Acts 16 (BOILNTAP)

1 Páll og Sílas lögðu fyrst leið sína til Derbe og síðan til Lýstru. Þar hittu þeir Tímóteus, trúaðan mann. Hann átti kristna móður, sem var Gyðingur, en faðir hans var grískur. 2 Bræðrunum í Lýstru og Íkóníum líkaði vel við Tímóteus, 3 og bað Páll hann því að slást í för með sér. Vegna Gyðinganna, sem þarna bjuggu, fannst Páli rétt að umskera Tímóteus áður en þeir lögðu af stað, því að allir vissu að faðir hans var grískur (hann hafði ekki viljað leyfa slíkt fyrr en nú). 4 Síðan fóru þeir þrír frá einum bæ til annars og kunngjörðu þær ákvarðanir, sem postularnir og öldungarnir í Jerúsalem höfðu tekið varðandi heiðingjana, sem yrðu kristnir. 5 Í söfnuðunum fjölgaði nú dag frá degi og menn styrktust í trúnni. 6 Þeir félagarnir fóru næst um héruðin Frýgíu og Galatíu, en ekki Asíuhéruð, því að þangað hafði heilagur andi bannað þeim að fara. 7 Þeir héldu því fram með landamærum Mýsíu og ætluðu inn í Biþýníuhérað, en andi Jesú neitaði því aftur. 8 Af þeim sökum fóru þeir um Mýsíu og til Tróas. 9 Í Tróas fékk Páll vitrun um nótt. Sá hann mann frá Makedóníu í Grikklandi koma til sín. Maðurinn bað hann heitt og innilega: „Komdu til Makedóníu og hjálpaðu okkur.“ 10 Þar með var málið leyst. Nú vissum við hvert við áttum að fara. Til Makedóníu. Guð ætlaði að senda okkur þangað til að boða fagnaðarerindið. 11 Við fórum með skipi frá Tróas, sigldum beint til Samóþrake og þaðan daginn eftir til Neapólis. 12 Loks komum við til Filippí, rómverskrar nýlendu, rétt innan við landamæri Makedóníu, og þar dvöldumst við í nokkra daga. 13 Á helgidegi Gyðinga fórum við spölkorn út fyrir borgina, fram með á nokkurri, til staðar sem við álitum vera hentugan bænastað. Þar settumst við niður og töluðum við konur sem þar voru saman komnar. 14 Ein þeirra hét Lýdía. Var hún verslunarkona frá Þýatíru og seldi purpuraklæði. Hún var guðrækin. Meðan hún hlustaði á okkur, opnaði Drottinn hjarta hennar og hún tók á móti öllu sem Páll sagði. 15 Hún lét skírast ásamt öllu heimilisfólki sínu og bauð okkur að gista hjá sér.„Ef þið álítið mig trúa Drottni,“ sagði hún, „komið þá og dveljist á heimili mínu.“ Hún lagði hart að okkur uns við létum undan. 16 Dag einn, er við vorum á leið til bænastaðarins á árbakkanum, mættum við þjónustustúlku sem hafði illan anda. Hún spáði fyrir fólki og græddi þannig mikla peninga handa eigendum sínum. 17 Allt í einu fór hún að elta okkur og hrópa: „Þessir menn eru þjónar Guðs og eru komnir til að segja ykkur hvernig þið getið fengið syndafyrirgefningu.“ 18 Þessu hélt hún áfram dag eftir dag, þar til Páll, sem líkaði þetta illa, sneri sér við og sagði við illa andann, sem í henni var: „Ég skipa þér í nafni Jesús að fara út af henni!“ Á sama andartaki fór andinn út. 19 En nú var gróðavon eigenda hennar brostin. Þeir tóku því Pál og Sílas, drógu þá fyrir dómarana á markaðstorginu og hrópuðu: 20 20,21 „Þessir Gyðingar eru að setja borgina á annan endann! Þeir hvetja fólk til að óhlýðnast rómverskum lögum!“ 22 Þeir æstu múginn gegn Páli og Sílasi, svo að dómararnir fyrirskipuðu að þeir skyldu afklæddir og barðir með prikum. 23 Og það var gert – þeir voru barðir mörg högg, og að því loknu var þeim varpað í fangelsi. Fangavörðurinn fékk hótun um að hann yrði tekinn af lífi, ef þeir slyppu. 24 Til að eiga ekkert á hættu stakk hann þeim í innri dýflissuna og læsti hendur þeirra og fætur í stokka. 25 Um miðnættið, er Páll og Sílas voru að biðja og lofa Drottin í áheyrn hinna fanganna, 26 kom skyndilega mikill jarðskjálfti. Fangelsið hristist og skalf á undirstöðu sinni, allar dyr hrukku upp og hlekkirnir féllu af föngunum. 27 Fangavörðurinn vaknaði og það fyrsta sem hann sá var að fangelsisdyrnar stóðu upp á gátt. Hann áleit strax að fangarnir væru flúnir og dró því upp sverð sitt til að fyrirfara sér. 28 „Gerðu þetta ekki!“ hrópaði Páll til hans. „Við erum hér allir!“ 29 Fangavörðurinn skalf af ótta og bað um ljós, hljóp inn í dýflissuna og kraup frammi fyrir Páli og Sílasi. 30 Síðan leiddi hann þá út og spurði óttasleginn: „Herrar mínir, hvað á ég að gera til þess að ég frelsist?“ 31 Þeir svöruðu: „Trúðu á Drottin Jesú og þá muntu frelsast og allt þitt heimafólk.“ 32 Þeir fluttu honum, og heimilisfólki hans, gleðiboðskapinn frá Drottni. 33 Eftir það þvoði hann sár þeirra og lét skírast ásamt allri fjölskyldu sinni. 34 Og hann fór heim með þá og gaf þeim að borða og gladdist mjög ásamt heimilisfólki sínu yfir að hafa tekið trú á Guð. 35 Morguninn eftir sendu borgarstjórarnir þessi boð til fangavarðarins: „Láttu þessa menn lausa!“ 36 Fangavörðurinn tilkynnti því Páli að þeir mættu fara frjálsir ferða sinna. 37 En Páll svaraði: „Nei, svona geta þeir ekki farið að. Þeir hafa barið okkur opinberlega án dóms og síðan stungið okkur í fangelsi – okkur sem erum rómverskir borgarar. Nú ætla þeir að sleppa okkur svo lítið beri á, en það komast þeir ekki upp með. Þeir skulu koma í eigin persónu og leiða okkur út!“ 38 Sendiboðarnir fluttu borgarstjórunum þessi skilaboð. Þegar þeir heyrðu að Páll og Sílas væru rómverskir borgarar, urðu þeir mjög hræddir. 39 Þeir fóru til fangelsisins, báðu þá afsökunar, leiddu þá út og báðu þá að fara burt úr borginni. 40 Þegar Páll og Sílas voru lausir úr fangelsinu, fóru þeir heim til Lýdíu og hittu þar hina trúuðu. Þeir hughreystu þá með orði Guðs og héldu síðan áfram ferðinni.

In Other Versions

Acts 16 in the ANGEFD

Acts 16 in the ANTPNG2D

Acts 16 in the AS21

Acts 16 in the BAGH

Acts 16 in the BBPNG

Acts 16 in the BBT1E

Acts 16 in the BDS

Acts 16 in the BEV

Acts 16 in the BHAD

Acts 16 in the BIB

Acts 16 in the BLPT

Acts 16 in the BNT

Acts 16 in the BNTABOOT

Acts 16 in the BNTLV

Acts 16 in the BOATCB

Acts 16 in the BOATCB2

Acts 16 in the BOBCV

Acts 16 in the BOCNT

Acts 16 in the BOECS

Acts 16 in the BOGWICC

Acts 16 in the BOHCB

Acts 16 in the BOHCV

Acts 16 in the BOHLNT

Acts 16 in the BOHNTLTAL

Acts 16 in the BOICB

Acts 16 in the BOITCV

Acts 16 in the BOKCV

Acts 16 in the BOKCV2

Acts 16 in the BOKHWOG

Acts 16 in the BOKSSV

Acts 16 in the BOLCB

Acts 16 in the BOLCB2

Acts 16 in the BOMCV

Acts 16 in the BONAV

Acts 16 in the BONCB

Acts 16 in the BONLT

Acts 16 in the BONUT2

Acts 16 in the BOPLNT

Acts 16 in the BOSCB

Acts 16 in the BOSNC

Acts 16 in the BOTLNT

Acts 16 in the BOVCB

Acts 16 in the BOYCB

Acts 16 in the BPBB

Acts 16 in the BPH

Acts 16 in the BSB

Acts 16 in the CCB

Acts 16 in the CUV

Acts 16 in the CUVS

Acts 16 in the DBT

Acts 16 in the DGDNT

Acts 16 in the DHNT

Acts 16 in the DNT

Acts 16 in the ELBE

Acts 16 in the EMTV

Acts 16 in the ESV

Acts 16 in the FBV

Acts 16 in the FEB

Acts 16 in the GGMNT

Acts 16 in the GNT

Acts 16 in the HARY

Acts 16 in the HNT

Acts 16 in the IRVA

Acts 16 in the IRVB

Acts 16 in the IRVG

Acts 16 in the IRVH

Acts 16 in the IRVK

Acts 16 in the IRVM

Acts 16 in the IRVM2

Acts 16 in the IRVO

Acts 16 in the IRVP

Acts 16 in the IRVT

Acts 16 in the IRVT2

Acts 16 in the IRVU

Acts 16 in the ISVN

Acts 16 in the JSNT

Acts 16 in the KAPI

Acts 16 in the KBT1ETNIK

Acts 16 in the KBV

Acts 16 in the KJV

Acts 16 in the KNFD

Acts 16 in the LBA

Acts 16 in the LBLA

Acts 16 in the LNT

Acts 16 in the LSV

Acts 16 in the MAAL

Acts 16 in the MBV

Acts 16 in the MBV2

Acts 16 in the MHNT

Acts 16 in the MKNFD

Acts 16 in the MNG

Acts 16 in the MNT

Acts 16 in the MNT2

Acts 16 in the MRS1T

Acts 16 in the NAA

Acts 16 in the NASB

Acts 16 in the NBLA

Acts 16 in the NBS

Acts 16 in the NBVTP

Acts 16 in the NET2

Acts 16 in the NIV11

Acts 16 in the NNT

Acts 16 in the NNT2

Acts 16 in the NNT3

Acts 16 in the PDDPT

Acts 16 in the PFNT

Acts 16 in the RMNT

Acts 16 in the SBIAS

Acts 16 in the SBIBS

Acts 16 in the SBIBS2

Acts 16 in the SBICS

Acts 16 in the SBIDS

Acts 16 in the SBIGS

Acts 16 in the SBIHS

Acts 16 in the SBIIS

Acts 16 in the SBIIS2

Acts 16 in the SBIIS3

Acts 16 in the SBIKS

Acts 16 in the SBIKS2

Acts 16 in the SBIMS

Acts 16 in the SBIOS

Acts 16 in the SBIPS

Acts 16 in the SBISS

Acts 16 in the SBITS

Acts 16 in the SBITS2

Acts 16 in the SBITS3

Acts 16 in the SBITS4

Acts 16 in the SBIUS

Acts 16 in the SBIVS

Acts 16 in the SBT

Acts 16 in the SBT1E

Acts 16 in the SCHL

Acts 16 in the SNT

Acts 16 in the SUSU

Acts 16 in the SUSU2

Acts 16 in the SYNO

Acts 16 in the TBIAOTANT

Acts 16 in the TBT1E

Acts 16 in the TBT1E2

Acts 16 in the TFTIP

Acts 16 in the TFTU

Acts 16 in the TGNTATF3T

Acts 16 in the THAI

Acts 16 in the TNFD

Acts 16 in the TNT

Acts 16 in the TNTIK

Acts 16 in the TNTIL

Acts 16 in the TNTIN

Acts 16 in the TNTIP

Acts 16 in the TNTIZ

Acts 16 in the TOMA

Acts 16 in the TTENT

Acts 16 in the UBG

Acts 16 in the UGV

Acts 16 in the UGV2

Acts 16 in the UGV3

Acts 16 in the VBL

Acts 16 in the VDCC

Acts 16 in the YALU

Acts 16 in the YAPE

Acts 16 in the YBVTP

Acts 16 in the ZBP