Acts 4 (BOILNTAP)

1 Á meðan Pétur og Jóhannes voru að tala til fólksins komu æðstu prestarnir, foringi musterislögreglunnar og nokkrir saddúkear til þeirra. 2 Þeim gramdist mjög að Pétur og Jóhannes skyldu boða það að Jesús hefði risið upp frá dauðum, 3 og tóku þá því fasta. En nú var komið kvöld og þess vegna settu þeir þá í gæsluvarðhald yfir nóttina. 4 Margir þeirra, sem höfðu hlustað, tóku trú, svo að tala hinna trúuðu óx enn; karlmennirnir einir voru um fimm þúsund! 5 Morguninn eftir komu allir helstu ráðamenn og fræðimenn Gyðinga – Æðstaráðið – saman í Jerúsalem. 6 Í ráðinu áttu sæti meðal annarra: Annas æðsti prestur, Kaífas, Jóhannes, Alexander og mörg önnur skyldmenni æðsta prestsins. 7 Lærisveinarnir tveir voru leiddir fyrir ráðið.„Með hvaða mætti og í umboði hvers hafið þið gert þetta?“ spurðu ráðamennirnir. 8 Pétur svaraði, fylltur heilögum anda: „Heiðruðu leiðtogar og öldungar þjóðar okkar. 9 Ef þið eigið við góðverkið á bæklaða manninum og hvernig hann hafi læknast, 10 þá sé ykkur öllum ljóst, og um leið allri þjóðinni, að þetta var gert í nafni Jesú Krists frá Nasaret, þess sem þið krossfestuð og Guð reisti upp frá dauðum. Það er fyrir hans kraft að þessi maður er orðinn heilbrigður. 11 Jesús Kristur er sá sem í Biblíunni er nefndur „steinninn sem húsameistararnir fleygðu, en nú er orðinn að hornsteini byggingarinnar“. 12 Hann er sá eini sem getur frelsað okkur frá syndinni og annað nafn er ekki til, sem menn geta ákallað sér til hjálpræðis.“ 13 Þegar meðlimir ráðsins sáu djörfung Péturs og Jóhannesar og komust að því að þeir voru ólærðir almúgamenn, undruðust þeir. Þeir könnuðust reyndar við þá, því að þeir höfðu séð þá með Jesú. 14 Maðurinn, sem læknast hafði, stóð sjálfur við hlið Péturs og Jóhannesar, og því var erfitt fyrir ráðið að mótmæla lækningunni. 15 Þeir sögðu þeim að fara úr salnum og héldu síðan áfram fundinum. 16 „Hvað eigum við að gera við þessa menn?“ spurðu þeir hver annan. „Því er ekki að neita að þeir hafa gert stórkostlegt kraftaverk, það vita allir hér í Jerúsalem. 17 Kannski getum við hindrað þá í að breiða út þennan áróður. Við hótum þeim refsingu ef þeir gera þetta aftur.“ 18 Síðan kölluðu þeir þá aftur inn og bönnuðu þeim stranglega að tala um Jesú framar. 19 „Ætlið þið að ákveða hvorum við hlýðum – Guði eða ykkur?“ spurðu Pétur og Jóhannes og bættu síðan við: 20 „Við getum ekki annað en sagt frá öllu því sem við fengum að reyna hjá Jesú.“ 21 Þá hótaði ráðið þeim aftur öllu illu, en sleppti þeim svo. Þeir vissu hreint ekki hvernig ætti að refsa þeim, án þess að til óeirða kæmi, því að allir lofuðu Guð fyrir þetta mikla kraftaverk. 22 Maðurinn, sem læknaðist, hafði verið lamaður í fjörutíu ár! 23 Eftir að þeir voru látnir lausir, fóru þeir að hitta hina lærisveinana og sögðu þeim niðurstöðu ráðsins. 24 Þegar lærisveinarnir tveir höfðu sagt félögum sínum allt, sameinuðust allir viðstaddir í þessari bæn: „Drottinn, þú ert skapari himins og jarðar, hafsins og alls sem í því er. 25 25,26 Fyrr á öldum lagðir þú forföður okkar og þjóni þínum, Davíð konungi þessi orð í munn fyrir heilagan anda: „Hvers vegna æða heiðingjarnir gegn Drottni og hvers vegna gera þjóðirnar heimskuleg samsæri gegn hinum almáttuga Guði? Konungar jarðarinnar risu upp gegn honum og Kristi konungi, syni hans.“ 27 Þetta hefur einmitt verið að gerast hér í borginni. Heródes konungur, Pontíus Pílatus landstjóri og allir Rómverjarnir auk Ísraelsþjóðarinnar hafa sameinast gegn Jesú, þínum heilaga syni og þjóni. 28 Þeir munu ekki hætta fyrr en þeir hafa gert allt það sem vísdómur þinn og kraftur vill að verði. 29 Drottinn, þú heyrir hótanir þeirra. Gefðu okkur, þjónum þínum, mikla djörfung þegar við predikum. 30 Sendu okkur mátt þinn til að lækna og láttu mörg undur og kraftaverk gerast í nafni Jesú, þíns heilaga þjóns.“ 31 Þegar þeir höfðu lokið bæninni, hrærðist staðurinn þar sem þeir voru, og þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að predika Guðs orð með djörfung. 32 Hinir trúuðu voru samhuga í öllu og enginn leit á eigur sínar sem einkaeign, heldur áttu þeir allt sameiginlegt. 33 Postularnir fluttu kröftugar ræður um upprisu Drottins Jesú og samfélag hinna trúuðu var mjög innilegt. 34 34,35 Enginn leið skort, því að allir sem áttu land eða húseignir, seldu og afhentu postulunum andvirðið, til þess að hægt væri að hjálpa hinum fátæku. 36 Það gerði Jósef frá Kýpur, sem postularnir kölluðu huggunarsoninn. Hann var af ætti Leví. 37 Hann seldi akur og færði postulunum andvirði peninganna, svo að þeir gætu skipt því meðal þeirra sem þurfandi voru.

In Other Versions

Acts 4 in the ANGEFD

Acts 4 in the ANTPNG2D

Acts 4 in the AS21

Acts 4 in the BAGH

Acts 4 in the BBPNG

Acts 4 in the BBT1E

Acts 4 in the BDS

Acts 4 in the BEV

Acts 4 in the BHAD

Acts 4 in the BIB

Acts 4 in the BLPT

Acts 4 in the BNT

Acts 4 in the BNTABOOT

Acts 4 in the BNTLV

Acts 4 in the BOATCB

Acts 4 in the BOATCB2

Acts 4 in the BOBCV

Acts 4 in the BOCNT

Acts 4 in the BOECS

Acts 4 in the BOGWICC

Acts 4 in the BOHCB

Acts 4 in the BOHCV

Acts 4 in the BOHLNT

Acts 4 in the BOHNTLTAL

Acts 4 in the BOICB

Acts 4 in the BOITCV

Acts 4 in the BOKCV

Acts 4 in the BOKCV2

Acts 4 in the BOKHWOG

Acts 4 in the BOKSSV

Acts 4 in the BOLCB

Acts 4 in the BOLCB2

Acts 4 in the BOMCV

Acts 4 in the BONAV

Acts 4 in the BONCB

Acts 4 in the BONLT

Acts 4 in the BONUT2

Acts 4 in the BOPLNT

Acts 4 in the BOSCB

Acts 4 in the BOSNC

Acts 4 in the BOTLNT

Acts 4 in the BOVCB

Acts 4 in the BOYCB

Acts 4 in the BPBB

Acts 4 in the BPH

Acts 4 in the BSB

Acts 4 in the CCB

Acts 4 in the CUV

Acts 4 in the CUVS

Acts 4 in the DBT

Acts 4 in the DGDNT

Acts 4 in the DHNT

Acts 4 in the DNT

Acts 4 in the ELBE

Acts 4 in the EMTV

Acts 4 in the ESV

Acts 4 in the FBV

Acts 4 in the FEB

Acts 4 in the GGMNT

Acts 4 in the GNT

Acts 4 in the HARY

Acts 4 in the HNT

Acts 4 in the IRVA

Acts 4 in the IRVB

Acts 4 in the IRVG

Acts 4 in the IRVH

Acts 4 in the IRVK

Acts 4 in the IRVM

Acts 4 in the IRVM2

Acts 4 in the IRVO

Acts 4 in the IRVP

Acts 4 in the IRVT

Acts 4 in the IRVT2

Acts 4 in the IRVU

Acts 4 in the ISVN

Acts 4 in the JSNT

Acts 4 in the KAPI

Acts 4 in the KBT1ETNIK

Acts 4 in the KBV

Acts 4 in the KJV

Acts 4 in the KNFD

Acts 4 in the LBA

Acts 4 in the LBLA

Acts 4 in the LNT

Acts 4 in the LSV

Acts 4 in the MAAL

Acts 4 in the MBV

Acts 4 in the MBV2

Acts 4 in the MHNT

Acts 4 in the MKNFD

Acts 4 in the MNG

Acts 4 in the MNT

Acts 4 in the MNT2

Acts 4 in the MRS1T

Acts 4 in the NAA

Acts 4 in the NASB

Acts 4 in the NBLA

Acts 4 in the NBS

Acts 4 in the NBVTP

Acts 4 in the NET2

Acts 4 in the NIV11

Acts 4 in the NNT

Acts 4 in the NNT2

Acts 4 in the NNT3

Acts 4 in the PDDPT

Acts 4 in the PFNT

Acts 4 in the RMNT

Acts 4 in the SBIAS

Acts 4 in the SBIBS

Acts 4 in the SBIBS2

Acts 4 in the SBICS

Acts 4 in the SBIDS

Acts 4 in the SBIGS

Acts 4 in the SBIHS

Acts 4 in the SBIIS

Acts 4 in the SBIIS2

Acts 4 in the SBIIS3

Acts 4 in the SBIKS

Acts 4 in the SBIKS2

Acts 4 in the SBIMS

Acts 4 in the SBIOS

Acts 4 in the SBIPS

Acts 4 in the SBISS

Acts 4 in the SBITS

Acts 4 in the SBITS2

Acts 4 in the SBITS3

Acts 4 in the SBITS4

Acts 4 in the SBIUS

Acts 4 in the SBIVS

Acts 4 in the SBT

Acts 4 in the SBT1E

Acts 4 in the SCHL

Acts 4 in the SNT

Acts 4 in the SUSU

Acts 4 in the SUSU2

Acts 4 in the SYNO

Acts 4 in the TBIAOTANT

Acts 4 in the TBT1E

Acts 4 in the TBT1E2

Acts 4 in the TFTIP

Acts 4 in the TFTU

Acts 4 in the TGNTATF3T

Acts 4 in the THAI

Acts 4 in the TNFD

Acts 4 in the TNT

Acts 4 in the TNTIK

Acts 4 in the TNTIL

Acts 4 in the TNTIN

Acts 4 in the TNTIP

Acts 4 in the TNTIZ

Acts 4 in the TOMA

Acts 4 in the TTENT

Acts 4 in the UBG

Acts 4 in the UGV

Acts 4 in the UGV2

Acts 4 in the UGV3

Acts 4 in the VBL

Acts 4 in the VDCC

Acts 4 in the YALU

Acts 4 in the YAPE

Acts 4 in the YBVTP

Acts 4 in the ZBP