Acts 21 (BOILNTAP)

1 Eftir að við höfðum kvatt öldungana frá Efesus sigldum við beina leið til Kós. Daginn eftir komum við til Ródos og fórum svo þaðan til Patara. 2 Þar fórum við í annað skip, sem sigla átti til Fönikíu í Sýrlandi. 3 Við sigldum framhjá Kýpur – hún var á bakborða, og komum til hafnar í Týrus í Sýrlandi, en þar var farminum skipað upp. 4 Við fórum í land, höfðum upp á hinum kristnu þar og dvöldumst hjá þeim í eina viku. Lærisveinarnir þar fluttu Páli boðskap, innblásinn af heilögum anda, og vöruðu hann við að fara til Jerúsalem. 5 Að viku liðinni fylgdi allur söfnuðurinn, þar með taldar konur og börn, okkur til skips. Við báðum saman á ströndinni og kvöddumst síðan. 6 Að því búnu stigum við um borð, en fólkið sneri heimleiðis. 7 Næsti viðkomustaður, eftir að við fórum frá Týrus, var Ptólemais. Þar stoppuðum við aðeins einn dag og notuðum tímann til að heimsækja söfnuðinn. 8 Síðan lá leið okkar til Sesareu. Þar gistum við hjá Filippusi trúboða, en hann var einn þeirra sjö, sem dreift höfðu matvælum meðal safnaðarins í Jerúsalem. 9 Hann átti fjórar dætur, allar ógiftar, og höfðu þær hæfileika til að spá. 10 10,11 Dag einn, meðan við vorum þar, kom maður frá Júdeu í heimsókn. Hann hét Agabus og hafði einnig spádómsgáfu. Hann tók belti Páls, batt með því hendur sínar og fætur og sagði: „Heilagur andi segir: Þannig munu Gyðingarnir í Jerúsalem binda eiganda þessa beltis og síðan afhenda hann Rómverjum.“ 12 Þegar við heyrðum þetta, grátbáðum við Pál – bæði trúaða fólkið á staðnum og við ferðafélagar hans – að fara ekki til Jerúsalem. 13 En hann svaraði: „Hvað á þessi grátur að þýða? Þið særið hjarta mitt! Ég er ekki aðeins fús að láta fangelsa mig í Jerúsalem, heldur líka að deyja vegna Drottins Jesú.“ 14 Þegar okkur varð ljóst að við fengjum hann ekki til að skipta um skoðun, hættum við öllum slíkum tilraunum og sögðum: „Verði Drottins vilji.“ 15 Stuttu síðar tókum við saman föggur okkar og héldum af stað til Jerúsalem, 16 og nokkrir lærisveinar frá Sesareu urðu okkur samferða. Þegar við komum á leiðarenda gistum við hjá Mnason. Hann var frá Kýpur, einn hinna fyrstu sem tekið höfðu trú. 17 Söfnuðurinn í Jerúsalem fagnaði okkur vel, 18 og daginn eftir fór Páll með okkur til fundar við Jakob og aðra leiðtoga safnaðarins. 19 Þegar þeir höfðu heilsast, skýrði Páll frá öllu því sem Guð hafði látið hann gera meðal heiðingjanna. 20 Þegar þeir heyrðu það, lofuðu þeir Guð, en sögðu síðan: „Kæri bróðir, þú veist að þeir skipta þúsundum Gyðingarnir, sem tekið hafa trú, og þeir eru mjög strangir í því að kristnir Gyðingar verði að halda áfram að fara eftir lögum og venjum Gyðinga. 21 Menn úr þessum hópi, sem búa hér í Jerúsalem, hafa heyrt að þú sért á móti lögum Móse, kærir þig kollóttan um gyðinglegar venjur og bannir að sveinbörn séu umskorin. 22 Þeir munu áreiðanlega frétta að þú sért kominn og hvað eigum við þá að gera? 23 Okkur hefur reyndar dottið eitt í hug: Á meðal okkar eru fjórir menn, sem ætla að klippa hár sitt og gefa heit. 24 Farðu með þeim til musterisins, láttu einnig klippa þig og borgaðu síðan fyrir þá. Ef þú gerir þetta, sjá allir að þú ert sammála því að kristnir Gyðingar fari eftir þessari venju. Þá vita þeir að þú hlýðir lögunum og ert sömu skoðunar og við. 25 En við ætlumst alls ekki til að heiðingjarnir, sem tekið hafa kristna trú, hlýði þessum venjum, nema þá þeim sem bréfið okkar fjallaði um. Þar stóð að þeir skyldu forðast að neyta kjöts af köfnuðum dýrum, sem ekki hefði blætt út, og einnig saurlifnað.“ 26 26,27 Páll féllst á beiðni þeirra. Daginn eftir fór hann í musterið til að framkvæma helgiathöfnina ásamt mönnunum fjórum og tilkynnti þar að hann héti því að bera fram fórn, ásamt hinum, að sjö dögum liðnum.Dagarnir sjö voru nær liðnir þegar Gyðingar frá Litlu-Asíu sáu Pál í musterinu og æstu fólkið upp gegn honum. Þeir gripu hann 28 og æptu: „Ísraelsmenn! Komið og hjálpið okkur! Hjálp! Þetta er maðurinn sem talar gegn þjóð okkar og hvetur alla til að óhlýðnast lögum okkar Gyðinga. Hann fordæmir musterið og saurgar það með því að fara þangað með heiðingja!“ 29 Þetta sögðu þeir vegna þess að fyrr um daginn höfðu þeir séð Pál ásamt Trófímusi, en hann var áður heiðingi og bjó í Efesus í Litlu-Asíu. Nú fullyrtu þeir að Páll hefði tekið heiðingja með sér inn í musterið. 30 Mikil æsing greip um sig og borgarbúar þustu að. Allt komst í uppnám. Páll var dreginn út úr musterinu og öllum hliðum læst að baki honum. 31 Þeir börðu hann og ætluðu að ganga af honum dauðum. En þegar foringi rómversku hersveitarinnar frétti af uppþotinu, 32 skipaði hann hermönnum sínum og liðsforingjum að fara á vettvang og hljóp síðan sjálfur niður eftir til mannfjöldans. Þegar múgurinn sá hermennina koma, hættu þeir að berja Pál. 33 Hersveitarforinginn tók Pál fastan og fyrirskipaði að binda hann með tvöföldum fjötrum. Síðan spurði hann mannfjöldann hver hann væri og hvað hann hefði gert. 34 Sumir hrópuðu eitt en aðrir annað og æsingin var svo mikil að hann fékk engan botn í málið. Hann lét því flytja Pál upp í virkið. 35 Þegar þeir komu að tröppunum ætlaði múgurinn alveg að tryllast. Hermennirnir urðu að bera Pál á öxlum sér til að verja hann, 36 en mannfjöldinn ruddist á hæla þeirra og hrópaði: „Burt með hann! Burt með hann!“ 37 37,38 Í þann mund er þeir voru að fara inn í virkið sagði Páll við hersveitarforingjann: „Má ég segja við þig nokkur orð?“„Kanntu grísku?“ spurði foringinn undrandi. „Ég hélt að þú værir Egyptinn sem gerði uppreisn fyrir nokkrum árum og tók 4.000 morðingja með sér út í eyðimörkina?“ 39 „Nei,“ svaraði Páll. „Ég er Gyðingur frá Tarsus í Kilikíu og það er ekkert sveitaþorp! Viltu leyfa mér að ávarpa mannfjöldann?“ 40 Hersveitarforinginn leyfði það. Páll stóð nú í tröppunum og gaf fólkinu bendingu um að þagna. Kyrrð færðist yfir og Páll tók til máls:

In Other Versions

Acts 21 in the ANGEFD

Acts 21 in the ANTPNG2D

Acts 21 in the AS21

Acts 21 in the BAGH

Acts 21 in the BBPNG

Acts 21 in the BBT1E

Acts 21 in the BDS

Acts 21 in the BEV

Acts 21 in the BHAD

Acts 21 in the BIB

Acts 21 in the BLPT

Acts 21 in the BNT

Acts 21 in the BNTABOOT

Acts 21 in the BNTLV

Acts 21 in the BOATCB

Acts 21 in the BOATCB2

Acts 21 in the BOBCV

Acts 21 in the BOCNT

Acts 21 in the BOECS

Acts 21 in the BOGWICC

Acts 21 in the BOHCB

Acts 21 in the BOHCV

Acts 21 in the BOHLNT

Acts 21 in the BOHNTLTAL

Acts 21 in the BOICB

Acts 21 in the BOITCV

Acts 21 in the BOKCV

Acts 21 in the BOKCV2

Acts 21 in the BOKHWOG

Acts 21 in the BOKSSV

Acts 21 in the BOLCB

Acts 21 in the BOLCB2

Acts 21 in the BOMCV

Acts 21 in the BONAV

Acts 21 in the BONCB

Acts 21 in the BONLT

Acts 21 in the BONUT2

Acts 21 in the BOPLNT

Acts 21 in the BOSCB

Acts 21 in the BOSNC

Acts 21 in the BOTLNT

Acts 21 in the BOVCB

Acts 21 in the BOYCB

Acts 21 in the BPBB

Acts 21 in the BPH

Acts 21 in the BSB

Acts 21 in the CCB

Acts 21 in the CUV

Acts 21 in the CUVS

Acts 21 in the DBT

Acts 21 in the DGDNT

Acts 21 in the DHNT

Acts 21 in the DNT

Acts 21 in the ELBE

Acts 21 in the EMTV

Acts 21 in the ESV

Acts 21 in the FBV

Acts 21 in the FEB

Acts 21 in the GGMNT

Acts 21 in the GNT

Acts 21 in the HARY

Acts 21 in the HNT

Acts 21 in the IRVA

Acts 21 in the IRVB

Acts 21 in the IRVG

Acts 21 in the IRVH

Acts 21 in the IRVK

Acts 21 in the IRVM

Acts 21 in the IRVM2

Acts 21 in the IRVO

Acts 21 in the IRVP

Acts 21 in the IRVT

Acts 21 in the IRVT2

Acts 21 in the IRVU

Acts 21 in the ISVN

Acts 21 in the JSNT

Acts 21 in the KAPI

Acts 21 in the KBT1ETNIK

Acts 21 in the KBV

Acts 21 in the KJV

Acts 21 in the KNFD

Acts 21 in the LBA

Acts 21 in the LBLA

Acts 21 in the LNT

Acts 21 in the LSV

Acts 21 in the MAAL

Acts 21 in the MBV

Acts 21 in the MBV2

Acts 21 in the MHNT

Acts 21 in the MKNFD

Acts 21 in the MNG

Acts 21 in the MNT

Acts 21 in the MNT2

Acts 21 in the MRS1T

Acts 21 in the NAA

Acts 21 in the NASB

Acts 21 in the NBLA

Acts 21 in the NBS

Acts 21 in the NBVTP

Acts 21 in the NET2

Acts 21 in the NIV11

Acts 21 in the NNT

Acts 21 in the NNT2

Acts 21 in the NNT3

Acts 21 in the PDDPT

Acts 21 in the PFNT

Acts 21 in the RMNT

Acts 21 in the SBIAS

Acts 21 in the SBIBS

Acts 21 in the SBIBS2

Acts 21 in the SBICS

Acts 21 in the SBIDS

Acts 21 in the SBIGS

Acts 21 in the SBIHS

Acts 21 in the SBIIS

Acts 21 in the SBIIS2

Acts 21 in the SBIIS3

Acts 21 in the SBIKS

Acts 21 in the SBIKS2

Acts 21 in the SBIMS

Acts 21 in the SBIOS

Acts 21 in the SBIPS

Acts 21 in the SBISS

Acts 21 in the SBITS

Acts 21 in the SBITS2

Acts 21 in the SBITS3

Acts 21 in the SBITS4

Acts 21 in the SBIUS

Acts 21 in the SBIVS

Acts 21 in the SBT

Acts 21 in the SBT1E

Acts 21 in the SCHL

Acts 21 in the SNT

Acts 21 in the SUSU

Acts 21 in the SUSU2

Acts 21 in the SYNO

Acts 21 in the TBIAOTANT

Acts 21 in the TBT1E

Acts 21 in the TBT1E2

Acts 21 in the TFTIP

Acts 21 in the TFTU

Acts 21 in the TGNTATF3T

Acts 21 in the THAI

Acts 21 in the TNFD

Acts 21 in the TNT

Acts 21 in the TNTIK

Acts 21 in the TNTIL

Acts 21 in the TNTIN

Acts 21 in the TNTIP

Acts 21 in the TNTIZ

Acts 21 in the TOMA

Acts 21 in the TTENT

Acts 21 in the UBG

Acts 21 in the UGV

Acts 21 in the UGV2

Acts 21 in the UGV3

Acts 21 in the VBL

Acts 21 in the VDCC

Acts 21 in the YALU

Acts 21 in the YAPE

Acts 21 in the YBVTP

Acts 21 in the ZBP