Hebrews 4 (BOILNTAP)

1 Loforð Guðs, um að öllum sé heimilt að ganga inn til hvíldarinnar, stendur enn óhaggað, en gætum vel að! Því að svo lítur út sem sumir ykkar muni missa af hvíldinni! 2 Þessar dásamlegu fréttir – að Guð vilji frelsa okkur – hafa borist okkur rétt eins og þeim sem lifðu á dögum Móse. Þær komu þeim samt ekki að gagni, því að þeir trúðu honum ekki. 3 Við, sem trúum Guði, getum ein notið hvíldar hans. Guð hefur sagt: „Ég hef strengt þess heit í reiði minni að þeir, sem ekki trúa mér, munu aldrei komast þangað inn.“ Þetta segir Guð, hann sem hafði allt reiðubúið, og sem þar að auki hafði beðið eftir þeim frá því heimurinn varð til. 4 Við vitum að allt er reiðubúið af hans hálfu og hann bíður, því að skrifað stendur að Guð hafi hvílst á sjöunda degi eftir sköpunina, er hann hafði lokið öllu sem hann hafði ætlað sér að gera. 5 En þrátt fyrir það komust þeir ekki inn til hvíldarinnar, því að Guð átti síðasta orðið og sagði: „Þeir skulu aldrei komast inn til hvíldar minnar.“ 6 En loforðið stendur enn óhaggað og sumir munu komast inn – þó ekki þeir sem fengu fyrsta tækifærið, því að þeir glötuðu því vegna óhlýðni við Guð. 7 Guð ákvað að gefa annað tækifæri til inngöngu og nú er það komið. En Guð gaf það til kynna löngu síðar með orðum Davíðs konungs. Þessi orð Davíðs hafa reyndar þegar verið nefnd hér, en þau eru svona: „Ef þið heyrið rödd Guðs tala til ykkar í dag, verið þá ekki þrjósk og óhlýðin.“ 8 Þessi nýi hvíldarstaður, sem hann talar um, er ekki það sama fyrirheitna land – Ísrael – sem Jósúa leiddi fólkið inn í. Ef svo væri, hefði Guð þá ekki sagt seinna að rétti tíminn til að fara þangað inn, væri „í dag“. 9 Hér er því um að ræða fullkomna hvíld, sem enn stendur fólki Guðs til boða. 10 Kristur hefur þegar gengið þangað inn og nú hvílist hann að loknu verki sínu eins og Guð gerði eftir sköpunina. 11 Keppum nú að því að ná þessum hvíldarstað og gætum þess að óhlýðnast ekki Guði eins og Ísraelsþjóðin gerði, því að það kom í veg fyrir að hún kæmist þangað inn. 12 Guðs orð er lifandi og máttugt. Það er beittara en tvíeggjað sverð og smýgur á augabragði inn í innstu fylgsni hugans og sýnir okkur hvernig við erum í raun og veru. 13 Guð veit allt um alla. Í augum hans erum við sem opin bók – ekkert fær dulist fyrir honum og dag einn verðum við að gera honum fulla grein fyrir öllu, sem við höfum aðhafst. 14 Jesús, sonur Guðs, er æðsti prestur okkar. Hann hefur sjálfur farið til himna, okkur til hjálpar, og því skulum við aldrei glata trúnni á hann. 15 Hann er æðsti prestur, sem skilur vel veikleika okkar, því að hann varð fyrir sömu freistingum og við, þótt hann félli aldrei fyrir þeim og syndgaði. 16 Göngum því með djörfung að hásæti Guðs, til þess að við getum meðtekið miskunn hans og fengið hjálp þegar við þurfum á að halda.

In Other Versions

Hebrews 4 in the ANGEFD

Hebrews 4 in the ANTPNG2D

Hebrews 4 in the AS21

Hebrews 4 in the BAGH

Hebrews 4 in the BBPNG

Hebrews 4 in the BBT1E

Hebrews 4 in the BDS

Hebrews 4 in the BEV

Hebrews 4 in the BHAD

Hebrews 4 in the BIB

Hebrews 4 in the BLPT

Hebrews 4 in the BNT

Hebrews 4 in the BNTABOOT

Hebrews 4 in the BNTLV

Hebrews 4 in the BOATCB

Hebrews 4 in the BOATCB2

Hebrews 4 in the BOBCV

Hebrews 4 in the BOCNT

Hebrews 4 in the BOECS

Hebrews 4 in the BOGWICC

Hebrews 4 in the BOHCB

Hebrews 4 in the BOHCV

Hebrews 4 in the BOHLNT

Hebrews 4 in the BOHNTLTAL

Hebrews 4 in the BOICB

Hebrews 4 in the BOITCV

Hebrews 4 in the BOKCV

Hebrews 4 in the BOKCV2

Hebrews 4 in the BOKHWOG

Hebrews 4 in the BOKSSV

Hebrews 4 in the BOLCB

Hebrews 4 in the BOLCB2

Hebrews 4 in the BOMCV

Hebrews 4 in the BONAV

Hebrews 4 in the BONCB

Hebrews 4 in the BONLT

Hebrews 4 in the BONUT2

Hebrews 4 in the BOPLNT

Hebrews 4 in the BOSCB

Hebrews 4 in the BOSNC

Hebrews 4 in the BOTLNT

Hebrews 4 in the BOVCB

Hebrews 4 in the BOYCB

Hebrews 4 in the BPBB

Hebrews 4 in the BPH

Hebrews 4 in the BSB

Hebrews 4 in the CCB

Hebrews 4 in the CUV

Hebrews 4 in the CUVS

Hebrews 4 in the DBT

Hebrews 4 in the DGDNT

Hebrews 4 in the DHNT

Hebrews 4 in the DNT

Hebrews 4 in the ELBE

Hebrews 4 in the EMTV

Hebrews 4 in the ESV

Hebrews 4 in the FBV

Hebrews 4 in the FEB

Hebrews 4 in the GGMNT

Hebrews 4 in the GNT

Hebrews 4 in the HARY

Hebrews 4 in the HNT

Hebrews 4 in the IRVA

Hebrews 4 in the IRVB

Hebrews 4 in the IRVG

Hebrews 4 in the IRVH

Hebrews 4 in the IRVK

Hebrews 4 in the IRVM

Hebrews 4 in the IRVM2

Hebrews 4 in the IRVO

Hebrews 4 in the IRVP

Hebrews 4 in the IRVT

Hebrews 4 in the IRVT2

Hebrews 4 in the IRVU

Hebrews 4 in the ISVN

Hebrews 4 in the JSNT

Hebrews 4 in the KAPI

Hebrews 4 in the KBT1ETNIK

Hebrews 4 in the KBV

Hebrews 4 in the KJV

Hebrews 4 in the KNFD

Hebrews 4 in the LBA

Hebrews 4 in the LBLA

Hebrews 4 in the LNT

Hebrews 4 in the LSV

Hebrews 4 in the MAAL

Hebrews 4 in the MBV

Hebrews 4 in the MBV2

Hebrews 4 in the MHNT

Hebrews 4 in the MKNFD

Hebrews 4 in the MNG

Hebrews 4 in the MNT

Hebrews 4 in the MNT2

Hebrews 4 in the MRS1T

Hebrews 4 in the NAA

Hebrews 4 in the NASB

Hebrews 4 in the NBLA

Hebrews 4 in the NBS

Hebrews 4 in the NBVTP

Hebrews 4 in the NET2

Hebrews 4 in the NIV11

Hebrews 4 in the NNT

Hebrews 4 in the NNT2

Hebrews 4 in the NNT3

Hebrews 4 in the PDDPT

Hebrews 4 in the PFNT

Hebrews 4 in the RMNT

Hebrews 4 in the SBIAS

Hebrews 4 in the SBIBS

Hebrews 4 in the SBIBS2

Hebrews 4 in the SBICS

Hebrews 4 in the SBIDS

Hebrews 4 in the SBIGS

Hebrews 4 in the SBIHS

Hebrews 4 in the SBIIS

Hebrews 4 in the SBIIS2

Hebrews 4 in the SBIIS3

Hebrews 4 in the SBIKS

Hebrews 4 in the SBIKS2

Hebrews 4 in the SBIMS

Hebrews 4 in the SBIOS

Hebrews 4 in the SBIPS

Hebrews 4 in the SBISS

Hebrews 4 in the SBITS

Hebrews 4 in the SBITS2

Hebrews 4 in the SBITS3

Hebrews 4 in the SBITS4

Hebrews 4 in the SBIUS

Hebrews 4 in the SBIVS

Hebrews 4 in the SBT

Hebrews 4 in the SBT1E

Hebrews 4 in the SCHL

Hebrews 4 in the SNT

Hebrews 4 in the SUSU

Hebrews 4 in the SUSU2

Hebrews 4 in the SYNO

Hebrews 4 in the TBIAOTANT

Hebrews 4 in the TBT1E

Hebrews 4 in the TBT1E2

Hebrews 4 in the TFTIP

Hebrews 4 in the TFTU

Hebrews 4 in the TGNTATF3T

Hebrews 4 in the THAI

Hebrews 4 in the TNFD

Hebrews 4 in the TNT

Hebrews 4 in the TNTIK

Hebrews 4 in the TNTIL

Hebrews 4 in the TNTIN

Hebrews 4 in the TNTIP

Hebrews 4 in the TNTIZ

Hebrews 4 in the TOMA

Hebrews 4 in the TTENT

Hebrews 4 in the UBG

Hebrews 4 in the UGV

Hebrews 4 in the UGV2

Hebrews 4 in the UGV3

Hebrews 4 in the VBL

Hebrews 4 in the VDCC

Hebrews 4 in the YALU

Hebrews 4 in the YAPE

Hebrews 4 in the YBVTP

Hebrews 4 in the ZBP