Luke 19 (BOILNTAP)

1 Í Jeríkó bjó maður sem Sakkeus hét. 2 Hann var yfirskattheimtumaður Rómverja og því mjög ríkur. 3 Þegar Jesús var á leið um borgina reyndi Sakkeus, sem var mjög lágvaxinn, að sjá Jesú, en hann gat það ekki vegna mannfjöldans. 4 Hann hljóp því fram fyrir og klifraði upp í mórberjatré, sem stóð við veginn, til að fá góða yfirsýn. 5 Þegar Jesús kom þar að, leit hann upp til Sakkeusar og kallaði: „Sakkeus! Komdu niður! Ég ætla að heimsækja þig í dag.“ 6 Sakkeus varð mjög glaður. Hann flýtti sér niður úr trénu, fullur eftirvæntingar, og fór með Jesú heim til sín. 7 Þá lét mannfjöldinn óánægju sína í ljós og sagði: „Hví leyfir hann sér að heimsækja slíkan syndara?“ 8 En á meðan stóð Sakkeus frammi fyrir Drottni og sagði: „Herra, héðan í frá ætla ég að gefa fátækum helming auðæfa minna. Og hafi ég látið einhvern greiða of háa skatta, þá mun ég refsa sjálfum mér með því að greiða honum fjórfalt aftur.“ 9 9,10 Þá sagði Jesús við hann: „Þetta sýnir, að í dag hefur hjálp Guðs veist þessu heimili. Þú varst einn hinna týndu sona Abrahams. Ég, Kristur, er kominn til að leita að hinu týnda og frelsa það.“ 11 Þegar Jesús var kominn í námunda við Jerúsalem, sagði hann dæmisögu til að leiðrétta þá sem héldu að ríki Guðs stæði fyrir dyrum: 12 „Höfðingi, sem bjó í skattlandi einu, var kvaddur til höfuðborgar ríkisins, en þar átti að krýna hann konung yfir skattlandinu. 13 Áður en hann fór, kallaði hann saman tíu aðstoðarmenn sína og afhenti hverjum um sig hálfa milljón króna, sem þeir áttu að versla með meðan hann væri í burtu. 14 Sumum landsmanna var illa við hann og því sendu þeir honum sjálfstæðisyfirlýsingu. Þeir tóku fram að þeir hefðu gert byltingu og myndu ekki líta á hann sem konung sinn. 15 Þegar hann kom heim aftur, kallaði hann til sín menn þá sem hann hafði afhent peningana. Nú vildi hann fá að vita hvernig þeim hefði gengið og hver ágóði hans yrði. 16 Sá fyrsti sagði frá stórkostlegum gróða – hann hafði tífaldað upphæðina! 17 „Glæsilegt!“ hrópaði konungurinn. „Mér líst vel á þig. Þú hefur reynst trúr í því litla sem ég fól þér og í staðinn skaltu fá að stjórna tíu borgum.“ 18 Næsti maður hafði einnig góða sögu að segja, hann hafði fimmfaldað upphæðina. 19 „Gott!“ sagði húsbóndi hans. „Þú skalt fá að stjórna fimm borgum.“ 20 20,21 En sá þriðji skilaði aðeins sömu upphæð og hann hafði fengið og sagði: „Ég var hræddur og gætti peninganna vel, því að þú ert ekkert lamb að leika við. Þú tekur það sem þú átt ekki og hirðir jafnvel uppskeru annarra.“ 22 „Þú ert latur, þorparinn þinn,“ hreytti konungurinn út úr sér og bætti síðan við: „Er ég harðskeyttur, ha? Já, það er ég og þannig verð ég einmitt við þig! 23 Hvers vegna lagðir þú þá peningana ekki í banka svo ég fengi þó einhverja vexti, fyrst þú þekktir mig svona vel?“ 24 Síðan sneri hann sér að hinum sem þar stóðu og sagði skipandi: „Takið af honum peningana og fáið þeim sem græddi mest.“ 25 „Já, herra, en er hann ekki þegar búinn að fá nóg?“ spurðu þeir. 26 „Jú,“ svaraði konungurinn, „en sá sem hefur, mun fá enn meira, en sá sem lítið á, mun missa það fyrr en varir. 27 En varðandi þessa óvini mína sem gerðu uppreisn, þá náið í þá og takið þá af lífi að mér ásjáandi“.“ 28 Eftir að hafa sagt þessa sögu, hélt Jesús áfram til Jerúsalem og gekk á undan lærisveinunum. 29 Þegar þeir nálguðust þorpin Betfage og Betaníu á Olíufjallinu, sendi hann tvo þeirra á undan sér. 30 Hann sagði þeim að fara inn í þorpið, sem var nær, og þegar þangað kæmi skyldu þeir leita uppi asna í einni götunni. Þetta átti að vera foli, sem enginn hefði áður komið á bak.„Leysið hann,“ sagði Jesús, „og komið með hann. 31 Ef einhver spyr hvað þið séuð að gera, skuluð þið segja: „Herrann þarf hans með.“ “ 32 Þeir fóru og fundu asnann eins og Jesús hafði sagt, 33 en meðan þeir voru að leysa hann, komu eigendurnir og kröfðust skýringar. „Hvað eruð þið að gera?“ spurðu þeir, „hvers vegna eruð þið að leysa folann okkar?“ 34 „Herrann þarf hans með,“ svöruðu lærisveinarnir. 35 Síðan fóru þeir með hann til Jesú og lögðu yfirhafnir sínar á bak folans, handa Jesú að sitja á. 36 36,37 Fólkið breiddi föt sín á veginn framundan. Þegar komið var þangað, sem vegurinn liggur niður af Olíufjallinu, tók öll fylkingin að hrópa og lofsyngja Guð fyrir öll undursamlegu kraftaverkin sem Jesús hafði gert. 38 „Guð hefur gefið okkur konung!“ hrópaði fólkið í gleði sinni. „Lengi lifi konungurinn! Gleðjist þið himnar! Dýrð sé Guði í hæstum himni!“ 39 En í hópnum voru nokkrir farísear sem sögðu: „Herra, þú verður að banna fylgjendum þínum að segja slíka hluti.“ 40 Hann svaraði: „Ef þeir þegðu, myndu steinarnir hrópa gleðióp.“ 41 Þegar nær dró Jerúsalem og Jesús sá borgina, grét hann og sagði: 42 „Ó, ef þú hefðir aðeins þekkt veg friðarins, en nú er hann hulinn sjónum þínum. 43 Óvinir þínir munu reisa virki gegn borgarmúrum þínum, umkringja þig og inniloka. 44 Þeir munu eyða þér og börnum þínum, svo að ekki standi steinn yfir steini – því þú hafnaðir boði Guðs.“ 45 Jesús fór inn í musterið og rak kaupmennina frá borðum sínum 46 og sagði: „Biblían segir: „Musteri mitt er bænastaður, en þið hafið breytt því í þjófabæli.“ 47 Eftir þetta kenndi hann daglega í musterinu.Æðstu prestarnir, ásamt öðrum trúarleiðtogum og framámönnum þjóðarinnar, reyndu nú að finna leið til að losna við hann. 48 En þeir fundu enga, því að fólkið leit á hann sem þjóðhetju – það var sammála öllu sem hann sagði.

In Other Versions

Luke 19 in the ANGEFD

Luke 19 in the ANTPNG2D

Luke 19 in the AS21

Luke 19 in the BAGH

Luke 19 in the BBPNG

Luke 19 in the BBT1E

Luke 19 in the BDS

Luke 19 in the BEV

Luke 19 in the BHAD

Luke 19 in the BIB

Luke 19 in the BLPT

Luke 19 in the BNT

Luke 19 in the BNTABOOT

Luke 19 in the BNTLV

Luke 19 in the BOATCB

Luke 19 in the BOATCB2

Luke 19 in the BOBCV

Luke 19 in the BOCNT

Luke 19 in the BOECS

Luke 19 in the BOGWICC

Luke 19 in the BOHCB

Luke 19 in the BOHCV

Luke 19 in the BOHLNT

Luke 19 in the BOHNTLTAL

Luke 19 in the BOICB

Luke 19 in the BOITCV

Luke 19 in the BOKCV

Luke 19 in the BOKCV2

Luke 19 in the BOKHWOG

Luke 19 in the BOKSSV

Luke 19 in the BOLCB

Luke 19 in the BOLCB2

Luke 19 in the BOMCV

Luke 19 in the BONAV

Luke 19 in the BONCB

Luke 19 in the BONLT

Luke 19 in the BONUT2

Luke 19 in the BOPLNT

Luke 19 in the BOSCB

Luke 19 in the BOSNC

Luke 19 in the BOTLNT

Luke 19 in the BOVCB

Luke 19 in the BOYCB

Luke 19 in the BPBB

Luke 19 in the BPH

Luke 19 in the BSB

Luke 19 in the CCB

Luke 19 in the CUV

Luke 19 in the CUVS

Luke 19 in the DBT

Luke 19 in the DGDNT

Luke 19 in the DHNT

Luke 19 in the DNT

Luke 19 in the ELBE

Luke 19 in the EMTV

Luke 19 in the ESV

Luke 19 in the FBV

Luke 19 in the FEB

Luke 19 in the GGMNT

Luke 19 in the GNT

Luke 19 in the HARY

Luke 19 in the HNT

Luke 19 in the IRVA

Luke 19 in the IRVB

Luke 19 in the IRVG

Luke 19 in the IRVH

Luke 19 in the IRVK

Luke 19 in the IRVM

Luke 19 in the IRVM2

Luke 19 in the IRVO

Luke 19 in the IRVP

Luke 19 in the IRVT

Luke 19 in the IRVT2

Luke 19 in the IRVU

Luke 19 in the ISVN

Luke 19 in the JSNT

Luke 19 in the KAPI

Luke 19 in the KBT1ETNIK

Luke 19 in the KBV

Luke 19 in the KJV

Luke 19 in the KNFD

Luke 19 in the LBA

Luke 19 in the LBLA

Luke 19 in the LNT

Luke 19 in the LSV

Luke 19 in the MAAL

Luke 19 in the MBV

Luke 19 in the MBV2

Luke 19 in the MHNT

Luke 19 in the MKNFD

Luke 19 in the MNG

Luke 19 in the MNT

Luke 19 in the MNT2

Luke 19 in the MRS1T

Luke 19 in the NAA

Luke 19 in the NASB

Luke 19 in the NBLA

Luke 19 in the NBS

Luke 19 in the NBVTP

Luke 19 in the NET2

Luke 19 in the NIV11

Luke 19 in the NNT

Luke 19 in the NNT2

Luke 19 in the NNT3

Luke 19 in the PDDPT

Luke 19 in the PFNT

Luke 19 in the RMNT

Luke 19 in the SBIAS

Luke 19 in the SBIBS

Luke 19 in the SBIBS2

Luke 19 in the SBICS

Luke 19 in the SBIDS

Luke 19 in the SBIGS

Luke 19 in the SBIHS

Luke 19 in the SBIIS

Luke 19 in the SBIIS2

Luke 19 in the SBIIS3

Luke 19 in the SBIKS

Luke 19 in the SBIKS2

Luke 19 in the SBIMS

Luke 19 in the SBIOS

Luke 19 in the SBIPS

Luke 19 in the SBISS

Luke 19 in the SBITS

Luke 19 in the SBITS2

Luke 19 in the SBITS3

Luke 19 in the SBITS4

Luke 19 in the SBIUS

Luke 19 in the SBIVS

Luke 19 in the SBT

Luke 19 in the SBT1E

Luke 19 in the SCHL

Luke 19 in the SNT

Luke 19 in the SUSU

Luke 19 in the SUSU2

Luke 19 in the SYNO

Luke 19 in the TBIAOTANT

Luke 19 in the TBT1E

Luke 19 in the TBT1E2

Luke 19 in the TFTIP

Luke 19 in the TFTU

Luke 19 in the TGNTATF3T

Luke 19 in the THAI

Luke 19 in the TNFD

Luke 19 in the TNT

Luke 19 in the TNTIK

Luke 19 in the TNTIL

Luke 19 in the TNTIN

Luke 19 in the TNTIP

Luke 19 in the TNTIZ

Luke 19 in the TOMA

Luke 19 in the TTENT

Luke 19 in the UBG

Luke 19 in the UGV

Luke 19 in the UGV2

Luke 19 in the UGV3

Luke 19 in the VBL

Luke 19 in the VDCC

Luke 19 in the YALU

Luke 19 in the YAPE

Luke 19 in the YBVTP

Luke 19 in the ZBP