Mark 11 (BOILNTAP)

1 Þegar þeir komu til Betfage og Betaníu, sem eru smáþorp við Olíufjallið, skammt frá Jerúsalem, sendi Jesús tvo lærisveina sinna á undan sér. 2 „Farið í þorpið þarna á móti,“ sagði hann. „Þegar þið komið þangað, munuð þið finna ösnufola sem enginn hefur komið á bak. Leysið hann og færið mér. 3 Ef einhver spyr hvers vegna þið gerið þetta, skuluð þið segja: „Meistari okkar þarf á honum að halda, en hann skilar honum fljótt aftur“.“ 4 4,5 Mennirnir tveir fóru og fundu folann bundinn hjá húsi nokkru við eina götuna. Meðan þeir voru að leysa hann, spurðu menn sem þar voru: „Hvers vegna leysið þið folann?“ 6 Þeir svöruðu eins og Jesús hafði sagt þeim að gera og þá leyfðu mennirnir þeim að taka hann. 7 Síðan fóru þeir með folann til Jesú. Lærisveinarnir lögðu yfirhafnir sínar á hann og Jesús settist á bak. 8 Margir í mannþyrpingunni lögðu yfirhafnir sínar á veginn þar sem Jesús fór, en aðrir lögðu laufgaðar greinar og strá sem þeir höfðu skorið af ökrunum. 9 Athygli allra beindist að Jesú og fólkið gekk í hópum á undan og eftir og hrópaði: „Blessaður sé konungurinn, sem kemur í nafni Drottins!“ 10 „Lofaður sé Guð, því hann endurreisir konungdóm Davíðs…“ „Lengi lifi Drottinn himnanna!“ 11 Þegar Jesús var kominn til Jerúsalem, fór hann inn í musterið, gekk um og virti allt gaumgæfilega fyrir sér. Um kvöldið fór hann út til Betaníu ásamt lærisveinunum tólf og gisti þar. 12 Þegar þeir fóru frá Betaníu daginn eftir, fann Jesús til hungurs. 13 Þá kom hann auga á laufgað fíkjutré skammt frá. Hann gekk að trénu til að athuga hvort á því væru nokkrar fíkjur. Þar var aðeins lauf að finna, engar fíkjur, því þetta var snemma árs og fíkjurnar enn ekki sprottnar. 14 Þá sagði Jesús við tréð, svo lærisveinarnir heyrðu: „Aldrei framar munt þú ávöxt bera!“ 15 Þegar til Jerúsalem kom, fór hann upp í musterið og rak út kaupmennina og viðskiptavini þeirra. Hann hratt um koll stólum dúfnasalanna og borðum þeirra sem skiptu mynt, 16 og stöðvaði þá sem voru að bera inn alls konar söluvarning. 17 Hann sagði við þá: „Guðs orð segir: „Musteri mitt á að vera bænastaður fyrir allar þjóðir, en þið hafið breytt því í ræningjabæli“.“ 18 Þegar æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar fréttu þetta, ræddu þeir hvernig þeir gætu ráðið Jesú af dögum, en þeir óttuðust uppþot meðal fólksins, sem líkaði vel það sem Jesús sagði. 19 Þetta kvöld fóru Jesús og lærisveinarnir út úr borginni eins og þeir voru vanir. 20 Morguninn eftir, þegar þeir gengu framhjá fíkjutrénu, sáu þeir að það hafði visnað frá rótum. 21 Þá minntist Pétur þess sem Jesús hafði sagt við tréð daginn áður og hrópaði: „Sjáðu, meistari! Fíkjutréð, sem þú formæltir, er visnað!“ 22 22,23 „Ég segi ykkur satt,“ sagði Jesús. „Ef þið trúið á Guð, þá getið þið sagt við Olíufjallið: „Upp með þig og steypstu í hafið“ og það mundi hlýða. Skilyrðið er trú sem ekki efast um mátt Guðs. 24 Og takið nú eftir! Þið getið beðið um hvað sem er og ef þið trúið, þá fáið þið það! 25 En áður en þið biðjið, fyrirgefið þá þeim sem þið hafið gert eitthvað á móti, svo að faðirinn á himnum geti fyrirgefið ykkur syndir ykkar.“ 26 26-28 Þeir komu nú aftur til Jerúsalem. Jesús var á gangi í musterinu þegar æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar komu til hans og sögðu ákveðnir: „Hvað gengur eiginlega á hér? Hver gaf þér vald til að reka kaupmennina burt héðan?“ 29 Jesús svaraði: „Það skal ég segja ykkur, ef þið svarið fyrst einni spurningu: 30 Var Jóhannes skírari sendiboði Guðs eða ekki? Svarið mér!“ 31 Þeir báru saman ráð sín og sögðu: „Ef við svörum já, þá mun hann segja: „Jæja, hvers vegna trúðuð þið þá ekki orðum hans?“ 32 en ef við segjum nei, þá mun fólkið tryllast.“ (Fólkið trúði því statt og stöðugt að Jóhannes hefði verið spámaður.) 33 Þeir svöruðu því: „Við vitum það ekki.“„Þá svara ég ekki heldur spurningu ykkar,“ sagði Jesús.

In Other Versions

Mark 11 in the ANGEFD

Mark 11 in the ANTPNG2D

Mark 11 in the AS21

Mark 11 in the BAGH

Mark 11 in the BBPNG

Mark 11 in the BBT1E

Mark 11 in the BDS

Mark 11 in the BEV

Mark 11 in the BHAD

Mark 11 in the BIB

Mark 11 in the BLPT

Mark 11 in the BNT

Mark 11 in the BNTABOOT

Mark 11 in the BNTLV

Mark 11 in the BOATCB

Mark 11 in the BOATCB2

Mark 11 in the BOBCV

Mark 11 in the BOCNT

Mark 11 in the BOECS

Mark 11 in the BOGWICC

Mark 11 in the BOHCB

Mark 11 in the BOHCV

Mark 11 in the BOHLNT

Mark 11 in the BOHNTLTAL

Mark 11 in the BOICB

Mark 11 in the BOITCV

Mark 11 in the BOKCV

Mark 11 in the BOKCV2

Mark 11 in the BOKHWOG

Mark 11 in the BOKSSV

Mark 11 in the BOLCB

Mark 11 in the BOLCB2

Mark 11 in the BOMCV

Mark 11 in the BONAV

Mark 11 in the BONCB

Mark 11 in the BONLT

Mark 11 in the BONUT2

Mark 11 in the BOPLNT

Mark 11 in the BOSCB

Mark 11 in the BOSNC

Mark 11 in the BOTLNT

Mark 11 in the BOVCB

Mark 11 in the BOYCB

Mark 11 in the BPBB

Mark 11 in the BPH

Mark 11 in the BSB

Mark 11 in the CCB

Mark 11 in the CUV

Mark 11 in the CUVS

Mark 11 in the DBT

Mark 11 in the DGDNT

Mark 11 in the DHNT

Mark 11 in the DNT

Mark 11 in the ELBE

Mark 11 in the EMTV

Mark 11 in the ESV

Mark 11 in the FBV

Mark 11 in the FEB

Mark 11 in the GGMNT

Mark 11 in the GNT

Mark 11 in the HARY

Mark 11 in the HNT

Mark 11 in the IRVA

Mark 11 in the IRVB

Mark 11 in the IRVG

Mark 11 in the IRVH

Mark 11 in the IRVK

Mark 11 in the IRVM

Mark 11 in the IRVM2

Mark 11 in the IRVO

Mark 11 in the IRVP

Mark 11 in the IRVT

Mark 11 in the IRVT2

Mark 11 in the IRVU

Mark 11 in the ISVN

Mark 11 in the JSNT

Mark 11 in the KAPI

Mark 11 in the KBT1ETNIK

Mark 11 in the KBV

Mark 11 in the KJV

Mark 11 in the KNFD

Mark 11 in the LBA

Mark 11 in the LBLA

Mark 11 in the LNT

Mark 11 in the LSV

Mark 11 in the MAAL

Mark 11 in the MBV

Mark 11 in the MBV2

Mark 11 in the MHNT

Mark 11 in the MKNFD

Mark 11 in the MNG

Mark 11 in the MNT

Mark 11 in the MNT2

Mark 11 in the MRS1T

Mark 11 in the NAA

Mark 11 in the NASB

Mark 11 in the NBLA

Mark 11 in the NBS

Mark 11 in the NBVTP

Mark 11 in the NET2

Mark 11 in the NIV11

Mark 11 in the NNT

Mark 11 in the NNT2

Mark 11 in the NNT3

Mark 11 in the PDDPT

Mark 11 in the PFNT

Mark 11 in the RMNT

Mark 11 in the SBIAS

Mark 11 in the SBIBS

Mark 11 in the SBIBS2

Mark 11 in the SBICS

Mark 11 in the SBIDS

Mark 11 in the SBIGS

Mark 11 in the SBIHS

Mark 11 in the SBIIS

Mark 11 in the SBIIS2

Mark 11 in the SBIIS3

Mark 11 in the SBIKS

Mark 11 in the SBIKS2

Mark 11 in the SBIMS

Mark 11 in the SBIOS

Mark 11 in the SBIPS

Mark 11 in the SBISS

Mark 11 in the SBITS

Mark 11 in the SBITS2

Mark 11 in the SBITS3

Mark 11 in the SBITS4

Mark 11 in the SBIUS

Mark 11 in the SBIVS

Mark 11 in the SBT

Mark 11 in the SBT1E

Mark 11 in the SCHL

Mark 11 in the SNT

Mark 11 in the SUSU

Mark 11 in the SUSU2

Mark 11 in the SYNO

Mark 11 in the TBIAOTANT

Mark 11 in the TBT1E

Mark 11 in the TBT1E2

Mark 11 in the TFTIP

Mark 11 in the TFTU

Mark 11 in the TGNTATF3T

Mark 11 in the THAI

Mark 11 in the TNFD

Mark 11 in the TNT

Mark 11 in the TNTIK

Mark 11 in the TNTIL

Mark 11 in the TNTIN

Mark 11 in the TNTIP

Mark 11 in the TNTIZ

Mark 11 in the TOMA

Mark 11 in the TTENT

Mark 11 in the UBG

Mark 11 in the UGV

Mark 11 in the UGV2

Mark 11 in the UGV3

Mark 11 in the VBL

Mark 11 in the VDCC

Mark 11 in the YALU

Mark 11 in the YAPE

Mark 11 in the YBVTP

Mark 11 in the ZBP