1 John 3 (BOILNTAP)

1 Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn á himnum hefur sýnt okkur, að við megum kallast hans börn og það erum við sannarlega! En fáir þekkja Guð og því skilur fólk ekki að við erum börnin hans. 2 Kæru vinir, nú erum við Guðs börn, einmitt núna, og við getum ekki ímyndað okkur hvað við eigum í vændum. Eitt vitum við þó: Þegar hann kemur verðum við eins og hann, því að þá munum við sjá hann eins og hann raunverulega er. 3 Sá sem þráir þetta í einlægni reynir að varðveita hreinleika sinn, því að Kristur er hreinn. 4 En þeir, sem halda áfram að syndga, standa í gegn Guði, því að öll synd er andstæð vilja hans. 5 Þið vitið að hann gerðist maður til að geta tekið burt syndir okkar og í honum finnst engin synd. 6 Ef við höldum okkur nálægt honum og hlýðum honum, munum við forðast að syndga. Þeir sem halda áfram að syndga, gera það vegna þess að þeir hafa aldrei kynnst Guði í raun og veru né orðið börn hans. 7 Börnin mín, látið engan villa um fyrir ykkur varðandi þetta: Ef þið haldið áfram að gera það sem rétt er, þá er það vegna þess að þið eruð réttlát eins og Guð. 8 En ef þið haldið áfram að syndga er það merki þess að þið tilheyrið Satani, honum, sem haldið hefur áfram að syndga allt frá því hann drýgði sína fyrstu synd. Sonur Guðs kom til að brjóta niður verk djöfulsins – syndina. 9 Sá sem er fæddur inn í fjölskyldu Guðs, syndgar ekki af ásettu ráði, því að Guð lifir í honum. Hann getur ekki haldið áfram í synd, því að hann hefur öðlast nýtt líf frá Guði. Guð hefur vakið það innra með honum og stjórnar honum, hann hefur endurfæðst. 10 Á þessu getum við séð hver er Guðs barn og hver tilheyrir hinum vonda. Hver sem lifir syndugu lífi og er illa við meðbróður sinn, sýnir að hann tilheyrir ekki fjölskyldu Guðs, 11 því að boðskapurinn sem við fengum í upphafi, var sá að við ættum að elska hvert annað. 12 Verum ekki eins og Kain, sem tilheyrði Satani og drap bróður sinn. Hvers vegna myrti Kain Abel? Vegna þess að Kain hafði vanið sig á að gera það sem rangt var og vissi að líferni bróður síns var betra en hans. 13 Kæru vinir, undrist því ekki þótt heimurinn hati ykkur. 14 Ef við elskum meðbræður okkar, þá er ljóst að okkur hefur verið gefið eilíft líf og forðað frá helvíti. Sá sem ekki ber kærleika til annarra, stefnir í eilífan dauða. 15 Sá sem hatar meðbróður sinn er í raun og veru morðingi og sá sem hyggur á morð, getur ekki átt eilíft líf. 16 Við vitum að sannur kærleikur birtist í því að Kristur dó fyrir okkur, við ættum því einnig að fórna lífi okkar fyrir meðbræðurna. 17 Segjum svo að einhver telji sig kristinn og hafi allt til alls, en horfi svo á þurfandi bróður sinn án þess að rétta honum hjálparhönd. Hvernig getur slíkur maður átt í sér kærleika Guðs? 18 Börnin mín, það dugir ekki lengur að segja að við elskum fólk. Við verðum að elska það í raun og veru og sýna það í verki. 19 Ef við gerum það, þá getum við verið viss um að við tilheyrum Guði – vegna verka okkar – og þá höfum við hreina samvisku gagnvart Drottni. 20 En ef við höfum slæma samvisku og finnum að við höfum gert rangt, þá veit Drottinn enn betur, því að hann þekkir öll okkar verk. 21 Elskulegu vinir, sé samviska okkar hrein, getum við komið til Drottins í djörfung 22 og fengið allt, sem við biðjum hann um, vegna þess að við hlýðum honum og gerum það sem honum er þóknanlegt. 23 Þetta vill Guð að við gerum: Trúum á nafn sonar hans, Jesú Krists, og elskum hvert annað. 24 Þeir, sem hlýða Guði, lifa með Guði og hann með þeim. Við vitum að þetta er satt, því að heilagur andi, sem hann hefur gefið okkur, hefur sagt okkur það.

In Other Versions

1 John 3 in the ANGEFD

1 John 3 in the ANTPNG2D

1 John 3 in the AS21

1 John 3 in the BAGH

1 John 3 in the BBPNG

1 John 3 in the BBT1E

1 John 3 in the BDS

1 John 3 in the BEV

1 John 3 in the BHAD

1 John 3 in the BIB

1 John 3 in the BLPT

1 John 3 in the BNT

1 John 3 in the BNTABOOT

1 John 3 in the BNTLV

1 John 3 in the BOATCB

1 John 3 in the BOATCB2

1 John 3 in the BOBCV

1 John 3 in the BOCNT

1 John 3 in the BOECS

1 John 3 in the BOGWICC

1 John 3 in the BOHCB

1 John 3 in the BOHCV

1 John 3 in the BOHLNT

1 John 3 in the BOHNTLTAL

1 John 3 in the BOICB

1 John 3 in the BOITCV

1 John 3 in the BOKCV

1 John 3 in the BOKCV2

1 John 3 in the BOKHWOG

1 John 3 in the BOKSSV

1 John 3 in the BOLCB

1 John 3 in the BOLCB2

1 John 3 in the BOMCV

1 John 3 in the BONAV

1 John 3 in the BONCB

1 John 3 in the BONLT

1 John 3 in the BONUT2

1 John 3 in the BOPLNT

1 John 3 in the BOSCB

1 John 3 in the BOSNC

1 John 3 in the BOTLNT

1 John 3 in the BOVCB

1 John 3 in the BOYCB

1 John 3 in the BPBB

1 John 3 in the BPH

1 John 3 in the BSB

1 John 3 in the CCB

1 John 3 in the CUV

1 John 3 in the CUVS

1 John 3 in the DBT

1 John 3 in the DGDNT

1 John 3 in the DHNT

1 John 3 in the DNT

1 John 3 in the ELBE

1 John 3 in the EMTV

1 John 3 in the ESV

1 John 3 in the FBV

1 John 3 in the FEB

1 John 3 in the GGMNT

1 John 3 in the GNT

1 John 3 in the HARY

1 John 3 in the HNT

1 John 3 in the IRVA

1 John 3 in the IRVB

1 John 3 in the IRVG

1 John 3 in the IRVH

1 John 3 in the IRVK

1 John 3 in the IRVM

1 John 3 in the IRVM2

1 John 3 in the IRVO

1 John 3 in the IRVP

1 John 3 in the IRVT

1 John 3 in the IRVT2

1 John 3 in the IRVU

1 John 3 in the ISVN

1 John 3 in the JSNT

1 John 3 in the KAPI

1 John 3 in the KBT1ETNIK

1 John 3 in the KBV

1 John 3 in the KJV

1 John 3 in the KNFD

1 John 3 in the LBA

1 John 3 in the LBLA

1 John 3 in the LNT

1 John 3 in the LSV

1 John 3 in the MAAL

1 John 3 in the MBV

1 John 3 in the MBV2

1 John 3 in the MHNT

1 John 3 in the MKNFD

1 John 3 in the MNG

1 John 3 in the MNT

1 John 3 in the MNT2

1 John 3 in the MRS1T

1 John 3 in the NAA

1 John 3 in the NASB

1 John 3 in the NBLA

1 John 3 in the NBS

1 John 3 in the NBVTP

1 John 3 in the NET2

1 John 3 in the NIV11

1 John 3 in the NNT

1 John 3 in the NNT2

1 John 3 in the NNT3

1 John 3 in the PDDPT

1 John 3 in the PFNT

1 John 3 in the RMNT

1 John 3 in the SBIAS

1 John 3 in the SBIBS

1 John 3 in the SBIBS2

1 John 3 in the SBICS

1 John 3 in the SBIDS

1 John 3 in the SBIGS

1 John 3 in the SBIHS

1 John 3 in the SBIIS

1 John 3 in the SBIIS2

1 John 3 in the SBIIS3

1 John 3 in the SBIKS

1 John 3 in the SBIKS2

1 John 3 in the SBIMS

1 John 3 in the SBIOS

1 John 3 in the SBIPS

1 John 3 in the SBISS

1 John 3 in the SBITS

1 John 3 in the SBITS2

1 John 3 in the SBITS3

1 John 3 in the SBITS4

1 John 3 in the SBIUS

1 John 3 in the SBIVS

1 John 3 in the SBT

1 John 3 in the SBT1E

1 John 3 in the SCHL

1 John 3 in the SNT

1 John 3 in the SUSU

1 John 3 in the SUSU2

1 John 3 in the SYNO

1 John 3 in the TBIAOTANT

1 John 3 in the TBT1E

1 John 3 in the TBT1E2

1 John 3 in the TFTIP

1 John 3 in the TFTU

1 John 3 in the TGNTATF3T

1 John 3 in the THAI

1 John 3 in the TNFD

1 John 3 in the TNT

1 John 3 in the TNTIK

1 John 3 in the TNTIL

1 John 3 in the TNTIN

1 John 3 in the TNTIP

1 John 3 in the TNTIZ

1 John 3 in the TOMA

1 John 3 in the TTENT

1 John 3 in the UBG

1 John 3 in the UGV

1 John 3 in the UGV2

1 John 3 in the UGV3

1 John 3 in the VBL

1 John 3 in the VDCC

1 John 3 in the YALU

1 John 3 in the YAPE

1 John 3 in the YBVTP

1 John 3 in the ZBP