Luke 10 (BOILNTAP)

1 Drottinn valdi nú aðra sjötíu lærisveina og sendi þá tvo og tvo saman til þorpanna, sem hann ætlaði síðar að heimsækja. 2 Hann sagði: „Uppskeran er mikil, en verkamennirnir fáir, biðjið því uppskerustjórann að senda fleiri verkamenn til uppskeru sinnar. 3 Farið nú og munið að ég sendi ykkur eins og lömb í úlfahóp. 4 Takið hvorki peninga með ykkur né nesti og heldur ekki skó til skiptanna, og munið svo að slóra ekki á leiðinni. 5 Blessið hvert það heimili sem þið komið á. 6 Sé það blessunarvert, mun blessunin koma yfir það, annars mun hún snúa aftur til ykkar. 7 Þegar þið komið inn í þorp, gistið þá ekki á mörgum heimilum, dveljið heldur á sama stað. Borðið og drekkið það sem fyrir ykkur er sett. Verið ófeimnir við að njóta góðgerðanna, því að verður er verkamaður launa sinna. 8 8,9 Taki þorpsbúar ykkur vel, farið þá eftir þessum tveimur reglum: Borðið það sem fyrir ykkur er sett og læknið þá sem sjúkir eru og segið um leið: „Nú standið þið nálægt guðsríkinu.“ 10 Ef þið komið í þorp sem ekki vill taka við ykkur, farið þá út á göturnar og segið: 11 „Við þurrkum rykið, úr þorpi ykkar, af fótum okkar sem tákn um dóminn, sem yfir ykkur vofir. En vitið samt að guðsríki er í nánd.“ 12 Jafnvel Sódóma, borg spillingarinnar, mun fá skárri útreið á dómsdegi en það þorp! 13 Þið Kórasín og Betsaída, miklar eru þrengingarnar sem ykkar bíða! Ef kraftaverkin, sem ég gerði í ykkur, hefðu gerst í Týrus og Sídon, þá hefðu íbúar þeirra borga gert iðrun fyrir löngu. Þeir hefðu klæðst tötrum og ausið sig ösku sem tákn um iðrun sína. 14 Týrus og Sídon munu hljóta vægari hegningu á dómsdegi en þið. 15 Og hvað um ykkur, íbúar Kapernaum? Verðið þið hafnir til himins? Nei, ykkur verður varpað niður til heljar.“ 16 Síðan sagði Jesús við lærisveina sína: „Þeir sem taka á móti ykkur, taka á móti mér, en þeir sem hafna ykkur, hafna mér. Þeir sem hafna mér, hafna Guði sjálfum sem sendi mig.“ 17 Lærisveinarnir sjötíu komu aftur og sögðu sigri hrósandi: „Jafnvel illu andarnir hlýða okkur, þegar við notum nafn þitt.“ 18 „Já,“ sagði hann, „ég sá Satan falla af himni eins og eldingu! 19 Ég hef gefið ykkur vald yfir öllu óvinarins veldi. Þið getið stigið ofan á höggorma og sporðdreka og marið þá undir fótum ykkar – ekkert mun geta gert ykkur mein. 20 En gleðjist samt ekki yfir því að andarnir hlýða ykkur, heldur því að nöfn ykkar eru innrituð á himnum.“ 21 Um leið varð hann glaður í heilögum anda og sagði: „Ég lofa þig faðir, herra himins og jarðar. Að það sem hulið var fyrir spekingum og vitringum veraldar, hefur þú birt þeim sem treysta þér og trúa eins og lítil börn. Já, faðir, þannig vildir þú hafa það. 22 Faðir minn hefur lagt allt í mínar hendur. Soninn þekkir enginn nema faðirinn og föðurinn þekkir enginn nema sonurinn, og þeir sem sonurinn vill að sjái hann.“ 23 Síðan sneri hann sér að lærisveinunum og sagði lágt: „Þið eigið gott að hafa fengið að sjá það sem þið sjáið. 24 Margir spámenn og konungar fyrri alda þráðu að sjá og heyra það sem þið hafið séð og heyrt.“ 25 Dag nokkurn kom fræðimaður í lögum Móse til Jesú og vildi prófa rétttrúnað hans. „Meistari,“ sagði hann, „hvað þarf maður að gera til að eignast eilíft líf?“ 26 „Hvað segja lög Móse um það?“ svaraði Jesús. 27 „Þar stendur: Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og af öllum huga þínum, og meðbróður þinn eins og sjálfan þig,“ sagði fræðimaðurinn. 28 „Rétt,“ svaraði Jesús, „gerðu þetta og þá muntu lifa.“ 29 En maðurinn vildi afsaka sig og spurði því: „Hver er þá meðbróðir minn?“ 30 Jesús svaraði með þessari sögu: „Maður var á leið frá Jerúsalem til Jeríkó og lenti í höndum ræningja. Þeir rændu fötum hans og peningum, og börðu hann. Síðan skildu þeir hann eftir hálfdauðan við vegarbrúnina. 31 Af tilviljun fór prestur þarna um. Þegar hann sá manninn, leit hann undan og hélt áfram. 32 Skömmu síðar kom musterisþjónn þar að og er hann sá hinn slasaða, flýtti hann sér fram hjá. 33 Síðan kom þar að lítilsmetinn útlendingur – Samverji. Hann sá manninn og kenndi í brjósti um hann. 34 Hann gekk til hans, hreinsaði sárin og batt um þau. Að því loknu setti hann særða manninn upp á asnann sinn og studdi hann að næsta gistihúsi, þar sem hann veitti honum aðhlynningu um nóttina. 35 Morguninn eftir rétti hann gestgjafanum ríflega upphæð og bað hann að annast manninn. „Ef reikningurinn verður hærri,“ sagði hann, „þá borga ég mismuninn næst þegar ég kem.“ 36 Hver finnst þér nú hafa verið sannur meðbróðir mannsins sem lenti í höndum ræningjanna?“ 37 „Sá sem hjálpaði honum,“ svaraði maðurinn. „Já,“ sagði Jesús, „farðu og gerðu slíkt hið sama.“ 38 Á leið sinni til Jerúsalem, komu Jesús og lærisveinar hans við hjá konu sem Marta hét. Tók hún vel á móti þeim. 39 María systir hennar sat á gólfinu og hlustaði á Jesú, 40 en Marta var önnum kafin við matreiðslu.Hún gekk þá til Jesú og sagði: „Herra, finnst þér ekki ranglátt af systur minni að sitja hér, en láta mig eina um alla vinnuna? Segðu henni að koma og hjálpa mér.“ 41 „Marta mín,“ sagði Drottinn við hana, „Þú ert önnum kafin og áhyggjufull! 42 Eitt er nauðsynlegt og það hefur María komið auga á, ég mun ekki taka það frá henni.“

In Other Versions

Luke 10 in the ANGEFD

Luke 10 in the ANTPNG2D

Luke 10 in the AS21

Luke 10 in the BAGH

Luke 10 in the BBPNG

Luke 10 in the BBT1E

Luke 10 in the BDS

Luke 10 in the BEV

Luke 10 in the BHAD

Luke 10 in the BIB

Luke 10 in the BLPT

Luke 10 in the BNT

Luke 10 in the BNTABOOT

Luke 10 in the BNTLV

Luke 10 in the BOATCB

Luke 10 in the BOATCB2

Luke 10 in the BOBCV

Luke 10 in the BOCNT

Luke 10 in the BOECS

Luke 10 in the BOGWICC

Luke 10 in the BOHCB

Luke 10 in the BOHCV

Luke 10 in the BOHLNT

Luke 10 in the BOHNTLTAL

Luke 10 in the BOICB

Luke 10 in the BOITCV

Luke 10 in the BOKCV

Luke 10 in the BOKCV2

Luke 10 in the BOKHWOG

Luke 10 in the BOKSSV

Luke 10 in the BOLCB

Luke 10 in the BOLCB2

Luke 10 in the BOMCV

Luke 10 in the BONAV

Luke 10 in the BONCB

Luke 10 in the BONLT

Luke 10 in the BONUT2

Luke 10 in the BOPLNT

Luke 10 in the BOSCB

Luke 10 in the BOSNC

Luke 10 in the BOTLNT

Luke 10 in the BOVCB

Luke 10 in the BOYCB

Luke 10 in the BPBB

Luke 10 in the BPH

Luke 10 in the BSB

Luke 10 in the CCB

Luke 10 in the CUV

Luke 10 in the CUVS

Luke 10 in the DBT

Luke 10 in the DGDNT

Luke 10 in the DHNT

Luke 10 in the DNT

Luke 10 in the ELBE

Luke 10 in the EMTV

Luke 10 in the ESV

Luke 10 in the FBV

Luke 10 in the FEB

Luke 10 in the GGMNT

Luke 10 in the GNT

Luke 10 in the HARY

Luke 10 in the HNT

Luke 10 in the IRVA

Luke 10 in the IRVB

Luke 10 in the IRVG

Luke 10 in the IRVH

Luke 10 in the IRVK

Luke 10 in the IRVM

Luke 10 in the IRVM2

Luke 10 in the IRVO

Luke 10 in the IRVP

Luke 10 in the IRVT

Luke 10 in the IRVT2

Luke 10 in the IRVU

Luke 10 in the ISVN

Luke 10 in the JSNT

Luke 10 in the KAPI

Luke 10 in the KBT1ETNIK

Luke 10 in the KBV

Luke 10 in the KJV

Luke 10 in the KNFD

Luke 10 in the LBA

Luke 10 in the LBLA

Luke 10 in the LNT

Luke 10 in the LSV

Luke 10 in the MAAL

Luke 10 in the MBV

Luke 10 in the MBV2

Luke 10 in the MHNT

Luke 10 in the MKNFD

Luke 10 in the MNG

Luke 10 in the MNT

Luke 10 in the MNT2

Luke 10 in the MRS1T

Luke 10 in the NAA

Luke 10 in the NASB

Luke 10 in the NBLA

Luke 10 in the NBS

Luke 10 in the NBVTP

Luke 10 in the NET2

Luke 10 in the NIV11

Luke 10 in the NNT

Luke 10 in the NNT2

Luke 10 in the NNT3

Luke 10 in the PDDPT

Luke 10 in the PFNT

Luke 10 in the RMNT

Luke 10 in the SBIAS

Luke 10 in the SBIBS

Luke 10 in the SBIBS2

Luke 10 in the SBICS

Luke 10 in the SBIDS

Luke 10 in the SBIGS

Luke 10 in the SBIHS

Luke 10 in the SBIIS

Luke 10 in the SBIIS2

Luke 10 in the SBIIS3

Luke 10 in the SBIKS

Luke 10 in the SBIKS2

Luke 10 in the SBIMS

Luke 10 in the SBIOS

Luke 10 in the SBIPS

Luke 10 in the SBISS

Luke 10 in the SBITS

Luke 10 in the SBITS2

Luke 10 in the SBITS3

Luke 10 in the SBITS4

Luke 10 in the SBIUS

Luke 10 in the SBIVS

Luke 10 in the SBT

Luke 10 in the SBT1E

Luke 10 in the SCHL

Luke 10 in the SNT

Luke 10 in the SUSU

Luke 10 in the SUSU2

Luke 10 in the SYNO

Luke 10 in the TBIAOTANT

Luke 10 in the TBT1E

Luke 10 in the TBT1E2

Luke 10 in the TFTIP

Luke 10 in the TFTU

Luke 10 in the TGNTATF3T

Luke 10 in the THAI

Luke 10 in the TNFD

Luke 10 in the TNT

Luke 10 in the TNTIK

Luke 10 in the TNTIL

Luke 10 in the TNTIN

Luke 10 in the TNTIP

Luke 10 in the TNTIZ

Luke 10 in the TOMA

Luke 10 in the TTENT

Luke 10 in the UBG

Luke 10 in the UGV

Luke 10 in the UGV2

Luke 10 in the UGV3

Luke 10 in the VBL

Luke 10 in the VDCC

Luke 10 in the YALU

Luke 10 in the YAPE

Luke 10 in the YBVTP

Luke 10 in the ZBP