Romans 8 (BOILNTAP)

1 Þeir sem tilheyra Jesú Kristi verða ekki fordæmdir. 2 Kraftur heilags anda, sem fæst af trúnni á Jesú Krist, hefur leyst mig út úr þessum vítahring syndar og dauða. 3 Við frelsumst ekki úr klóm syndarinnar með því að kunna boðorðin, því að við getum ekki haldið þau. Guð opnaði hins vegar aðra leið til að frelsa okkur. Hann sendi okkur einkason sinn sem varð maður eins og við, að öðru leyti en því að við erum syndug. Sonurinn braut á bak aftur það vald sem syndin hafði yfir okkur, með því að deyja fyrir syndir okkar. 4 Þess vegna getum við nú hlýtt lögum Guðs, það er að segja, ef við förum eftir því sem heilagur andi segir, í stað þess að hlýðnast eigingirni okkar. 5 Þeir sem láta eigin vilja ráða, stjórnast af lægstu hvötum sínum og lifa aðeins til að þóknast sjálfum sér, en þeir sem hlýða heilögum anda gera það sem Guði er þóknanlegt. 6 Heilagur andi veitir líf og frið, en ef við hlýðum eigingirninni þá endar slíkt með dauða, 7 því að hún er í andstöðu við Guð. Hún hefur ekki hlýtt lögum Guðs hingað til og mun aldrei gera. 8 Þetta er ástæða þess að þeir sem enn láta eigingirnina, sjálfselskuna og syndina móta líf sitt, geta aldrei þóknast Guði. 9 En þannig er ekki ástatt um ykkur, því að þið hljótið að láta stjórnast af nýja hugarfarinu ykkar, svo framarlega sem heilagur andi býr í ykkur. (Minnist þess að sá sem ekki á anda Krists er alls ekki kristinn.) 10 Syndin veldur því að líkamar ykkar munu deyja þótt þið séuð kristin, en andi ykkar mun hins vegar lifa, því að Kristur hefur lífgað hann. 11 Ef nú andi Guðs, sem reisti Jesú upp frá dauðum, býr í ykkur, þá mun Guð síðar reisa líkama ykkar upp frá dauðum með krafti anda síns. 12 Kæru systkini í Kristi, af þessu sjáið þið að þið hafið alls engar skyldur við gamla synduga eðlið ykkar og þurfið ekki að hlýðnast því. 13 Ef þið haldið því áfram þá glatist þið, en ef þið deyðið það og allar afleiðingar þess með krafti heilags anda, þá munuð þið lifa, 14 því að allir þeir, sem láta anda Guðs leiða sig, eru Guðs börn. 15 Við eigum því ekki að líkjast hræddum og niðurlútum þrælum, heldur eigum við að hegða okkur eins og einkabörn Guðs. Hann hefur tekið okkur inn í fjölskyldu sína og leyft okkur að kalla sig föður, já, pabba! 16 Heilagur andi segir okkur að við séum Guðs börn og það erum við! 17 Og fyrst við erum börnin hans, erum við líka erfingjar hans og fáum að njóta auðæfa hans með honum, því að allt sem Guð gefur syni sínum Jesú, eigum við með honum. En ef við eigum að fá hlutdeild í dýrð hans, þá verðum við einnig að vera reiðubúin að þjást með honum. 18 Þjáningar þessa lífs eru þó ekkert í samanburði við þá miklu dýrð sem hann mun gefa okkur síðar. 19 Öll sköpunin bíður þess dags, þolinmóð og vongóð, er Guð vekur börnin sín. 20 20,21 Þá mun synd, dauði og rotnun – allt það sem með leyfi Guðs hefur spillt sköpuninni, gegn hennar eigin ósk – það mun allt hverfa og heimurinn umhverfis okkur mun gleðjast með okkur, börnum Guðs, er við losnum að fullu og öllu úr viðjum syndarinnar. 22 Okkur er ljóst að náttúran – bæði dýrin og jurtirnar – er ofurseld sjúkdómum og dauða meðan hún bíður þessa stórkostlega atburðar. 23 En náttúran er ekki ein um að þjást. Við, sem eigum heilagan anda, forsmekkinn að dýrð framtíðarinnar, þráum einnig að losna frá kvöl og þjáningum. Ó, hve við þráum þann dag er Guð veitir okkur hinn fullkomna barnarétt og um leið nýju líkamana sem hann hefur lofað okkur – líkama sem hvorki veikjast né deyja. 24 Þessi von okkar hefur frelsað okkur. Að trúa er hið sama og að vænta einhvers sem enn er ekki orðið, en sá sem á, þarf ekki að vona og trúa að hann muni fá. 25 Að bíða í von eftir því sem Guð mun gefa, styrkir trú okkar og þolinmæði. 26 Eins er með trúna og heilagan anda. Heilagur andi hjálpar okkur að biðja og leysa dagleg vandamál. Oft vitum við ekki hvers við eigum að biðja eða hvaða orð við eigum að nota, en þá kemur heilagur andi okkur til hjálpar og gefur okkur réttu orðin í bænina. 27 Faðirinn, sem þekkir hjörtu allra, veit auðvitað hvað heilagur andi á við þegar hann biður fyrir okkur samkvæmt vilja Guðs, 28 og við vitum að allt sem gerist í lífi okkar verður til góðs, ef við elskum Guð og lifum í samræmi við vilja hans. 29 Guð ákvað í upphafi að þeir sem til hans kæmu – hann hefur alltaf vitað hverjir það yrðu – skyldu líkjast syni hans, svo að sonur hans yrði hinn fyrsti í hópi margra systkina. 30 Þegar hann hafði valið okkur, þá kallaði hann okkur til sín og þegar við komum, þá sýknaði hann okkur. Síðan gaf hann okkur kærleika Krists og kom öllu í sátt á milli okkar og sín og hét okkur dýrð sinni. 31 Hvað getum við sagt við slíkri gæfu? Fyrst Guð er með okkur, hver megnar þá að standa gegn okkur? 32 Guð hlífði ekki sínum eigin syni, heldur lagði hann í sölurnar fyrir okkur öll, og fyrst svo er, skyldi hann þá ekki gefa okkur allt annað að auki? Jú, svo sannarlega! 33 Hver dirfist að ákæra okkur fyrst Guð hefur valið okkur til að vera börnin sín? Hann fyrirgaf okkur og kom okkur í sátt við sig. 34 Hver mun þá geta fordæmt okkur? Kristur? Nei! Því að hann dó fyrir okkur og situr nú í hásæti dýrðarinnar á himnum, næstur Guði, og biður fyrir okkur. 35 Getur þá nokkuð útilokað okkur frá kærleika Krists? Hvað með erfiðleika og ógæfu ýmiss konar? Eru ekki ofsóknir og niðurlæging, sem við verðum fyrir, sönnun þess að hann hafi ekki lengur velþóknun á okkur? Eða hvað um hungur, fátækt og lífshættu? Gefur slíkt ekki til kynna að Guð hafi yfirgefið okkur? 36 Nei! Gamla testamentið segir að sé það vilji Guðs, verðum við að vera reiðubúin að horfast í augu við dauðann hvenær sem er – já, vera eins og lömb sem bíða slátrunar. 37 En hvað sem þessu líður þá erum við sigursæl í Kristi, honum sem elskaði okkur svo heitt að hann dó fyrir okkur. 38 Ég er sannfærður um að ekkert mun geta gert okkur viðskila við kærleika Krists, hvorki dauði né líf, né nokkur önnur öfl á himni eða jörðu. Atburðir líðandi stundar, áhyggjuefni morgundagsins, 39 hamfarir náttúrunnar – ekkert af þessu mun nokkru sinni megna að gera okkur viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.

In Other Versions

Romans 8 in the ANGEFD

Romans 8 in the ANTPNG2D

Romans 8 in the AS21

Romans 8 in the BAGH

Romans 8 in the BBPNG

Romans 8 in the BBT1E

Romans 8 in the BDS

Romans 8 in the BEV

Romans 8 in the BHAD

Romans 8 in the BIB

Romans 8 in the BLPT

Romans 8 in the BNT

Romans 8 in the BNTABOOT

Romans 8 in the BNTLV

Romans 8 in the BOATCB

Romans 8 in the BOATCB2

Romans 8 in the BOBCV

Romans 8 in the BOCNT

Romans 8 in the BOECS

Romans 8 in the BOGWICC

Romans 8 in the BOHCB

Romans 8 in the BOHCV

Romans 8 in the BOHLNT

Romans 8 in the BOHNTLTAL

Romans 8 in the BOICB

Romans 8 in the BOITCV

Romans 8 in the BOKCV

Romans 8 in the BOKCV2

Romans 8 in the BOKHWOG

Romans 8 in the BOKSSV

Romans 8 in the BOLCB

Romans 8 in the BOLCB2

Romans 8 in the BOMCV

Romans 8 in the BONAV

Romans 8 in the BONCB

Romans 8 in the BONLT

Romans 8 in the BONUT2

Romans 8 in the BOPLNT

Romans 8 in the BOSCB

Romans 8 in the BOSNC

Romans 8 in the BOTLNT

Romans 8 in the BOVCB

Romans 8 in the BOYCB

Romans 8 in the BPBB

Romans 8 in the BPH

Romans 8 in the BSB

Romans 8 in the CCB

Romans 8 in the CUV

Romans 8 in the CUVS

Romans 8 in the DBT

Romans 8 in the DGDNT

Romans 8 in the DHNT

Romans 8 in the DNT

Romans 8 in the ELBE

Romans 8 in the EMTV

Romans 8 in the ESV

Romans 8 in the FBV

Romans 8 in the FEB

Romans 8 in the GGMNT

Romans 8 in the GNT

Romans 8 in the HARY

Romans 8 in the HNT

Romans 8 in the IRVA

Romans 8 in the IRVB

Romans 8 in the IRVG

Romans 8 in the IRVH

Romans 8 in the IRVK

Romans 8 in the IRVM

Romans 8 in the IRVM2

Romans 8 in the IRVO

Romans 8 in the IRVP

Romans 8 in the IRVT

Romans 8 in the IRVT2

Romans 8 in the IRVU

Romans 8 in the ISVN

Romans 8 in the JSNT

Romans 8 in the KAPI

Romans 8 in the KBT1ETNIK

Romans 8 in the KBV

Romans 8 in the KJV

Romans 8 in the KNFD

Romans 8 in the LBA

Romans 8 in the LBLA

Romans 8 in the LNT

Romans 8 in the LSV

Romans 8 in the MAAL

Romans 8 in the MBV

Romans 8 in the MBV2

Romans 8 in the MHNT

Romans 8 in the MKNFD

Romans 8 in the MNG

Romans 8 in the MNT

Romans 8 in the MNT2

Romans 8 in the MRS1T

Romans 8 in the NAA

Romans 8 in the NASB

Romans 8 in the NBLA

Romans 8 in the NBS

Romans 8 in the NBVTP

Romans 8 in the NET2

Romans 8 in the NIV11

Romans 8 in the NNT

Romans 8 in the NNT2

Romans 8 in the NNT3

Romans 8 in the PDDPT

Romans 8 in the PFNT

Romans 8 in the RMNT

Romans 8 in the SBIAS

Romans 8 in the SBIBS

Romans 8 in the SBIBS2

Romans 8 in the SBICS

Romans 8 in the SBIDS

Romans 8 in the SBIGS

Romans 8 in the SBIHS

Romans 8 in the SBIIS

Romans 8 in the SBIIS2

Romans 8 in the SBIIS3

Romans 8 in the SBIKS

Romans 8 in the SBIKS2

Romans 8 in the SBIMS

Romans 8 in the SBIOS

Romans 8 in the SBIPS

Romans 8 in the SBISS

Romans 8 in the SBITS

Romans 8 in the SBITS2

Romans 8 in the SBITS3

Romans 8 in the SBITS4

Romans 8 in the SBIUS

Romans 8 in the SBIVS

Romans 8 in the SBT

Romans 8 in the SBT1E

Romans 8 in the SCHL

Romans 8 in the SNT

Romans 8 in the SUSU

Romans 8 in the SUSU2

Romans 8 in the SYNO

Romans 8 in the TBIAOTANT

Romans 8 in the TBT1E

Romans 8 in the TBT1E2

Romans 8 in the TFTIP

Romans 8 in the TFTU

Romans 8 in the TGNTATF3T

Romans 8 in the THAI

Romans 8 in the TNFD

Romans 8 in the TNT

Romans 8 in the TNTIK

Romans 8 in the TNTIL

Romans 8 in the TNTIN

Romans 8 in the TNTIP

Romans 8 in the TNTIZ

Romans 8 in the TOMA

Romans 8 in the TTENT

Romans 8 in the UBG

Romans 8 in the UGV

Romans 8 in the UGV2

Romans 8 in the UGV3

Romans 8 in the VBL

Romans 8 in the VDCC

Romans 8 in the YALU

Romans 8 in the YAPE

Romans 8 in the YBVTP

Romans 8 in the ZBP