Matthew 2 (BOILNTAP)
1 Jesús fæddist í bænum Betlehem í Júdeu á valdatímum Heródesar konungs. Um það leyti komu stjörnufræðingar til Jerúsalem frá Austurlöndum og spurðu: 2 „Hvar er nýfæddi Gyðingakonungurinn? Við höfum séð stjörnu hans austur í löndum og nú erum við komnir til þess að sýna honum lotningu.“ 3 Heródes konungur varð óttasleginn er hann heyrði þetta, og alls kyns sögusagnir komust á kreik í Jerúsalem. 4 Heródes kallaði því saman trúarleiðtoga Gyðinga og spurði:„Hafa spámennirnir sagt hvar Kristur eigi að fæðast?“ 5 „Já,“ svöruðu leiðtogarnir, „í Betlehem, því að þannig skrifaði Míka spámaður: 6 „Þú Betlehem litla, þú ert ekki einhver þýðingarlaus smábær í Júdeu, því frá þér mun koma höfðingi sem annast þjóð mína, Ísrael“.“ 7 Heródes sendi þá stjörnufræðingunum leynileg boð um að finna sig, og á þeim fundi fékk hann að vita hvenær þeir hefðu fyrst séð stjörnuna. Síðan sagði hann: 8 „Farið til Betlehem og leitið að barninu, og þegar þið hafið fundið það, skuluð þið koma aftur og láta mig vita hvar það er, svo að ég geti einnig veitt því lotningu!“ 9 Að þessum viðræðum loknum héldu stjörnufræðingarnir aftur af stað. Og sjá! Stjarnan birtist þeim á ný og fór fyrir þeim uns hún staðnæmdist loks yfir Betlehem. 10 Gleði þeirra var takmarkalaus! 11 Þeir gengu inn í húsið þar sem María og barnið voru, krupu á kné frammi fyrir því og tilbáðu það. Síðan tóku þeir upp farangur sinn og gáfu barninu gull, reykelsi og myrru. 12 Á heimleiðinni komu þeir ekki við í Jerúsalem til þess að hitta Heródes, því að Guð hafði sagt þeim í draumi að fara aðra leið. 13 Þegar þeir voru farnir, dreymdi Jósef að hann sæi engil frá Drottni sem sagði:„Flýðu til Egyptalands og taktu með þér barnið og móður þess, því að Heródes konungur sækist eftir lífi barnsins. Vertu síðan um kyrrt í Egyptalandi þar til ég segi þér að snúa heim aftur.“ 14 Jósef lagði af stað til Egyptalands með barnið og Maríu þessa sömu nótt. 15 Þar dvöldust þau uns Heródes konungur lést, en þá rættust orð spámannsins: „Ég kallaði son minn frá Egyptalandi.“ 16 Heródes varð æfur af reiði þegar hann komst að því að stjörnufræðingarnir höfðu brugðist honum og sendi þegar í stað alla hermenn til Betlehem. Hann gaf þeim skipun um að drepa alla drengi, tveggja ára og yngri, sem ættu heima þar í nágrenninu. Þetta gerði Heródes vegna þess að stjörnufræðingarnir höfðu sagt honum að þeir hefðu fyrst séð stjörnuna tveimur árum áður. 17 Jeremía spámaður hafði sagt fyrir um þennan hryllilega verknað Heródesar með þessum orðum: 18 „Í Rama kveður við angistarvein og óstöðvandi grátur. Rakel grætur börnin sín. Hún er óhuggandi því þau eru ekki lengur lífs.“ 19 Eftir dauða Heródesar birtist engill Drottins Jósef í draumi í Egyptalandi og sagði: 20 „Rís þú á fætur og farðu aftur til Ísraels með Jesú og móður hans.“ 21 Hann sneri því þegar í stað aftur til Ísraels með Jesú og móður hans. 22 Á leiðinni frétti hann sér til mikils ótta að nýi konungurinn í Júdeu væri Areklás, sonur Heródesar. Þá var hann varaður við í öðrum draumi, að fara til Júdeu, og því héldu þau til Galíleu 23 og settust að í Nasaret. Þar með rættist þessi spádómur um Krist: „Hann mun kallaður Nasarei.“
In Other Versions
Matthew 2 in the ANGEFD
Matthew 2 in the ANTPNG2D
Matthew 2 in the AS21
Matthew 2 in the BAGH
Matthew 2 in the BBPNG
Matthew 2 in the BBT1E
Matthew 2 in the BDS
Matthew 2 in the BEV
Matthew 2 in the BHAD
Matthew 2 in the BIB
Matthew 2 in the BLPT
Matthew 2 in the BNT
Matthew 2 in the BNTABOOT
Matthew 2 in the BNTLV
Matthew 2 in the BOATCB
Matthew 2 in the BOATCB2
Matthew 2 in the BOBCV
Matthew 2 in the BOCNT
Matthew 2 in the BOECS
Matthew 2 in the BOGWICC
Matthew 2 in the BOHCB
Matthew 2 in the BOHCV
Matthew 2 in the BOHLNT
Matthew 2 in the BOHNTLTAL
Matthew 2 in the BOICB
Matthew 2 in the BOITCV
Matthew 2 in the BOKCV
Matthew 2 in the BOKCV2
Matthew 2 in the BOKHWOG
Matthew 2 in the BOKSSV
Matthew 2 in the BOLCB
Matthew 2 in the BOLCB2
Matthew 2 in the BOMCV
Matthew 2 in the BONAV
Matthew 2 in the BONCB
Matthew 2 in the BONLT
Matthew 2 in the BONUT2
Matthew 2 in the BOPLNT
Matthew 2 in the BOSCB
Matthew 2 in the BOSNC
Matthew 2 in the BOTLNT
Matthew 2 in the BOVCB
Matthew 2 in the BOYCB
Matthew 2 in the BPBB
Matthew 2 in the BPH
Matthew 2 in the BSB
Matthew 2 in the CCB
Matthew 2 in the CUV
Matthew 2 in the CUVS
Matthew 2 in the DBT
Matthew 2 in the DGDNT
Matthew 2 in the DHNT
Matthew 2 in the DNT
Matthew 2 in the ELBE
Matthew 2 in the EMTV
Matthew 2 in the ESV
Matthew 2 in the FBV
Matthew 2 in the FEB
Matthew 2 in the GGMNT
Matthew 2 in the GNT
Matthew 2 in the HARY
Matthew 2 in the HNT
Matthew 2 in the IRVA
Matthew 2 in the IRVB
Matthew 2 in the IRVG
Matthew 2 in the IRVH
Matthew 2 in the IRVK
Matthew 2 in the IRVM
Matthew 2 in the IRVM2
Matthew 2 in the IRVO
Matthew 2 in the IRVP
Matthew 2 in the IRVT
Matthew 2 in the IRVT2
Matthew 2 in the IRVU
Matthew 2 in the ISVN
Matthew 2 in the JSNT
Matthew 2 in the KAPI
Matthew 2 in the KBT1ETNIK
Matthew 2 in the KBV
Matthew 2 in the KJV
Matthew 2 in the KNFD
Matthew 2 in the LBA
Matthew 2 in the LBLA
Matthew 2 in the LNT
Matthew 2 in the LSV
Matthew 2 in the MAAL
Matthew 2 in the MBV
Matthew 2 in the MBV2
Matthew 2 in the MHNT
Matthew 2 in the MKNFD
Matthew 2 in the MNG
Matthew 2 in the MNT
Matthew 2 in the MNT2
Matthew 2 in the MRS1T
Matthew 2 in the NAA
Matthew 2 in the NASB
Matthew 2 in the NBLA
Matthew 2 in the NBS
Matthew 2 in the NBVTP
Matthew 2 in the NET2
Matthew 2 in the NIV11
Matthew 2 in the NNT
Matthew 2 in the NNT2
Matthew 2 in the NNT3
Matthew 2 in the PDDPT
Matthew 2 in the PFNT
Matthew 2 in the RMNT
Matthew 2 in the SBIAS
Matthew 2 in the SBIBS
Matthew 2 in the SBIBS2
Matthew 2 in the SBICS
Matthew 2 in the SBIDS
Matthew 2 in the SBIGS
Matthew 2 in the SBIHS
Matthew 2 in the SBIIS
Matthew 2 in the SBIIS2
Matthew 2 in the SBIIS3
Matthew 2 in the SBIKS
Matthew 2 in the SBIKS2
Matthew 2 in the SBIMS
Matthew 2 in the SBIOS
Matthew 2 in the SBIPS
Matthew 2 in the SBISS
Matthew 2 in the SBITS
Matthew 2 in the SBITS2
Matthew 2 in the SBITS3
Matthew 2 in the SBITS4
Matthew 2 in the SBIUS
Matthew 2 in the SBIVS
Matthew 2 in the SBT
Matthew 2 in the SBT1E
Matthew 2 in the SCHL
Matthew 2 in the SNT
Matthew 2 in the SUSU
Matthew 2 in the SUSU2
Matthew 2 in the SYNO
Matthew 2 in the TBIAOTANT
Matthew 2 in the TBT1E
Matthew 2 in the TBT1E2
Matthew 2 in the TFTIP
Matthew 2 in the TFTU
Matthew 2 in the TGNTATF3T
Matthew 2 in the THAI
Matthew 2 in the TNFD
Matthew 2 in the TNT
Matthew 2 in the TNTIK
Matthew 2 in the TNTIL
Matthew 2 in the TNTIN
Matthew 2 in the TNTIP
Matthew 2 in the TNTIZ
Matthew 2 in the TOMA
Matthew 2 in the TTENT
Matthew 2 in the UBG
Matthew 2 in the UGV
Matthew 2 in the UGV2
Matthew 2 in the UGV3
Matthew 2 in the VBL
Matthew 2 in the VDCC
Matthew 2 in the YALU
Matthew 2 in the YAPE
Matthew 2 in the YBVTP
Matthew 2 in the ZBP