Matthew 15 (BOILNTAP)

1 Nokkrir farísear og lögfræðingar komu frá Jerúsalem að ræða við Jesú. 2 „Hvers vegna fara lærisveinar þínir ekki eftir siðum þjóðar okkar?“ spurðu þeir valdsmannslega, og bættu síðan við: „Þeir virða til dæmis ekki regluna um að þvo sér um hendur fyrir máltíðir.“ 3 „En hvers vegna eru þessar siðvenjur ykkar í andstöðu við boðorð Guðs?“ spurði Jesús á móti. 4 „Eitt af boðorðum Guðs er þannig: „Heiðra skaltu föður þinn og móður, hver sá sem formælir foreldrum sínum er dauðasekur.“ 5 5,6 Þið segið hins vegar: „Þótt foreldrar þínir þarfnist hjálpar, máttu gefa musterinu það fé sem þú hefur lagt til hliðar handa þeim.“ Með þessu mannaboðorði ónýtið þið þá skipun Guðs að menn heiðri og annist foreldra sína. 7 Hræsnarar! Orð Jesaja eiga við um ykkur: 8 „Þessir menn heiðra mig með vörunum en hjarta þeirra er langt í burtu frá mér. 9 Trúrækni þeirra er gagnslaus, því þeir kenna sín eigin boðorð í stað boðorða Guðs!“ “ 10 Síðan hrópaði Jesús til mannfjöldans og sagði: „Hlustið á og reynið að skilja þetta: 11 Þið saurgist ekki af matnum sem þið neytið, heldur af orðum ykkar og hugsunum!“ 12 Þá komu lærisveinar hans til hans og sögðu: „Þú móðgaðir faríseana með því sem þú sagðir.“ 13 13,14 Jesús svaraði: „Hver sú jurt sem ekki er gróðursett af föður mínum, verður slitin upp með rótum. Látið þá afskiptalausa. Þeir eru blindir leiðtogar, ef blindur leiðir blindan, falla báðir í sömu gryfjuna.“ 15 Þá bað Pétur Jesú að útskýra hvers vegna fólk saurgaðist ekki við að borða mat sem lögin teldu óhreinan. 16 „Skilurðu það ekki?“ spurði Jesús. 17 „Veistu ekki að það sem við borðum fer í gegnum meltingarfærin og síðan úr líkamanum? 18 Ljót orð koma hins vegar frá illu innræti og spilla þeim sem segir þau. 19 Illar hugsanir, morð, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, lygi og illt umtal, allt á þetta upphaf sitt í huga og sál mannsins. 20 Það er þetta sem mengar mannlífið. Það er ekki syndsamlegt að neyta matar með óþvegnum höndum.“ 21 Jesús hélt síðan burt og fór norður til Týrusar og Sídonar, en þangað voru um 80 kílómetrar. 22 Kanversk kona, sem þar bjó, kom til Jesú og sagði: „Hjálpaðu mér Drottinn, sonur Davíðs konungs! Dóttir mín er með illan anda, sem kvelur hana dag og nótt.“ 23 Jesús svaraði henni engu orði. Lærisveinarnir hvöttu hann til að vísa henni burt og sögðu: „Segðu henni að fara, hún ónáðar með þessu kvabbi.“ 24 Jesús sagði þá við konuna: „Ég var sendur til að hjálpa Gyðingum, en ekki heiðingjum.“ 25 Þá kom hún enn nær, hneigði sig og bað á nýjan leik: „Drottinn, hjálpaðu mér!“ 26 „Það er ekki rétt að taka brauðið frá börnunum og gefa það hvolpunum,“ sagði Jesús. 27 „Satt er það,“ sagði hún, „en hvolparnir fá þó að tína molana sem falla á gólfið.“ 28 „Kona,“ sagði Jesús, „þú hefur mikla trú og þú skalt fá það sem þú baðst um.“ Dóttir hennar varð heilbrigð á sömu stundu. 29 Eftir þetta fór Jesús aftur að Galíleuvatni. Þar gekk hann upp á fjall og settist niður. 30 Mannfjöldinn kom til hans með lamaða menn, blinda og mállausa, einnig marga aðra sjúklinga. Þeir lögðu þá við fætur Jesú og hann læknaði þá alla. 31 Þetta var stórkostleg sjón! Þeir sem mállausir höfðu verið frá fæðingu töluðu nú reiprennandi. Þeir sem höfðu verið lamaðir gengu um og hlupu. Þeir sem voru blindir áður, horfðu nú furðu lostnir í kringum sig! Allir voru glaðir og undrandi og lofuðu Guð Ísraels. 32 Þá kallaði Jesús á lærisveina sína og sagði: „Ég finn til með þessu fólki. Það hefur verið hér í þrjá daga samfleytt, og nú er það orðið matarlaust. Ég vil ekki senda það frá mér þannig á sig komið, því þá örmagnast það á leiðinni heim.“ 33 „Hvernig eigum við að útvega mat hér í óbyggðinni handa öllum þessum fjölda?“ spurðu lærisveinarnir. 34 „Hvað tókuð þið mikið með ykkur?“ spurði Jesús. „Sjö brauð og nokkra smáfiska,“ svöruðu þeir. 35 Jesús bauð þá fólkinu að setjast niður. 36 Síðan tók hann brauðin og fiskana, og þakkaði Guði. Að því búnu skipti hann matnum í skammta, sem lærisveinarnir báru til fólksins. 37 37,38 Allir fengu nóg, 4.000 karlmenn auk kvenna og barna! Þegar leifunum hafði verið safnað saman, fylltu þær sjö körfur! 39 Eftir þetta sendi Jesús fólkið heim, sjálfur fór hann í bátnum yfir til Magadanhéraðs.

In Other Versions

Matthew 15 in the ANGEFD

Matthew 15 in the ANTPNG2D

Matthew 15 in the AS21

Matthew 15 in the BAGH

Matthew 15 in the BBPNG

Matthew 15 in the BBT1E

Matthew 15 in the BDS

Matthew 15 in the BEV

Matthew 15 in the BHAD

Matthew 15 in the BIB

Matthew 15 in the BLPT

Matthew 15 in the BNT

Matthew 15 in the BNTABOOT

Matthew 15 in the BNTLV

Matthew 15 in the BOATCB

Matthew 15 in the BOATCB2

Matthew 15 in the BOBCV

Matthew 15 in the BOCNT

Matthew 15 in the BOECS

Matthew 15 in the BOGWICC

Matthew 15 in the BOHCB

Matthew 15 in the BOHCV

Matthew 15 in the BOHLNT

Matthew 15 in the BOHNTLTAL

Matthew 15 in the BOICB

Matthew 15 in the BOITCV

Matthew 15 in the BOKCV

Matthew 15 in the BOKCV2

Matthew 15 in the BOKHWOG

Matthew 15 in the BOKSSV

Matthew 15 in the BOLCB

Matthew 15 in the BOLCB2

Matthew 15 in the BOMCV

Matthew 15 in the BONAV

Matthew 15 in the BONCB

Matthew 15 in the BONLT

Matthew 15 in the BONUT2

Matthew 15 in the BOPLNT

Matthew 15 in the BOSCB

Matthew 15 in the BOSNC

Matthew 15 in the BOTLNT

Matthew 15 in the BOVCB

Matthew 15 in the BOYCB

Matthew 15 in the BPBB

Matthew 15 in the BPH

Matthew 15 in the BSB

Matthew 15 in the CCB

Matthew 15 in the CUV

Matthew 15 in the CUVS

Matthew 15 in the DBT

Matthew 15 in the DGDNT

Matthew 15 in the DHNT

Matthew 15 in the DNT

Matthew 15 in the ELBE

Matthew 15 in the EMTV

Matthew 15 in the ESV

Matthew 15 in the FBV

Matthew 15 in the FEB

Matthew 15 in the GGMNT

Matthew 15 in the GNT

Matthew 15 in the HARY

Matthew 15 in the HNT

Matthew 15 in the IRVA

Matthew 15 in the IRVB

Matthew 15 in the IRVG

Matthew 15 in the IRVH

Matthew 15 in the IRVK

Matthew 15 in the IRVM

Matthew 15 in the IRVM2

Matthew 15 in the IRVO

Matthew 15 in the IRVP

Matthew 15 in the IRVT

Matthew 15 in the IRVT2

Matthew 15 in the IRVU

Matthew 15 in the ISVN

Matthew 15 in the JSNT

Matthew 15 in the KAPI

Matthew 15 in the KBT1ETNIK

Matthew 15 in the KBV

Matthew 15 in the KJV

Matthew 15 in the KNFD

Matthew 15 in the LBA

Matthew 15 in the LBLA

Matthew 15 in the LNT

Matthew 15 in the LSV

Matthew 15 in the MAAL

Matthew 15 in the MBV

Matthew 15 in the MBV2

Matthew 15 in the MHNT

Matthew 15 in the MKNFD

Matthew 15 in the MNG

Matthew 15 in the MNT

Matthew 15 in the MNT2

Matthew 15 in the MRS1T

Matthew 15 in the NAA

Matthew 15 in the NASB

Matthew 15 in the NBLA

Matthew 15 in the NBS

Matthew 15 in the NBVTP

Matthew 15 in the NET2

Matthew 15 in the NIV11

Matthew 15 in the NNT

Matthew 15 in the NNT2

Matthew 15 in the NNT3

Matthew 15 in the PDDPT

Matthew 15 in the PFNT

Matthew 15 in the RMNT

Matthew 15 in the SBIAS

Matthew 15 in the SBIBS

Matthew 15 in the SBIBS2

Matthew 15 in the SBICS

Matthew 15 in the SBIDS

Matthew 15 in the SBIGS

Matthew 15 in the SBIHS

Matthew 15 in the SBIIS

Matthew 15 in the SBIIS2

Matthew 15 in the SBIIS3

Matthew 15 in the SBIKS

Matthew 15 in the SBIKS2

Matthew 15 in the SBIMS

Matthew 15 in the SBIOS

Matthew 15 in the SBIPS

Matthew 15 in the SBISS

Matthew 15 in the SBITS

Matthew 15 in the SBITS2

Matthew 15 in the SBITS3

Matthew 15 in the SBITS4

Matthew 15 in the SBIUS

Matthew 15 in the SBIVS

Matthew 15 in the SBT

Matthew 15 in the SBT1E

Matthew 15 in the SCHL

Matthew 15 in the SNT

Matthew 15 in the SUSU

Matthew 15 in the SUSU2

Matthew 15 in the SYNO

Matthew 15 in the TBIAOTANT

Matthew 15 in the TBT1E

Matthew 15 in the TBT1E2

Matthew 15 in the TFTIP

Matthew 15 in the TFTU

Matthew 15 in the TGNTATF3T

Matthew 15 in the THAI

Matthew 15 in the TNFD

Matthew 15 in the TNT

Matthew 15 in the TNTIK

Matthew 15 in the TNTIL

Matthew 15 in the TNTIN

Matthew 15 in the TNTIP

Matthew 15 in the TNTIZ

Matthew 15 in the TOMA

Matthew 15 in the TTENT

Matthew 15 in the UBG

Matthew 15 in the UGV

Matthew 15 in the UGV2

Matthew 15 in the UGV3

Matthew 15 in the VBL

Matthew 15 in the VDCC

Matthew 15 in the YALU

Matthew 15 in the YAPE

Matthew 15 in the YBVTP

Matthew 15 in the ZBP