Matthew 19 (BOILNTAP)
1 Að lokinni þessari ræðu hélt Jesús af stað frá Galíleu til Júdeu og lagði leið sína um héruðin austan Jórdanar. 2 Mikill fjöldi fylgdi honum og hann læknaði sjúka. 3 Þá komu til hans nokkrir farísear sem vildu ræða við hann og reyna að flækja hann í orðum.„Leyfir þú hjónaskilnað?“ spurðu þeir. 4 „Hafið þið ekki lesið Biblíuna?“ spurði hann. „Þar stendur að í upphafi hafi Guð skapað karl og konu, 5 og sagt að karlmaðurinn ætti að fara að heiman frá foreldrum sínum og búa með eiginkonu sinni upp frá því. 6 Þau tvö eiga að verða eitt – ekki framar tvö, heldur eitt! Enginn maður má aðskilja það sem Guð hefur sameinað.“ 7 „En af hverju sagði þá Móse að maðurinn gæti skilið við konu sína með því að afhenda henni skilnaðarbréf?“ spurðu þeir. 8 „Móse leyfði ykkur skilnað vegna illsku ykkar og miskunnarleysis,“ svaraði Jesús, „en það hafði Guð ekki upphaflega áformað. 9 Ég segi: Sá sem skilur við konu sína af annarri ástæðu en þeirri að hún hafi verið honum ótrú og kvænist annarri, drýgir hór.“ 10 „Ef svo er,“ sögðu lærisveinarnir, „þá er nú betra að kvænast alls ekki!“ 11 „Ég veit að ekki geta allir framfylgt þessu,“ sagði Jesús, „aðeins þeir sem fá hjálp frá Guði. 12 Sumir eru fæddir þannig að þeir geta ekki lifað í hjónabandi, aðrir verða þannig af mannavöldum og enn aðrir vilja ekki gifta sig vegna guðsríkisins. Sá sem skilur orð mín ætti að fara eftir þeim.“ 13 Fólk færði lítil börn til Jesú og bað hann um að leggja hendur yfir þau og biðja fyrir þeim. Lærisveinarnir brugðust illa við þessu og sögðu: „Verið ekki að ónáða hann.“ 14 En Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því slíkra er guðsríki.“ 15 Og hann lagði hendur sínar á höfuð þeirra, blessaði þau og hélt síðan áfram ferð sinni. 16 Maður nokkur kom til Jesú og spurði: „Meistari, hvaða góðverk þarf ég að gera til þess að eignast eilíft líf?“ 17 „Hvers vegna spyrð þú mig um hið góða?“ svaraði Jesús. „Einn er góður og það er Guð. En spurningu þinni skal ég svara. Þú kemst til himins, ef þú hlýðir boðorðunum.“ 18 „Hverjum?“ spurði maðurinn.„Þessum,“ svaraði Jesús: „Þú skalt ekki mann deyða, ekki drýgja hór, ekki stela, ekki ljúga, 19 heiðraðu föður þinn og móður og elskaðu meðbróður þinn eins og sjálfan þig!“ 20 „Ég hef alltaf hlýtt boðorðunum,“ sagði ungi maðurinn, „hvað er það fleira sem ég þarf að gera?“ 21 Jesús svaraði: „Ef þú vilt verða fullkominn, þá skaltu selja allt sem þú átt, gefa fátækum andvirðið og þá muntu eignast fjársjóð á himnum. Komdu síðan og fylgdu mér.“ 22 Þegar ungi maðurinn heyrði þetta varð hann dapur og gekk burt – hann var mjög ríkur. 23 Þá sagði Jesús við lærisveinana: „Ríkum manni mun reynast erfitt að komast inn í guðsríki. 24 Ég segi, það er auðveldara fyrir úlfalda að komast gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann að komast inn í guðsríki!“ 25 Lærisveinarnir urðu forviða og spurðu: „Hver getur þá frelsast?“ 26 Jesús leit á þá einbeittur á svip og sagði: „Enginn, fyrir mannlegt tilstilli, en Guði eru allir hlutir mögulegir.“ 27 „En við sem yfirgáfum allt og fylgdum þér,“ sagði Pétur, „hvað berum við úr býtum?“ 28 Jesús svaraði: „Þegar ég, Kristur, sest í hið dýrlega hásæti mitt í guðsríkinu, munuð þið sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels. 29 Hver sá sem yfirgefur heimili, bræður, systur, föður, móður, eiginkonu, börn eða eignir til að geta fylgt mér, mun fá hundraðfalt í staðinn og eignast eilíft líf. 30 Margir þeirra, sem nú eru fremstir, verða þá síðastir og hinir síðustu fremstir.“
In Other Versions
Matthew 19 in the ANGEFD
Matthew 19 in the ANTPNG2D
Matthew 19 in the AS21
Matthew 19 in the BAGH
Matthew 19 in the BBPNG
Matthew 19 in the BBT1E
Matthew 19 in the BDS
Matthew 19 in the BEV
Matthew 19 in the BHAD
Matthew 19 in the BIB
Matthew 19 in the BLPT
Matthew 19 in the BNT
Matthew 19 in the BNTABOOT
Matthew 19 in the BNTLV
Matthew 19 in the BOATCB
Matthew 19 in the BOATCB2
Matthew 19 in the BOBCV
Matthew 19 in the BOCNT
Matthew 19 in the BOECS
Matthew 19 in the BOGWICC
Matthew 19 in the BOHCB
Matthew 19 in the BOHCV
Matthew 19 in the BOHLNT
Matthew 19 in the BOHNTLTAL
Matthew 19 in the BOICB
Matthew 19 in the BOITCV
Matthew 19 in the BOKCV
Matthew 19 in the BOKCV2
Matthew 19 in the BOKHWOG
Matthew 19 in the BOKSSV
Matthew 19 in the BOLCB
Matthew 19 in the BOLCB2
Matthew 19 in the BOMCV
Matthew 19 in the BONAV
Matthew 19 in the BONCB
Matthew 19 in the BONLT
Matthew 19 in the BONUT2
Matthew 19 in the BOPLNT
Matthew 19 in the BOSCB
Matthew 19 in the BOSNC
Matthew 19 in the BOTLNT
Matthew 19 in the BOVCB
Matthew 19 in the BOYCB
Matthew 19 in the BPBB
Matthew 19 in the BPH
Matthew 19 in the BSB
Matthew 19 in the CCB
Matthew 19 in the CUV
Matthew 19 in the CUVS
Matthew 19 in the DBT
Matthew 19 in the DGDNT
Matthew 19 in the DHNT
Matthew 19 in the DNT
Matthew 19 in the ELBE
Matthew 19 in the EMTV
Matthew 19 in the ESV
Matthew 19 in the FBV
Matthew 19 in the FEB
Matthew 19 in the GGMNT
Matthew 19 in the GNT
Matthew 19 in the HARY
Matthew 19 in the HNT
Matthew 19 in the IRVA
Matthew 19 in the IRVB
Matthew 19 in the IRVG
Matthew 19 in the IRVH
Matthew 19 in the IRVK
Matthew 19 in the IRVM
Matthew 19 in the IRVM2
Matthew 19 in the IRVO
Matthew 19 in the IRVP
Matthew 19 in the IRVT
Matthew 19 in the IRVT2
Matthew 19 in the IRVU
Matthew 19 in the ISVN
Matthew 19 in the JSNT
Matthew 19 in the KAPI
Matthew 19 in the KBT1ETNIK
Matthew 19 in the KBV
Matthew 19 in the KJV
Matthew 19 in the KNFD
Matthew 19 in the LBA
Matthew 19 in the LBLA
Matthew 19 in the LNT
Matthew 19 in the LSV
Matthew 19 in the MAAL
Matthew 19 in the MBV
Matthew 19 in the MBV2
Matthew 19 in the MHNT
Matthew 19 in the MKNFD
Matthew 19 in the MNG
Matthew 19 in the MNT
Matthew 19 in the MNT2
Matthew 19 in the MRS1T
Matthew 19 in the NAA
Matthew 19 in the NASB
Matthew 19 in the NBLA
Matthew 19 in the NBS
Matthew 19 in the NBVTP
Matthew 19 in the NET2
Matthew 19 in the NIV11
Matthew 19 in the NNT
Matthew 19 in the NNT2
Matthew 19 in the NNT3
Matthew 19 in the PDDPT
Matthew 19 in the PFNT
Matthew 19 in the RMNT
Matthew 19 in the SBIAS
Matthew 19 in the SBIBS
Matthew 19 in the SBIBS2
Matthew 19 in the SBICS
Matthew 19 in the SBIDS
Matthew 19 in the SBIGS
Matthew 19 in the SBIHS
Matthew 19 in the SBIIS
Matthew 19 in the SBIIS2
Matthew 19 in the SBIIS3
Matthew 19 in the SBIKS
Matthew 19 in the SBIKS2
Matthew 19 in the SBIMS
Matthew 19 in the SBIOS
Matthew 19 in the SBIPS
Matthew 19 in the SBISS
Matthew 19 in the SBITS
Matthew 19 in the SBITS2
Matthew 19 in the SBITS3
Matthew 19 in the SBITS4
Matthew 19 in the SBIUS
Matthew 19 in the SBIVS
Matthew 19 in the SBT
Matthew 19 in the SBT1E
Matthew 19 in the SCHL
Matthew 19 in the SNT
Matthew 19 in the SUSU
Matthew 19 in the SUSU2
Matthew 19 in the SYNO
Matthew 19 in the TBIAOTANT
Matthew 19 in the TBT1E
Matthew 19 in the TBT1E2
Matthew 19 in the TFTIP
Matthew 19 in the TFTU
Matthew 19 in the TGNTATF3T
Matthew 19 in the THAI
Matthew 19 in the TNFD
Matthew 19 in the TNT
Matthew 19 in the TNTIK
Matthew 19 in the TNTIL
Matthew 19 in the TNTIN
Matthew 19 in the TNTIP
Matthew 19 in the TNTIZ
Matthew 19 in the TOMA
Matthew 19 in the TTENT
Matthew 19 in the UBG
Matthew 19 in the UGV
Matthew 19 in the UGV2
Matthew 19 in the UGV3
Matthew 19 in the VBL
Matthew 19 in the VDCC
Matthew 19 in the YALU
Matthew 19 in the YAPE
Matthew 19 in the YBVTP
Matthew 19 in the ZBP