Luke 8 (BOILNTAP)

1 Skömmu síðar fór Jesús borg úr borg og þorp úr þorpi, predikaði og boðaði komu guðsríkisins. 2 Með í förinni voru postularnir tólf, og einnig nokkrar konur, sem hann hafði rekið illa anda út af eða læknað. Þeirra á meðal voru María Magdalena (en út af henni hafði Jesús rekið sjö illa anda), 3 Jóhanna (kona Kúsa, sem var ráðsmaður Heródesar konungs og hafði umsjón með höll hans og hirð), Súsanna og margar aðrar. Veittu þær Jesú og lærisveinum hans fjárhagslegan stuðning. 4 Einu sinni sem oftar hópaðist fólkið að Jesú til að hlusta á hann. Fólkið kom víðs vegar að úr ýmsum bæjum. Þá sagði hann þessa dæmisögu: 5 „Bóndi gekk út á akur sinn til að sá korni. Meðan hann var að sá, féll sumt af útsæðinu á götuslóðann og tróðst niður, en síðan komu fuglar og átu það upp. 6 Annað féll þar sem grunnt var á klöpp. Það óx, en skrælnaði fljótlega og dó, því raka vantaði í grunnan jarðveginn. 7 Sumt lenti meðal þyrna, sem kæfðu viðkvæma kornstönglana. 8 En annað lenti í frjósömum jarðvegi og óx og gaf af sér hundraðfalda uppskeru. Um leið og Jesús sagði þetta hrópaði hann: „Hver sem hefur eyru til að heyra, hann heyri.“ 9 Lærisveinarnir spurðu þá Jesú hvað sagan þýddi. 10 Hann svaraði: „Guð hefur ætlað ykkur að skilja þessar líkingar, því þær kenna ykkur margt um guðsríki. Fólk almennt heyrir þær, en skilur ekki, rétt eins og spámennirnir fornu sögðu fyrir. 11 Merking sögunnar er þessi: Útsæðið er Guðs orð. 12 Hjörtu margra sem heyra Guðs orð eru hörð eins og gatan, þar sem fræið féll. Síðan kemur djöfullinn, tekur burt orðið og kemur í veg fyrir að fólkið trúi og frelsist. 13 Grýtti jarðvegurinn táknar þá sem taka við orðinu með fögnuði, en það festir ekki rætur hjá þeim. Þeir trúa um stund, en falla frá trúnni þegar á reynir. 14 Kornið sem lenti meðal þyrnanna, táknar þá sem hlusta og trúa orðum Guðs. En síðar kafnar trú þeirra í áhyggjum, auðæfum og alls konar lífsgæðakapphlaupi. Það fólk ber engan þroskaðan ávöxt trúarinnar. 15 Sæðið sem lenti í frjósama jarðveginum táknar þá sem heyrt hafa orðið, geyma það í göfugu og góðu hjarta, og eru stöðuglyndir, þannig að ávextir trúarinnar sjást í lífi þeirra.“ 16 Seinna spurði Jesús: „Hafið þið nokkru sinni heyrt um mann sem kveikti á lampa, en stakk honum síðan undir stól, svo að hann lýsti ekki frá sér? Nei, því að lampar eru settir á góðan stað, svo að birtan dreifist vel. 17 Þetta auðveldar okkur að skilja að dag einn mun allt sem mannshugurinn geymir verða dregið fram í dagsljósið og verða öllum augljóst. 18 Gætið því vel að því sem þið heyrið. Því að þeim sem hefur, mun verða gefið enn meira, en frá þeim sem ekkert á, mun jafnvel verða tekið það sem hann telur sig eiga.“ 19 Eitt sinn, er móðir Jesú og bræður komu og ætluðu að hitta hann, komust þau ekki inn í húsið þar sem hann var að kenna, vegna mannfjöldans. 20 Þegar Jesús heyrði að þau væru fyrir utan og vildu finna hann, 21 sagði hann: „Móðir mín og bræður mínir eru þeir sem heyra orð Guðs og fara eftir því.“ 22 Dag einn var Jesús með lærisveinum sínum í báti úti á vatni. Lagði hann þá til að þeir færu yfir vatnið og í land hinum megin. 23 Á siglingunni sofnaði hann. Þá hvessti skyndilega á vatninu svo að gaf á hjá þeim og voru þeir hætt komnir. 24 Þeir þutu til, vöktu hann og hrópuðu: „Herra, við erum að farast!“ Þá hastaði Jesús á storminn og sagði: „Hafðu hægt um þig!“ Jafnskjótt lægði vindinn og öldurnar og gerði blíðalogn. 25 Síðan sneri hann sér að lærisveinunum og spurði: „Hvar er trú ykkar?“Þá fundu þeir til ótta gagnvart honum og sögðu hver við annan: „Hver er hann eiginlega? Bæði vindar og vatn hlýða honum.“ 26 Þeir komu að landi í Gerasena, en það er landsvæði við vatnið, gegnt Galíleu. 27 Þegar hann var að stíga upp úr bátnum, kom þar að maður frá nálægu þorpi. Maður þessi hafði lengi verið haldinn illum anda. Hann var heimilislaus og klæðlaus og hafðist við í gröfunum. 28 Um leið og hann sá Jesú, rak hann upp vein, féll til jarðar og hrópaði: „Hvað viltu mér, Jesús, sonur hins hæsta Guðs? Ég bið þig að kvelja mig ekki.“ 29 Jesús hafði skipað óhreina andanum að fara út af manninum. Oft hafði þessi maður verið hlekkjaður á höndum og fótum, en þegar illi andinn hafði hann á valdi sínu sleit hann í sundur hlekkina og æddi viti sínu fjær út á eyðimörkina. 30 „Hvað heitir þú?“ spurði Jesús illa andann.„Hersing,“ svaraði hann, því í manninum voru mjög margir illir andar. 31 Síðan báðu illu andarnir hann að senda sig ekki í botnlausa hyldýpið. 32 Í fjallshlíðinni þar rétt hjá, var svínahjörð á beit. Nú báðu illu andarnir hann að leyfa sér að fara í svínin og leyfði hann það. 33 Þeir fóru út af manninum og í svínin. Við það tók öll hjörðin á rás niður brekkuna og æddi fram af hengifluginu út í vatnið og drukknaði. 34 Þegar svínahirðarnir sáu þetta, flýðu þeir í dauðans ofboði til næsta bæjar og sögðu fréttir af atburðinum. 35 Menn fóru til að sjá með eigin augum hvað gerst hafði. Þeir sáu manninn, sem haft hafði illu andana, sitja við fætur Jesú, klæddan og alheilan! Og þeir urðu hræddir, 36 en hinir sem séð höfðu atburðinn gerast, sögðu frá hvernig maðurinn hafði læknast. 37 Fólkið bað Jesú að fara burt og leyfa sér að vera í friði, því mikil skelfing hafði gripið það. Hann steig því aftur í bátinn og fór yfir vatnið. Áður en hann fór, 38 bað maðurinn sem illu andarnir höfðu verið í, hann um að leyfa sér að koma með. 39 „Nei,“ svaraði Jesús, „farðu heldur heim til þín og segðu frá hve mikla hluti Guð hefur gert fyrir þig.“Og maðurinn fór um alla borgina og sagði hve mikið Jesús hafði gert fyrir hann. 40 Hinum megin vatnsins beið mannfjöldinn eftir Jesú og tók honum opnum örmum. 41 Þá kom þar að maður, Jaírus að nafni, stjórnandi samkomuhússins. Hann kraup að fótum Jesú og grátbað hann að koma heim með sér. 42 Einkadóttir hans, tólf ára gömul, lá fyrir dauðanum. Jesús fór með honum og þeir ruddu sér leið gegnum mannþröngina. 43 43,44 Á leiðinni gerðist það að kona ein, sem hafði innvortis blæðingar, kom að baki Jesú og snart hann. Hún hafði ekki fengið neina bót á meini sínu fram að þessu, þótt hún hefði eytt nær aleigu sinni í lækna. En jafnskjótt og hún snart faldinn á yfirhöfn Jesú stöðvuðust blæðingarnar. 45 „Hver kom við mig?“ spurði Jesús.Þegar enginn gaf sig fram, sagði Pétur: „Meistari, hér er fullt af fólki sem þrengir að þér á allar hliðar.“ 46 „Nei, einhver snart mig af ásettu ráði, því ég fann lækningakraft streyma út frá mér.“ sagði Jesús. 47 Þegar konan sá að Jesús hafði orðið var við þetta, kom hún skjálfandi og kraup við fætur hans. Síðan útskýrði hún hvernig í öllu lá og sagði að nú væri hún orðin heilbrigð. 48 „Dóttir, trú þín hefur læknað þig. Farðu í friði,“ sagði Jesús. 49 Meðan hann var að tala við konuna, kom maður heiman frá Jaírusi með þær fréttir að litla stúlkan væri dáin. „Hún er skilin við,“ sagði maðurinn við föður hennar, „það er óþarfi að ónáða meistarann lengur.“ 50 Þegar Jesús heyrði þetta, sagði hann við föður stúlkunnar: „Vertu ekki hræddur. Trúðu aðeins, og hún verður heilbrigð.“ 51 Þegar Jesús kom að húsinu, leyfði hann engum að fara inn með sér nema Pétri, Jakobi og Jóhannesi, auk foreldra stúlkunnar. 52 Inni í húsinu var margt syrgjandi fólk, sem grét hástöfum. „Hættið að gráta!“ sagði Jesús, „hún er ekki dáin heldur sefur hún.“ 53 Þá kváðu við háðsglósur frá fólkinu, því allir vissu að stúlkan var dáin. 54 En Jesús tók í hönd stúlkunnar og kallaði: „Stúlka litla, rístu upp!“ 55 55,56 Á sama andartaki lifnaði hún við og reis upp í rúminu! „Gefðu henni eitthvað að borða,“ sagði Jesús við foreldrana sem voru frá sér numdir af gleði. Hann bað þau að segja engum hvernig þetta hefði gerst.

In Other Versions

Luke 8 in the ANGEFD

Luke 8 in the ANTPNG2D

Luke 8 in the AS21

Luke 8 in the BAGH

Luke 8 in the BBPNG

Luke 8 in the BBT1E

Luke 8 in the BDS

Luke 8 in the BEV

Luke 8 in the BHAD

Luke 8 in the BIB

Luke 8 in the BLPT

Luke 8 in the BNT

Luke 8 in the BNTABOOT

Luke 8 in the BNTLV

Luke 8 in the BOATCB

Luke 8 in the BOATCB2

Luke 8 in the BOBCV

Luke 8 in the BOCNT

Luke 8 in the BOECS

Luke 8 in the BOGWICC

Luke 8 in the BOHCB

Luke 8 in the BOHCV

Luke 8 in the BOHLNT

Luke 8 in the BOHNTLTAL

Luke 8 in the BOICB

Luke 8 in the BOITCV

Luke 8 in the BOKCV

Luke 8 in the BOKCV2

Luke 8 in the BOKHWOG

Luke 8 in the BOKSSV

Luke 8 in the BOLCB

Luke 8 in the BOLCB2

Luke 8 in the BOMCV

Luke 8 in the BONAV

Luke 8 in the BONCB

Luke 8 in the BONLT

Luke 8 in the BONUT2

Luke 8 in the BOPLNT

Luke 8 in the BOSCB

Luke 8 in the BOSNC

Luke 8 in the BOTLNT

Luke 8 in the BOVCB

Luke 8 in the BOYCB

Luke 8 in the BPBB

Luke 8 in the BPH

Luke 8 in the BSB

Luke 8 in the CCB

Luke 8 in the CUV

Luke 8 in the CUVS

Luke 8 in the DBT

Luke 8 in the DGDNT

Luke 8 in the DHNT

Luke 8 in the DNT

Luke 8 in the ELBE

Luke 8 in the EMTV

Luke 8 in the ESV

Luke 8 in the FBV

Luke 8 in the FEB

Luke 8 in the GGMNT

Luke 8 in the GNT

Luke 8 in the HARY

Luke 8 in the HNT

Luke 8 in the IRVA

Luke 8 in the IRVB

Luke 8 in the IRVG

Luke 8 in the IRVH

Luke 8 in the IRVK

Luke 8 in the IRVM

Luke 8 in the IRVM2

Luke 8 in the IRVO

Luke 8 in the IRVP

Luke 8 in the IRVT

Luke 8 in the IRVT2

Luke 8 in the IRVU

Luke 8 in the ISVN

Luke 8 in the JSNT

Luke 8 in the KAPI

Luke 8 in the KBT1ETNIK

Luke 8 in the KBV

Luke 8 in the KJV

Luke 8 in the KNFD

Luke 8 in the LBA

Luke 8 in the LBLA

Luke 8 in the LNT

Luke 8 in the LSV

Luke 8 in the MAAL

Luke 8 in the MBV

Luke 8 in the MBV2

Luke 8 in the MHNT

Luke 8 in the MKNFD

Luke 8 in the MNG

Luke 8 in the MNT

Luke 8 in the MNT2

Luke 8 in the MRS1T

Luke 8 in the NAA

Luke 8 in the NASB

Luke 8 in the NBLA

Luke 8 in the NBS

Luke 8 in the NBVTP

Luke 8 in the NET2

Luke 8 in the NIV11

Luke 8 in the NNT

Luke 8 in the NNT2

Luke 8 in the NNT3

Luke 8 in the PDDPT

Luke 8 in the PFNT

Luke 8 in the RMNT

Luke 8 in the SBIAS

Luke 8 in the SBIBS

Luke 8 in the SBIBS2

Luke 8 in the SBICS

Luke 8 in the SBIDS

Luke 8 in the SBIGS

Luke 8 in the SBIHS

Luke 8 in the SBIIS

Luke 8 in the SBIIS2

Luke 8 in the SBIIS3

Luke 8 in the SBIKS

Luke 8 in the SBIKS2

Luke 8 in the SBIMS

Luke 8 in the SBIOS

Luke 8 in the SBIPS

Luke 8 in the SBISS

Luke 8 in the SBITS

Luke 8 in the SBITS2

Luke 8 in the SBITS3

Luke 8 in the SBITS4

Luke 8 in the SBIUS

Luke 8 in the SBIVS

Luke 8 in the SBT

Luke 8 in the SBT1E

Luke 8 in the SCHL

Luke 8 in the SNT

Luke 8 in the SUSU

Luke 8 in the SUSU2

Luke 8 in the SYNO

Luke 8 in the TBIAOTANT

Luke 8 in the TBT1E

Luke 8 in the TBT1E2

Luke 8 in the TFTIP

Luke 8 in the TFTU

Luke 8 in the TGNTATF3T

Luke 8 in the THAI

Luke 8 in the TNFD

Luke 8 in the TNT

Luke 8 in the TNTIK

Luke 8 in the TNTIL

Luke 8 in the TNTIN

Luke 8 in the TNTIP

Luke 8 in the TNTIZ

Luke 8 in the TOMA

Luke 8 in the TTENT

Luke 8 in the UBG

Luke 8 in the UGV

Luke 8 in the UGV2

Luke 8 in the UGV3

Luke 8 in the VBL

Luke 8 in the VDCC

Luke 8 in the YALU

Luke 8 in the YAPE

Luke 8 in the YBVTP

Luke 8 in the ZBP