Acts 19 (BOILNTAP)

1 Meðan Apollós var í Korintu, var Páll á ferðalagi um Litlu-Asíu. Hann kom til Efesus, hitti þar nokkra lærisveina 2 og spurði: „Fenguð þið heilagan anda þegar þið tókuð trú?“„Nei,“ svöruðu þeir, „Hvað áttu við? Hvað er heilagur andi?“ 3 „Hvaða skírn eruð þið skírðir?“ spurði hann. „Skírn Jóhannesar,“ svöruðu þeir. 4 Benti Páll þeim á að skírn Jóhannesar hefði verið iðrunarskírn fyrir þá sem vildu snúa sér frá syndinni og til Guðs, en að henni lokinni yrðu menn að taka trú á Jesú, þann sem Jóhannes hafði sagt að kæmi á eftir sér. 5 Þegar þeir heyrðu þetta, létu þeir skírast í nafni Drottins Jesú. 6 Og síðan, er Páll lagði hendur á höfuð þeirra, kom heilagur andi yfir þá og þeir töluðu tungum og spáðu – fluttu boðskap frá Guði. 7 Menn þessir voru um tólf talsins. 8 Eftir þetta fór Páll til samkomuhúss Gyðinganna og þar predikaði hann djarflega á hverjum helgidegi í þrjá mánuði. Hann gerði grein fyrir hverju hann trúði og hvers vegna.Margir sannfærðust og tóku trú á Jesú. 9 Sumir mótmæltu þó boðskap hans og höfnuðu Kristi opinberlega. Hann greindi á milli þessara tveggja hópa og tók með sér hina trúuðu, hóf nýjar samkomur í skóla Týrannusar og predikaði þar daglega. 10 Þannig hélt hann áfram í tvö ár og árangurinn var sá að allir íbúar héraðsins Asíu – bæði Gyðingar og Grikkir – fengu að heyra boðskap Drottins. 11 Guð gaf Páli kraft til að gera óvenjuleg kraftaverk. 12 Það gerðist jafnvel er klútar eða flíkur af honum voru lögð á sjúka að þeir læknuðust og illir andar fóru út af þeim. 13 Flokkur særingamanna, allt Gyðingar, hafði það að starfi að ferðast um og reka út illa anda. Nú ákváðu þeir að gera tilraun með að nota nafn Drottins Jesú. Orðin sem nota átti til að særa út illu andana voru þessi: „Ég særi þig við Jesú, sem Páll predikar – út með þig!“ 14 Þeir voru allir synir Skeva, æðsta prests, sjö talsins. 15 En þegar þeir gerðu tilraun með þetta á manni, sem hafði illan anda, svaraði illi andinn: „Jesú þekki ég og líka Pál, en hverjir eruð þið?“ 16 Það skipti engum togum, hann réðist á tvo þeirra og barði þá svo að þeir flýðu naktir og illa meiddir út úr húsinu. 17 Fréttin af þessu barst fljótt um alla Efesus, jafnt til Gyðinga sem Grikkja. Urðu borgarbúar óttaslegnir og nafn Jesú óx mjög í augum fólksins. 18 18,19 Margir hinna trúuðu, sem farið höfðu með kukl og galdra, játuðu gjörðir sínar og söfnuðu saman öllum galdrabókunum og verndargripum og brenndu opinberlega. Álitið var að verðmæti bókanna næmi fimmtíu þúsund silfurpeningum! 20 Þetta sýnir glöggt hve boðskapur Guðs hafði sterk áhrif á þessu svæði. 21 Eftir þetta fannst Páli heilagur andi ætlast til að hann færi yfir til Grikklands, áður en hann sneri aftur til Jerúsalem. „Og þegar ég hef verið þar,“ sagði hann, „ber mér að fara til Rómar.“ 22 Síðan sendi hann tvo aðstoðarmenn sína, Tímóteus og Erastus, á undan sér til Grikklands, en dvaldist sjálfur enn um stund í Litlu-Asíu. 23 Um þessar mundir kom upp mikil ólga í Efesus vegna hinna kristnu. 24 Upphafið átti Demetríus, silfursmiður, en hann hafði marga menn í vinnu við að smíða silfurskrín, tileinkuð grísku veiðigyðjunni Artemis. 25 Hann kallaði menn sína, og aðra sem unnu við skyldan iðnað, á ráðstefnu og sagði:„Herrar mínir, við höfum allar okkar tekjur af þessum viðskiptum. 26 Ykkur er ljóst að þessi Páll hefur talið fjölmörgum trú um að guðir, sem búnir eru til af mannahöndum, séu alls engir guðir. Afleiðingin er sú að salan hjá okkur hefur stórlega dregist saman. Þetta hefur ekki aðeins gerst hér í Efesus, heldur í öllu héraðinu. 27 Vitanlega hugsa ég ekki aðeins um viðskiptalegu hliðina á þessu máli – okkar fjárhagslega tap – heldur einnig þann möguleika að áhrif hinnar miklu gyðju, Artemisar fari minnkandi og að hún, sem ekki aðeins er tilbeðin í þessum hluta Litlu-Asíu heldur um allan heim – muni gleymast!“ 28 Þegar fundarmenn heyrðu þetta urðu þeir ævareiðir og hrópuðu í sífellu: „Mikil er Artemis Efesusmanna!“ 29 Af þessum sökum safnaðist mikill mannfjöldi saman og öll borgin komst í uppnám. Múgurinn ruddist á leikvanginn, dró með sér þá Gajus og Aristarkus, fylgdarmenn Páls, til að yfirheyra þá. 30 Páll vildi reyna að komast inn í mannþröngina, en lærisveinarnir hindruðu það. 31 Sumir hinna rómversku embættismanna héraðsins voru vinir Páls. Þeir sendu honum boð og báðu hann að hætta ekki lífi sínu með því að fara þangað inn. 32 Á leikvanginum hrópaði hver í kapp við annan og þar var algjör upplausn. Engir tveir voru sammála og fæstir vissu reyndar hvers vegna þeir voru þar. 33 Þá kom einhver af Gyðingunum auga á Alexander og var hann þegar dreginn fram. Hann gaf merki um þögn og síðan reyndi hann að taka til máls. 34 Þegar fólkinu varð ljóst að hann var Gyðingur, æpti það og hrópaði í nærfellt tvær stundir: „Mikil er Artemis Efesusmanna! Mikil er Artemis Efesusmanna!“ 35 Loks tókst borgarstjóranum að þagga svo niður í mannfjöldanum að hann gat tekið til máls. „Efesusmenn,“ sagði hann. „Öllum er ljóst að Efesus er miðstöð tilbeiðslu hinnar miklu Artemisar og það var líkneski hennar sem féll til okkar af himni. 36 Þetta er óhrekjandi staðreynd og því ættuð þið ekki að láta þetta raska ró ykkar né gera neitt í fljótfærni. 37 Samt hafið þið nú dregið þessa menn hingað, þótt þeir hafi hvorki stolið neinu úr musteri Artemisar né lastmælt henni. 38 Ef Demetríus og smiðirnir hafa einhverja ákæru á hendur þeim, þá er rétturinn reiðubúinn að taka málið fyrir undir eins, því að hann er að störfum núna. Mál þetta verður að reka á lögmætan hátt. 39 Ef um önnur deilumál er að ræða, gerið þá út um þau á hinum reglubundnu fundum borgarráðsins, 40 en svona megum við ekki fara að. Við eigum áreiðanlega á hættu að verða að svara til saka, hjá rómversku yfirvöldunum, fyrir þetta uppþot hér í dag, því að það var algjörlega tilefnislaust. Heimti Rómverjarnir skýringu, veit ég hreint ekki hvað segja skal.“ 41 Síðan bað hann fólkið að fara og mannfjöldinn dreifðist.

In Other Versions

Acts 19 in the ANGEFD

Acts 19 in the ANTPNG2D

Acts 19 in the AS21

Acts 19 in the BAGH

Acts 19 in the BBPNG

Acts 19 in the BBT1E

Acts 19 in the BDS

Acts 19 in the BEV

Acts 19 in the BHAD

Acts 19 in the BIB

Acts 19 in the BLPT

Acts 19 in the BNT

Acts 19 in the BNTABOOT

Acts 19 in the BNTLV

Acts 19 in the BOATCB

Acts 19 in the BOATCB2

Acts 19 in the BOBCV

Acts 19 in the BOCNT

Acts 19 in the BOECS

Acts 19 in the BOGWICC

Acts 19 in the BOHCB

Acts 19 in the BOHCV

Acts 19 in the BOHLNT

Acts 19 in the BOHNTLTAL

Acts 19 in the BOICB

Acts 19 in the BOITCV

Acts 19 in the BOKCV

Acts 19 in the BOKCV2

Acts 19 in the BOKHWOG

Acts 19 in the BOKSSV

Acts 19 in the BOLCB

Acts 19 in the BOLCB2

Acts 19 in the BOMCV

Acts 19 in the BONAV

Acts 19 in the BONCB

Acts 19 in the BONLT

Acts 19 in the BONUT2

Acts 19 in the BOPLNT

Acts 19 in the BOSCB

Acts 19 in the BOSNC

Acts 19 in the BOTLNT

Acts 19 in the BOVCB

Acts 19 in the BOYCB

Acts 19 in the BPBB

Acts 19 in the BPH

Acts 19 in the BSB

Acts 19 in the CCB

Acts 19 in the CUV

Acts 19 in the CUVS

Acts 19 in the DBT

Acts 19 in the DGDNT

Acts 19 in the DHNT

Acts 19 in the DNT

Acts 19 in the ELBE

Acts 19 in the EMTV

Acts 19 in the ESV

Acts 19 in the FBV

Acts 19 in the FEB

Acts 19 in the GGMNT

Acts 19 in the GNT

Acts 19 in the HARY

Acts 19 in the HNT

Acts 19 in the IRVA

Acts 19 in the IRVB

Acts 19 in the IRVG

Acts 19 in the IRVH

Acts 19 in the IRVK

Acts 19 in the IRVM

Acts 19 in the IRVM2

Acts 19 in the IRVO

Acts 19 in the IRVP

Acts 19 in the IRVT

Acts 19 in the IRVT2

Acts 19 in the IRVU

Acts 19 in the ISVN

Acts 19 in the JSNT

Acts 19 in the KAPI

Acts 19 in the KBT1ETNIK

Acts 19 in the KBV

Acts 19 in the KJV

Acts 19 in the KNFD

Acts 19 in the LBA

Acts 19 in the LBLA

Acts 19 in the LNT

Acts 19 in the LSV

Acts 19 in the MAAL

Acts 19 in the MBV

Acts 19 in the MBV2

Acts 19 in the MHNT

Acts 19 in the MKNFD

Acts 19 in the MNG

Acts 19 in the MNT

Acts 19 in the MNT2

Acts 19 in the MRS1T

Acts 19 in the NAA

Acts 19 in the NASB

Acts 19 in the NBLA

Acts 19 in the NBS

Acts 19 in the NBVTP

Acts 19 in the NET2

Acts 19 in the NIV11

Acts 19 in the NNT

Acts 19 in the NNT2

Acts 19 in the NNT3

Acts 19 in the PDDPT

Acts 19 in the PFNT

Acts 19 in the RMNT

Acts 19 in the SBIAS

Acts 19 in the SBIBS

Acts 19 in the SBIBS2

Acts 19 in the SBICS

Acts 19 in the SBIDS

Acts 19 in the SBIGS

Acts 19 in the SBIHS

Acts 19 in the SBIIS

Acts 19 in the SBIIS2

Acts 19 in the SBIIS3

Acts 19 in the SBIKS

Acts 19 in the SBIKS2

Acts 19 in the SBIMS

Acts 19 in the SBIOS

Acts 19 in the SBIPS

Acts 19 in the SBISS

Acts 19 in the SBITS

Acts 19 in the SBITS2

Acts 19 in the SBITS3

Acts 19 in the SBITS4

Acts 19 in the SBIUS

Acts 19 in the SBIVS

Acts 19 in the SBT

Acts 19 in the SBT1E

Acts 19 in the SCHL

Acts 19 in the SNT

Acts 19 in the SUSU

Acts 19 in the SUSU2

Acts 19 in the SYNO

Acts 19 in the TBIAOTANT

Acts 19 in the TBT1E

Acts 19 in the TBT1E2

Acts 19 in the TFTIP

Acts 19 in the TFTU

Acts 19 in the TGNTATF3T

Acts 19 in the THAI

Acts 19 in the TNFD

Acts 19 in the TNT

Acts 19 in the TNTIK

Acts 19 in the TNTIL

Acts 19 in the TNTIN

Acts 19 in the TNTIP

Acts 19 in the TNTIZ

Acts 19 in the TOMA

Acts 19 in the TTENT

Acts 19 in the UBG

Acts 19 in the UGV

Acts 19 in the UGV2

Acts 19 in the UGV3

Acts 19 in the VBL

Acts 19 in the VDCC

Acts 19 in the YALU

Acts 19 in the YAPE

Acts 19 in the YBVTP

Acts 19 in the ZBP