Romans 1 (BOILNTAP)

1 Kæru vinir í Róm.Þetta bréf er frá mér, Páli, þjóni Jesú Krists. Guð hefur kallað mig til að boða trú og sent mig til að flytja gleðiboðskap Guðs. 2 Langt er nú liðið síðan spámenn Guðs hétu því að þessi gleðiboðskapur yrði kunngerður. 3 Gleðiboðskapurinn er um son Guðs, Jesú Krist, Drottin okkar sem fæddist sem lítið barn af ætt Davíðs konungs. 4 Upprisa hans frá dauðum sýnir, svo ekki verður um villst, að hann er hinn voldugi sonur Guðs, gæddur sama heilaga eðli og sjálfur Guð. 5 Nú er svo komið, að vegna Krists, hefur Guð úthellt kærleika sínum yfir okkur óverðuga syndara. Eftir það hefur hann sent okkur út um allan heiminn, til að segja öllum, hvar sem þeir eru, frá því stórkostlega sem Guð hefur gert fyrir þá, svo að einnig þeir komist til trúar og læri að hlýða honum. 6 6,7 Kæru vinir í Róm, þið eruð í hópi þeirra sem Guð elskar. Jesús Kristur hefur einnig kallað ykkur til að verða Guðs börn og tilheyra hans heilögu þjóð. Náð og friður Guðs föður og Drottins Jesú Krists sé með ykkur öllum. 8 Fyrst vil ég segja ykkur að þið eruð á allra vörum! Hvarvetna ræða menn um traust ykkar á Guði. Ég þakka Guði vegna Jesú Krists fyrir þessar góðu fréttir og fyrir hvert og eitt ykkar. 9 Guð veit hversu oft ég bið fyrir ykkur. Dag og nótt legg ég ykkur og þarfir ykkar fram fyrir hann í bæn. Honum þjóna ég af heilum hug með því að flytja öðrum gleðifréttirnar um son hans. 10 Ég vil að þið vitið að ég bið Guð stöðugt um að gefa mér tækifæri til að koma til ykkar. 11 11,12 Ég þrái að hitta ykkur svo ég geti gefið ykkur eitthvað, sem styrkir trú ykkar á Drottin, og til að uppörvast með ykkur í trúnni. 13 Kæru vinir, ég vil að þið vitið að oft hef ég ætlað að koma einhverju góðu til leiðar, á sama hátt og í öðrum kristnum söfnuðum meðal heiðinna þjóða. 14 Ég er í mikilli skuld við ykkur og alla aðra, hvort sem það eru menningarþjóðir eða ekki, bæði við menntaða og ómenntaða. 15 Ég er því fyrir mitt leyti reiðubúinn að koma og boða fagnaðarerindið, einnig ykkur sem eruð í Róm. 16 Ég blygðast mín ekki fyrir fagnaðarerindið, því það er leið Guðs til eilífs lífs fyrir hvern þann sem trúir honum og treystir á hann. Fyrst var þessi boðskapur einungis fluttur Gyðingum, en nú er öllum opið að koma til Guðs á þennan hátt. 17 Þetta eru gleðifréttir, því þær segja okkur að Guð geri okkur hæfa til að lifa með sér, eða með öðrum orðum – geri okkur réttláta. Þetta gerist þegar við trúum á Krist og treystum því að hann hafi frelsað okkur. Trúin á Krist er því leiðin til Guðs, enda segir Biblían: „Sá sem leitar lífsins, finnur það með því að trúa á Guð.“ 18 Guð sýnir reiði sína frá himni gegn öllum vondum og syndugum mönnum sem hafna sannleikanum. 19 Þessir menn þekkja sannleikann um Guð hið innra með sér, því Guð hefur lagt þeim þá þekkingu í brjóst. 20 Mennirnir hafa frá upphafi virt fyrir sér jörðina, himininn og allt sem Guð hefur gert. Þeir hafa því verið sér meðvitandi um tilveru hans og hans mikla, eilífa mátt. Þess vegna hafa þeir enga afsökun (þegar þeir standa frammi fyrir honum á degi dómsins). 21 Mennirnir vissu af Guði, en þó vildu þeir hvorki viðurkenna hann né tilbiðja né heldur þakka honum fyrir daglega umhyggju hans. Ekki leið á löngu uns þeir fóru að gera sér heimskulegar hugmyndir um Guð og hvers hann vænti af þeim. Afleiðingin varð sú að þeir blinduðust í heimsku sinni og lentu á villigötum. 22 Þeir töldu sig ekki þurfa á þekkingu frá Guði að halda og urðu því heimskingjar. 23 Í stað þess að tilbiðja hinn dýrlega, eilífa Guð, bjuggu þeir sér til goð sem líktust fuglum, ferfætlingum, skriðdýrum og dauðlegum mönnum. 24 Þess vegna hefur Guð gefið þeim lausan tauminn og leyft þeim að svala girndum sínum í afskræmdu kynlífi og gera hvað sem þá langaði til, einnig að meðhöndla líkama hvers annars á svívirðilegan og viðbjóðslegan hátt. 25 Í stað þess að trúa því sem þeir vita að er sannleikurinn um Guð, kjósa þeir að trúa lyginni! Afleiðingin er sú að þeir tilbiðja það sem Guð hefur skapað, í stað þess að tilbiðja Guð, skaparann. 26 Þess vegna hefur Guð ofurselt mennina svívirðilegum girndum. Þeir ganga jafnvel svo langt að konurnar snúast gegn eðli sínu og leita kynferðislegrar fullnægju hver með annarri. 27 Sama er að segja um karlmennina. Í stað þess að hafa eðlileg mök við konurnar, brenna þeir af girnd hver til annars og lifa í skömm hver með öðrum. Af þessu hafa þeir uppskorið þá bölvun sem þeir eiga sannarlega skilið. 28 Þar eð mennirnir höfnuðu Guði með þessum hætti og vildu ekki við hann kannast, lét hann þá fara sína leið, svo að þeir gætu gert allt það sem illska þeirra gat fundið upp á. 29 Og þeir urðu ranglátir, vondir, ágjarnir, hatursfullir, öfundsjúkir, manndráparar, þrasgjarnir, lygnir og bitrir. 30 Þeir tala illa hver um annan og hata Guð, eru hrokafullir, gorta af sjálfum sér, finna sífellt upp á nýjum leiðum til að syndga og eru foreldrum sínum óhlýðnir. 31 Þeir misskilja hver annan, eru heimskir, óáreiðanlegir, kærleikslausir og miskunnarlausir. 32 Þeir vita vel að fyrir þessa glæpi hefur Guð kveðið upp yfir þeim dauðadóm en samt halda þeir áfram á sömu braut og hvetja aðra til að gera hið sama.

In Other Versions

Romans 1 in the ANGEFD

Romans 1 in the ANTPNG2D

Romans 1 in the AS21

Romans 1 in the BAGH

Romans 1 in the BBPNG

Romans 1 in the BBT1E

Romans 1 in the BDS

Romans 1 in the BEV

Romans 1 in the BHAD

Romans 1 in the BIB

Romans 1 in the BLPT

Romans 1 in the BNT

Romans 1 in the BNTABOOT

Romans 1 in the BNTLV

Romans 1 in the BOATCB

Romans 1 in the BOATCB2

Romans 1 in the BOBCV

Romans 1 in the BOCNT

Romans 1 in the BOECS

Romans 1 in the BOGWICC

Romans 1 in the BOHCB

Romans 1 in the BOHCV

Romans 1 in the BOHLNT

Romans 1 in the BOHNTLTAL

Romans 1 in the BOICB

Romans 1 in the BOITCV

Romans 1 in the BOKCV

Romans 1 in the BOKCV2

Romans 1 in the BOKHWOG

Romans 1 in the BOKSSV

Romans 1 in the BOLCB

Romans 1 in the BOLCB2

Romans 1 in the BOMCV

Romans 1 in the BONAV

Romans 1 in the BONCB

Romans 1 in the BONLT

Romans 1 in the BONUT2

Romans 1 in the BOPLNT

Romans 1 in the BOSCB

Romans 1 in the BOSNC

Romans 1 in the BOTLNT

Romans 1 in the BOVCB

Romans 1 in the BOYCB

Romans 1 in the BPBB

Romans 1 in the BPH

Romans 1 in the BSB

Romans 1 in the CCB

Romans 1 in the CUV

Romans 1 in the CUVS

Romans 1 in the DBT

Romans 1 in the DGDNT

Romans 1 in the DHNT

Romans 1 in the DNT

Romans 1 in the ELBE

Romans 1 in the EMTV

Romans 1 in the ESV

Romans 1 in the FBV

Romans 1 in the FEB

Romans 1 in the GGMNT

Romans 1 in the GNT

Romans 1 in the HARY

Romans 1 in the HNT

Romans 1 in the IRVA

Romans 1 in the IRVB

Romans 1 in the IRVG

Romans 1 in the IRVH

Romans 1 in the IRVK

Romans 1 in the IRVM

Romans 1 in the IRVM2

Romans 1 in the IRVO

Romans 1 in the IRVP

Romans 1 in the IRVT

Romans 1 in the IRVT2

Romans 1 in the IRVU

Romans 1 in the ISVN

Romans 1 in the JSNT

Romans 1 in the KAPI

Romans 1 in the KBT1ETNIK

Romans 1 in the KBV

Romans 1 in the KJV

Romans 1 in the KNFD

Romans 1 in the LBA

Romans 1 in the LBLA

Romans 1 in the LNT

Romans 1 in the LSV

Romans 1 in the MAAL

Romans 1 in the MBV

Romans 1 in the MBV2

Romans 1 in the MHNT

Romans 1 in the MKNFD

Romans 1 in the MNG

Romans 1 in the MNT

Romans 1 in the MNT2

Romans 1 in the MRS1T

Romans 1 in the NAA

Romans 1 in the NASB

Romans 1 in the NBLA

Romans 1 in the NBS

Romans 1 in the NBVTP

Romans 1 in the NET2

Romans 1 in the NIV11

Romans 1 in the NNT

Romans 1 in the NNT2

Romans 1 in the NNT3

Romans 1 in the PDDPT

Romans 1 in the PFNT

Romans 1 in the RMNT

Romans 1 in the SBIAS

Romans 1 in the SBIBS

Romans 1 in the SBIBS2

Romans 1 in the SBICS

Romans 1 in the SBIDS

Romans 1 in the SBIGS

Romans 1 in the SBIHS

Romans 1 in the SBIIS

Romans 1 in the SBIIS2

Romans 1 in the SBIIS3

Romans 1 in the SBIKS

Romans 1 in the SBIKS2

Romans 1 in the SBIMS

Romans 1 in the SBIOS

Romans 1 in the SBIPS

Romans 1 in the SBISS

Romans 1 in the SBITS

Romans 1 in the SBITS2

Romans 1 in the SBITS3

Romans 1 in the SBITS4

Romans 1 in the SBIUS

Romans 1 in the SBIVS

Romans 1 in the SBT

Romans 1 in the SBT1E

Romans 1 in the SCHL

Romans 1 in the SNT

Romans 1 in the SUSU

Romans 1 in the SUSU2

Romans 1 in the SYNO

Romans 1 in the TBIAOTANT

Romans 1 in the TBT1E

Romans 1 in the TBT1E2

Romans 1 in the TFTIP

Romans 1 in the TFTU

Romans 1 in the TGNTATF3T

Romans 1 in the THAI

Romans 1 in the TNFD

Romans 1 in the TNT

Romans 1 in the TNTIK

Romans 1 in the TNTIL

Romans 1 in the TNTIN

Romans 1 in the TNTIP

Romans 1 in the TNTIZ

Romans 1 in the TOMA

Romans 1 in the TTENT

Romans 1 in the UBG

Romans 1 in the UGV

Romans 1 in the UGV2

Romans 1 in the UGV3

Romans 1 in the VBL

Romans 1 in the VDCC

Romans 1 in the YALU

Romans 1 in the YAPE

Romans 1 in the YBVTP

Romans 1 in the ZBP