Luke 11 (BOILNTAP)

1 Eitt sinn er Jesús hafði verið í einrúmi á bæn, kom einn lærisveinanna til hans og sagði: „Drottinn, kenndu okkur að biðja eins og Jóhannes kenndi sínum lærisveinum. 2 Þá kenndi hann þeim þessa bæn: „Faðir, helgist þitt nafn, komi þitt ríki. 3 Gefðu okkur það sem við þörfnumst frá degi til dags. 4 Fyrirgefðu okkur syndir okkar, eins og við fyrirgefum þeim sem syndga gegn okkur, og lát okkur ekki verða fyrir freistingu.“ 5 5,6 Hann hélt áfram að fræða þá um bænina og sagði: „Gerum ráð fyrir að einhver ykkar fari til vinar síns um miðja nótt, veki hann og segi: „Lánaðu mér þrjú brauð, því að vinur minn var að koma í heimsókn og ég á ekki nokkurn matarbita handa honum.“ 7 Þá mundi hinn kalla á móti úr rúminu: „Æ, vertu nú ekki að ónáða mig. Það er búið að læsa húsinu og allir eru löngu háttaðir. Ég nenni ekki að fara á fætur um miðja nótt vegna þessara smámuna.“ 8 Ég segi: Ef haldið er áfram að nauða nógu lengi, þá fer hann að lokum fram úr og lánar vini sínum allt sem hann þarf; ekki af greiðasemi, heldur vegna þess að hinn gefst ekki upp. 9 Þannig er það með bænina. Biðjið og þið munuð öðlast. Leitið og þið munuð finna. Knýið á og þá mun verða lokið upp. 10 Hver sá sem biður, mun öðlast, sá finnur er leitar og fyrir þeim mun opnað, sem á knýr. 11 Þið feður, gefið þið drengnum ykkar stein ef hann biður um fisk? 12 Og biðji hann um egg, gefið þið honum þá sporðdreka? Nei, auðvitað ekki! 13 Fyrst þið syndugir menn gefið börnum ykkar góðar gjafir, þá er víst að faðirinn á himnum gefur þeim heilagan anda sem biðja um hann.“ 14 Jesús rak illan anda út af mállausum manni og fékk hann þá málið. Mannfjöldinn varð undrandi, 15 en sumir sögðu: „Það er ekkert skrýtið þótt hann geti rekið út illa anda, því hann fær kraft sinn frá Satan, konungi illu andanna.“ 16 Aðrir báðu hann um tákn á himni, til að sanna að hann væri Kristur. 17 Jesús vissi hvað þeir hugsuðu og sagði: „Það ríki sem logar í borgarastyrjöld fær ekki staðist, og sama er að segja um heimili þar sem hver höndin er upp á móti annarri. 18 Sé það satt sem þið segið að Satan berjist gegn sjálfum sér, með því að gefa mér vald til að reka út hans eigin illu anda, hvernig fær þá ríki hans staðist? 19 Og hvað um fylgjendur ykkar, ef ég starfa í krafti Satans? Þeir reka út illa anda! Er það þá sönnun þess að Satan sé í þeim? Spyrjið þessa menn hvort þið hafið á réttu að standa! 20 En ef ég rek út illa anda með krafti Guðs, þá er það staðfesting þess að guðsríki sé komið. 21 Þegar sterkur maður ver hús sitt alvopnaður, þá er það ekki í hættu 22 – ekki fyrr en einhver sterkari gerir árás, yfirbugar hann og afvopnar, og tekur eigur hans. 23 Sá sem ekki er með mér, er á móti mér. Sá sem ekki vinnur mér gagn, veldur mér tjóni. 24 Þegar illur andi er rekinn út úr manni, fer hann út í eyðimörkina og leitar þar hvíldar. Finni hann enga hvíld, leitar hann að manninum sem hann var í 25 og finnur hann opinn og andvaralausan. 26 Þá fer hann og sækir sjö aðra anda ennþá verri og þeir fara allir í manninn, sem verður því mun verr settur en áður.“ 27 Meðan Jesús var að tala, hrópaði kona ein í mannfjöldanum: „Guð blessi móður þína, sem bar þig og nærði.“ 28 „Já,“ svaraði hann, „en enn meiri blessun hljóta þeir sem heyra orð Guðs og fara eftir því.“ 29 29,30 Fólkið hélt áfram að streyma að honum og þá sagði hann því þessa líkingu. „Við lifum á vondum tímum og fólkið er vont. Það biður stöðugt um tákn á himnum (til sönnunar því að ég sé Kristur) en eina táknið sem það fær er Jónasartáknið. Fólkið í Niníve áleit reynslu Jónasar sönnun þess að Guð hefði sent hann. Á sama hátt verður það sem gerist með mig, tákn þess að Guð hafi sent mig til ykkar. 31 Drottningin af Saba mun rísa upp á dómsdegi, benda á þessa kynslóð og dæma hana seka. Hún lagði á sig langt og erfitt ferðalag til að hlusta á visku Salómons og hér er sá sem er æðri Salómon. 32 Íbúar Niníve munu einnig rísa upp og fordæma þessa þjóð, því þeir gerðu iðrun við predikun Jónasar, og þótt hér sé sá sem er miklu æðri Jónasi, vill þessi þjóð ekki hlusta. 33 Hver kveikir á lampa og felur hann síðan niðri í kjallara? Enginn! Lampinn er settur á lampastæðið, svo að hann lýsi öllum sem inn koma. 34 Augu þín lýsa upp þinn innri mann. Sé auga þitt heilbrigt, þá hleypir það birtu inn í sál þína. Auga sem brennur af fýsn, lokar ljósið úti og steypir þér í myrkur. 35 Gættu þess að ljósið sé ekki lokað úti. 36 Ef þinn innri maður er baðaður ljósi og hvergi ber skugga á, þá ljómar andlit þitt.“ 37 37,38 Þegar Jesús hafði lokið máli sínu, bauð einn af faríseunum honum heim til sín í mat. Þegar Jesús var kominn inn til hans, settist hann strax að matnum, án þess að þvo sér fyrst eins og venja var hjá Gyðingum. Faríseinn varð undrandi. 39 Jesús sagði þá við hann: „Þið farísear þvoið það sem út snýr, en að innan eruð þið enn óhreinir – fullir illsku og girndar! 40 Þið farið heimskulega að ráði ykkar! Var hið innra ekki eins vel af Guði gert og hið ytra eða hvað? 41 Göfuglyndi er besta sönnun þess að inni fyrir búi hreint hugarfar. 42 Ég ávíta ykkur, farísear! Þið gætið þess að gjalda tíund og það jafnvel af hverju smáatriði, en gleymið svo öllu réttlæti og kærleika til Guðs. Það er rétt að gjalda tíund en hitt skuluð þið ekki vanrækja. 43 Vei ykkur, farísear! Þið sækist eftir heiðurssætum í samkomuhúsum og virðingu fólksins á götunum. 44 Ykkar bíður hræðilegur dómur. Þið eruð eins og grónar grafir sem fólk gengur yfir, grunlaust um alla rotnunina fyrir neðan. 45 „Herra,“ sagði lögfræðingur sem sat rétt hjá honum, „þú lítilsvirðir einnig starf mitt með þessum orðum.“ 46 „Já,“ sagði Jesús, „ekki eruð þið betri! Þið leggið óbærilegar byrðar á fólk með trúar- og siðferðiskröfum ykkar – kröfum sem ykkur sjálfum dytti aldrei í hug að hlýða. 47 Vei ykkur! Þið eruð ekki betri en forfeður ykkar, sem drápu spámennina. 48 Þið leggið blessun yfir verk forfeðra ykkar með því að prýða legstaði spámannanna, sem þeir myrtu. 49 Guð segir um ykkur: „Ég mun senda til ykkar spámenn og postula, suma þeirra munuð þið drepa en ofsækja hina.“ 50 Þið sem nú lifið, berið ábyrgðina á morðunum sem framin hafa verið á þjónum Guðs frá upphafi. 51 Frá morðinu á Abel til morðsins á Sakaría, sem drepinn var milli altarisins og musterisins. Já, ákærunni verður áreiðanlega beint gegn ykkur. 52 Vei ykkur, lögvitringar! Þið felið sannleikann fyrir fólkinu. Sjálfir viljið þið ekki beygja ykkur fyrir honum og síðan hindrið þið aðra í að treysta Guði.“ 53 53,54 Þegar Jesús hafði lokið máli sínu gekk hann út, en eftir stóðu farísearnir og lögvitringarnir, æfir af reiði. Upp frá þessu voru þeir sífellt að leggja fyrir hann spurningar í þeim tilgangi að fá hann til að segja eitthvað, sem hægt væri að handtaka hann fyrir.

In Other Versions

Luke 11 in the ANGEFD

Luke 11 in the ANTPNG2D

Luke 11 in the AS21

Luke 11 in the BAGH

Luke 11 in the BBPNG

Luke 11 in the BBT1E

Luke 11 in the BDS

Luke 11 in the BEV

Luke 11 in the BHAD

Luke 11 in the BIB

Luke 11 in the BLPT

Luke 11 in the BNT

Luke 11 in the BNTABOOT

Luke 11 in the BNTLV

Luke 11 in the BOATCB

Luke 11 in the BOATCB2

Luke 11 in the BOBCV

Luke 11 in the BOCNT

Luke 11 in the BOECS

Luke 11 in the BOGWICC

Luke 11 in the BOHCB

Luke 11 in the BOHCV

Luke 11 in the BOHLNT

Luke 11 in the BOHNTLTAL

Luke 11 in the BOICB

Luke 11 in the BOITCV

Luke 11 in the BOKCV

Luke 11 in the BOKCV2

Luke 11 in the BOKHWOG

Luke 11 in the BOKSSV

Luke 11 in the BOLCB

Luke 11 in the BOLCB2

Luke 11 in the BOMCV

Luke 11 in the BONAV

Luke 11 in the BONCB

Luke 11 in the BONLT

Luke 11 in the BONUT2

Luke 11 in the BOPLNT

Luke 11 in the BOSCB

Luke 11 in the BOSNC

Luke 11 in the BOTLNT

Luke 11 in the BOVCB

Luke 11 in the BOYCB

Luke 11 in the BPBB

Luke 11 in the BPH

Luke 11 in the BSB

Luke 11 in the CCB

Luke 11 in the CUV

Luke 11 in the CUVS

Luke 11 in the DBT

Luke 11 in the DGDNT

Luke 11 in the DHNT

Luke 11 in the DNT

Luke 11 in the ELBE

Luke 11 in the EMTV

Luke 11 in the ESV

Luke 11 in the FBV

Luke 11 in the FEB

Luke 11 in the GGMNT

Luke 11 in the GNT

Luke 11 in the HARY

Luke 11 in the HNT

Luke 11 in the IRVA

Luke 11 in the IRVB

Luke 11 in the IRVG

Luke 11 in the IRVH

Luke 11 in the IRVK

Luke 11 in the IRVM

Luke 11 in the IRVM2

Luke 11 in the IRVO

Luke 11 in the IRVP

Luke 11 in the IRVT

Luke 11 in the IRVT2

Luke 11 in the IRVU

Luke 11 in the ISVN

Luke 11 in the JSNT

Luke 11 in the KAPI

Luke 11 in the KBT1ETNIK

Luke 11 in the KBV

Luke 11 in the KJV

Luke 11 in the KNFD

Luke 11 in the LBA

Luke 11 in the LBLA

Luke 11 in the LNT

Luke 11 in the LSV

Luke 11 in the MAAL

Luke 11 in the MBV

Luke 11 in the MBV2

Luke 11 in the MHNT

Luke 11 in the MKNFD

Luke 11 in the MNG

Luke 11 in the MNT

Luke 11 in the MNT2

Luke 11 in the MRS1T

Luke 11 in the NAA

Luke 11 in the NASB

Luke 11 in the NBLA

Luke 11 in the NBS

Luke 11 in the NBVTP

Luke 11 in the NET2

Luke 11 in the NIV11

Luke 11 in the NNT

Luke 11 in the NNT2

Luke 11 in the NNT3

Luke 11 in the PDDPT

Luke 11 in the PFNT

Luke 11 in the RMNT

Luke 11 in the SBIAS

Luke 11 in the SBIBS

Luke 11 in the SBIBS2

Luke 11 in the SBICS

Luke 11 in the SBIDS

Luke 11 in the SBIGS

Luke 11 in the SBIHS

Luke 11 in the SBIIS

Luke 11 in the SBIIS2

Luke 11 in the SBIIS3

Luke 11 in the SBIKS

Luke 11 in the SBIKS2

Luke 11 in the SBIMS

Luke 11 in the SBIOS

Luke 11 in the SBIPS

Luke 11 in the SBISS

Luke 11 in the SBITS

Luke 11 in the SBITS2

Luke 11 in the SBITS3

Luke 11 in the SBITS4

Luke 11 in the SBIUS

Luke 11 in the SBIVS

Luke 11 in the SBT

Luke 11 in the SBT1E

Luke 11 in the SCHL

Luke 11 in the SNT

Luke 11 in the SUSU

Luke 11 in the SUSU2

Luke 11 in the SYNO

Luke 11 in the TBIAOTANT

Luke 11 in the TBT1E

Luke 11 in the TBT1E2

Luke 11 in the TFTIP

Luke 11 in the TFTU

Luke 11 in the TGNTATF3T

Luke 11 in the THAI

Luke 11 in the TNFD

Luke 11 in the TNT

Luke 11 in the TNTIK

Luke 11 in the TNTIL

Luke 11 in the TNTIN

Luke 11 in the TNTIP

Luke 11 in the TNTIZ

Luke 11 in the TOMA

Luke 11 in the TTENT

Luke 11 in the UBG

Luke 11 in the UGV

Luke 11 in the UGV2

Luke 11 in the UGV3

Luke 11 in the VBL

Luke 11 in the VDCC

Luke 11 in the YALU

Luke 11 in the YAPE

Luke 11 in the YBVTP

Luke 11 in the ZBP