Revelation 2 (BOILNTAP)

1 Skrifaðu bréf til leiðtoga safnaðarins í Efesus og segðu honum þetta:Ég skrifa þér orðsendingu frá honum sem gengur á milli safnaðanna sjö og heldur leiðtogum þeirra uppi með hægri hendi sinni.Hann segir við þig: 2 Ég þekki allt hið góða sem þú hefur gert. Ég hef fylgst með erfiði þínu og þekki þolinmæði þína. Ég veit að þú sættir þig ekki við vonda menn í söfnuðinum og hefur rannsakað fullyrðingar þeirra sem telja sig vera postula, en eru það ekki. Þú hefur komist að því að þeir eru lygarar. 3 Þú hefur þolað illt mín vegna, en þó ekki gefist upp. 4 En eitt er að: Kærleikur þinn til mín er ekki sá sami og áður. 5 Manstu hvernig þú elskaðir mig í upphafi? Sérðu breytinguna? Snúðu þér aftur til mín og farðu eins að og í byrjun, annars kem ég og fjarlægi lampann þinn. 6 En þú hatar verk þessara ósvífnu Nikólaíta, rétt eins og ég, og það fellur mér vel. 7 Taktu eftir því sem andinn segir nú við söfnuðina: „Þeim sem sigrar, mun ég gefa ávöxt af lífsins tré, sem vex í paradís Guðs.“ 8 Leiðtoga safnaðarins í Smýrnu skaltu skrifa þetta:Þetta er boðskapur frá honum sem er hinn fyrsti og hinn síðasti, honum, sem var dauður, en lifnaði við. 9 Ég veit hversu mjög þú þarft að líða vegna Drottins og ég þekki fátækt þína en mundu að þú átt himnesk auðæfi! Ég veit að þeir, sem segjast vera Gyðingar og Guðs börn, tala illa um þig, en þeir eru ekki Guðs börn, heldur fulltrúar Satans. 10 Innan skamms mun djöfullinn varpa sumum ykkar í fangelsi til þess að reyna ykkur, en vertu þó ekki hræddur vegna þjáninganna sem bíða þín. Þið munuð verða ofsótt í tíu daga. En gefist ekki upp, jafnvel þótt þið þurfið að horfast í augu við dauðann. Vertu trúr allt til dauða og þá mun ég gefa þér kórónu lífsins – dýrlega framtíð, sem aldrei tekur enda. 11 Takið eftir því sem andinn segir nú við söfnuðina: „Þeim sem sigrar mun hinn annar dauði ekki granda.“ 12 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Pergamos:Þetta bréf er frá honum, sem berst með hinu beitta og tvíeggjaða sverði. 13 Ég veit vel að í borginni þar sem þú býrð, er hásæti Satans og að hann er tilbeðinn þar af miklu kappi. En samt hefur þú verið mér trúr og ekki viljað afneita mér, jafnvel þótt áhangendur Satans tækju Antípas, minn trúa vott, af lífi mitt á meðal ykkar. 14 Samt finn ég eitt athugavert hjá þér. Þú umberð menn í ykkar hópi, sem feta í fótspor Bíleams, sem sagði Balak hvernig ætti að tæla Ísraelsmenn – fá þá til að drýgja hór – og hvetja þá til að taka þátt í heiðnum hátíðum til heiðurs skurðgoðunum. 15 Slíkir menn, fylgjendur Bíleams, finnast á meðal ykkar! 16 Afstaða þín til þessara manna verður að breytast, annars kem ég fyrirvaralaust og berst við þá með sverði munns míns. 17 Allir, sem heyrn hafa, taki eftir því sem andinn segir söfnuðunum: „Þeir sem sigra, fá að eta hið hulda manna – hina leyndu fæðu himnanna. Ég mun gefa hverjum um sig hvítan stein, sem á verður grafið nýtt nafn, sem viðtakandinn einn þekkir.“ 18 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Þýatíru:Þessi boðskapur er frá syni Guðs. Augu hans loga sem eldur og fætur hans eru eins og fægður eir. 19 Ég þekki þín góðu verk: Umhyggju þína fyrir fátæklingum – allar gjafirnar og þjónustuna, sem þú hefur veitt þeim. Ég veit líka um kærleika þinn, trú þína og þolinmæði og ég sé að þér fer stöðugt fram. 20 Eitt finnst mér samt aðfinnsluvert hjá þér: Þú leyfir Jessabel, konunni sem telur sig hafa spádómsgáfu, að segja þjónum mínum að siðleysi sé ekki alvarlegt mál. Hún hvetur þá til að drýgja hór og borða kjöt sem fórnað hefur verið skurðgoðunum. 21 Ég gaf henni frest til að skipta um skoðun og taka nýja stefnu, en hún vildi það ekki. 22 Taktu nú eftir því sem ég segi: Ef hún og þeir, sem fylgt hafa siðleysi hennar, iðrast ekki synda sinna, mun ég láta þau öll leggjast á sóttarsæng 23 og börn hennar mun ég deyða. Með þessu munu söfnuðirnir skilja, að ég er sá sem rannsaka leyndustu hugsanir mannsins og geld hverjum um sig eins og hann á skilið. 24 24,25 Þið í Þýatíru, sem ekki hafið fylgt þessari fölsku kenningu (sem þau kalla „Hinn djúpa sannleika“ – og sem í raun og veru er runnin undan rifjum Satans), ég krefst einskis frekar af ykkur. Haldið aðeins fast við það sem þið hafið, þangað til ég kem. 26 Þeim sem sigra – þeim sem gera minn vilja allt til enda – mun ég gefa vald yfir þjóðunum. 27 Þið munuð stjórna þeim með járnsprota á sama hátt og ég – slíkt vald gaf faðir minn mér – og þær munu brotna eins og leirkrukka, sem fer í þúsund mola. 28 En ykkur færi ég morgunstjörnuna að gjöf! 29 Þið sem heyrið, hlustið á það sem Guðs andi segir söfnuðunum.

In Other Versions

Revelation 2 in the ANGEFD

Revelation 2 in the ANTPNG2D

Revelation 2 in the AS21

Revelation 2 in the BAGH

Revelation 2 in the BBPNG

Revelation 2 in the BBT1E

Revelation 2 in the BDS

Revelation 2 in the BEV

Revelation 2 in the BHAD

Revelation 2 in the BIB

Revelation 2 in the BLPT

Revelation 2 in the BNT

Revelation 2 in the BNTABOOT

Revelation 2 in the BNTLV

Revelation 2 in the BOATCB

Revelation 2 in the BOATCB2

Revelation 2 in the BOBCV

Revelation 2 in the BOCNT

Revelation 2 in the BOECS

Revelation 2 in the BOGWICC

Revelation 2 in the BOHCB

Revelation 2 in the BOHCV

Revelation 2 in the BOHLNT

Revelation 2 in the BOHNTLTAL

Revelation 2 in the BOICB

Revelation 2 in the BOITCV

Revelation 2 in the BOKCV

Revelation 2 in the BOKCV2

Revelation 2 in the BOKHWOG

Revelation 2 in the BOKSSV

Revelation 2 in the BOLCB

Revelation 2 in the BOLCB2

Revelation 2 in the BOMCV

Revelation 2 in the BONAV

Revelation 2 in the BONCB

Revelation 2 in the BONLT

Revelation 2 in the BONUT2

Revelation 2 in the BOPLNT

Revelation 2 in the BOSCB

Revelation 2 in the BOSNC

Revelation 2 in the BOTLNT

Revelation 2 in the BOVCB

Revelation 2 in the BOYCB

Revelation 2 in the BPBB

Revelation 2 in the BPH

Revelation 2 in the BSB

Revelation 2 in the CCB

Revelation 2 in the CUV

Revelation 2 in the CUVS

Revelation 2 in the DBT

Revelation 2 in the DGDNT

Revelation 2 in the DHNT

Revelation 2 in the DNT

Revelation 2 in the ELBE

Revelation 2 in the EMTV

Revelation 2 in the ESV

Revelation 2 in the FBV

Revelation 2 in the FEB

Revelation 2 in the GGMNT

Revelation 2 in the GNT

Revelation 2 in the HARY

Revelation 2 in the HNT

Revelation 2 in the IRVA

Revelation 2 in the IRVB

Revelation 2 in the IRVG

Revelation 2 in the IRVH

Revelation 2 in the IRVK

Revelation 2 in the IRVM

Revelation 2 in the IRVM2

Revelation 2 in the IRVO

Revelation 2 in the IRVP

Revelation 2 in the IRVT

Revelation 2 in the IRVT2

Revelation 2 in the IRVU

Revelation 2 in the ISVN

Revelation 2 in the JSNT

Revelation 2 in the KAPI

Revelation 2 in the KBT1ETNIK

Revelation 2 in the KBV

Revelation 2 in the KJV

Revelation 2 in the KNFD

Revelation 2 in the LBA

Revelation 2 in the LBLA

Revelation 2 in the LNT

Revelation 2 in the LSV

Revelation 2 in the MAAL

Revelation 2 in the MBV

Revelation 2 in the MBV2

Revelation 2 in the MHNT

Revelation 2 in the MKNFD

Revelation 2 in the MNG

Revelation 2 in the MNT

Revelation 2 in the MNT2

Revelation 2 in the MRS1T

Revelation 2 in the NAA

Revelation 2 in the NASB

Revelation 2 in the NBLA

Revelation 2 in the NBS

Revelation 2 in the NBVTP

Revelation 2 in the NET2

Revelation 2 in the NIV11

Revelation 2 in the NNT

Revelation 2 in the NNT2

Revelation 2 in the NNT3

Revelation 2 in the PDDPT

Revelation 2 in the PFNT

Revelation 2 in the RMNT

Revelation 2 in the SBIAS

Revelation 2 in the SBIBS

Revelation 2 in the SBIBS2

Revelation 2 in the SBICS

Revelation 2 in the SBIDS

Revelation 2 in the SBIGS

Revelation 2 in the SBIHS

Revelation 2 in the SBIIS

Revelation 2 in the SBIIS2

Revelation 2 in the SBIIS3

Revelation 2 in the SBIKS

Revelation 2 in the SBIKS2

Revelation 2 in the SBIMS

Revelation 2 in the SBIOS

Revelation 2 in the SBIPS

Revelation 2 in the SBISS

Revelation 2 in the SBITS

Revelation 2 in the SBITS2

Revelation 2 in the SBITS3

Revelation 2 in the SBITS4

Revelation 2 in the SBIUS

Revelation 2 in the SBIVS

Revelation 2 in the SBT

Revelation 2 in the SBT1E

Revelation 2 in the SCHL

Revelation 2 in the SNT

Revelation 2 in the SUSU

Revelation 2 in the SUSU2

Revelation 2 in the SYNO

Revelation 2 in the TBIAOTANT

Revelation 2 in the TBT1E

Revelation 2 in the TBT1E2

Revelation 2 in the TFTIP

Revelation 2 in the TFTU

Revelation 2 in the TGNTATF3T

Revelation 2 in the THAI

Revelation 2 in the TNFD

Revelation 2 in the TNT

Revelation 2 in the TNTIK

Revelation 2 in the TNTIL

Revelation 2 in the TNTIN

Revelation 2 in the TNTIP

Revelation 2 in the TNTIZ

Revelation 2 in the TOMA

Revelation 2 in the TTENT

Revelation 2 in the UBG

Revelation 2 in the UGV

Revelation 2 in the UGV2

Revelation 2 in the UGV3

Revelation 2 in the VBL

Revelation 2 in the VDCC

Revelation 2 in the YALU

Revelation 2 in the YAPE

Revelation 2 in the YBVTP

Revelation 2 in the ZBP