segir það, þá skulum við reyna.“ 6 Í þetta skipti varð veiðin svo mikil að netin rifnuðu! 7 Þá kölluðu þeir til félaga sinna á hinum bátnum og báðu þá að hjálpa sér. Ekki leið á löngu uns þeir höfðu drekkhlaðið báða bátana. 8 Þegar Símon Pétur sá þetta, féll hann að fótum Jesú og sagði: „Farðu frá mér, herra, ég er of syndugur til að vera nálægt þér.“ 9 9,10 Bæði hann og félagar hans, Jakob og Jóhannes Sebedeussynir, voru gagnteknir af undrun á öllum þessum afla.En Jesús sagði við Símon: „Vertu óhræddur! Héðan í frá skaltu veiða menn.“ 11 Þegar þeir höfðu landað aflanum yfirgáfu þeir allt og fylgdu honum. 12 Svo bar við, er Jesús var staddur í einu þorpinu, að hann mætti manni sem þjáðist af holdsveiki. Þegar maðurinn sá Jesú, fleygði hann sér í götuna fyrir framan hann og grátbað hann að lækna sig.„Herra, þú getur læknað mig ef þú vilt,“ sagði hann. 13 Jesús rétti út höndina, snerti manninn og sagði: „Ég vil að þú verðir heilbrigður.“ Um leið hvarf holdsveikin! 14 Jesús bað manninn að segja þetta engum, en fara strax og láta prestinn skoða sig. „Fórnaðu síðan því sem lög Móse fyrirskipa þeim sem læknast af holdsveiki,“ bætti Jesús við, „því það er sönnun þess að þér sé batnað.“ 15 Orðrómurinn um mátt Jesú breiddist nú æ hraðar út og mikill mannfjöldi kom til að hlusta á hann og fá bót meina sinna. 16 Oft dró hann sig þó út úr á óbyggða staði og var þar á bæn. 17 Einn daginn, er hann var að kenna, sátu þar nokkrir af leiðtogum og fræðimönnum þjóðarinnar. (Þeir komu úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og einnig frá Jerúsalem.) Lækningakraftur frá Guði var með Jesú þegar þetta var. 18 18,19 Þá komu nokkrir menn og báru á milli sín lamaðan mann á dýnu. Þeir reyndu að olnboga sig í gegnum þvöguna og inn til Jesú, en án árangurs. Þá fóru þeir upp á þakið, losuðu nokkrar þakhellur og létu þann lamaða síga á dýnunni niður til Jesú. 20 Þegar Jesús sá trú þeirra sagði hann við lamaða manninn: „Vinur minn, syndir þínar eru fyrirgefnar.“ 21 „Hvað heldur maðurinn að hann sé,“ sögðu farísearnir og lögvitringarnir hvorir við aðra. „Þetta er guðlast! Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð?“ 22 Jesús vissi hvað þeir hugsuðu og svaraði: „Hvers vegna kallið þið þetta guðlast? 23 Hvort er auðveldara að fyrirgefa syndir hans eða lækna hann? 24 Nú ætla ég að lækna hann og sanna þar með að ég hef vald til að fyrirgefa syndir.“ Síðan sneri hann sér að lamaða manninum og sagði ákveðinn: „Taktu dýnuna þína og farðu heim, því nú ertu orðinn heilbrigður.“ 25 Samstundis spratt maðurinn á fætur í augsýn allra, tók dýnuna sína, gekk heimleiðis og lofaði Guð! 26 Fólkið varð óttaslegið, lofaði Guð og sagði hvað eftir annað: „Við höfum séð ótrúlega hluti í dag.“ 27 Síðar er Jesús var á leið út úr þessum bæ, sá hann skattheimtumann, Leví að nafni, sitja hjá skattstofunni. Það var á allra vitorði að skattheimtumenn þessir sviku fé út úr fólki. Jesús gekk til Leví og sagði: „Komdu og vertu lærisveinn minn.“ 28 Leví stóð þá samstundis upp, yfirgaf allt og fylgdi Jesú. 29 Stuttu síðar efndi Leví til veislu og var Jesús heiðursgesturinn. Þarna voru samankomnir margir vinnufélagar Leví, svo og aðrir gestir. 30 Farísearnir og lögvitringarnir komu þá til lærisveina Jesú og kvörtuðu um að Jesús borðaði með slíkum stórsyndurum. 31 Jesús varð fyrir svörum og sagði: „Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru. 32 Ég kom til að kalla syndara burt frá syndinni, en ekki til að eyða tíma með þeim sem þegar telja sig nógu góða.“ 33 Það næsta sem þeim fannst þeir þurfa að gera athugasemd við, var að lærisveinarnir væru í veislu í stað þess að fasta. „Lærisveinar Jóhannesar skírara fasta oft og biðja,“ sögðu þeir, „einnig lærisveinar faríseanna, en af hverju eru þínir alltaf étandi og drekkandi?“ 34 „Segið mér eitt, fasta menn þegar þeir halda hátíð?“ sagði Jesús. „Er veislumatnum sleppt í brúðkaupsveislum? 35 Sá tími mun hins vegar koma er brúðguminn verður tekinn og líflátinn og þá mun þá ekki langa í mat.“ 36 Jesús sagði þeim dæmisögu: „Enginn rífur pjötlu af nýjum fötum til að bæta gamla flík. Þá eyðileggjast ekki aðeins nýju fötin, heldur lítur gamla flíkin verr út en áður! 37 Enginn setur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir nýja vínið belgina og það fer til spillis og belgirnir eyðileggjast. 38 Nýtt vín verður að láta á nýja belgi. 39 Sá sem drukkið hefur gamalt vín, hefur ekki áhuga á nýju. „Það gamla er ljúffengara segir hann.“

In Other Versions

Luke 5 in the ANGEFD

Luke 5 in the ANTPNG2D

Luke 5 in the AS21

Luke 5 in the BAGH

Luke 5 in the BBPNG

Luke 5 in the BBT1E

Luke 5 in the BDS

Luke 5 in the BEV

Luke 5 in the BHAD

Luke 5 in the BIB

Luke 5 in the BLPT

Luke 5 in the BNT

Luke 5 in the BNTABOOT

Luke 5 in the BNTLV

Luke 5 in the BOATCB

Luke 5 in the BOATCB2

Luke 5 in the BOBCV

Luke 5 in the BOCNT

Luke 5 in the BOECS

Luke 5 in the BOGWICC

Luke 5 in the BOHCB

Luke 5 in the BOHCV

Luke 5 in the BOHLNT

Luke 5 in the BOHNTLTAL

Luke 5 in the BOICB

Luke 5 in the BOITCV

Luke 5 in the BOKCV

Luke 5 in the BOKCV2

Luke 5 in the BOKHWOG

Luke 5 in the BOKSSV

Luke 5 in the BOLCB

Luke 5 in the BOLCB2

Luke 5 in the BOMCV

Luke 5 in the BONAV

Luke 5 in the BONCB

Luke 5 in the BONLT

Luke 5 in the BONUT2

Luke 5 in the BOPLNT

Luke 5 in the BOSCB

Luke 5 in the BOSNC

Luke 5 in the BOTLNT

Luke 5 in the BOVCB

Luke 5 in the BOYCB

Luke 5 in the BPBB

Luke 5 in the BPH

Luke 5 in the BSB

Luke 5 in the CCB

Luke 5 in the CUV

Luke 5 in the CUVS

Luke 5 in the DBT

Luke 5 in the DGDNT

Luke 5 in the DHNT

Luke 5 in the DNT

Luke 5 in the ELBE

Luke 5 in the EMTV

Luke 5 in the ESV

Luke 5 in the FBV

Luke 5 in the FEB

Luke 5 in the GGMNT

Luke 5 in the GNT

Luke 5 in the HARY

Luke 5 in the HNT

Luke 5 in the IRVA

Luke 5 in the IRVB

Luke 5 in the IRVG

Luke 5 in the IRVH

Luke 5 in the IRVK

Luke 5 in the IRVM

Luke 5 in the IRVM2

Luke 5 in the IRVO

Luke 5 in the IRVP

Luke 5 in the IRVT

Luke 5 in the IRVT2

Luke 5 in the IRVU

Luke 5 in the ISVN

Luke 5 in the JSNT

Luke 5 in the KAPI

Luke 5 in the KBT1ETNIK

Luke 5 in the KBV

Luke 5 in the KJV

Luke 5 in the KNFD

Luke 5 in the LBA

Luke 5 in the LBLA

Luke 5 in the LNT

Luke 5 in the LSV

Luke 5 in the MAAL

Luke 5 in the MBV

Luke 5 in the MBV2

Luke 5 in the MHNT

Luke 5 in the MKNFD

Luke 5 in the MNG

Luke 5 in the MNT

Luke 5 in the MNT2

Luke 5 in the MRS1T

Luke 5 in the NAA

Luke 5 in the NASB

Luke 5 in the NBLA

Luke 5 in the NBS

Luke 5 in the NBVTP

Luke 5 in the NET2

Luke 5 in the NIV11

Luke 5 in the NNT

Luke 5 in the NNT2

Luke 5 in the NNT3

Luke 5 in the PDDPT

Luke 5 in the PFNT

Luke 5 in the RMNT

Luke 5 in the SBIAS

Luke 5 in the SBIBS

Luke 5 in the SBIBS2

Luke 5 in the SBICS

Luke 5 in the SBIDS

Luke 5 in the SBIGS

Luke 5 in the SBIHS

Luke 5 in the SBIIS

Luke 5 in the SBIIS2

Luke 5 in the SBIIS3

Luke 5 in the SBIKS

Luke 5 in the SBIKS2

Luke 5 in the SBIMS

Luke 5 in the SBIOS

Luke 5 in the SBIPS

Luke 5 in the SBISS

Luke 5 in the SBITS

Luke 5 in the SBITS2

Luke 5 in the SBITS3

Luke 5 in the SBITS4

Luke 5 in the SBIUS

Luke 5 in the SBIVS

Luke 5 in the SBT

Luke 5 in the SBT1E

Luke 5 in the SCHL

Luke 5 in the SNT

Luke 5 in the SUSU

Luke 5 in the SUSU2

Luke 5 in the SYNO

Luke 5 in the TBIAOTANT

Luke 5 in the TBT1E

Luke 5 in the TBT1E2

Luke 5 in the TFTIP

Luke 5 in the TFTU

Luke 5 in the TGNTATF3T

Luke 5 in the THAI

Luke 5 in the TNFD

Luke 5 in the TNT

Luke 5 in the TNTIK

Luke 5 in the TNTIL

Luke 5 in the TNTIN

Luke 5 in the TNTIP

Luke 5 in the TNTIZ

Luke 5 in the TOMA

Luke 5 in the TTENT

Luke 5 in the UBG

Luke 5 in the UGV

Luke 5 in the UGV2

Luke 5 in the UGV3

Luke 5 in the VBL

Luke 5 in the VDCC

Luke 5 in the YALU

Luke 5 in the YAPE

Luke 5 in the YBVTP

Luke 5 in the ZBP