Hebrews 9 (BOILNTAP)

1 Í fyrri sáttmálanum milli Guðs og Ísraelsmanna voru reglur um tilbeiðslu og þar var einnig rætt um heilagt tjald hér á jörðu. 2 Í þeim helgidómi – tjaldinu – voru tvö herbergi. Í fremra herberginu, sem kallað var hið heilaga, var borð ásamt ljósastjaka úr gulli. Á borðinu voru sérstök brauð, sem notuð voru við helgiathafnir. 3 Síðan tók við fortjald og innan við það var annað herbergi, sem kallaðist „hið allra helgasta“. 4 Þar inni var reykelsisaltari úr gulli og einnig kista sem kölluð var sáttmálsörkin. Var hún lögð skíru gulli bæði að utan og innan. Í kistunni voru steinplötur, sem á voru rituð boðorðin tíu, gullkrukka með dálitlu af manna og stafur Arons, sem hafði blómgast. 5 A loki kistunnar voru styttur af englum, svokallaðir kerúbar, sem standa áttu vörð um dýrð Guðs. Þeir þöndu vængi sína yfir hið gullna lok arkarinnar, sem kallaðist náðarstóllinn, en nóg um það. 6 Þegar tjaldið var fullbúið, sinntu prestarnir störfum sínum í fremra herberginu hvenær sem þeir þurftu, 7 en aðeins æðsti presturinn fékk að fara inn í innra herbergið. Þangað fór hann aðeins einu sinni á ári, aleinn, og þá með blóð sem hann stökkti á náðarstólinn. Það var fórn til Guðs, til þess að gjalda fyrir eigin syndir og mistök og einnig fyrir syndir alls fólksins. 8 Þetta bendir heilagur andi á, til að sýna okkur að alþýða manna fékk ekki að ganga inn í hið allra helgasta á dögum gamla sáttmálans, þegar fremra herbergið og það sem þar fór fram, var í fullu gildi. 9 Þetta segir okkur, sem nú lifum, býsna merkilega hluti. Meðan gamla lagakerfið var í gildi voru gjafir og fórnir bornar fram, en þær dugðu ekki til að hreinsa hjörtu fólksins. 10 Gamla kerfið snerist allt um vissar reglur. Þar voru reglur um hvað ætti að borða og hvað ætti að drekka, reglur um hvernig og hvenær ætti að þvo sér; já, reglur um þetta og reglur um hitt. Fólkið var skyldugt að fara eftir þessum reglum, allt þar til Kristur kom og opnaði nýja og betri leið til hjálpræðis. 11 Kristur kom sem æðsti prestur nýs og betri sáttmála og þann sáttmála höfum við nú. Hann gekk inn í hina miklu og fullkomnu tjaldbúð himnanna, sem hvorki er gerð af manna höndum né úr jarðnesku efni. 12 Hann fór með blóð inn í hið allra helgasta, í eitt skipti fyrir öll, og stökkti því á náðarstólinn. Blóð þetta var ekki blóð úr geitum eða kálfum, heldur hans eigið blóð og með því tryggði hann okkur eilíft hjálpræði. 13 Fyrst blóð úr nautum og geitum og aska af kvígum gat hreinsað manninn af synd, samkvæmt gamla sáttmálanum, 14 þá getið þið rétt ímyndað ykkur hvort blóð Krists muni ekki breyta hjörtum okkar og lífi! Fórn hans leysir okkur undan þeirri kvöð að þurfa að hlýða gömlu reglunum og kemur því jafnframt til leiðar að við þráum að þjóna lifandi Guði. Kristur lagði líf sitt af frjálsum vilja í hendur Guðs, með hjálp heilags anda, til að deyja fyrir syndir okkar. Hann var fullkominn og syndlaus – algjörlega lýtalaus. 15 Kristur færði okkur þennan nýja sáttmála til þess að allir þeir, sem boðnir eru, geti komið og notið um eilífð þeirrar blessunar sem Guð hefur heitið þeim. Kristur dó til að forða okkur undan refsingunni, sem við höfðum kallað yfir okkur, vegna syndanna sem við drýgðum meðan gamli sáttmálinn var í gildi. 16 Þegar maður deyr og skilur eftir sig erfðaskrá, þá fær enginn neitt af arfinum fyrr en sannast hefur að sá, er gerði erfðaskrána, sé dáinn. 17 Erfðaskráin gengur ekki í gildi fyrr en sá er látinn, sem hana gerði, og meðan hann er á lífi, getur enginn notfært sér hana til að komast yfir þær eignir sem honum eru ánafnaðar. 18 Þetta skýrir hvers vegna blóði fórnardýranna var úthellt (en það bendir einmitt fram til dauða Krists) og það meira að segja áður en fyrri sáttmálinn tók gildi. 19 Eftir að Móse hafði afhent fólkinu lögbók Guðs, tók hann blóð kálfa og geita ásamt vatni og stökkti því með ísópsgrein og skarlatsrauðri ull yfir sjálfa bókina og allt fólkið. 20 Síðan sagði hann: „Blóð þetta er tákn þess að sáttmálinn milli ykkar og Guðs hefur tekið gildi, en þennan sáttmála bauð Guð mér að gera milli ykkar og sín.“ 21 Síðan stökkti hann á sama hátt blóði á hið heilaga tjald og á öll áhöldin sem notuð voru til helgihaldsins. 22 Það má með sanni segja, að nálega allt sem tilheyrði gamla sáttmálanum, hafi verið helgað með því að stökkva á það blóði, því að ekki fæst fyrirgefning án úthellingar blóðs. 23 Hjá því varð ekki komist að Móse yrði þannig að hreinsa þetta heilaga, en jafnframt jarðneska tjald og allt sem í því var – allt gert eftir himneskri fyrirmynd – með því að stökkva á það dýrablóði. Himnesk fyrirmynd þessa tjalds var einnig hreinsuð og helguð, en þó með miklu dýrlegri fórn. 24 Kristur gekk inn í sjálfan himininn til að koma fram fyrir Guð sem talsmaður okkar. Það gerðist ekki í jarðneska helgidómnum, því að hann var aðeins eftirmynd hins himneska. 25 Og ekki fórnfærði Kristur sjálfum sér, hvað eftir annað, eins og jarðneskur æðsti prestur, sem ber árlega fram dýrablóð að fórn í hinu allra helgasta. 26 Þá hefði hann orðið að deyja margsinnis, allt frá því heimurinn varð til. Nei, það hefði verið óhugsandi! Hann kom í eitt skipti fyrir öll, á hinum síðustu tímum, til að brjóta vald syndarinnar á bak aftur að eilífu. Það gerði hann með því að deyja fyrir okkur. 27 Eins og það liggur fyrir manninum að deyja einu sinni og koma síðan fyrir dóminn, 28 þannig dó Kristur líka einu sinni sem fórn fyrir syndir margra. Eftir það mun hann koma á ný, ekki til að deyja fyrir syndir, heldur til að flytja þeim hjálpræði sitt, sem hans bíða.

In Other Versions

Hebrews 9 in the ANGEFD

Hebrews 9 in the ANTPNG2D

Hebrews 9 in the AS21

Hebrews 9 in the BAGH

Hebrews 9 in the BBPNG

Hebrews 9 in the BBT1E

Hebrews 9 in the BDS

Hebrews 9 in the BEV

Hebrews 9 in the BHAD

Hebrews 9 in the BIB

Hebrews 9 in the BLPT

Hebrews 9 in the BNT

Hebrews 9 in the BNTABOOT

Hebrews 9 in the BNTLV

Hebrews 9 in the BOATCB

Hebrews 9 in the BOATCB2

Hebrews 9 in the BOBCV

Hebrews 9 in the BOCNT

Hebrews 9 in the BOECS

Hebrews 9 in the BOGWICC

Hebrews 9 in the BOHCB

Hebrews 9 in the BOHCV

Hebrews 9 in the BOHLNT

Hebrews 9 in the BOHNTLTAL

Hebrews 9 in the BOICB

Hebrews 9 in the BOITCV

Hebrews 9 in the BOKCV

Hebrews 9 in the BOKCV2

Hebrews 9 in the BOKHWOG

Hebrews 9 in the BOKSSV

Hebrews 9 in the BOLCB

Hebrews 9 in the BOLCB2

Hebrews 9 in the BOMCV

Hebrews 9 in the BONAV

Hebrews 9 in the BONCB

Hebrews 9 in the BONLT

Hebrews 9 in the BONUT2

Hebrews 9 in the BOPLNT

Hebrews 9 in the BOSCB

Hebrews 9 in the BOSNC

Hebrews 9 in the BOTLNT

Hebrews 9 in the BOVCB

Hebrews 9 in the BOYCB

Hebrews 9 in the BPBB

Hebrews 9 in the BPH

Hebrews 9 in the BSB

Hebrews 9 in the CCB

Hebrews 9 in the CUV

Hebrews 9 in the CUVS

Hebrews 9 in the DBT

Hebrews 9 in the DGDNT

Hebrews 9 in the DHNT

Hebrews 9 in the DNT

Hebrews 9 in the ELBE

Hebrews 9 in the EMTV

Hebrews 9 in the ESV

Hebrews 9 in the FBV

Hebrews 9 in the FEB

Hebrews 9 in the GGMNT

Hebrews 9 in the GNT

Hebrews 9 in the HARY

Hebrews 9 in the HNT

Hebrews 9 in the IRVA

Hebrews 9 in the IRVB

Hebrews 9 in the IRVG

Hebrews 9 in the IRVH

Hebrews 9 in the IRVK

Hebrews 9 in the IRVM

Hebrews 9 in the IRVM2

Hebrews 9 in the IRVO

Hebrews 9 in the IRVP

Hebrews 9 in the IRVT

Hebrews 9 in the IRVT2

Hebrews 9 in the IRVU

Hebrews 9 in the ISVN

Hebrews 9 in the JSNT

Hebrews 9 in the KAPI

Hebrews 9 in the KBT1ETNIK

Hebrews 9 in the KBV

Hebrews 9 in the KJV

Hebrews 9 in the KNFD

Hebrews 9 in the LBA

Hebrews 9 in the LBLA

Hebrews 9 in the LNT

Hebrews 9 in the LSV

Hebrews 9 in the MAAL

Hebrews 9 in the MBV

Hebrews 9 in the MBV2

Hebrews 9 in the MHNT

Hebrews 9 in the MKNFD

Hebrews 9 in the MNG

Hebrews 9 in the MNT

Hebrews 9 in the MNT2

Hebrews 9 in the MRS1T

Hebrews 9 in the NAA

Hebrews 9 in the NASB

Hebrews 9 in the NBLA

Hebrews 9 in the NBS

Hebrews 9 in the NBVTP

Hebrews 9 in the NET2

Hebrews 9 in the NIV11

Hebrews 9 in the NNT

Hebrews 9 in the NNT2

Hebrews 9 in the NNT3

Hebrews 9 in the PDDPT

Hebrews 9 in the PFNT

Hebrews 9 in the RMNT

Hebrews 9 in the SBIAS

Hebrews 9 in the SBIBS

Hebrews 9 in the SBIBS2

Hebrews 9 in the SBICS

Hebrews 9 in the SBIDS

Hebrews 9 in the SBIGS

Hebrews 9 in the SBIHS

Hebrews 9 in the SBIIS

Hebrews 9 in the SBIIS2

Hebrews 9 in the SBIIS3

Hebrews 9 in the SBIKS

Hebrews 9 in the SBIKS2

Hebrews 9 in the SBIMS

Hebrews 9 in the SBIOS

Hebrews 9 in the SBIPS

Hebrews 9 in the SBISS

Hebrews 9 in the SBITS

Hebrews 9 in the SBITS2

Hebrews 9 in the SBITS3

Hebrews 9 in the SBITS4

Hebrews 9 in the SBIUS

Hebrews 9 in the SBIVS

Hebrews 9 in the SBT

Hebrews 9 in the SBT1E

Hebrews 9 in the SCHL

Hebrews 9 in the SNT

Hebrews 9 in the SUSU

Hebrews 9 in the SUSU2

Hebrews 9 in the SYNO

Hebrews 9 in the TBIAOTANT

Hebrews 9 in the TBT1E

Hebrews 9 in the TBT1E2

Hebrews 9 in the TFTIP

Hebrews 9 in the TFTU

Hebrews 9 in the TGNTATF3T

Hebrews 9 in the THAI

Hebrews 9 in the TNFD

Hebrews 9 in the TNT

Hebrews 9 in the TNTIK

Hebrews 9 in the TNTIL

Hebrews 9 in the TNTIN

Hebrews 9 in the TNTIP

Hebrews 9 in the TNTIZ

Hebrews 9 in the TOMA

Hebrews 9 in the TTENT

Hebrews 9 in the UBG

Hebrews 9 in the UGV

Hebrews 9 in the UGV2

Hebrews 9 in the UGV3

Hebrews 9 in the VBL

Hebrews 9 in the VDCC

Hebrews 9 in the YALU

Hebrews 9 in the YAPE

Hebrews 9 in the YBVTP

Hebrews 9 in the ZBP