Mark 14 (BOILNTAP)

1 Tveim dögum síðar hófst páskahátíðin – en þá neyta Gyðingar ekki brauðs með súru geri. Æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar voru enn að leita að tækifæri til að handtaka Jesú svo lítið bæri á og lífláta hann. 2 „En það er útilokað á páskahátíðinni,“ sögðu þeir, „því þá færi allt í bál og brand.“ 3 Jesús var um þessar mundir staddur í Betaníu, heima hjá Símoni holdsveika. Meðan þeir voru að borða kvöldverð, kom kona inn með fallega flösku með dýrri ilmolíu. Hún braut innsiglið af flöskunni og hellti innihaldinu yfir höfuð Jesú. 4 4,5 Sumir, sem þarna voru, hneyksluðust á þessari „sóun“ eins og þeir kölluðu það. „Hvað á þetta að þýða,“ tautuðu þeir. „Hún hefði getað selt ilmolíuna fyrir stórfé og gefið það fátækum.“ 6 „Látið hana í friði,“ sagði Jesús. „Af hverju gagnrýnið þið hana fyrir gott verk? 7 Fátæka hafið þið ávallt hjá ykkur og þeim getið þið liðsinnt hvenær sem þið viljið, en mig hafið þið ekki ávallt. 8 Hún gerði það sem hún gat og hún hefur smurt líkama minn fyrir fram til greftrunar. 9 Ég segi ykkur satt: Hvar sem fagnaðarerindið verður boðað í þessum heimi, mun þess getið sem hún gerði og það lofað.“ 10 Þegar hér var komið, fór Júdas Ískaríot til æðstu prestanna, staðráðinn í að svíkja Jesú í hendur þeirra. 11 Þegar þeim varð ljóst erindi Júdasar, lifnaði yfir þeim og þeir hétu honum launum. Eftir það leitaði Júdas að hentugu tækifæri til að svíkja Jesú. 12 Á fyrsta degi páskahátíðarinnar, þegar lömbunum var slátrað, spurðu lærisveinar Jesú hann hvar hann ætlaði að neyta páskamáltíðarinnar. 13 Þá sendi hann tvo þeirra til Jerúsalem til að undirbúa máltíðina.„Þegar þið komið inn í borgina,“ sagði hann, „munuð þið sjá mann koma á móti ykkur með vatnskrús. Fylgið honum eftir. 14 Þar sem hann fer inn í hús, skuluð þið segja við húsráðandann: „Meistari okkar sendi okkur til að líta á herbergið, sem þú ætlaðir okkur til að neyta páskamáltíðarinnar í.“ 15 Þá mun hann fara með ykkur upp á loft og inn í stórt herbergi, búið þægindum. Þar skuluð þið undirbúa kvöldmáltíð okkar.“ 16 Lærisveinarnir tveir fóru því til borgarinnar og fundu allt eins og Jesús hafði sagt og undirbjuggu hátíðarverðinn. 17 Um kvöldið kom Jesús ásamt lærisveinunum. 18 Þegar þeir voru sestir við borðið sagði Jesús: „Ég segi ykkur satt: Einn ykkar mun svíkja mig, einn ykkar, sem hér sitjið og borðið með mér.“ 19 Lærisveinunum brá mjög við þessi orð og mikil spenna lá í loftinu. „Er það ég?“ spurðu þeir einn af öðrum. 20 „Já, það er einn ykkar tólf, sem nú borðið hér með mér,“ svaraði Jesús. 21 „Ég verð að deyja eins og spámennirnir sögðu fyrir, en mikil er ógæfa þess sem mig svíkur. Betra væri að hann hefði aldrei fæðst.“ 22 Meðan á máltíðinni stóð tók Jesús brauð, og þakkaði Guði. Hann braut það í bita, rétti þeim og sagði: „Borðið þetta – það er líkami minn.“ 23 Síðan tók hann bikar með víni, þakkaði og rétti þeim og þeir drukku allir af honum. 24 Síðan sagði hann: „Þetta er blóð mitt, sem úthellt er fyrir marga. Það er innsigli hins nýja sáttmála milli Guðs og manna. 25 Ég segi ykkur satt að ég mun ekki bragða vín fyrr en ég drekk nýja vínið í guðsríki.“ 26 Síðan sungu þeir sálm og að því búnu fóru þeir út til Olíufjallsins. 27 „Þið munuð allir yfirgefa mig,“ sagði Jesús, „því Guðs orð segir: „Ég mun slá hirðinn og hjörðin mun tvístrast.“ 28 En eftir að ég er risinn upp frá dauðum, mun ég fara til Galíleu og hitta ykkur þar.“ 29 Þá sagði Pétur: „Ég mun aldrei yfirgefa þig, hvað sem hinir gera.“ 30 „Pétur,“ sagði Jesús, „áður en haninn hefur galað tvisvar í fyrramálið muntu þrisvar afneita mér.“ 31 „Nei!“ hrópaði Pétur. „Ég mun aldrei afneita þér, jafnvel þótt ég ætti að deyja með þér.“ Og allir hinir tóku í sama streng. 32 Þeir komu í garð sem heitir Getsemane og þar sagði Jesús við lærisveinana: „Setjist hérna og bíðið meðan ég fer og biðst fyrir.“ 33 Síðan gekk hann lengra ásamt Pétri, Jakobi og Jóhannesi. Þá varð hann angistarfullur og tók að skjálfa. 34 Hann sagði við þá: „Ég er hryggur og fullur örvæntingar á stund dauðans – bíðið hér og vakið með mér.“ 35 Hann gekk spölkorn lengra, féll til jarðar og bað þess að sú hræðilega stund, sem biði hans, rynni aldrei upp, ef unnt væri. 36 „Faðir,“ sagði hann, „allt er þér mögulegt. Taktu þennan þjáningarbikar frá mér, en verði samt þinn vilji en ekki minn.“ 37 Síðan gekk hann þangað sem lærisveinarnir þrír voru og fann þá sofandi.„Símon!“ sagði hann. „Ertu sofandi? Gastu ekki einu sinni vakað með mér eina stund? 38 Vakið og biðjið til þess að þið fallið ekki í freistni. Þótt andinn sé fús, er holdið veikt.“ 39 Síðan fór hann aftur frá þeim og bað sömu bænar. 40 Eftir það kom hann til þeirra og fann þá enn sofandi. Þeir voru mjög þreyttir og vissu ekki hvað þeir áttu að segja. 41 Í þriðja skipti kom hann til þeirra og sagði: „Sofið þið enn og hvílist? Nú er ekki tími til að sofa! Ég hef verið svikinn í hendur vondra manna. 42 Standið upp, við verðum að fara! Sjáið! Svikari minn er að koma!“ 43 Áður en hann hafði sleppt orðinu, kom Júdas (einn af lærisveinum hans) með hóp manna vopnaða sverðum og kylfum. Menn þessa höfðu æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar sent. 44 Júdas hafði sagt við þá: „Handtakið þann sem ég heilsa. Það verður auðvelt að ná honum.“ 45 Jafnskjótt og þeir komu, gekk Júdas til Jesú og sagði glaðlega: „Meistari!“ og kyssti hann. 46 Og þeir lögðu hendur á Jesú og tóku hann. 47 Einhver brá sverði á loft og hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað. 48 Jesús sagði við hópinn: „Er ég þá hættulegur ræningi? Þið komið alvopnaðir til að handtaka mig. 49 Af hverju tókuð þið mig ekki í musterinu? Þar kenndi ég á hverjum degi! En svona á þetta reyndar að fara, til þess að spádómarnir um mig rætist.“ 50 Meðan Jesús var að tala, yfirgáfu allir lærisveinarnir hann og flýðu. 51 51,52 Og hópurinn lagði af stað með Jesú. En ungur maður, klæddur náttslopp einum saman, kom í humátt á eftir og þegar mennirnir ætluðu að grípa hann, rifnaði sloppurinn og hann flýði nakinn. 53 Nú var farið með Jesú til hallar æðsta prestsins og þar söfnuðust fljótlega saman allir æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar. 54 Pétur kom langt á eftir og smeygði sér, svo lítið bar á, inn fyrir hliðið við bústað æðsta prestsins og settist við eldinn í garðinum ásamt þjónunum sem þar voru. 55 Inni í húsinu reyndi hæstiréttur Gyðinga að finna einhverja sök á hendur Jesú, sem nægja mundi til dauðadóms, en árangurslaust. 56 Fjöldi falsvitna gaf sig fram, en framburði þeirra bar ekki saman. 57 Loksins stóðu upp nokkrir menn og báru lognar sakir á Jesú. 58 Þeir sögðu: „Við heyrðum hann segja: „Ég mun rífa niður þetta musteri sem byggt er af mannahöndum og byggja annað á þrem dögum, án þess að hönd komi þar nærri“.“ 59 En ekki bar þeim heldur saman um þetta. 60 Þá reis æðsti presturinn upp og spurði Jesú frammi fyrir réttinum: „Þú svarar engu. Hvað viltu segja þér til varnar?“ 61 Jesús svaraði honum ekki einu orði. Þá spurði æðsti presturinn: „Ert þú Kristur, sonur Guðs?“ 62 Jesús svaraði: „Já, það er ég og þú munt sjá mig sitja við hægri hönd Guðs og birtast öllum mönnum í skýjum himinsins.“ 63 63,64 Þá reif æðsti presturinn föt sín og hrópaði: „Þurfum við framar vitnanna við! Þið heyrðuð sjálfir guðlastið. Hvað finnst ykkur?“ Og þeir dæmdu hann til dauða einum rómi. 65 Nokkrir viðstaddra tóku að hrækja á Jesú, héldu fyrir augu hans og slógu hann í andlitið. „Spámaður!“ æptu þeir hæðnislega, „hver sló þig núna?“ Jafnvel verðirnir slógu hann, þegar þeir leiddu hann burt. 66 66,67 Meðan þetta gerðist var Pétur niðri í garðinum. Ein þjónustustúlka æðsta prestsins tók þá eftir honum, þar sem hann var að ylja sér við eldinn. Hún veitti honum nánari athygli og sagði síðan: „Þú varst áreiðanlega með Jesú frá Nasaret.“ 68 Pétur neitaði og sagði: „Ég skil ekki hvað þú átt við!“ Síðan færði hann sig nær hliðinu. Þá gól haninn! 69 Eftir stundarkorn kom stúlkan aftur auga á Pétur og sagði við nærstadda: „Þarna er hann! Þarna er þessi lærisveinn Jesú.“ 70 En hann neitaði aftur. Stuttu síðar sögðu aðrir, sem stóðu umhverfis eldinn, við Pétur: „Þú ert líka einn af þeim, því þú ert frá Galíleu.“ 71 Þá tók hann að blóta og formæla og sagði: „Ég þekki alls ekki þennan mann!“ 72 Þá gól haninn í annað sinn. Og Pétur minntist orða Jesú: „Áður en haninn galar tvisvar, muntu þrisvar afneita mér.“Þá brast Pétur í grát.

In Other Versions

Mark 14 in the ANGEFD

Mark 14 in the ANTPNG2D

Mark 14 in the AS21

Mark 14 in the BAGH

Mark 14 in the BBPNG

Mark 14 in the BBT1E

Mark 14 in the BDS

Mark 14 in the BEV

Mark 14 in the BHAD

Mark 14 in the BIB

Mark 14 in the BLPT

Mark 14 in the BNT

Mark 14 in the BNTABOOT

Mark 14 in the BNTLV

Mark 14 in the BOATCB

Mark 14 in the BOATCB2

Mark 14 in the BOBCV

Mark 14 in the BOCNT

Mark 14 in the BOECS

Mark 14 in the BOGWICC

Mark 14 in the BOHCB

Mark 14 in the BOHCV

Mark 14 in the BOHLNT

Mark 14 in the BOHNTLTAL

Mark 14 in the BOICB

Mark 14 in the BOITCV

Mark 14 in the BOKCV

Mark 14 in the BOKCV2

Mark 14 in the BOKHWOG

Mark 14 in the BOKSSV

Mark 14 in the BOLCB

Mark 14 in the BOLCB2

Mark 14 in the BOMCV

Mark 14 in the BONAV

Mark 14 in the BONCB

Mark 14 in the BONLT

Mark 14 in the BONUT2

Mark 14 in the BOPLNT

Mark 14 in the BOSCB

Mark 14 in the BOSNC

Mark 14 in the BOTLNT

Mark 14 in the BOVCB

Mark 14 in the BOYCB

Mark 14 in the BPBB

Mark 14 in the BPH

Mark 14 in the BSB

Mark 14 in the CCB

Mark 14 in the CUV

Mark 14 in the CUVS

Mark 14 in the DBT

Mark 14 in the DGDNT

Mark 14 in the DHNT

Mark 14 in the DNT

Mark 14 in the ELBE

Mark 14 in the EMTV

Mark 14 in the ESV

Mark 14 in the FBV

Mark 14 in the FEB

Mark 14 in the GGMNT

Mark 14 in the GNT

Mark 14 in the HARY

Mark 14 in the HNT

Mark 14 in the IRVA

Mark 14 in the IRVB

Mark 14 in the IRVG

Mark 14 in the IRVH

Mark 14 in the IRVK

Mark 14 in the IRVM

Mark 14 in the IRVM2

Mark 14 in the IRVO

Mark 14 in the IRVP

Mark 14 in the IRVT

Mark 14 in the IRVT2

Mark 14 in the IRVU

Mark 14 in the ISVN

Mark 14 in the JSNT

Mark 14 in the KAPI

Mark 14 in the KBT1ETNIK

Mark 14 in the KBV

Mark 14 in the KJV

Mark 14 in the KNFD

Mark 14 in the LBA

Mark 14 in the LBLA

Mark 14 in the LNT

Mark 14 in the LSV

Mark 14 in the MAAL

Mark 14 in the MBV

Mark 14 in the MBV2

Mark 14 in the MHNT

Mark 14 in the MKNFD

Mark 14 in the MNG

Mark 14 in the MNT

Mark 14 in the MNT2

Mark 14 in the MRS1T

Mark 14 in the NAA

Mark 14 in the NASB

Mark 14 in the NBLA

Mark 14 in the NBS

Mark 14 in the NBVTP

Mark 14 in the NET2

Mark 14 in the NIV11

Mark 14 in the NNT

Mark 14 in the NNT2

Mark 14 in the NNT3

Mark 14 in the PDDPT

Mark 14 in the PFNT

Mark 14 in the RMNT

Mark 14 in the SBIAS

Mark 14 in the SBIBS

Mark 14 in the SBIBS2

Mark 14 in the SBICS

Mark 14 in the SBIDS

Mark 14 in the SBIGS

Mark 14 in the SBIHS

Mark 14 in the SBIIS

Mark 14 in the SBIIS2

Mark 14 in the SBIIS3

Mark 14 in the SBIKS

Mark 14 in the SBIKS2

Mark 14 in the SBIMS

Mark 14 in the SBIOS

Mark 14 in the SBIPS

Mark 14 in the SBISS

Mark 14 in the SBITS

Mark 14 in the SBITS2

Mark 14 in the SBITS3

Mark 14 in the SBITS4

Mark 14 in the SBIUS

Mark 14 in the SBIVS

Mark 14 in the SBT

Mark 14 in the SBT1E

Mark 14 in the SCHL

Mark 14 in the SNT

Mark 14 in the SUSU

Mark 14 in the SUSU2

Mark 14 in the SYNO

Mark 14 in the TBIAOTANT

Mark 14 in the TBT1E

Mark 14 in the TBT1E2

Mark 14 in the TFTIP

Mark 14 in the TFTU

Mark 14 in the TGNTATF3T

Mark 14 in the THAI

Mark 14 in the TNFD

Mark 14 in the TNT

Mark 14 in the TNTIK

Mark 14 in the TNTIL

Mark 14 in the TNTIN

Mark 14 in the TNTIP

Mark 14 in the TNTIZ

Mark 14 in the TOMA

Mark 14 in the TTENT

Mark 14 in the UBG

Mark 14 in the UGV

Mark 14 in the UGV2

Mark 14 in the UGV3

Mark 14 in the VBL

Mark 14 in the VDCC

Mark 14 in the YALU

Mark 14 in the YAPE

Mark 14 in the YBVTP

Mark 14 in the ZBP