Acts 7 (BOILNTAP)

1 Þá spurði æðsti presturinn hann: „Eru þessar ásakanir sannar?“ 2 Stefán útskýrði þá mál sitt ýtarlega með þessum orðum: „Áður en Abraham, forfaðir okkar, fluttist frá Mesópótamíu og til Haran, birtist Guð dýrðarinnar honum. 3 Hann sagði honum að yfirgefa föðurland sitt, kveðja ættingja sína og leggja af stað til lands sem Guð myndi vísa honum á. 4 Hann yfirgaf því land Kaldea, settist að í Haran í Sýrlandi og bjó þar uns faðir hans dó. Eftir það leiddi Guð hann hingað til Ísraelslands, 5 en gaf honum samt ekkert landsvæði, ekki svo mikið sem smáskika.Guð lofaði þó Abraham – sem þá átti ekkert barn – að hann og afkomendur hans myndu síðar eignast allt þetta land. 6 Guð sagði enn fremur, að þessir afkomendur hans myndu flytjast burt úr landinu og setjast að annars staðar, þar sem þeir yrðu þrælar í 400 ár. 7 „En ég mun refsa þjóðinni sem þrælkar þá,“ sagði Guð, „og síðan mun þjóð mín snúa aftur til Ísraelslands, og tilbiðja mig hér.“ 8 Um þetta leyti fyrirskipaði Guð Abraham að taka upp þá reglu, að umskera öll sveinbörn og þannig staðfesta sáttmálann milli sín og Abrahams og afkomenda hans. Ísak, sonur Abrahams, var því umskorinn þegar hann var átta daga gamall. Ísak eignaðist síðan Jakob og Jakob varð faðir hinna tólf ættfeðra Gyðingaþjóðarinnar. 9 Synir Jakobs öfunduðu Jósef bróður sinn og seldu hann sem þræl til Egyptalands. En Guð var með Jósef, 10 bjargaði honum úr þrengingum hans og lét hann ná vinsældum Egypta. Guð veitti Jósef einnig óvenju mikinn vísdóm svo að Faraó gerði hann landstjóra yfir öllu Egyptalandi og hirðstjóra konungsættarinnar. 11 Þá varð hungursneyð í Egyptalandi og Kanaan og upphófust mjög erfiðir tímar fyrir forfeður okkar. Þegar allur matur var á þrotum, 12 frétti Jakob að enn væri til korn í Egyptalandi og sendi því syni sína þangað til að kaupa korn. 13 Þegar þeir komu þangað í annað sinn, sagði Jósef þeim hver hann væri og kynnti bræður sína fyrir Faraó. 14 Síðan sendi hann eftir Jakobi, föður sínum, til þess að fá hann, bræður sína og fjölskyldur þeirra – alls sjötíu og fimm manns – til að flytjast til Egyptalands. 15 Þannig fluttist Jakob til Egyptalands og þar dó hann og allir synir hans. 16 Síðar voru þau öll flutt til Síkem og jörðuð í grafreitnum sem Abraham hafði keypt af sonum Hemors, föður Síkems. 17 17,18 Gyðingaþjóðinni fjölgaði mjög eftir því sem nær dró þeirri stundu, er Guð ætlaði að uppfylla loforðið, sem hann hafði gefið Abraham, en það var að leysa afkomendur hans úr þrældómnum í Egyptalandi. Sá sem var konungur Egypta á þeim tíma skeytti engu um minningu Jósefs. 19 Hann beitti þjóð okkar brögðum og neyddi foreldra til að bera út börn sín. 20 A þessum tíma fæddist Móse. Hann var undurfagurt barn. Foreldrar hans leyndu honum heima í þrjá mánuði 21 og loks, þegar þau gátu ekki leynt honum lengur, urðu þau að bera hann út. Þá fann dóttir Faraós hann og tók hann að sér sem sitt eigið barn. 22 Hún kenndi honum öll fræði Egypta og hann varð voldugur í orði og verki. 23 Dag einn datt Móse í hug – þá fertugum – að fara og heimsækja ættmenn sína, Ísraelsmenn. 24 Þá sá hann Egypta misþyrma Ísraelsmanni. Hann vildi hefna ódæðisins og drap Egyptann. 25 Móse hélt, að Ísraelsmenn skildu að Guð hefði sent hann þeim til hjálpar, en svo var ekki. 26 Daginn eftir heimsótti hann þá á ný og sá þá tvo Ísraelsmenn í áflogum. Hann reyndi að stilla til friðar og sagði: „Heyrið mig! Þið eruð bræður og eigið ekki að slást svona. Það er rangt!“ 27 Sá sem átti upptökin hrinti þá hinum frá sér og spurði: „Hver gerði þig að leiðtoga og dómara yfir okkur? 28 Ætlarðu kannski að drepa mig eins og þú drapst Egyptann í gær?“ 29 Við þessi orð flýði Móse til fjalla og settist að í Midíanslandi. Þar eignaðist hann síðar tvo syni. 30 Fjörutíu ár liðu og dag einn var hann staddur í eyðimörkinni við Sínaífjallið. Birtist honum þá engill í eldsloga, sem stóð upp úr runna nokkrum. 31 Þegar Móse sá logann, varð hann undrandi og hljóp að runnanum til að kanna málið betur. Þá kallaði Guð til hans og sagði: 32 „Ég er Guð feðra þinna – Abrahams, Ísaks og Jakobs.“ Móse varð hræddur og þorði ekki að koma nær. 33 Þá sagði Drottinn við hann: „Farðu úr skónum, því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð. 34 Ég hef séð neyð þjóðar minnar í Egyptalandi og heyrt hróp hennar. Ég ætla að leysa fólkið úr ánauðinni. Komdu, ég ætla að senda þig til Egyptalands.“ 35 Þannig sendi Guð þennan mann aftur til þjóðar sinnar, sem áður hafði hafnað honum með þessum orðum: „Hver gerði þig að leiðtoga og dómara yfir okkur?“ Og Móse var sendur til að verða leiðtogi þeirra og lausnarmaður. 36 Með mörgum athyglisverðum kraftaverkum leiddi hann Ísraelsmenn burt frá Egyptalandi, yfir Rauðahafið og síðan fram og aftur um eyðimörkina í fjörutíu ár. 37 Það var þessi Móse sem sagði við Ísraelsmenn: „Guð mun reisa upp spámann líkan mér á meðal ykkar.“ 38 Í eyðimörkinni var Móse milligöngumaðurinn – meðalgangari milli Ísraelsþjóðarinnar og engilsins, sem á Sínaífjalli afhenti þeim lög Guðs – hið lifandi orð. 39 En feður okkar höfnuðu Móse og vildu snúa aftur til Egyptalands. 40 Þeir sögðu við Aron: „Búðu til goð handa okkur, sem getur flutt okkur til baka, því að við vitum ekki hvað orðið hefur af þessum Móse, sem leiddi okkur burt frá Egyptalandi.“ 41 Síðan bjuggu þeir til kálfslíkneski og færðu því fórnir eins og það væri Guð, og þeir glöddust yfir verki sínu. 42 Þá sneri Guð sér frá þeim og leyfði þeim að fara sína leið og tilbiðja sólina, tunglið og stjörnurnar. Í spádómsbók Amosar spyr Guð: „Ísraelsmenn, færðuð þið mér fórnirnar þessi fjörutíu ár í eyðimörkinni? 43 Nei, hugur ykkar var hjá heiðnu goðunum, hjá Mólok, hjá stjörnuguðnum Refan og öllum hinum skurðgoðunum, sem þið bjugguð til. Því ætla ég að senda ykkur í ánauð austur til Babýlon.“ 44 Forfeður okkar fluttu helgidóm sinn, tjaldbúðina, með sér á ferðum sínum um eyðimörkina. Í tjaldbúðinni geymdu þeir steintöflurnar, sem boðorðin tíu voru skráð á. Tjaldbúðin var gerð eftir nákvæmri fyrirmynd, sem engillinn sýndi Móse. 45 Mörgum árum seinna, þegar Jósúa náði landinu af heiðingjunum, fluttu þeir hana með sér og notuðu fram á daga Davíðs konungs. 46 Guð blessaði Davíð ríkulega. Hann bað Guð þess að fá að byggja honum, Guði Jakobs, varanlegt musteri, 47 en það verk kom í hlut Salómons. 48 48,49 En eitt er víst: Guð býr ekki í musterum sem menn hafa byggt. „Himnarnir eru hásæti mitt og jörðin er fótskör mín,“ segir Drottinn með orðum spámannanna, og hann spyr: „Hvers konar hús getið þið byggt handa mér? Mundi ég dvelja þar? 50 Var það ekki ég sem skapaði bæði himin og jörð?“ 51 En þið, þið eruð engu betri en heiðingjarnir, því að þið eruð harðir og ósveigjanlegir! Ætlið þið líka að standa gegn heilögum anda, eins og forfeður ykkar? 52 Nefnið mér einhvern spámann, sem forfeður ykkar ofsóttu ekki? Þeir drápu meira að segja þá, sem sögðu fyrir komu hins réttláta – Krists – sem þið svikuð síðan og myrtuð! 53 Já, þið fótumtroðið lög Guðs af ásettu ráði, enda þótt þið hafið fengið þau úr höndum engla.“ 54 Þegar meðlimir ráðsins heyrðu þessar ásakanir Stefáns, urðu þeir trylltir og gnístu tönnum af reiði. 55 En Stefán horfði til himins, fylltur heilögum anda og sá dýrð Guðs og Jesú standa til hægri handar Guði. 56 „Sjáið!“ sagði hann, „ég sé himnana opna og Jesú, sem er Kristur, standa við hægri hönd Guðs!“ 57 Þá æptu þeir til hans ókvæðisorð, gripu fyrir eyrun og yfirgnæfðu hann með hrópum sínum. 58 Síðan hröktu þeir hann úr borginni og grýttu hann. Þeir, sem vitni urðu að þessum atburði, eða framkvæmdu aftökuna, fóru úr yfirhöfnum sínum og lögðu þær við fætur ungs manns, sem Páll hét. 59 Þegar grjótið dundi á Stefáni bað hann: „Jesús, tak þú við anda mínum.“ 60 Hann féll á kné og hrópaði: „Drottinn, fyrirgefðu þeim þessa synd!“ og með þessi orð á vörum, dó hann.

In Other Versions

Acts 7 in the ANGEFD

Acts 7 in the ANTPNG2D

Acts 7 in the AS21

Acts 7 in the BAGH

Acts 7 in the BBPNG

Acts 7 in the BBT1E

Acts 7 in the BDS

Acts 7 in the BEV

Acts 7 in the BHAD

Acts 7 in the BIB

Acts 7 in the BLPT

Acts 7 in the BNT

Acts 7 in the BNTABOOT

Acts 7 in the BNTLV

Acts 7 in the BOATCB

Acts 7 in the BOATCB2

Acts 7 in the BOBCV

Acts 7 in the BOCNT

Acts 7 in the BOECS

Acts 7 in the BOGWICC

Acts 7 in the BOHCB

Acts 7 in the BOHCV

Acts 7 in the BOHLNT

Acts 7 in the BOHNTLTAL

Acts 7 in the BOICB

Acts 7 in the BOITCV

Acts 7 in the BOKCV

Acts 7 in the BOKCV2

Acts 7 in the BOKHWOG

Acts 7 in the BOKSSV

Acts 7 in the BOLCB

Acts 7 in the BOLCB2

Acts 7 in the BOMCV

Acts 7 in the BONAV

Acts 7 in the BONCB

Acts 7 in the BONLT

Acts 7 in the BONUT2

Acts 7 in the BOPLNT

Acts 7 in the BOSCB

Acts 7 in the BOSNC

Acts 7 in the BOTLNT

Acts 7 in the BOVCB

Acts 7 in the BOYCB

Acts 7 in the BPBB

Acts 7 in the BPH

Acts 7 in the BSB

Acts 7 in the CCB

Acts 7 in the CUV

Acts 7 in the CUVS

Acts 7 in the DBT

Acts 7 in the DGDNT

Acts 7 in the DHNT

Acts 7 in the DNT

Acts 7 in the ELBE

Acts 7 in the EMTV

Acts 7 in the ESV

Acts 7 in the FBV

Acts 7 in the FEB

Acts 7 in the GGMNT

Acts 7 in the GNT

Acts 7 in the HARY

Acts 7 in the HNT

Acts 7 in the IRVA

Acts 7 in the IRVB

Acts 7 in the IRVG

Acts 7 in the IRVH

Acts 7 in the IRVK

Acts 7 in the IRVM

Acts 7 in the IRVM2

Acts 7 in the IRVO

Acts 7 in the IRVP

Acts 7 in the IRVT

Acts 7 in the IRVT2

Acts 7 in the IRVU

Acts 7 in the ISVN

Acts 7 in the JSNT

Acts 7 in the KAPI

Acts 7 in the KBT1ETNIK

Acts 7 in the KBV

Acts 7 in the KJV

Acts 7 in the KNFD

Acts 7 in the LBA

Acts 7 in the LBLA

Acts 7 in the LNT

Acts 7 in the LSV

Acts 7 in the MAAL

Acts 7 in the MBV

Acts 7 in the MBV2

Acts 7 in the MHNT

Acts 7 in the MKNFD

Acts 7 in the MNG

Acts 7 in the MNT

Acts 7 in the MNT2

Acts 7 in the MRS1T

Acts 7 in the NAA

Acts 7 in the NASB

Acts 7 in the NBLA

Acts 7 in the NBS

Acts 7 in the NBVTP

Acts 7 in the NET2

Acts 7 in the NIV11

Acts 7 in the NNT

Acts 7 in the NNT2

Acts 7 in the NNT3

Acts 7 in the PDDPT

Acts 7 in the PFNT

Acts 7 in the RMNT

Acts 7 in the SBIAS

Acts 7 in the SBIBS

Acts 7 in the SBIBS2

Acts 7 in the SBICS

Acts 7 in the SBIDS

Acts 7 in the SBIGS

Acts 7 in the SBIHS

Acts 7 in the SBIIS

Acts 7 in the SBIIS2

Acts 7 in the SBIIS3

Acts 7 in the SBIKS

Acts 7 in the SBIKS2

Acts 7 in the SBIMS

Acts 7 in the SBIOS

Acts 7 in the SBIPS

Acts 7 in the SBISS

Acts 7 in the SBITS

Acts 7 in the SBITS2

Acts 7 in the SBITS3

Acts 7 in the SBITS4

Acts 7 in the SBIUS

Acts 7 in the SBIVS

Acts 7 in the SBT

Acts 7 in the SBT1E

Acts 7 in the SCHL

Acts 7 in the SNT

Acts 7 in the SUSU

Acts 7 in the SUSU2

Acts 7 in the SYNO

Acts 7 in the TBIAOTANT

Acts 7 in the TBT1E

Acts 7 in the TBT1E2

Acts 7 in the TFTIP

Acts 7 in the TFTU

Acts 7 in the TGNTATF3T

Acts 7 in the THAI

Acts 7 in the TNFD

Acts 7 in the TNT

Acts 7 in the TNTIK

Acts 7 in the TNTIL

Acts 7 in the TNTIN

Acts 7 in the TNTIP

Acts 7 in the TNTIZ

Acts 7 in the TOMA

Acts 7 in the TTENT

Acts 7 in the UBG

Acts 7 in the UGV

Acts 7 in the UGV2

Acts 7 in the UGV3

Acts 7 in the VBL

Acts 7 in the VDCC

Acts 7 in the YALU

Acts 7 in the YAPE

Acts 7 in the YBVTP

Acts 7 in the ZBP