Acts 22 (BOILNTAP)

1 „Kæru ættmenn,“ hóf hann mál sitt, „hlustið á málsvörn mína.“ 2 (Þegar fólkið heyrði hann tala hebresku varð þögnin enn meiri.) 3 „Ég er Gyðingur, fæddur í Tarsus, sem er borg í Kilikíu, en hér í Jerúsalem hlaut ég menntun mína. Ég var í skóla hjá Gamalíel og lærði þar að hlýða lögum og siðum okkar Gyðinga út í ystu æsar. Mér var umhugað að þóknast Guði í öllu sem ég gerði, rétt eins og þið í dag. 4 Ég ofsótti kristna menn og elti þá uppi til að lífláta þá. Ég lét binda bæði karla og konur og varpa þeim í fangelsi. 5 Æðsti presturinn, eða hver sem er úr ráðinu, getur staðfest það, því þeir gáfu mér skriflegt umboð til Gyðinganna í Damaskus, um að mér væri heimilt að taka þar alla kristna menn og færa í hlekkjum til Jerúsalem og láta refsa þeim þar. 6 Þegar ég var á leiðinni og nálgaðist Damaskus, gerðist það skyndilega um hádegi að skært og bjart ljós skein á mig frá himni. 7 Ég féll til jarðar og heyrði rödd segja við mig: „Sál, Sál, hvers vegna ofsækir þú mig?“ 8 „Hver ert þú herra?“ spurði ég. „Ég er Jesús frá Nasaret, sem þú ofsækir,“ svaraði röddin. 9 Mennirnir, sem með mér voru, sáu ljósið, en skildu ekki það sem sagt var. 10 „Drottinn, hvað á ég að gera?“ spurði ég þá. „Stattu á fætur,“ svarði Drottinn, „farðu inn í Damaskus og þar mun þér verða sagt hvað bíður þín.“ 11 Ég hafði blindast af þessu skæra ljósi, svo ferðafélagar mínir urðu að leiða mig inn í Damaskus. 12 Í borginni bjó maður sem hét Ananías. Hann var guðrækinn, fór nákvæmlega eftir lögum Gyðinga og var í miklum metum meðal Gyðinganna í borginni. 13 Hann kom til mín og sagði: „Bróðir Sál, líttu upp! Þú hefur fengið sjónina!“ Og á sama andartaki fékk ég sjónina! 14 Og síðan sagði hann við mig: „Guð feðra okkar hefur valið þig til að þekkja vilja sinn, sjá Krist og heyra hann tala. 15 Þú átt að flytja öllum boðskap hans og segja frá því sem þú hefur séð og heyrt. 16 Nú er ekki eftir neinu að bíða. Láttu skírast og hreinsast af syndum þínum og ákalla síðan nafn Drottins.“ 17 17,18 Daginn sem ég kom aftur til Jerúsalem var ég á bæn í musterinu. Þá varð ég frá mér numinn og sá Guð í sýn. Hann sagði: „Flýttu þér! Farðu burt frá Jerúsalem, því að íbúar hennar munu ekki trúa þér, þegar þú flytur þeim boðskap minn.“ 19 „Já, en Drottinn,“ sagði ég, „þeir vita þó örugglega að það var ég sem lét fangelsa þá, sem á þig trúa, og berja þá í samkomuhúsunum. 20 Og þegar vottur þinn, Stefán, var drepinn, þá var það ég sem stóð þar hjá og gaf samþykki mitt. Ég gætti yfirhafna þeirra sem grýttu hann!“ 21 En Guð sagði: „Farðu burt frá Jerúsalem, því að ég ætla að senda þig annað – já alla leið til heiðingjanna!“ “ 22 Fram að þessu hafði mannfjöldinn hlustað með athygli á Pál, en þegar hann minntist á heiðingjana, hrópuðu þeir einum rómi: „Burt með slíkan mann! Drepið hann! Hann á ekki skilið að fá að lifa!“ 23 Þeir æptu, köstuðu af sér yfirhöfnunum og þeyttu sandinum upp í loftið til merkis um reiði sína. 24 Foringi hersveitarinnar lét þá leiða Pál inn og skipaði svo fyrir að hann yrði húðstrýktur til þess að fá hann til að játa glæp sinn. Hann vildi fá skýringu á æðinu sem runnið hafði á fólkið. 25 Meðan verið var að binda Pál og búa hann undir svipuhöggin, sagði hann við liðsforingja sem þar stóð: „Hafið þið leyfi til að húðstrýkja rómverskan borgara, án þess að rannsaka mál hans?“ 26 Liðsforinginn gekk til hersveitarforingjans og spurði: „Veistu hvað þú ert að gera? Þessi maður er rómverskur borgari!“ 27 Foringi hersveitarinnar gekk þá til Páls og spurði: „Segðu mér, ert þú rómverskur borgari?“„Já,“ svaraði Páll. 28 „Ég líka,“ muldraði hersveitarforinginn, „og það kostaði mig ærið fé.“„Ég er hins vegar fæddur með þeim rétti,“ sagði Páll. 29 Þegar hermennirnir, sem þarna stóðu með reiddar svipurnar, heyrðu að Páll væri rómverskur borgari, laumuðust þeir í burtu og hersveitarforinginn varð sömuleiðis hræddur, því að það var hann sem hafði fyrirskipað að Páll skyldi bundinn og húðstrýktur. 30 Daginn eftir lét hersveitarforinginn leysa fjötrana af Páli og fyrirskipaði æðstu prestunum að kalla saman Gyðingaráðið. Síðan lét hann leiða Pál fyrir ráðið til að reyna að útkljá þessa deilu.

In Other Versions

Acts 22 in the ANGEFD

Acts 22 in the ANTPNG2D

Acts 22 in the AS21

Acts 22 in the BAGH

Acts 22 in the BBPNG

Acts 22 in the BBT1E

Acts 22 in the BDS

Acts 22 in the BEV

Acts 22 in the BHAD

Acts 22 in the BIB

Acts 22 in the BLPT

Acts 22 in the BNT

Acts 22 in the BNTABOOT

Acts 22 in the BNTLV

Acts 22 in the BOATCB

Acts 22 in the BOATCB2

Acts 22 in the BOBCV

Acts 22 in the BOCNT

Acts 22 in the BOECS

Acts 22 in the BOGWICC

Acts 22 in the BOHCB

Acts 22 in the BOHCV

Acts 22 in the BOHLNT

Acts 22 in the BOHNTLTAL

Acts 22 in the BOICB

Acts 22 in the BOITCV

Acts 22 in the BOKCV

Acts 22 in the BOKCV2

Acts 22 in the BOKHWOG

Acts 22 in the BOKSSV

Acts 22 in the BOLCB

Acts 22 in the BOLCB2

Acts 22 in the BOMCV

Acts 22 in the BONAV

Acts 22 in the BONCB

Acts 22 in the BONLT

Acts 22 in the BONUT2

Acts 22 in the BOPLNT

Acts 22 in the BOSCB

Acts 22 in the BOSNC

Acts 22 in the BOTLNT

Acts 22 in the BOVCB

Acts 22 in the BOYCB

Acts 22 in the BPBB

Acts 22 in the BPH

Acts 22 in the BSB

Acts 22 in the CCB

Acts 22 in the CUV

Acts 22 in the CUVS

Acts 22 in the DBT

Acts 22 in the DGDNT

Acts 22 in the DHNT

Acts 22 in the DNT

Acts 22 in the ELBE

Acts 22 in the EMTV

Acts 22 in the ESV

Acts 22 in the FBV

Acts 22 in the FEB

Acts 22 in the GGMNT

Acts 22 in the GNT

Acts 22 in the HARY

Acts 22 in the HNT

Acts 22 in the IRVA

Acts 22 in the IRVB

Acts 22 in the IRVG

Acts 22 in the IRVH

Acts 22 in the IRVK

Acts 22 in the IRVM

Acts 22 in the IRVM2

Acts 22 in the IRVO

Acts 22 in the IRVP

Acts 22 in the IRVT

Acts 22 in the IRVT2

Acts 22 in the IRVU

Acts 22 in the ISVN

Acts 22 in the JSNT

Acts 22 in the KAPI

Acts 22 in the KBT1ETNIK

Acts 22 in the KBV

Acts 22 in the KJV

Acts 22 in the KNFD

Acts 22 in the LBA

Acts 22 in the LBLA

Acts 22 in the LNT

Acts 22 in the LSV

Acts 22 in the MAAL

Acts 22 in the MBV

Acts 22 in the MBV2

Acts 22 in the MHNT

Acts 22 in the MKNFD

Acts 22 in the MNG

Acts 22 in the MNT

Acts 22 in the MNT2

Acts 22 in the MRS1T

Acts 22 in the NAA

Acts 22 in the NASB

Acts 22 in the NBLA

Acts 22 in the NBS

Acts 22 in the NBVTP

Acts 22 in the NET2

Acts 22 in the NIV11

Acts 22 in the NNT

Acts 22 in the NNT2

Acts 22 in the NNT3

Acts 22 in the PDDPT

Acts 22 in the PFNT

Acts 22 in the RMNT

Acts 22 in the SBIAS

Acts 22 in the SBIBS

Acts 22 in the SBIBS2

Acts 22 in the SBICS

Acts 22 in the SBIDS

Acts 22 in the SBIGS

Acts 22 in the SBIHS

Acts 22 in the SBIIS

Acts 22 in the SBIIS2

Acts 22 in the SBIIS3

Acts 22 in the SBIKS

Acts 22 in the SBIKS2

Acts 22 in the SBIMS

Acts 22 in the SBIOS

Acts 22 in the SBIPS

Acts 22 in the SBISS

Acts 22 in the SBITS

Acts 22 in the SBITS2

Acts 22 in the SBITS3

Acts 22 in the SBITS4

Acts 22 in the SBIUS

Acts 22 in the SBIVS

Acts 22 in the SBT

Acts 22 in the SBT1E

Acts 22 in the SCHL

Acts 22 in the SNT

Acts 22 in the SUSU

Acts 22 in the SUSU2

Acts 22 in the SYNO

Acts 22 in the TBIAOTANT

Acts 22 in the TBT1E

Acts 22 in the TBT1E2

Acts 22 in the TFTIP

Acts 22 in the TFTU

Acts 22 in the TGNTATF3T

Acts 22 in the THAI

Acts 22 in the TNFD

Acts 22 in the TNT

Acts 22 in the TNTIK

Acts 22 in the TNTIL

Acts 22 in the TNTIN

Acts 22 in the TNTIP

Acts 22 in the TNTIZ

Acts 22 in the TOMA

Acts 22 in the TTENT

Acts 22 in the UBG

Acts 22 in the UGV

Acts 22 in the UGV2

Acts 22 in the UGV3

Acts 22 in the VBL

Acts 22 in the VDCC

Acts 22 in the YALU

Acts 22 in the YAPE

Acts 22 in the YBVTP

Acts 22 in the ZBP