Romans 15 (BOILNTAP)

1 Þótt við álítum að Drottni sé sama hvort við gerum það sem ég var að tala um eða látum það ógert, þá getum við samt ekki haldið því áfram til að þóknast sjálfum okkur, því að við verðum að bera þá „byrði“ að taka tillit til viðhorfa þeirra, sem álíta að rangt sé að snerta þessa hluti. 2 Við ættum því að þóknast hinum en ekki sjálfum okkur og gera það sem þeim er fyrir bestu og efla þá þannig í Drottni. 3 Kristur reyndi aldrei að þóknast sjálfum sér. Um það segir í Davíðssálmi:„Hann kom til að þjást og þola fyrirlitningu andstæðinga Drottins.“ 4 Þessi orð Gamla testamentisins voru skrifuð fyrir löngu og eiga að kenna okkur þolinmæði og vera til uppörvunar, svo að við getum horft full eftirvæntingar fram til þess tíma er Guð hefur sigrað synd og dauða að fullu. 5 Guð, sem uppörvar og eykur þolinmæði og staðfestu, hann hjálpi ykkur til að vera samhuga svo að þið getið umgengist hvert annað með hugarfari Krists. 6 Þá munuð þið getað lofað Drottin einum rómi og gefið Guði föður og Drottni Jesú Kristi dýrðina. 7 Takið því hvert annað að ykkur, eins og Kristur tók ykkur að sér, því að slíkt er Guði að skapi. 8 Munið að Jesús Kristur kom til að hjálpa Gyðingunum og sanna að Guð stendur við loforðin sem hann gaf þeim. 9 Munið og að hann kom einnig til þess að heiðingjarnir gætu frelsast og vegsamað Guð fyrir miskunnina sem hann auðsýndi þeim. Þessu lýsti sálmaskáldið svo:„Ég mun vegsama þig meðal heiðingjanna og lofsyngja nafn þitt.“ 10 Á öðrum stað stendur:„Fagnið þið heiðingjar ásamt þjóð hans, Ísrael.“ 11 Og enn segir hann:„Lofið Drottin allar þjóðir og vegsamið hann allir lýðir!“ 12 Jesaja spámaður lýsti þessu svo:„Sá mun fæðast af ætt Ísaí sem verða mun konungur allra þjóða og honum einum munu þeir treysta.“ 13 Með þetta í huga bið ég fyrir ykkur, heiðingjunum, að Guð vonarinnar fylli ykkur fögnuði og friði trúarinnar, svo að von ykkar styrkist æ meira í krafti heilags anda. 14 Ég veit, vinir mínir, að þið eruð skynsamir og kærleiksríkir og þess vegna skiljið þið þetta vel og eruð færir um að uppfræða hver annan. 15 15,16 Samt sem áður áræddi ég að leggja áherslu á sum þessara atriða, því að ég vissi að þið þörfnuðust einmitt þessara áminninga minna. Guð hefur nefnilega veitt mér þá náð að vera sérlegur sendiboði Jesú Krists til ykkar, sem ekki eruð Gyðingar. Ég flyt fagnaðarerindið og ber ykkur síðan fram fyrir Guð sem fórn, honum velþóknanlega, því að þið eruð orðin hrein og honum að skapi, fyrir áhrif heilags anda. 17 Mér er því heimilt að vera dálítið hróðugur af öllu því sem Kristur Jesús hefur notað mig til að gera. 18 Ég dirfist ekki að dæma um með hve miklum árangri hann hefur notað aðra en eitt veit ég: Hann hefur notað mig til að leiða heiðingjana til Guðs. 19 Ég hef unnið þá með boðskap mínum og líferni, sem þeir hafa veitt eftirtekt, með kraftaverkum sem Guð hefur látið mig gera, en þau eru tákn frá honum og allt er þetta fyrir kraft heilags anda. Þannig hef ég predikað allan fagnaðarboðskap Krists, allt frá Jerúsalem og sem leið liggur til Illyríu. 20 En allan þennan tíma hef ég þráð að komast enn lengra og predika þar sem nafn Krists hefur ekki enn heyrst, fremur en á stöðum þar sem aðrir hafa þegar stofnað söfnuði. 21 Ég hugfesti orð Jesaja, en hann segir að þeir sem aldrei hafi heyrt nafn Krists, muni sjá og skilja, 22 og það er reyndar ástæða þess hve ég hef þráð að koma til ykkar. 23 Nú er ég loks tilbúinn að koma eftir öll þessi ár, því verki mínu hér er lokið. 24 Nú er ég að ráðgera ferð til Spánar og þegar að henni kemur, mun ég koma við hjá ykkur í Róm. Þegar við höfum notið þess að vera saman um stund, getið þið fylgt mér á leið. 25 En áður en ég kem, verð ég fyrst að fara til Jerúsalem með gjöf til Gyðinganna, sem þar eru kristnir. 26 Söfnuðirnir í Makedóníu og Akkeu hafa safnað fé handa þeim í Jerúsalem, því að þeir hafa þolað mikla erfiðleika. 27 Þetta gerðu þeir með glöðu geði, því þeim finnst þeir vera í mikilli skuld við kristna söfnuðinn í Jerúsalem. Hvers vegna? Vegna þess að fréttirnar um Krist bárust þessum heiðingjum frá kirkjunni í Jerúsalem. Og fyrst þessi mikla gjöf, gleðiboðskapurinn, hefur borist þeim þaðan, þá finnst þeim ekki nema sjálfsagt að veita fjárhagslega aðstoð. 28 Þegar ég hef afhent þeim peningana og þar með komið góðverki þeirra í höfn, mun ég koma við hjá ykkur á leiðinni til Spánar. 29 Ég er viss um að þegar ég kem, mun Drottinn nota mig til að veita ykkur ríkulega blessun. 30 Kæru vinir, ég bið þess að þið berjist með mér í bæn til Guðs, fyrir mér og starfi mínu vegna Drottins Jesú Krists, og kærleika heilags anda. 31 Biðjið Guð að hann varðveiti mig fyrir andstæðingum Krists í Jerúsalem. Biðjið þess einnig að hinir kristnu þar taki fúslega við peningunum sem ég færi þeim, 32 og að ég síðan, ef Guð lofar, geti komið til ykkar glaður í anda og við uppörvast sameiginlega. 33 Guð friðarins sé með ykkur öllum. Amen.

In Other Versions

Romans 15 in the ANGEFD

Romans 15 in the ANTPNG2D

Romans 15 in the AS21

Romans 15 in the BAGH

Romans 15 in the BBPNG

Romans 15 in the BBT1E

Romans 15 in the BDS

Romans 15 in the BEV

Romans 15 in the BHAD

Romans 15 in the BIB

Romans 15 in the BLPT

Romans 15 in the BNT

Romans 15 in the BNTABOOT

Romans 15 in the BNTLV

Romans 15 in the BOATCB

Romans 15 in the BOATCB2

Romans 15 in the BOBCV

Romans 15 in the BOCNT

Romans 15 in the BOECS

Romans 15 in the BOGWICC

Romans 15 in the BOHCB

Romans 15 in the BOHCV

Romans 15 in the BOHLNT

Romans 15 in the BOHNTLTAL

Romans 15 in the BOICB

Romans 15 in the BOITCV

Romans 15 in the BOKCV

Romans 15 in the BOKCV2

Romans 15 in the BOKHWOG

Romans 15 in the BOKSSV

Romans 15 in the BOLCB

Romans 15 in the BOLCB2

Romans 15 in the BOMCV

Romans 15 in the BONAV

Romans 15 in the BONCB

Romans 15 in the BONLT

Romans 15 in the BONUT2

Romans 15 in the BOPLNT

Romans 15 in the BOSCB

Romans 15 in the BOSNC

Romans 15 in the BOTLNT

Romans 15 in the BOVCB

Romans 15 in the BOYCB

Romans 15 in the BPBB

Romans 15 in the BPH

Romans 15 in the BSB

Romans 15 in the CCB

Romans 15 in the CUV

Romans 15 in the CUVS

Romans 15 in the DBT

Romans 15 in the DGDNT

Romans 15 in the DHNT

Romans 15 in the DNT

Romans 15 in the ELBE

Romans 15 in the EMTV

Romans 15 in the ESV

Romans 15 in the FBV

Romans 15 in the FEB

Romans 15 in the GGMNT

Romans 15 in the GNT

Romans 15 in the HARY

Romans 15 in the HNT

Romans 15 in the IRVA

Romans 15 in the IRVB

Romans 15 in the IRVG

Romans 15 in the IRVH

Romans 15 in the IRVK

Romans 15 in the IRVM

Romans 15 in the IRVM2

Romans 15 in the IRVO

Romans 15 in the IRVP

Romans 15 in the IRVT

Romans 15 in the IRVT2

Romans 15 in the IRVU

Romans 15 in the ISVN

Romans 15 in the JSNT

Romans 15 in the KAPI

Romans 15 in the KBT1ETNIK

Romans 15 in the KBV

Romans 15 in the KJV

Romans 15 in the KNFD

Romans 15 in the LBA

Romans 15 in the LBLA

Romans 15 in the LNT

Romans 15 in the LSV

Romans 15 in the MAAL

Romans 15 in the MBV

Romans 15 in the MBV2

Romans 15 in the MHNT

Romans 15 in the MKNFD

Romans 15 in the MNG

Romans 15 in the MNT

Romans 15 in the MNT2

Romans 15 in the MRS1T

Romans 15 in the NAA

Romans 15 in the NASB

Romans 15 in the NBLA

Romans 15 in the NBS

Romans 15 in the NBVTP

Romans 15 in the NET2

Romans 15 in the NIV11

Romans 15 in the NNT

Romans 15 in the NNT2

Romans 15 in the NNT3

Romans 15 in the PDDPT

Romans 15 in the PFNT

Romans 15 in the RMNT

Romans 15 in the SBIAS

Romans 15 in the SBIBS

Romans 15 in the SBIBS2

Romans 15 in the SBICS

Romans 15 in the SBIDS

Romans 15 in the SBIGS

Romans 15 in the SBIHS

Romans 15 in the SBIIS

Romans 15 in the SBIIS2

Romans 15 in the SBIIS3

Romans 15 in the SBIKS

Romans 15 in the SBIKS2

Romans 15 in the SBIMS

Romans 15 in the SBIOS

Romans 15 in the SBIPS

Romans 15 in the SBISS

Romans 15 in the SBITS

Romans 15 in the SBITS2

Romans 15 in the SBITS3

Romans 15 in the SBITS4

Romans 15 in the SBIUS

Romans 15 in the SBIVS

Romans 15 in the SBT

Romans 15 in the SBT1E

Romans 15 in the SCHL

Romans 15 in the SNT

Romans 15 in the SUSU

Romans 15 in the SUSU2

Romans 15 in the SYNO

Romans 15 in the TBIAOTANT

Romans 15 in the TBT1E

Romans 15 in the TBT1E2

Romans 15 in the TFTIP

Romans 15 in the TFTU

Romans 15 in the TGNTATF3T

Romans 15 in the THAI

Romans 15 in the TNFD

Romans 15 in the TNT

Romans 15 in the TNTIK

Romans 15 in the TNTIL

Romans 15 in the TNTIN

Romans 15 in the TNTIP

Romans 15 in the TNTIZ

Romans 15 in the TOMA

Romans 15 in the TTENT

Romans 15 in the UBG

Romans 15 in the UGV

Romans 15 in the UGV2

Romans 15 in the UGV3

Romans 15 in the VBL

Romans 15 in the VDCC

Romans 15 in the YALU

Romans 15 in the YAPE

Romans 15 in the YBVTP

Romans 15 in the ZBP