Luke 6 (BOILNTAP)

1 Svo bar við á helgidegi að Jesús fór um akur ásamt lærisveinunum og þeir tíndu sér kornöx, neru þau með höndunum og átu. 2 „Þetta er bannað“ sögðu farísearnir. „Lærisveinar þínir eru að uppskera korn og lögum samkvæmt er það bannað á helgidögum.“ 3 Jesús svaraði: „Hafið þið aldrei lesið hvað Davíð konungur gerði þegar hann og menn hans hungraði? 4 Hann fór inn í Guðs hús, tók skoðunarbrauðin og át, ásamt mönnum sínum, en það var óheimilt.“ 5 Og Jesús bætti við: „Ég er herra helgidagsins.“ 6 Á öðrum helgidegi var hann að kenna í samkomuhúsinu. Þar var þá staddur fatlaður maður – hægri höndin var máttlaus. 7 Farísearnir og fræðimennirnir höfðu gætur á því hvort Jesús læknaði manninn á helgidegi – til þess að þeir gætu fundið eitthvað til að kæra hann fyrir. 8 En Jesús vissi hvað þeir hugsuðu. Hann sagði við fatlaða manninn: „Stattu upp og komdu hingað.“ Maðurinn stóð upp og kom til hans. 9 Þá sagði Jesús við faríseana og lögvitringana: „Nú spyr ég ykkur: Hvort er leyfilegt að gera gott eða illt á helgidegi? Bjarga lífi eða deyða?“ 10 Hann horfði á þá einn af öðrum og sagði síðan við manninn: „Réttu fram höndina.“ Maðurinn hlýddi og um leið varð hönd hans heilbrigð! 11 Óvinir Jesú urðu ævareiðir og töluðu saman um hvað þeir gætu gert honum. 12 Um þetta leyti fór Jesús til fjalla til að biðjast fyrir og var alla nóttina á bæn. 13 Í dögun kallaði hann saman fylgjendur sína og valdi tólf þeirra til að vera postula sína eða sendiboða. 14 14-16 Þeir hétu: Símon (Jesús kallaði hann einnig Pétur), Andrés (bróðir Símonar), Jakob, Jóhannes, Filippus, Bartólómeus, Matteus, Tómas, Jakob Alfeusson, Símon (félagi í flokki Selóta, byltingarsinnuðum stjórnmálaflokki), Júdas Jakobsson og Júdas Ískaríot (sem síðar sveik Jesú). 17 17,18 Þegar þeir komu aftur niður á sléttlendi, var þar fyrir mikill hópur lærisveina hans og fjöldi fólks úr allri Júdeu, Jerúsalem, og jafnvel norðan frá strandhéruðum Týrusar og Sídonar, til að hlusta á hann og fá lækningu. Þarna rak hann út marga illa anda. 19 Allir reyndu að snerta hann, því þegar fólk gerði það, þá streymdi lækningakraftur frá honum, svo það læknaðist. 20 Jesús sneri sér að lærisveinunum og sagði: „Sælir eruð þið, fátækir, því ykkar er guðsríki! 21 Sælir eruð þið sem þolið hungur, því þið munuð saddir verða. Sælir eruð þið sem nú grátið, því þið munuð hlæja af gleði! 22 Þið eruð sælir þegar menn hata ykkur og útskúfa, smána og baktala mín vegna. 23 Fagnið þá og látið gleðilátum! Gleðjist, því laun ykkar verða mikil á himnum. Þannig var einnig farið með spámenn Guðs forðum. 24 En þið sem ríkir eruð – ykkar bíður mikil ógæfa. Gleði ykkar er öll hér á jörðu. 25 Þótt þið nú séuð saddir og vegni vel, þá bíður ykkar mikill skortur. Nú hlæið þið kæruleysislega, en þá munuð þið sýta og gráta. 26 Einnig bíður mikið böl þeirra, sem nú eiga hylli fjöldans – falsspámenn hafa alla tíð verið vinsælir. 27 Takið eftir! Elskið óvini ykkar! Verið þeim góðir sem hata ykkur. 28 Blessið þá sem bölva ykkur, og biðjið fyrir þeim sem valda ykkur tjóni. 29 Þeim sem slær þig á aðra kinnina, skaltu bjóða hina! Láttu þann sem heimtar yfirhöfn þína fá skyrtuna að auki. 30 Gefðu þeim sem biður þig, og sé eitthvað haft af þér, reyndu þá ekki að ná því aftur. 31 Komið fram við aðra eins og þið viljið að þeir komi fram við ykkur! 32 Haldið þið að þið eigið hrós skilið fyrir að elska þá sem elska ykkur? Nei, það gera einnig guðleysingjarnir. 33 Hvað er stórkostlegt við það að vera góður við þá sem eru góðir við þig? Það gerir hvaða syndari sem er! 34 Og hvaða góðverk er það að lána þeim einum fé, sem geta endurgreitt? Jafnvel verstu illmenni lána fé – en þau vænta líka fullrar endurgreiðslu! 35 Nei – elskið óvini ykkar! Gerið þeim gott! Lánið þeim og hafið ekki áhyggjur, þótt þið vitið að þeir muni ekki endurgreiða það. Þá munu laun ykkar verða mikil á himnum og framkoma ykkar sýna að þið eruð synir Guðs, því að hann er góður við vanþakkláta og vonda. 36 Verið miskunnsamir eins og faðir ykkar er miskunnsamur. 37 Verið ekki dómharðir og sakfellið ekki, þá verðið þið ekki heldur sakfelldir. Verið tillitssamir og þá mun ykkur einnig verða sýnd tillitssemi. 38 Gefið og ykkur mun gefið verða! Þið munuð fá ríkulega endurgoldið. Laun ykkar verða mæld með sama mæli og þið mælið öðrum, hvort sem hann er lítill eða stór.“ 39 Jesús sagði einnig þessar líkingar í ræðum sínum: „Getur blindur leitt blindan? Nei, því þá falla báðir í sömu gryfjuna! 40 Ekki er nemandinn meiri en kennarinn, en sé hann iðinn og námfús, verður hann eins og kennarinn. 41 Hvers vegna sérðu flís í auga bróður þíns – einhver smá mistök sem hann kann að hafa gert – en tekur ekki eftir plankanum í þínu eigin auga! 42 Hvernig geturðu sagt við hann: „Bróðir, leyfðu mér að losa flísina úr auga þér,“ meðan þú sérð varla til vegna plankans í þínu eigin auga? Hræsnari! Fjarlægðu fyrst plankann úr þínu auga og þá sérðu nógu vel til að draga út flísina í auga hans. 43 Gott tré ber ekki skemmda ávexti og lélegt tré ber ekki góða ávexti. 44 Tré þekkist af ávexti sínum. Hvorki tína menn fíkjur af þyrnirunnum né vínber af þistlum. 45 Góður maður kemur góðu til leiðar, því hann hefur gott hjartalag, en vondur maður verður til ills, vegna síns spillta hugarfars. Orð þín lýsa innra manni. 46 Hvers vegna kallið þið mig „Herra“ en viljið svo ekki hlýða mér? 47 47,48 Sá sem kemur til mín, heyrir orð mín og breytir eftir þeim, er líkur manni sem byggði hús. Hann gróf djúpt og lagði undirstöðuna á klöpp. Þegar vatnsflóð kom, skall beljandi straumurinn á húsinu, en það haggaðist ekki, því það stóð á traustri undirstöðu. 49 En sá sem heyrir orð mín, og fer ekki eftir þeim, er líkur manni sem byggði hús án undirstöðu. Þegar beljandi flóðið skall á því, hrundi það.“

In Other Versions

Luke 6 in the ANGEFD

Luke 6 in the ANTPNG2D

Luke 6 in the AS21

Luke 6 in the BAGH

Luke 6 in the BBPNG

Luke 6 in the BBT1E

Luke 6 in the BDS

Luke 6 in the BEV

Luke 6 in the BHAD

Luke 6 in the BIB

Luke 6 in the BLPT

Luke 6 in the BNT

Luke 6 in the BNTABOOT

Luke 6 in the BNTLV

Luke 6 in the BOATCB

Luke 6 in the BOATCB2

Luke 6 in the BOBCV

Luke 6 in the BOCNT

Luke 6 in the BOECS

Luke 6 in the BOGWICC

Luke 6 in the BOHCB

Luke 6 in the BOHCV

Luke 6 in the BOHLNT

Luke 6 in the BOHNTLTAL

Luke 6 in the BOICB

Luke 6 in the BOITCV

Luke 6 in the BOKCV

Luke 6 in the BOKCV2

Luke 6 in the BOKHWOG

Luke 6 in the BOKSSV

Luke 6 in the BOLCB

Luke 6 in the BOLCB2

Luke 6 in the BOMCV

Luke 6 in the BONAV

Luke 6 in the BONCB

Luke 6 in the BONLT

Luke 6 in the BONUT2

Luke 6 in the BOPLNT

Luke 6 in the BOSCB

Luke 6 in the BOSNC

Luke 6 in the BOTLNT

Luke 6 in the BOVCB

Luke 6 in the BOYCB

Luke 6 in the BPBB

Luke 6 in the BPH

Luke 6 in the BSB

Luke 6 in the CCB

Luke 6 in the CUV

Luke 6 in the CUVS

Luke 6 in the DBT

Luke 6 in the DGDNT

Luke 6 in the DHNT

Luke 6 in the DNT

Luke 6 in the ELBE

Luke 6 in the EMTV

Luke 6 in the ESV

Luke 6 in the FBV

Luke 6 in the FEB

Luke 6 in the GGMNT

Luke 6 in the GNT

Luke 6 in the HARY

Luke 6 in the HNT

Luke 6 in the IRVA

Luke 6 in the IRVB

Luke 6 in the IRVG

Luke 6 in the IRVH

Luke 6 in the IRVK

Luke 6 in the IRVM

Luke 6 in the IRVM2

Luke 6 in the IRVO

Luke 6 in the IRVP

Luke 6 in the IRVT

Luke 6 in the IRVT2

Luke 6 in the IRVU

Luke 6 in the ISVN

Luke 6 in the JSNT

Luke 6 in the KAPI

Luke 6 in the KBT1ETNIK

Luke 6 in the KBV

Luke 6 in the KJV

Luke 6 in the KNFD

Luke 6 in the LBA

Luke 6 in the LBLA

Luke 6 in the LNT

Luke 6 in the LSV

Luke 6 in the MAAL

Luke 6 in the MBV

Luke 6 in the MBV2

Luke 6 in the MHNT

Luke 6 in the MKNFD

Luke 6 in the MNG

Luke 6 in the MNT

Luke 6 in the MNT2

Luke 6 in the MRS1T

Luke 6 in the NAA

Luke 6 in the NASB

Luke 6 in the NBLA

Luke 6 in the NBS

Luke 6 in the NBVTP

Luke 6 in the NET2

Luke 6 in the NIV11

Luke 6 in the NNT

Luke 6 in the NNT2

Luke 6 in the NNT3

Luke 6 in the PDDPT

Luke 6 in the PFNT

Luke 6 in the RMNT

Luke 6 in the SBIAS

Luke 6 in the SBIBS

Luke 6 in the SBIBS2

Luke 6 in the SBICS

Luke 6 in the SBIDS

Luke 6 in the SBIGS

Luke 6 in the SBIHS

Luke 6 in the SBIIS

Luke 6 in the SBIIS2

Luke 6 in the SBIIS3

Luke 6 in the SBIKS

Luke 6 in the SBIKS2

Luke 6 in the SBIMS

Luke 6 in the SBIOS

Luke 6 in the SBIPS

Luke 6 in the SBISS

Luke 6 in the SBITS

Luke 6 in the SBITS2

Luke 6 in the SBITS3

Luke 6 in the SBITS4

Luke 6 in the SBIUS

Luke 6 in the SBIVS

Luke 6 in the SBT

Luke 6 in the SBT1E

Luke 6 in the SCHL

Luke 6 in the SNT

Luke 6 in the SUSU

Luke 6 in the SUSU2

Luke 6 in the SYNO

Luke 6 in the TBIAOTANT

Luke 6 in the TBT1E

Luke 6 in the TBT1E2

Luke 6 in the TFTIP

Luke 6 in the TFTU

Luke 6 in the TGNTATF3T

Luke 6 in the THAI

Luke 6 in the TNFD

Luke 6 in the TNT

Luke 6 in the TNTIK

Luke 6 in the TNTIL

Luke 6 in the TNTIN

Luke 6 in the TNTIP

Luke 6 in the TNTIZ

Luke 6 in the TOMA

Luke 6 in the TTENT

Luke 6 in the UBG

Luke 6 in the UGV

Luke 6 in the UGV2

Luke 6 in the UGV3

Luke 6 in the VBL

Luke 6 in the VDCC

Luke 6 in the YALU

Luke 6 in the YAPE

Luke 6 in the YBVTP

Luke 6 in the ZBP