Mark 2 (BOILNTAP)

1 Nokkrum dögum síðar sneri Jesús aftur til Kapernaum og fyrr en varði vissu bæjarbúar að hann var kominn heim. 2 Á skammri stundu var húsið sem hann dvaldist í orðið svo þéttsetið að fleiri komust ekki þangað inn og meira að segja þröng úti fyrir. Þarna flutti hann orð Guðs. 3 Þá komu þar menn sem báru lamaðan mann á börum á milli sín. 4 Þeir komust ekki að Jesú vegna mannfjöldans og rufu því gat á leirþakið og létu börurnar með veika manninum síga niður til Jesú. 5 Þegar Jesús sá trú þeirra – hversu sannfærðir þeir voru um að hann gæti hjálpað – sagði hann við lamaða manninn: „Sonur minn, syndir þínar eru fyrirgefnar!“ 6 Nokkrir trúarleiðtogar þjóðarinnar urðu vitni að þessum atburði og hugsuðu með sér: 7 „Hvað er að heyra? Þetta er guðlast! Hann heldur þó ekki að hann sé Guð? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?“ 8 Jesús las hugsanir þeirra og sagði: „Hvers vegna hugsið þið svona? 9 Er nokkuð erfiðara að fyrirgefa syndir hans en að lækna hann? 10 Ég skal sanna ykkur að ég, maðurinn frá himnum, hef fyrirgefið honum syndir hans.“ 11 Síðan sneri hann sér að lamaða manninum og sagði: „Taktu börurnar og farðu heim. Þú ert heilbrigður.“ 12 Maðurinn spratt á fætur, tók börurnar og ruddi sér leið gegnum mannfjöldann, sem var agndofa af undrun. Og fólkið tók að lofa Guð og hrópa: „Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt.“ 13 Eftir þetta gekk Jesús niður að vatninu og talaði við mannfjöldann sem þar safnaðist að honum. 14 Á leið sinni fram hjá skattstofunni sá hann Leví Alfeusson sitja þar. „Komdu og vertu lærisveinn minn.“ sagði Jesús við hann. Þá stóð Leví upp og fylgdi honum. 15 Um kvöldið bauð Leví vinnufélögum sínum á skattstofunni og mörgum sem illt orð fór af, til kvöldverðar, svo þeir gætu hitt Jesú og lærisveina hans. (Í þeim fjölda sem fylgdi Jesú höfðu ekki heldur allir gott orð á sér.) 16 Þegar trúarleiðtogar fólksins sáu hann matast með þessum mönnum, sögðu þeir við lærisveina hans: „Hvernig í ósköpunum getur hann fengið af sér að borða með þvílíkum ruslaralýð?“ 17 Þegar Jesús heyrði þetta, sagði hann við þá: „Veikir þurfa lækni en heilbrigðir ekki! Ég kom ekki til að hvetja hina „góðu“ til að iðrast synda sinna, heldur þá sem vondir eru.“ 18 Nú stóð yfir fasta hjá lærisveinum Jóhannesar og faríseunum (en þá neyttu þeir ekki matar af trúarástæðum). Menn komu þá til Jesú og sögðu við hann: „Af hverju fasta þínir lærisveinar ekki eins og hinir?“ 19 Jesús svaraði og sagði: „Hvað gera vinir brúðgumans? Hafna þeir kræsingunum í brúðkaupsveislu hans, og eiga þeir að vera daprir í bragði meðan hann er hjá þeim? Nei! 20 En sá dagur kemur að hann verður tekinn frá þeim og þá munu þeir fasta. 21 Hver bætir gamla flík með bót sem á eftir að hlaupa? Hvað mundi þá gerast? Bótin mundi hlaupa í fyrsta þvotti og rifna frá og gatið verða ennþá stærra en áður. 22 Þið vitið að ekki má setja nýtt vín í gamla skinnbelgi, þá rifna þeir, vínið fer allt niður og belgirnir eyðileggjast. Nýtt vín er sett á nýja belgi.“ 23 Seinna – á helgidegi var Jesús ásamt lærisveinum sínum á gangi yfir akur. Lærisveinarnir brutu þá öx af stráunum og átu úr þeim kornið. 24 Þá sögðu farísearnir við Jesú: „Þetta mega þeir ekki gera! Það er lagabrot að uppskera korn á helgidegi.“ 25 25,26 En hann sagði við þá: „Hafið þið aldrei heyrt hvað Davíð gerði þegar hann og menn hans hungraði? Þeir fóru inn í helgidóm Guðs – það var þegar Abíatar var æðsti prestur – og átu brauðið sem ætlað var prestunum. Það var einnig lagabrot. 27 Helgidagurinn varð til mannsins vegna en ekki maðurinn vegna helgidagsins. 28 Ég, Kristur, hef vald til að ákveða hvað menn mega gera á helgidögum.“

In Other Versions

Mark 2 in the ANGEFD

Mark 2 in the ANTPNG2D

Mark 2 in the AS21

Mark 2 in the BAGH

Mark 2 in the BBPNG

Mark 2 in the BBT1E

Mark 2 in the BDS

Mark 2 in the BEV

Mark 2 in the BHAD

Mark 2 in the BIB

Mark 2 in the BLPT

Mark 2 in the BNT

Mark 2 in the BNTABOOT

Mark 2 in the BNTLV

Mark 2 in the BOATCB

Mark 2 in the BOATCB2

Mark 2 in the BOBCV

Mark 2 in the BOCNT

Mark 2 in the BOECS

Mark 2 in the BOGWICC

Mark 2 in the BOHCB

Mark 2 in the BOHCV

Mark 2 in the BOHLNT

Mark 2 in the BOHNTLTAL

Mark 2 in the BOICB

Mark 2 in the BOITCV

Mark 2 in the BOKCV

Mark 2 in the BOKCV2

Mark 2 in the BOKHWOG

Mark 2 in the BOKSSV

Mark 2 in the BOLCB

Mark 2 in the BOLCB2

Mark 2 in the BOMCV

Mark 2 in the BONAV

Mark 2 in the BONCB

Mark 2 in the BONLT

Mark 2 in the BONUT2

Mark 2 in the BOPLNT

Mark 2 in the BOSCB

Mark 2 in the BOSNC

Mark 2 in the BOTLNT

Mark 2 in the BOVCB

Mark 2 in the BOYCB

Mark 2 in the BPBB

Mark 2 in the BPH

Mark 2 in the BSB

Mark 2 in the CCB

Mark 2 in the CUV

Mark 2 in the CUVS

Mark 2 in the DBT

Mark 2 in the DGDNT

Mark 2 in the DHNT

Mark 2 in the DNT

Mark 2 in the ELBE

Mark 2 in the EMTV

Mark 2 in the ESV

Mark 2 in the FBV

Mark 2 in the FEB

Mark 2 in the GGMNT

Mark 2 in the GNT

Mark 2 in the HARY

Mark 2 in the HNT

Mark 2 in the IRVA

Mark 2 in the IRVB

Mark 2 in the IRVG

Mark 2 in the IRVH

Mark 2 in the IRVK

Mark 2 in the IRVM

Mark 2 in the IRVM2

Mark 2 in the IRVO

Mark 2 in the IRVP

Mark 2 in the IRVT

Mark 2 in the IRVT2

Mark 2 in the IRVU

Mark 2 in the ISVN

Mark 2 in the JSNT

Mark 2 in the KAPI

Mark 2 in the KBT1ETNIK

Mark 2 in the KBV

Mark 2 in the KJV

Mark 2 in the KNFD

Mark 2 in the LBA

Mark 2 in the LBLA

Mark 2 in the LNT

Mark 2 in the LSV

Mark 2 in the MAAL

Mark 2 in the MBV

Mark 2 in the MBV2

Mark 2 in the MHNT

Mark 2 in the MKNFD

Mark 2 in the MNG

Mark 2 in the MNT

Mark 2 in the MNT2

Mark 2 in the MRS1T

Mark 2 in the NAA

Mark 2 in the NASB

Mark 2 in the NBLA

Mark 2 in the NBS

Mark 2 in the NBVTP

Mark 2 in the NET2

Mark 2 in the NIV11

Mark 2 in the NNT

Mark 2 in the NNT2

Mark 2 in the NNT3

Mark 2 in the PDDPT

Mark 2 in the PFNT

Mark 2 in the RMNT

Mark 2 in the SBIAS

Mark 2 in the SBIBS

Mark 2 in the SBIBS2

Mark 2 in the SBICS

Mark 2 in the SBIDS

Mark 2 in the SBIGS

Mark 2 in the SBIHS

Mark 2 in the SBIIS

Mark 2 in the SBIIS2

Mark 2 in the SBIIS3

Mark 2 in the SBIKS

Mark 2 in the SBIKS2

Mark 2 in the SBIMS

Mark 2 in the SBIOS

Mark 2 in the SBIPS

Mark 2 in the SBISS

Mark 2 in the SBITS

Mark 2 in the SBITS2

Mark 2 in the SBITS3

Mark 2 in the SBITS4

Mark 2 in the SBIUS

Mark 2 in the SBIVS

Mark 2 in the SBT

Mark 2 in the SBT1E

Mark 2 in the SCHL

Mark 2 in the SNT

Mark 2 in the SUSU

Mark 2 in the SUSU2

Mark 2 in the SYNO

Mark 2 in the TBIAOTANT

Mark 2 in the TBT1E

Mark 2 in the TBT1E2

Mark 2 in the TFTIP

Mark 2 in the TFTU

Mark 2 in the TGNTATF3T

Mark 2 in the THAI

Mark 2 in the TNFD

Mark 2 in the TNT

Mark 2 in the TNTIK

Mark 2 in the TNTIL

Mark 2 in the TNTIN

Mark 2 in the TNTIP

Mark 2 in the TNTIZ

Mark 2 in the TOMA

Mark 2 in the TTENT

Mark 2 in the UBG

Mark 2 in the UGV

Mark 2 in the UGV2

Mark 2 in the UGV3

Mark 2 in the VBL

Mark 2 in the VDCC

Mark 2 in the YALU

Mark 2 in the YAPE

Mark 2 in the YBVTP

Mark 2 in the ZBP