Romans 14 (BOILNTAP)

1 Sýndu hverjum kristnum manni, sem til þín leitar, vinarhug og gagnrýndu hann ekki þótt trú hans sé veik og hann hafi aðrar skoðanir en þú um hvað sé rétt eða rangt. 2 Þú ættir til dæmis ekki að deila við hann um hvort leyfilegt sé að borða kjöt, sem notað hefur verið í fórn til skurðgoðanna, eða ekki. Slíkt er þér ef til vill ekkert vandamál, en trú hans er veikari en þín og honum finnst það vera rangt og því neytir hann alls ekki kjöts, sé það fórnarkjöt, heldur grænmetis. 3 Þeir sem ekkert sjá athugavert við það að borða slíkt kjöt, mega ekki líta niður á þá sem láta þess óneytt og sért þú einn þeirra, þá skaltu ekki gagnrýna þá sem hafa aðra skoðun, því að Guð hefur tekið þá að sér sem sín börn. 4 Þeir eru þjónar Guðs en ekki ykkar. Látið Guð um að segja þeim hvort þeir hafi á réttu eða röngu að standa, því hann er fullkomlega fær um að gera það. 5 Sumum finnst að kristnir menn eigi að líta á helgidaga Gyðinga sem sína tilbeiðsludaga, en aðrir segja það rangt og finnst heimskulegt að fara eftir reglum Gyðinga að því leyti, því að allir dagar séu jafnir fyrir Guði. Hver og einn verður að taka eigin ákvörðun um slíka hluti. 6 Notir þú ákveðna daga til að tilbiðja Drottin, þá er það gert honum til heiðurs og slíkt er góður siður. Sama er að segja um þann sem neytir kjöts sem fórnað hefur verið skurðgoðunum, hann þakkar Guði fyrir kjötið og er það rétt. Þeim, hins vegar, sem ekki vill snerta slíkt kjöt, er einnig umhugað um að þóknast Drottni og hann er þakklátur. 7 Við lifum ekki aðeins sjálfra okkar vegna og getum því ekki lifað og dáið eins og okkur þóknast. 8 Hvort sem við lifum eða deyjum, þá tilheyrum við Drottni, því hans erum við. 9 Kristur dó og reis síðan upp til að vera Drottinn okkar og konungur, bæði í lífi og dauða. 10 Þú hefur engan rétt til að gagnrýna trúbróður þinn né líta niður á hann. Minnstu þess að við verðum hvert um sig að standa frammi fyrir dómstóli Guðs. 11 Í Gamla testamentinu stendur:„Svo sannarlega sem ég lifi,“ segir Drottinn, „mun hver maður verða að krjúpa á kné fyrir mér og sérhver tunga viðurkenna að ég er Guð.“ 12 Sérhvert okkar verður að standa Guði reikningsskil á lífi sínu, 13 hættið því að gagnrýna hvert annað! Reynið heldur að lifa þannig að þið verðið aldrei trúsystkinum ykkar að falli og látið þau því ekki sjá ykkur gera neitt það sem þau álíta vera rangt. 14 Ég er þess fullviss, vegna samfélags míns við Drottin Jesú, að ekkert er rangt við það að neyta kjöts sem fórnað hefur verið skurðgoðunum, en ef einhver álítur það rangt, þá ætti hann ekki að neyta þess trúar sinnar vegna. 15 Viljir þú halda áfram að neyta þess matar sem þú veist að veldur trúsystkini þínu hugarangri, þá framgengur þú ekki í kærleika. Láttu ekki neysluvenjur þínar verða þeim til tjóns, sem Kristur dó fyrir. 16 Forðastu að gera það sem þú veist að verður gagnrýnt, enda þótt þú vitir að sú gagnrýni sé ósanngjörn. 17 Þegar allt kemur til alls, þá skiptir það okkur kristna menn ekki mestu hvað við borðum eða drekkum, heldur að lifa í kærleika, friði og fögnuði heilags anda. 18 Ef þú gerir Krist að húsbónda í lífi þínu að því er þetta varðar, þá mun það bæði gleðja Guð og menn. 19 Keppum því eftir að efla frið og sameiginlega uppbyggingu kirkjunnar, 20 og rífum ekki niður verk Guðs fyrir einn kjötbita! 21 Bindindi á kjöt og vín er rétt ef neysla þess hneykslar trúsystkini okkar og leiðir þau í synd. 22 Haltu fast við trúarsannfæringu þína, en notaðu hana samt ekki til að storka öðrum. 23 Sá sem fær slæma samvisku af að hafa borðað kjöt, ætti að láta það ógert, því að sá syndgar sem gerir eitthvað gegn betri vitund.

In Other Versions

Romans 14 in the ANGEFD

Romans 14 in the ANTPNG2D

Romans 14 in the AS21

Romans 14 in the BAGH

Romans 14 in the BBPNG

Romans 14 in the BBT1E

Romans 14 in the BDS

Romans 14 in the BEV

Romans 14 in the BHAD

Romans 14 in the BIB

Romans 14 in the BLPT

Romans 14 in the BNT

Romans 14 in the BNTABOOT

Romans 14 in the BNTLV

Romans 14 in the BOATCB

Romans 14 in the BOATCB2

Romans 14 in the BOBCV

Romans 14 in the BOCNT

Romans 14 in the BOECS

Romans 14 in the BOGWICC

Romans 14 in the BOHCB

Romans 14 in the BOHCV

Romans 14 in the BOHLNT

Romans 14 in the BOHNTLTAL

Romans 14 in the BOICB

Romans 14 in the BOITCV

Romans 14 in the BOKCV

Romans 14 in the BOKCV2

Romans 14 in the BOKHWOG

Romans 14 in the BOKSSV

Romans 14 in the BOLCB

Romans 14 in the BOLCB2

Romans 14 in the BOMCV

Romans 14 in the BONAV

Romans 14 in the BONCB

Romans 14 in the BONLT

Romans 14 in the BONUT2

Romans 14 in the BOPLNT

Romans 14 in the BOSCB

Romans 14 in the BOSNC

Romans 14 in the BOTLNT

Romans 14 in the BOVCB

Romans 14 in the BOYCB

Romans 14 in the BPBB

Romans 14 in the BPH

Romans 14 in the BSB

Romans 14 in the CCB

Romans 14 in the CUV

Romans 14 in the CUVS

Romans 14 in the DBT

Romans 14 in the DGDNT

Romans 14 in the DHNT

Romans 14 in the DNT

Romans 14 in the ELBE

Romans 14 in the EMTV

Romans 14 in the ESV

Romans 14 in the FBV

Romans 14 in the FEB

Romans 14 in the GGMNT

Romans 14 in the GNT

Romans 14 in the HARY

Romans 14 in the HNT

Romans 14 in the IRVA

Romans 14 in the IRVB

Romans 14 in the IRVG

Romans 14 in the IRVH

Romans 14 in the IRVK

Romans 14 in the IRVM

Romans 14 in the IRVM2

Romans 14 in the IRVO

Romans 14 in the IRVP

Romans 14 in the IRVT

Romans 14 in the IRVT2

Romans 14 in the IRVU

Romans 14 in the ISVN

Romans 14 in the JSNT

Romans 14 in the KAPI

Romans 14 in the KBT1ETNIK

Romans 14 in the KBV

Romans 14 in the KJV

Romans 14 in the KNFD

Romans 14 in the LBA

Romans 14 in the LBLA

Romans 14 in the LNT

Romans 14 in the LSV

Romans 14 in the MAAL

Romans 14 in the MBV

Romans 14 in the MBV2

Romans 14 in the MHNT

Romans 14 in the MKNFD

Romans 14 in the MNG

Romans 14 in the MNT

Romans 14 in the MNT2

Romans 14 in the MRS1T

Romans 14 in the NAA

Romans 14 in the NASB

Romans 14 in the NBLA

Romans 14 in the NBS

Romans 14 in the NBVTP

Romans 14 in the NET2

Romans 14 in the NIV11

Romans 14 in the NNT

Romans 14 in the NNT2

Romans 14 in the NNT3

Romans 14 in the PDDPT

Romans 14 in the PFNT

Romans 14 in the RMNT

Romans 14 in the SBIAS

Romans 14 in the SBIBS

Romans 14 in the SBIBS2

Romans 14 in the SBICS

Romans 14 in the SBIDS

Romans 14 in the SBIGS

Romans 14 in the SBIHS

Romans 14 in the SBIIS

Romans 14 in the SBIIS2

Romans 14 in the SBIIS3

Romans 14 in the SBIKS

Romans 14 in the SBIKS2

Romans 14 in the SBIMS

Romans 14 in the SBIOS

Romans 14 in the SBIPS

Romans 14 in the SBISS

Romans 14 in the SBITS

Romans 14 in the SBITS2

Romans 14 in the SBITS3

Romans 14 in the SBITS4

Romans 14 in the SBIUS

Romans 14 in the SBIVS

Romans 14 in the SBT

Romans 14 in the SBT1E

Romans 14 in the SCHL

Romans 14 in the SNT

Romans 14 in the SUSU

Romans 14 in the SUSU2

Romans 14 in the SYNO

Romans 14 in the TBIAOTANT

Romans 14 in the TBT1E

Romans 14 in the TBT1E2

Romans 14 in the TFTIP

Romans 14 in the TFTU

Romans 14 in the TGNTATF3T

Romans 14 in the THAI

Romans 14 in the TNFD

Romans 14 in the TNT

Romans 14 in the TNTIK

Romans 14 in the TNTIL

Romans 14 in the TNTIN

Romans 14 in the TNTIP

Romans 14 in the TNTIZ

Romans 14 in the TOMA

Romans 14 in the TTENT

Romans 14 in the UBG

Romans 14 in the UGV

Romans 14 in the UGV2

Romans 14 in the UGV3

Romans 14 in the VBL

Romans 14 in the VDCC

Romans 14 in the YALU

Romans 14 in the YAPE

Romans 14 in the YBVTP

Romans 14 in the ZBP