Mark 7 (BOILNTAP)

1 Dag nokkurn komu trúarleiðtogarnir frá Jerúsalem til að fylgjast með Jesú. 2 Þeir tóku eftir því að sumir lærisveina hans skeyttu engu reglum þeim sem farið var eftir áður en menn neyttu matar. 3 (Gyðingar, og sérstaklega farísear, mötuðust aldrei nema þeir hefðu, samkvæmt sérstökum trúarsiðum, þvegið sér um hendurnar. 4 Þegar þeir komu heim af markaðnum, urðu þeir alltaf að þvo sér á þennan hátt áður en þeir snertu matinn. Þetta var aðeins ein af mörgum reglum þeirra og lögum sem þeir hafa fylgt öldum saman og gera enn. Ein reglan er til dæmis sérstakur trúarlegur þvottur á pottum, pönnum og diskum.) 5 Trúarleiðtogarnir spurðu því Jesú. „Hvers vegna hlýða lærisveinar þínir ekki aldagömlum venjum okkar? Þeir borða án þess að þvo sér, en það er brot á reglunum.“ 6 6,7 „Þið hræsnarar!“ svaraði Jesús. „Jesaja spámaður lýsti ykkur vel þegar hann sagði: „Fólk þetta talar fagurlega um Drottin, en það elskar hann ekki. Tilbeiðsla þess er einskis virði, því það heldur því fram að það sé skipun Guðs að fólk hlýði öllum þeirra ómerkilegu reglum.“ Jesaja hafði sannarlega rétt fyrir sér! 8 Þið virðið að vettugi skýr boð Guðs en takið í staðinn upp ykkar eigin siðvenjur. 9 Með þessu hafnið þið boðum Guðs og traðkið á þeim, til þess eins að gera eins og ykkur langar. 10 Móse sagði til dæmis: „Heiðraðu föður þinn og móður.“ Hann sagði einnig að hver sá er formælti foreldrum sínum væri dauðasekur. 11 Þið segið hins vegar að í lagi sé að menn sinni ekki þörfum foreldra sinna og segi við þau: „Mér þykir leitt að geta ekki hjálpað ykkur, en ég hef gefið Guði það sem ég annars hefði gefið ykkur.“ 12 12,13 Þannig brjótið þið boðorð Guðs til að geta hlýtt ykkar eigin mannaboðorðum. Þetta er aðeins eitt dæmi, en ég gæti nefnt mörg önnur.“ 14 Síðan kallaði Jesús á fólkið og sagði: „Takið eftir, og reynið að skilja. 15 15,16 Sálir ykkar bíða ekki tjón af því sem þið borðið, heldur hinu sem þið hugsið og segið.“ 17 Að því búnu fór hann í húsið til að fá næði fyrir fólkinu. Þá spurðu lærisveinar hans hvað hann hefði átt við með þessum orðum. 18 „Eruð þið líka svona skilningslausir?“ spurði hann. „Getið þið ekki skilið að það sem þið borðið skaðar ekki sál ykkar, 19 því maturinn kemst ekki í snertingu við sálina, hann fer aðeins í gegnum meltingarfærin.“ (Með þessu átti hann við að leyfilegt væri að neyta hvaða matar sem er.) 20 Síðan bætti hann við: „Það er hugarfarið sem spillir manninum. 21 Frá hjarta hans koma illar hugsanir, girnd, þjófnaður, morð, hórdómur, 22 eftirsókn eftir eigum annarra, illmennska, sviksemi, saurlifnaður, öfund, baktal, hroki og alls konar heimska. 23 Allt þetta illa kemur innan frá og spillir og óhreinkar manninn í augum Guðs?“ 24 Eftir þetta fór Jesús frá Galíleu og norður til héraðanna umhverfis Týrus og Sídon. Hann reyndi að fara huldu höfði en án árangurs. Fréttirnar um komu hans bárust um allt eins og venjulega. 25 Kona ein sem þarna var kom til hans. Hún átti dóttur sem haldin var illum anda. Hún hafði heyrt um Jesú og því kom hún nú, kraup við fætur hans, 26 og grátbað hann að losa dótturina við illa andann. (Konan var frá sýrlensku Fönikíu og því heiðingi í augum Gyðinga.) 27 Jesús svaraði henni og sagði: „Fyrst verð ég að hjálpa samlöndum mínum – Gyðingunum. Það er ekki rétt að taka matinn frá börnunum og kasta honum til hvolpanna.“ 28 „Rétt er það, herra, en hvolparnir týna þó upp molana sem börnin leifa,“ sagði hún. 29 „Rétt,“ sagði hann, „þú svaraðir vel – svo vel, að nú hef ég læknað dóttur þína! Farðu nú heim – illi andinn er farinn út af henni.“ 30 Þegar konan kom heim lá litla stúlkan róleg í rúminu; illi andinn var farinn. 31 Frá Týrus fór Jesús til Sídonar og síðan til Dekapólis (þorpanna tíu) við Galíleuvatnið. 32 Þá var leiddur til hans maður sem bæði var heyrnarlaus og mállaus. Bað fólkið Jesú að leggja hendur yfir hann og lækna hann. 33 Jesús fór með hann afsíðis, stakk fingrunum í eyru hans og vætti tungu hans með munnvatni sínu. 34 Síðan horfði hann upp til himins, andvarpaði og sagði: „Opnist þú.“ 35 Um leið fékk maðurinn fulla heyrn og talaði skýrt! 36 Jesús bannaði fólkinu að láta þetta fréttast, en því meir sem hann bannaði það, því meir var það borið út, 37 kraftaverkið hafði mikil áhrif á alla. Fólk sagði: „Allt sem hann gerir er gott. Hann getur meira að segja gefið heyrnarlausum heyrn og mállausum mál.“

In Other Versions

Mark 7 in the ANGEFD

Mark 7 in the ANTPNG2D

Mark 7 in the AS21

Mark 7 in the BAGH

Mark 7 in the BBPNG

Mark 7 in the BBT1E

Mark 7 in the BDS

Mark 7 in the BEV

Mark 7 in the BHAD

Mark 7 in the BIB

Mark 7 in the BLPT

Mark 7 in the BNT

Mark 7 in the BNTABOOT

Mark 7 in the BNTLV

Mark 7 in the BOATCB

Mark 7 in the BOATCB2

Mark 7 in the BOBCV

Mark 7 in the BOCNT

Mark 7 in the BOECS

Mark 7 in the BOGWICC

Mark 7 in the BOHCB

Mark 7 in the BOHCV

Mark 7 in the BOHLNT

Mark 7 in the BOHNTLTAL

Mark 7 in the BOICB

Mark 7 in the BOITCV

Mark 7 in the BOKCV

Mark 7 in the BOKCV2

Mark 7 in the BOKHWOG

Mark 7 in the BOKSSV

Mark 7 in the BOLCB

Mark 7 in the BOLCB2

Mark 7 in the BOMCV

Mark 7 in the BONAV

Mark 7 in the BONCB

Mark 7 in the BONLT

Mark 7 in the BONUT2

Mark 7 in the BOPLNT

Mark 7 in the BOSCB

Mark 7 in the BOSNC

Mark 7 in the BOTLNT

Mark 7 in the BOVCB

Mark 7 in the BOYCB

Mark 7 in the BPBB

Mark 7 in the BPH

Mark 7 in the BSB

Mark 7 in the CCB

Mark 7 in the CUV

Mark 7 in the CUVS

Mark 7 in the DBT

Mark 7 in the DGDNT

Mark 7 in the DHNT

Mark 7 in the DNT

Mark 7 in the ELBE

Mark 7 in the EMTV

Mark 7 in the ESV

Mark 7 in the FBV

Mark 7 in the FEB

Mark 7 in the GGMNT

Mark 7 in the GNT

Mark 7 in the HARY

Mark 7 in the HNT

Mark 7 in the IRVA

Mark 7 in the IRVB

Mark 7 in the IRVG

Mark 7 in the IRVH

Mark 7 in the IRVK

Mark 7 in the IRVM

Mark 7 in the IRVM2

Mark 7 in the IRVO

Mark 7 in the IRVP

Mark 7 in the IRVT

Mark 7 in the IRVT2

Mark 7 in the IRVU

Mark 7 in the ISVN

Mark 7 in the JSNT

Mark 7 in the KAPI

Mark 7 in the KBT1ETNIK

Mark 7 in the KBV

Mark 7 in the KJV

Mark 7 in the KNFD

Mark 7 in the LBA

Mark 7 in the LBLA

Mark 7 in the LNT

Mark 7 in the LSV

Mark 7 in the MAAL

Mark 7 in the MBV

Mark 7 in the MBV2

Mark 7 in the MHNT

Mark 7 in the MKNFD

Mark 7 in the MNG

Mark 7 in the MNT

Mark 7 in the MNT2

Mark 7 in the MRS1T

Mark 7 in the NAA

Mark 7 in the NASB

Mark 7 in the NBLA

Mark 7 in the NBS

Mark 7 in the NBVTP

Mark 7 in the NET2

Mark 7 in the NIV11

Mark 7 in the NNT

Mark 7 in the NNT2

Mark 7 in the NNT3

Mark 7 in the PDDPT

Mark 7 in the PFNT

Mark 7 in the RMNT

Mark 7 in the SBIAS

Mark 7 in the SBIBS

Mark 7 in the SBIBS2

Mark 7 in the SBICS

Mark 7 in the SBIDS

Mark 7 in the SBIGS

Mark 7 in the SBIHS

Mark 7 in the SBIIS

Mark 7 in the SBIIS2

Mark 7 in the SBIIS3

Mark 7 in the SBIKS

Mark 7 in the SBIKS2

Mark 7 in the SBIMS

Mark 7 in the SBIOS

Mark 7 in the SBIPS

Mark 7 in the SBISS

Mark 7 in the SBITS

Mark 7 in the SBITS2

Mark 7 in the SBITS3

Mark 7 in the SBITS4

Mark 7 in the SBIUS

Mark 7 in the SBIVS

Mark 7 in the SBT

Mark 7 in the SBT1E

Mark 7 in the SCHL

Mark 7 in the SNT

Mark 7 in the SUSU

Mark 7 in the SUSU2

Mark 7 in the SYNO

Mark 7 in the TBIAOTANT

Mark 7 in the TBT1E

Mark 7 in the TBT1E2

Mark 7 in the TFTIP

Mark 7 in the TFTU

Mark 7 in the TGNTATF3T

Mark 7 in the THAI

Mark 7 in the TNFD

Mark 7 in the TNT

Mark 7 in the TNTIK

Mark 7 in the TNTIL

Mark 7 in the TNTIN

Mark 7 in the TNTIP

Mark 7 in the TNTIZ

Mark 7 in the TOMA

Mark 7 in the TTENT

Mark 7 in the UBG

Mark 7 in the UGV

Mark 7 in the UGV2

Mark 7 in the UGV3

Mark 7 in the VBL

Mark 7 in the VDCC

Mark 7 in the YALU

Mark 7 in the YAPE

Mark 7 in the YBVTP

Mark 7 in the ZBP