Philippians 3 (BOILNTAP)

1 Kæru vinir, verið glaðir vegna samfélagsins við Drottin. Ég þreytist ekki á að segja þetta og þið hafið gott af slíkri hvatningu. 2 Gætið ykkar á þessum vondu mönnum – ég kalla þá hunda – þeim sem segja að þið verðið að láta umskerast til að geta frelsast. 3 Við verðum ekki börn Guðs með því að skera í líkama okkar, heldur með því að tilbiðja hann í anda okkar – það er hin eina og sanna „umskurn“. Hrós okkar kristinna manna er það sem Jesús Kristur hefur gert fyrir okkur og okkur er ljóst að við getum ekkert gert sjálf til eigin frelsunar. 4 Ef einhver hefði nokkru sinni minnstu von um að geta frelsað sjálfan sig, þá væri það ég. Ef aðrir gætu frelsast fyrir það sem þeir hafa gert, þá gæti ég það áreiðanlega! 5 Ég var umskorinn, og þar með vígður gyðingdómnum átta daga gamall. Ég er fæddur Gyðingur – kominn af hinni gömlu Benjamínsætt – og er þar með ósvikinn Gyðingur, ef hægt er að taka svo til orða. En það sem meira er, ég tilheyrði flokki farísea og þeir kröfðust skilyrðislausrar hlýðni við öll lög og siðvenjur Gyðinga. 6 Skyldi ég hafa tekið það alvarlega? Já, hvort ég gerði! Ég ofsótti hina kristnu hatrammlega og reyndi að hlýða hverri einustu reglu og lagagrein út í ystu æsar. 7 En hvað er nú orðið um allt þetta sem mér þótti svo mikils virði? Ég fleygði því burt, svo að ég gæti sett allt mitt traust á Krist og hann einan. 8 Samanborið við þekkinguna á Kristi Jesú Drottni mínum, er allt annað rusl í mínum augum. Ég hef ýtt öllu öðru til hliðar og met það einskis, til þess að ég geti verið með Kristi og orðið eitt með honum. 9 Nú treysti ég ekki lengur á það, að eigin góðverk eða hlýðni við lög Guðs frelsi mig, heldur treysti ég Kristi einum til þess. Hvernig eignumst við rétta afstöðu til Guðs? Með því að trúa – trúa og treysta Kristi einum. 10 Nú hef ég varpað öllu öðru fyrir borð, það var eina leiðin til að kynnast Kristi í raun og veru, og því feiknar afli sem reisti hann upp frá dauðum. Að yfirgefa allt var líka eina leiðin til að skilja hvað það er að þjást og deyja með honum. 11 Ég vil verða einn þeirra sem fá hlut í upprisu lífsins hvað sem það kostar. 12 Ég er ekki að segja að ég sé fullkominn. Enn hef ég ekki lært allt það sem ég á að læra, en ég stefni að því að verða það sem Kristur frelsaði mig til og vill að ég sé. 13 Nei, kæru vinir, enn er ég ekki fullkominn, en þetta er mér efst í huga: Að gleyma fortíðinni og horfa fram á við til þess sem í vændum er. 14 Ég tek á öllu sem ég á til að ná markinu og fá verðlaunin sem Guð hefur heitið okkur á himnum, og allt er það Kristi Jesú að þakka. 15 Ég vona að þið sem þroskuð eruð í trúnni, séuð mér sammála, en ef þið eruð ósammála um eitthvert atriði, þá trúi ég því að Guð muni leiða ykkur í allan sannleikann 16 – það er að segja ef þið breytið samkvæmt þeim sannleika sem þið hafið lært. 17 Kæru vinir, takið líferni mitt til fyrirmyndar og veitið þeim athygli sem feta í mín fótspor. 18 Ég hef sagt ykkur það oft áður og ég segi það enn og nú með tárin í augunum: Margir sem telja sig kristna eru í raun og veru óvinir kross Krists. 19 Glötunin bíður þeirra því að þeir hafa ofurselt sig ágirndinni. Þeir stæra sig af því sem þeir ættu að blygðast sín fyrir og jarðlífið er það eina sem þeir hugsa um. 20 En föðurland okkar er á himnum og þar er Drottinn okkar og frelsari, Jesús Kristur, sem við væntum. 21 Þegar hann kemur, mun hann breyta stöðugt hrörnandi líkömum okkar í dýrðarlíkama, eins og þann sem hann sjálfur hefur, með guðdómskrafti sínum, sem hann beitir er hann leggur allt undir sig.

In Other Versions

Philippians 3 in the ANGEFD

Philippians 3 in the ANTPNG2D

Philippians 3 in the AS21

Philippians 3 in the BAGH

Philippians 3 in the BBPNG

Philippians 3 in the BBT1E

Philippians 3 in the BDS

Philippians 3 in the BEV

Philippians 3 in the BHAD

Philippians 3 in the BIB

Philippians 3 in the BLPT

Philippians 3 in the BNT

Philippians 3 in the BNTABOOT

Philippians 3 in the BNTLV

Philippians 3 in the BOATCB

Philippians 3 in the BOATCB2

Philippians 3 in the BOBCV

Philippians 3 in the BOCNT

Philippians 3 in the BOECS

Philippians 3 in the BOGWICC

Philippians 3 in the BOHCB

Philippians 3 in the BOHCV

Philippians 3 in the BOHLNT

Philippians 3 in the BOHNTLTAL

Philippians 3 in the BOICB

Philippians 3 in the BOITCV

Philippians 3 in the BOKCV

Philippians 3 in the BOKCV2

Philippians 3 in the BOKHWOG

Philippians 3 in the BOKSSV

Philippians 3 in the BOLCB

Philippians 3 in the BOLCB2

Philippians 3 in the BOMCV

Philippians 3 in the BONAV

Philippians 3 in the BONCB

Philippians 3 in the BONLT

Philippians 3 in the BONUT2

Philippians 3 in the BOPLNT

Philippians 3 in the BOSCB

Philippians 3 in the BOSNC

Philippians 3 in the BOTLNT

Philippians 3 in the BOVCB

Philippians 3 in the BOYCB

Philippians 3 in the BPBB

Philippians 3 in the BPH

Philippians 3 in the BSB

Philippians 3 in the CCB

Philippians 3 in the CUV

Philippians 3 in the CUVS

Philippians 3 in the DBT

Philippians 3 in the DGDNT

Philippians 3 in the DHNT

Philippians 3 in the DNT

Philippians 3 in the ELBE

Philippians 3 in the EMTV

Philippians 3 in the ESV

Philippians 3 in the FBV

Philippians 3 in the FEB

Philippians 3 in the GGMNT

Philippians 3 in the GNT

Philippians 3 in the HARY

Philippians 3 in the HNT

Philippians 3 in the IRVA

Philippians 3 in the IRVB

Philippians 3 in the IRVG

Philippians 3 in the IRVH

Philippians 3 in the IRVK

Philippians 3 in the IRVM

Philippians 3 in the IRVM2

Philippians 3 in the IRVO

Philippians 3 in the IRVP

Philippians 3 in the IRVT

Philippians 3 in the IRVT2

Philippians 3 in the IRVU

Philippians 3 in the ISVN

Philippians 3 in the JSNT

Philippians 3 in the KAPI

Philippians 3 in the KBT1ETNIK

Philippians 3 in the KBV

Philippians 3 in the KJV

Philippians 3 in the KNFD

Philippians 3 in the LBA

Philippians 3 in the LBLA

Philippians 3 in the LNT

Philippians 3 in the LSV

Philippians 3 in the MAAL

Philippians 3 in the MBV

Philippians 3 in the MBV2

Philippians 3 in the MHNT

Philippians 3 in the MKNFD

Philippians 3 in the MNG

Philippians 3 in the MNT

Philippians 3 in the MNT2

Philippians 3 in the MRS1T

Philippians 3 in the NAA

Philippians 3 in the NASB

Philippians 3 in the NBLA

Philippians 3 in the NBS

Philippians 3 in the NBVTP

Philippians 3 in the NET2

Philippians 3 in the NIV11

Philippians 3 in the NNT

Philippians 3 in the NNT2

Philippians 3 in the NNT3

Philippians 3 in the PDDPT

Philippians 3 in the PFNT

Philippians 3 in the RMNT

Philippians 3 in the SBIAS

Philippians 3 in the SBIBS

Philippians 3 in the SBIBS2

Philippians 3 in the SBICS

Philippians 3 in the SBIDS

Philippians 3 in the SBIGS

Philippians 3 in the SBIHS

Philippians 3 in the SBIIS

Philippians 3 in the SBIIS2

Philippians 3 in the SBIIS3

Philippians 3 in the SBIKS

Philippians 3 in the SBIKS2

Philippians 3 in the SBIMS

Philippians 3 in the SBIOS

Philippians 3 in the SBIPS

Philippians 3 in the SBISS

Philippians 3 in the SBITS

Philippians 3 in the SBITS2

Philippians 3 in the SBITS3

Philippians 3 in the SBITS4

Philippians 3 in the SBIUS

Philippians 3 in the SBIVS

Philippians 3 in the SBT

Philippians 3 in the SBT1E

Philippians 3 in the SCHL

Philippians 3 in the SNT

Philippians 3 in the SUSU

Philippians 3 in the SUSU2

Philippians 3 in the SYNO

Philippians 3 in the TBIAOTANT

Philippians 3 in the TBT1E

Philippians 3 in the TBT1E2

Philippians 3 in the TFTIP

Philippians 3 in the TFTU

Philippians 3 in the TGNTATF3T

Philippians 3 in the THAI

Philippians 3 in the TNFD

Philippians 3 in the TNT

Philippians 3 in the TNTIK

Philippians 3 in the TNTIL

Philippians 3 in the TNTIN

Philippians 3 in the TNTIP

Philippians 3 in the TNTIZ

Philippians 3 in the TOMA

Philippians 3 in the TTENT

Philippians 3 in the UBG

Philippians 3 in the UGV

Philippians 3 in the UGV2

Philippians 3 in the UGV3

Philippians 3 in the VBL

Philippians 3 in the VDCC

Philippians 3 in the YALU

Philippians 3 in the YAPE

Philippians 3 in the YBVTP

Philippians 3 in the ZBP