Romans 16 (BOILNTAP)

1 Innan skamms kemur kristin kona, að nafni Föbe, í heimsókn til ykkar. Hún hefur lagt mikið á sig fyrir söfnuðinn í Kenkreu og nú bið ég ykkur að taka vel á móti henni, eins og hæfir systur í Drottni. 2 Veitið henni alla þá aðstoð sem ykkur er unnt, því að mörgum hefur hún hjálpað og þar á meðal mér. 3 Berið Prisku og Akvílasi kveðju mína. Þau hafa starfað með mér við verk Jesú Krists. 4 Þau hættu lífi sínu mín vegna og ég er ekki sá eini sem stend í þakkarskuld við þau, það gera allir söfnuðirnir meðal heiðingjanna. 5 Gjörið svo vel að flytja einnig kveðjur mínar þeim sem koma saman til guðsþjónustu á heimili þeirra. Ég bið að heilsa Epænetusi vini mínum. Hann var sá fyrsti sem tók kristna trú í Asíu. 6 Skilið kveðju til Maríu, hún lagði á sig mikið erfiði til að geta hjálpað okkur. 7 Skilið einnig kveðju til Andróníkusar og Júníasar, ættingja minna sem voru með mér í fangelsi. Þeir urðu kristnir á undan mér og postularnir virða þá mikils – ég bið kærlega að heilsa þeim. 8 Skilið kveðju til Amplíatusar, en hann elska ég sem barn Guðs, 9 og einnig til Urbanusar, samstarfsmanns okkar, og Stakkýss okkar elskaða vinar. 10 Apellesi, honum sendi ég kveðju mína en hann er góður maður og reyndur í Guði. Ég bið einnig kærlega að heilsa heimamönnum Aristóbúls. 11 Skilið kveðju til Heródíons ættingja míns. Berið heimilisfólkinu hjá Narkissusi kveðju mína. 12 Skilið kveðju til Trýfænu og Trýfósu, samverkamanna Drottins, og kæru Persis, sem lagt hefur mikið á sig fyrir Drottin. 13 Ég bið að heilsa Rúfusi, sem Drottinn tók að sér, og móður hans, en hún var mér sem móðir. 14 Ég bið einnig að heilsa Asýnkritusi, Flegon, Hermes, Patróbasi, Hermasi og bræðrunum sem með þeim eru. 15 Skilið kærum kveðjum til Fílólógusar, Júlíu, Nerevs og systur hans, einnig til Ólympasar og allra hinna kristnu sem með þeim eru. 16 Heilsið hvert öðru innilega. Allir söfnuðirnir hér um slóðir senda ykkur kveðju sína. 17 Eitt á ég eftir að segja ykkur áður en ég lýk þessu bréfi og það er: Forðist þá sem valda klofningi og sundurþykkju, þá sem fara með rangar kenningar um Krist. 18 Slíkir kennarar starfa ekki fyrir Drottin Jesú, heldur skara þeir eld að eigin köku. Þessir menn eru mælskir og oft láta einfeldningar glepjast af því sem þeir segja. 19 En altalað er að þið séuð áreiðanleg og hlýðin og slíkt gleður mig mjög. Ég vil að þið haldið ykkur áfram að því sem rétt er og takið engan þátt í hinu illa. 20 Guð friðarins mun brátt merja Satan undir fótum ykkar! Blessun Drottins Jesú Krists sé yfir ykkur. 21 Tímóteus, samstarfsmaður minn, Lúkíus, Jason og Sósípater, ættmenn mínir biðja kærlega að heilsa ykkur. 22 Ég, Tertíus, sem hef skrifað þetta bréf fyrir Pál, sendi ykkur einnig vinarkveðju. 23 Gajus bað mig að skila kveðju til ykkar frá sér. Ég gisti hjá honum og söfnuðurinn kemur saman hér á heimili hans. Erastus, gjaldkeri borgarinnar, biður að heilsa, svo og Kvartus, en hann er bróðir í Kristi. 24 Verið þið sæl. Náð Drottins Jesú Krists sé með ykkur öllum. 25 25-27 Ég fel ykkur Guði, honum sem megnar að styrkja ykkur og staðfesta í trúnni, eins og talað er um í gleðiboðskapnum sem ég flyt. Sá boðskapur er leiðin sem Guð hefur opnað öllum mönnum til hjálpræðis og sem öldum saman hefur legið í þagnargildi. En nú hefur það gerst samkvæmt skipun Guðs, eins og spámennirnir sögðu fyrir, að þessi boðskapur er fluttur meðal allra þjóða, svo að fólk um víða veröld trúi Kristi og hlýði honum. Guði, sem þekkir alla hluti, sé dýrð að eilífu fyrir Drottin Jesú Krist. Amen.

In Other Versions

Romans 16 in the ANGEFD

Romans 16 in the ANTPNG2D

Romans 16 in the AS21

Romans 16 in the BAGH

Romans 16 in the BBPNG

Romans 16 in the BBT1E

Romans 16 in the BDS

Romans 16 in the BEV

Romans 16 in the BHAD

Romans 16 in the BIB

Romans 16 in the BLPT

Romans 16 in the BNT

Romans 16 in the BNTABOOT

Romans 16 in the BNTLV

Romans 16 in the BOATCB

Romans 16 in the BOATCB2

Romans 16 in the BOBCV

Romans 16 in the BOCNT

Romans 16 in the BOECS

Romans 16 in the BOGWICC

Romans 16 in the BOHCB

Romans 16 in the BOHCV

Romans 16 in the BOHLNT

Romans 16 in the BOHNTLTAL

Romans 16 in the BOICB

Romans 16 in the BOITCV

Romans 16 in the BOKCV

Romans 16 in the BOKCV2

Romans 16 in the BOKHWOG

Romans 16 in the BOKSSV

Romans 16 in the BOLCB

Romans 16 in the BOLCB2

Romans 16 in the BOMCV

Romans 16 in the BONAV

Romans 16 in the BONCB

Romans 16 in the BONLT

Romans 16 in the BONUT2

Romans 16 in the BOPLNT

Romans 16 in the BOSCB

Romans 16 in the BOSNC

Romans 16 in the BOTLNT

Romans 16 in the BOVCB

Romans 16 in the BOYCB

Romans 16 in the BPBB

Romans 16 in the BPH

Romans 16 in the BSB

Romans 16 in the CCB

Romans 16 in the CUV

Romans 16 in the CUVS

Romans 16 in the DBT

Romans 16 in the DGDNT

Romans 16 in the DHNT

Romans 16 in the DNT

Romans 16 in the ELBE

Romans 16 in the EMTV

Romans 16 in the ESV

Romans 16 in the FBV

Romans 16 in the FEB

Romans 16 in the GGMNT

Romans 16 in the GNT

Romans 16 in the HARY

Romans 16 in the HNT

Romans 16 in the IRVA

Romans 16 in the IRVB

Romans 16 in the IRVG

Romans 16 in the IRVH

Romans 16 in the IRVK

Romans 16 in the IRVM

Romans 16 in the IRVM2

Romans 16 in the IRVO

Romans 16 in the IRVP

Romans 16 in the IRVT

Romans 16 in the IRVT2

Romans 16 in the IRVU

Romans 16 in the ISVN

Romans 16 in the JSNT

Romans 16 in the KAPI

Romans 16 in the KBT1ETNIK

Romans 16 in the KBV

Romans 16 in the KJV

Romans 16 in the KNFD

Romans 16 in the LBA

Romans 16 in the LBLA

Romans 16 in the LNT

Romans 16 in the LSV

Romans 16 in the MAAL

Romans 16 in the MBV

Romans 16 in the MBV2

Romans 16 in the MHNT

Romans 16 in the MKNFD

Romans 16 in the MNG

Romans 16 in the MNT

Romans 16 in the MNT2

Romans 16 in the MRS1T

Romans 16 in the NAA

Romans 16 in the NASB

Romans 16 in the NBLA

Romans 16 in the NBS

Romans 16 in the NBVTP

Romans 16 in the NET2

Romans 16 in the NIV11

Romans 16 in the NNT

Romans 16 in the NNT2

Romans 16 in the NNT3

Romans 16 in the PDDPT

Romans 16 in the PFNT

Romans 16 in the RMNT

Romans 16 in the SBIAS

Romans 16 in the SBIBS

Romans 16 in the SBIBS2

Romans 16 in the SBICS

Romans 16 in the SBIDS

Romans 16 in the SBIGS

Romans 16 in the SBIHS

Romans 16 in the SBIIS

Romans 16 in the SBIIS2

Romans 16 in the SBIIS3

Romans 16 in the SBIKS

Romans 16 in the SBIKS2

Romans 16 in the SBIMS

Romans 16 in the SBIOS

Romans 16 in the SBIPS

Romans 16 in the SBISS

Romans 16 in the SBITS

Romans 16 in the SBITS2

Romans 16 in the SBITS3

Romans 16 in the SBITS4

Romans 16 in the SBIUS

Romans 16 in the SBIVS

Romans 16 in the SBT

Romans 16 in the SBT1E

Romans 16 in the SCHL

Romans 16 in the SNT

Romans 16 in the SUSU

Romans 16 in the SUSU2

Romans 16 in the SYNO

Romans 16 in the TBIAOTANT

Romans 16 in the TBT1E

Romans 16 in the TBT1E2

Romans 16 in the TFTIP

Romans 16 in the TFTU

Romans 16 in the TGNTATF3T

Romans 16 in the THAI

Romans 16 in the TNFD

Romans 16 in the TNT

Romans 16 in the TNTIK

Romans 16 in the TNTIL

Romans 16 in the TNTIN

Romans 16 in the TNTIP

Romans 16 in the TNTIZ

Romans 16 in the TOMA

Romans 16 in the TTENT

Romans 16 in the UBG

Romans 16 in the UGV

Romans 16 in the UGV2

Romans 16 in the UGV3

Romans 16 in the VBL

Romans 16 in the VDCC

Romans 16 in the YALU

Romans 16 in the YAPE

Romans 16 in the YBVTP

Romans 16 in the ZBP