Mark 1 (BOILNTAP)

1 Hér hefst hin einstæða frásaga af Jesú Kristi, syni Guðs. 2 Í bók Jesaja spámanns stendur að Guð muni senda son sinn til jarðarinnar, en áður en hann komi, muni sérstakur sendiboði koma fram og búa heiminn undir komu hans. 3 Jesaja sagði: „Þessi sendiboði mun búa í óbyggðinni og predika að sérhver maður verði að bæta líferni sitt til að vera viðbúinn komu Drottins.“ 4 Þessi sendiboði var Jóhannes skírari. Hann dvaldist í óbyggðinni og boðaði að allir skyldu skírast og láta þannig opinberlega í ljós ákvörðun um að þeir sneru baki við syndinni og tækju á móti fyrirgefningu Guðs. 5 Fólk frá Jerúsalem og allri Júdeu fór út í Júdeueyðimörkina til að sjá Jóhannes og heyra, og þá sem játuðu syndir sínar skírði hann í ánni Jórdan. 6 Hann var í fötum úr úlfaldahári, hafði leðurbelti um mittið og nærðist á engisprettum og villihunangi. 7 Hér er dæmi um predikun hans: „Innan skamms mun sá koma sem mér er máttugri, já, svo miklu meiri að ég er ekki einu sinni verður þess að vera þjónn hans. 8 Ég skíri ykkur með vatni en hann mun skíra ykkur með heilögum anda.“ 9 Þá var það dag einn að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu og Jóhannes skírði hann í Jórdan. 10 Um leið og Jesús steig upp úr vatninu, sá hann himnana opnast og heilagan anda koma yfir sig í dúfulíki. 11 Og rödd af himnum sagði: „Þú ert minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“ 12 12,13 Strax að skírninni lokinni knúði heilagur andi Jesú út í eyðimörkina, og þar var hann einn í fjörutíu daga og Satan freistaði hans. Jesús hafðist þar við meðal eyðimerkurdýranna og englar þjónuðu honum. 14 Eftir að Heródes konungur hafði látið fangelsa Jóhannes fór Jesús til Galíleu og boðaði þar fagnaðarerindi Guðs. 15 „Stundin er komin,“ sagði hann. „Guðsríki er nálægt! Snúið ykkur frá syndinni og trúið gleðiboðskapnum.“ 16 Dag einn er Jesús gekk fram með Galíleuvatninu sá hann bræðurna Símon og Andrés, þeir voru fiskimenn og voru einmitt þessa stundina að leggja netin. 17 Jesús kallaði til þeirra og sagði: „Komið og fylgið mér. Ég skal kenna ykkur að veiða menn!“ 18 Þá yfirgáfu þeir netin og fóru með honum. 19 Í öðrum bát, skammt frá, voru synir Sebedeusar, Jakob og Jóhannes, að bæta net sín. 20 Hann kallaði einnig á þá og þeir skildu Sebedeus og verkamennina eftir í bátnum og fóru á eftir honum. 21 Jesús og félagar hans komu nú til bæjarins Kapernaum og að morgni helgidagsins fóru þeir til samkomuhússins þar sem Gyðingar héldu guðsþjónustur sínar. Þar predikaði Jesús og 22 fólkið undraðist ræðu hans, því að hann talaði eins og sá sem hefur mikið vald en reyndi ekki að sanna mál sitt með sífelldum tilvitnunum í orð annarra eins og venja var. 23 Við guðsþjónustuna var maður haldinn illum anda sem tók að hrópa og kalla: 24 „Jesús frá Nasaret, af hverju læturðu okkur ekki í friði? Ertu kannski kominn til að gera út af við okkur illu andana? Ég veit hver þú ert, þú ert hinn heilagi sonur Guðs!“ 25 Jesús skipaði andanum að þegja og fara úr manninum. 26 Þá æpti illi andinn og hristi manninn ofsalega og fór síðan út af honum. 27 Fólkið varð forviða og spurði sín á milli: „Eru þetta ný trúarbrögð? Jafnvel illir andar hlýða honum!“ 28 Og fréttin af atburði þessum barst hratt um alla Galíleu. 29 29,30 Þegar Jesús og lærisveinar hans yfirgáfu samkomuhúsið fóru þeir heim til Símonar og Andrésar, þar sem tengdamóðir Símonar lá með mikinn hita. Þeir sögðu Jesú þegar frá henni. 31 Hann gekk að rúminu, tók um hönd hennar og hjálpaði henni að setjast upp og um leið fór hitinn úr henni. Hún klæddi sig og gaf þeim að borða. 32 32,33 Um kvöldið fylltist garðurinn við húsið af sjúklingum sem færðir höfðu verið til Jesú, ásamt öðrum sem haldnir voru illum öndum. Mikill fjöldi bæjarbúa stóð fyrir utan og fylgdist með. 34 Þetta kvöld læknaði Jesús mjög marga og rak illa anda út af mörgum. (Hann bannaði öndunum að tala, því þeir vissu hver hann var.) 35 Morguninn eftir var Jesús kominn á fætur löngu fyrir dögun og fór einn á óbyggðan stað til að biðjast fyrir. 36 36,37 Símon og hinir leituðu hann uppi og þegar þeir höfðu fundið hann sögðu þeir: „Allir eru að spyrja um þig.“ 38 En hann svaraði: „Við verðum einnig að fara til hinna þorpanna og predika þar, því til þess er ég kominn.“ 39 Og Jesús ferðaðist um alla Galíleu, predikaði í samkomuhúsunum og leysti marga undan valdi illu andanna. 40 Eitt sinn kom holdsveikur maður, kraup frammi fyrir honum og bað um lækningu. „Þú getur læknað mig ef þú vilt,“ sagði hann biðjandi. 41 Jesús fann til með honum, snerti hann og sagði: „Ég vil það! Læknist þú!“ 42 Samstundis hvarf holdsveikin og maðurinn varð heilbrigður. 43 43,44 Jesús sagði við hann, ákveðinni röddu: „Farðu nú til prestanna og láttu þá skoða þig. Hafðu hvergi viðdvöl og talaðu ekki við neinn á leiðinni. Taktu með fórnina, sem Móse fyrirskipar þeim, sem læknast af holdsveiki, og þá munu allir sjá að þú ert orðinn heilbrigður.“ 45 En maðurinn sagði öllum sem hann mætti á leiðinni að hann væri heill og þar af leiðandi gat Jesús ekki komið opinberlega til neins bæjar án þess að forvitinn mannfjöldi þyrptist að honum. Hann varð því að hafast við úti í óbyggðinni og þangað streymdi fólkið til hans hvaðanæva að.

In Other Versions

Mark 1 in the ANGEFD

Mark 1 in the ANTPNG2D

Mark 1 in the AS21

Mark 1 in the BAGH

Mark 1 in the BBPNG

Mark 1 in the BBT1E

Mark 1 in the BDS

Mark 1 in the BEV

Mark 1 in the BHAD

Mark 1 in the BIB

Mark 1 in the BLPT

Mark 1 in the BNT

Mark 1 in the BNTABOOT

Mark 1 in the BNTLV

Mark 1 in the BOATCB

Mark 1 in the BOATCB2

Mark 1 in the BOBCV

Mark 1 in the BOCNT

Mark 1 in the BOECS

Mark 1 in the BOGWICC

Mark 1 in the BOHCB

Mark 1 in the BOHCV

Mark 1 in the BOHLNT

Mark 1 in the BOHNTLTAL

Mark 1 in the BOICB

Mark 1 in the BOITCV

Mark 1 in the BOKCV

Mark 1 in the BOKCV2

Mark 1 in the BOKHWOG

Mark 1 in the BOKSSV

Mark 1 in the BOLCB

Mark 1 in the BOLCB2

Mark 1 in the BOMCV

Mark 1 in the BONAV

Mark 1 in the BONCB

Mark 1 in the BONLT

Mark 1 in the BONUT2

Mark 1 in the BOPLNT

Mark 1 in the BOSCB

Mark 1 in the BOSNC

Mark 1 in the BOTLNT

Mark 1 in the BOVCB

Mark 1 in the BOYCB

Mark 1 in the BPBB

Mark 1 in the BPH

Mark 1 in the BSB

Mark 1 in the CCB

Mark 1 in the CUV

Mark 1 in the CUVS

Mark 1 in the DBT

Mark 1 in the DGDNT

Mark 1 in the DHNT

Mark 1 in the DNT

Mark 1 in the ELBE

Mark 1 in the EMTV

Mark 1 in the ESV

Mark 1 in the FBV

Mark 1 in the FEB

Mark 1 in the GGMNT

Mark 1 in the GNT

Mark 1 in the HARY

Mark 1 in the HNT

Mark 1 in the IRVA

Mark 1 in the IRVB

Mark 1 in the IRVG

Mark 1 in the IRVH

Mark 1 in the IRVK

Mark 1 in the IRVM

Mark 1 in the IRVM2

Mark 1 in the IRVO

Mark 1 in the IRVP

Mark 1 in the IRVT

Mark 1 in the IRVT2

Mark 1 in the IRVU

Mark 1 in the ISVN

Mark 1 in the JSNT

Mark 1 in the KAPI

Mark 1 in the KBT1ETNIK

Mark 1 in the KBV

Mark 1 in the KJV

Mark 1 in the KNFD

Mark 1 in the LBA

Mark 1 in the LBLA

Mark 1 in the LNT

Mark 1 in the LSV

Mark 1 in the MAAL

Mark 1 in the MBV

Mark 1 in the MBV2

Mark 1 in the MHNT

Mark 1 in the MKNFD

Mark 1 in the MNG

Mark 1 in the MNT

Mark 1 in the MNT2

Mark 1 in the MRS1T

Mark 1 in the NAA

Mark 1 in the NASB

Mark 1 in the NBLA

Mark 1 in the NBS

Mark 1 in the NBVTP

Mark 1 in the NET2

Mark 1 in the NIV11

Mark 1 in the NNT

Mark 1 in the NNT2

Mark 1 in the NNT3

Mark 1 in the PDDPT

Mark 1 in the PFNT

Mark 1 in the RMNT

Mark 1 in the SBIAS

Mark 1 in the SBIBS

Mark 1 in the SBIBS2

Mark 1 in the SBICS

Mark 1 in the SBIDS

Mark 1 in the SBIGS

Mark 1 in the SBIHS

Mark 1 in the SBIIS

Mark 1 in the SBIIS2

Mark 1 in the SBIIS3

Mark 1 in the SBIKS

Mark 1 in the SBIKS2

Mark 1 in the SBIMS

Mark 1 in the SBIOS

Mark 1 in the SBIPS

Mark 1 in the SBISS

Mark 1 in the SBITS

Mark 1 in the SBITS2

Mark 1 in the SBITS3

Mark 1 in the SBITS4

Mark 1 in the SBIUS

Mark 1 in the SBIVS

Mark 1 in the SBT

Mark 1 in the SBT1E

Mark 1 in the SCHL

Mark 1 in the SNT

Mark 1 in the SUSU

Mark 1 in the SUSU2

Mark 1 in the SYNO

Mark 1 in the TBIAOTANT

Mark 1 in the TBT1E

Mark 1 in the TBT1E2

Mark 1 in the TFTIP

Mark 1 in the TFTU

Mark 1 in the TGNTATF3T

Mark 1 in the THAI

Mark 1 in the TNFD

Mark 1 in the TNT

Mark 1 in the TNTIK

Mark 1 in the TNTIL

Mark 1 in the TNTIN

Mark 1 in the TNTIP

Mark 1 in the TNTIZ

Mark 1 in the TOMA

Mark 1 in the TTENT

Mark 1 in the UBG

Mark 1 in the UGV

Mark 1 in the UGV2

Mark 1 in the UGV3

Mark 1 in the VBL

Mark 1 in the VDCC

Mark 1 in the YALU

Mark 1 in the YAPE

Mark 1 in the YBVTP

Mark 1 in the ZBP