Galatians 3 (BOILNTAP)

1 Æ, þið heimsku Galatar! Hvaða galdrameistari hefur dáleitt ykkur og lagt á ykkur þessi illu álög? Sú var tíðin að þið sáuð tilganginn með dauða Jesú Krists, jafn skýrt og ég hefði sýnt ykkur mynd af Jesú á krossinum. 2 Leyfið mér að spyrja ykkur einnar spurningar: Fenguð þið heilagan anda fyrir að halda lög Gyðinga? Nei, svo sannarlega ekki! Heilagur andi kom ekki yfir ykkur fyrr en þið höfðuð heyrt um Krist og tekið trú á hann. 3 Eruð þið orðin rugluð eða hvað? Í fyrra sinnið mistókst ykkur að eignast andlegt líf, því að þið hélduð að leiðin til þess væri að halda lög Gyðinga. Hvernig getur ykkur þá dottið í hug að nú gætuð þið þroskast í trúnni á Krist, með því að hlýða þessum lögum? 4 Þið sem hafið orðið að líða svo mikið vegna fagnaðarerindisins, ætlið þið nú að varpa öllu fyrir borð? Ég trúi því ekki? 5 Ég spyr aftur: Gefur Guð ykkur kraft heilags anda og lætur hann ykkur vinna máttarverk vegna hlýðni ykkar við lög Gyðinga? Nei, auðvitað ekki! Slíkt gerist hins vegar þegar þið trúið Kristi og treystið honum algjörlega. 6 Slík var einnig reynsla Abrahams. Guð lýsti hann réttlátan fyrir það eitt að hann trúði loforðum Guðs. 7 Af þessu getið þið séð að hinir raunverulegu afkomendur Abrahams eru þeir sem trúa á Guð og treysta honum heilshugar. 8 8,9 Auk þessa benti Biblían fram til þess tíma, er Guð mundi einnig frelsa heiðingjana vegna trúar þeirra. Fyrir löngu sagði Guð við Abraham: „Eins og ég hef blessað þig, svo mun ég og blessa aðra þá sem mér treysta, hverrar þjóðar sem þeir eru.“ Af þessu er auðséð að allir sem treysta Kristi, fá hlutdeild í blessun Abrahams. 10 Þeir sem álíta að lög Gyðinga frelsi þá, eru undir bölvun Guðs. Biblían segir skýrt og skorinort: „Bölvaður er hver sá er brýtur lögin í lögbók minni, þótt ekki sé nema eitt ákvæði þeirra.“ 11 Af þessu er ljóst að aldrei mun neinn geta unnið sér hylli Guðs með því að reyna að halda lög Gyðinga, því að Guð hefur sagt að eina leiðin til að verða réttlátur í hans augum sé leið trúarinnar. Um þetta segir spámaðurinn Habakúk: „Sá sem finnur lífið, finnur það í trúnni á Guð.“ 12 Hvílíkur reginmunur á þessum vegi trúarinnar og vegi laganna. Vegur laganna er þessi: Ef þú hlýðir lögunum í hverju einstöku atriði, þá muntu frelsast. 13 Nú hefur Kristur hins vegar keypt okkur laus undan dómi þessa vonlausa lagakerfis, með því að taka á sig bölvunina sem fylgdi óhlýðni okkar. Það gerði hann á krossinum og það minnir ykkur eflaust á orð Biblíunnar: „Bölvaður er hver sá sem á tré hangir.“ 14 Nú getur Guð einnig blessað heiðingjana með sömu blessun og hann hét Abraham. Sömuleiðis getum við öll sem kristin erum, fengið heilagan anda með því að trúa, eins og okkur hafði verið lofað. 15 Kæru vinir, við vitum að í daglegu lífi er það svo að gefi einhver skriflegt loforð og undirriti það, þá verður hann að halda það. Hann getur ekki allt í einu ákveðið að ganga á bak orða sinna. 16 Nú var það svo að Guð gaf Abraham og barni hans ákveðin loforð. Takið eftir, að ekki er sagt að loforðin væru til barna hans, eins og ef um alla syni hans hefði verið að ræða – alla Gyðinga. – Nei, hér var talað um barn – og þar er auðvitað átt við Krist. 17 Með þessu á ég við að loforð sem Guð gaf – ritaði og síðan staðfesti – um að við frelsumst fyrir trú, var útilokað að fella úr gildi eða breyta fjögur hundruð og þrjátíu árum síðar, þegar Guð birti lög sín. 18 Ef hlýðni við þau lög gæti frelsað okkur, er augljóst að þar er um aðra leið að ræða til að ná vináttu Guðs, en þá sem Abraham fór, því hann trúði hiklaust loforði Guðs. 19 En til hvers voru þá lögin? Jú, þeim var bætt við eftir að loforðið hafði verið gefið, til að sýna mönnunum hversu sekir þeir væru þegar þeir brytu lög Guðs. Þessi lög áttu aðeins að gilda þar til Kristur kæmi, en hann er barnið sem loforð Guðs snerist um. (Á þessu tvennu er reyndar enn meiri munur: Guð lét engla færa Móse lögin sem hann síðan færði fólkinu, 20 en þegar Guð hins vegar gaf Abraham loforð sitt, þá gerði hann það sjálfur milliliðalaust.) 21 21,22 Eru þá lög Guðs í andstöðu við loforð hans? Nei, vissulega ekki! Ef við gætum frelsast með því að halda lögin, þá hefði Guð ekki þurft að opna okkur aðra leið til að losna úr klóm syndarinnar – en Biblían leggur áherslu á að allir séu fangar hennar. Eina undankomuleiðin er trúin á Jesú Krist og hún er öllum opin. 23 Áður en Kristur kom, vorum við undir ströngu eftirliti laganna. Við vorum bókstaflega í fjötrum, þar til við eignuðumst trúna á frelsarann. 24 Segja má að lögin hafi rekið okkur til Krists, sem síðan leiddi okkur með trúnni á veginn til Guðs. 25 En fyrst Kristur er kominn, þurfum við ekki lengur á þessum lögum að halda til að gæta okkar og leiðbeina okkur til hans. 26 Nú erum við börn Guðs fyrir trúna á Jesú Krist, 27 og við sem skírð erum til að sameinast honum, höfum íklæðst honum. 28 Nú skiptir engu máli hvort við erum Gyðingar eða Grikkir, frjálsir menn eða þrælar, karlar eða konur. Við erum öll kristin og eitt í Kristi Jesú. 29 Nú tilheyrum við Kristi og erum því sannir afkomendur Abrahams og öll þau loforð sem Guð gaf honum, tilheyra okkur.

In Other Versions

Galatians 3 in the ANGEFD

Galatians 3 in the ANTPNG2D

Galatians 3 in the AS21

Galatians 3 in the BAGH

Galatians 3 in the BBPNG

Galatians 3 in the BBT1E

Galatians 3 in the BDS

Galatians 3 in the BEV

Galatians 3 in the BHAD

Galatians 3 in the BIB

Galatians 3 in the BLPT

Galatians 3 in the BNT

Galatians 3 in the BNTABOOT

Galatians 3 in the BNTLV

Galatians 3 in the BOATCB

Galatians 3 in the BOATCB2

Galatians 3 in the BOBCV

Galatians 3 in the BOCNT

Galatians 3 in the BOECS

Galatians 3 in the BOGWICC

Galatians 3 in the BOHCB

Galatians 3 in the BOHCV

Galatians 3 in the BOHLNT

Galatians 3 in the BOHNTLTAL

Galatians 3 in the BOICB

Galatians 3 in the BOITCV

Galatians 3 in the BOKCV

Galatians 3 in the BOKCV2

Galatians 3 in the BOKHWOG

Galatians 3 in the BOKSSV

Galatians 3 in the BOLCB

Galatians 3 in the BOLCB2

Galatians 3 in the BOMCV

Galatians 3 in the BONAV

Galatians 3 in the BONCB

Galatians 3 in the BONLT

Galatians 3 in the BONUT2

Galatians 3 in the BOPLNT

Galatians 3 in the BOSCB

Galatians 3 in the BOSNC

Galatians 3 in the BOTLNT

Galatians 3 in the BOVCB

Galatians 3 in the BOYCB

Galatians 3 in the BPBB

Galatians 3 in the BPH

Galatians 3 in the BSB

Galatians 3 in the CCB

Galatians 3 in the CUV

Galatians 3 in the CUVS

Galatians 3 in the DBT

Galatians 3 in the DGDNT

Galatians 3 in the DHNT

Galatians 3 in the DNT

Galatians 3 in the ELBE

Galatians 3 in the EMTV

Galatians 3 in the ESV

Galatians 3 in the FBV

Galatians 3 in the FEB

Galatians 3 in the GGMNT

Galatians 3 in the GNT

Galatians 3 in the HARY

Galatians 3 in the HNT

Galatians 3 in the IRVA

Galatians 3 in the IRVB

Galatians 3 in the IRVG

Galatians 3 in the IRVH

Galatians 3 in the IRVK

Galatians 3 in the IRVM

Galatians 3 in the IRVM2

Galatians 3 in the IRVO

Galatians 3 in the IRVP

Galatians 3 in the IRVT

Galatians 3 in the IRVT2

Galatians 3 in the IRVU

Galatians 3 in the ISVN

Galatians 3 in the JSNT

Galatians 3 in the KAPI

Galatians 3 in the KBT1ETNIK

Galatians 3 in the KBV

Galatians 3 in the KJV

Galatians 3 in the KNFD

Galatians 3 in the LBA

Galatians 3 in the LBLA

Galatians 3 in the LNT

Galatians 3 in the LSV

Galatians 3 in the MAAL

Galatians 3 in the MBV

Galatians 3 in the MBV2

Galatians 3 in the MHNT

Galatians 3 in the MKNFD

Galatians 3 in the MNG

Galatians 3 in the MNT

Galatians 3 in the MNT2

Galatians 3 in the MRS1T

Galatians 3 in the NAA

Galatians 3 in the NASB

Galatians 3 in the NBLA

Galatians 3 in the NBS

Galatians 3 in the NBVTP

Galatians 3 in the NET2

Galatians 3 in the NIV11

Galatians 3 in the NNT

Galatians 3 in the NNT2

Galatians 3 in the NNT3

Galatians 3 in the PDDPT

Galatians 3 in the PFNT

Galatians 3 in the RMNT

Galatians 3 in the SBIAS

Galatians 3 in the SBIBS

Galatians 3 in the SBIBS2

Galatians 3 in the SBICS

Galatians 3 in the SBIDS

Galatians 3 in the SBIGS

Galatians 3 in the SBIHS

Galatians 3 in the SBIIS

Galatians 3 in the SBIIS2

Galatians 3 in the SBIIS3

Galatians 3 in the SBIKS

Galatians 3 in the SBIKS2

Galatians 3 in the SBIMS

Galatians 3 in the SBIOS

Galatians 3 in the SBIPS

Galatians 3 in the SBISS

Galatians 3 in the SBITS

Galatians 3 in the SBITS2

Galatians 3 in the SBITS3

Galatians 3 in the SBITS4

Galatians 3 in the SBIUS

Galatians 3 in the SBIVS

Galatians 3 in the SBT

Galatians 3 in the SBT1E

Galatians 3 in the SCHL

Galatians 3 in the SNT

Galatians 3 in the SUSU

Galatians 3 in the SUSU2

Galatians 3 in the SYNO

Galatians 3 in the TBIAOTANT

Galatians 3 in the TBT1E

Galatians 3 in the TBT1E2

Galatians 3 in the TFTIP

Galatians 3 in the TFTU

Galatians 3 in the TGNTATF3T

Galatians 3 in the THAI

Galatians 3 in the TNFD

Galatians 3 in the TNT

Galatians 3 in the TNTIK

Galatians 3 in the TNTIL

Galatians 3 in the TNTIN

Galatians 3 in the TNTIP

Galatians 3 in the TNTIZ

Galatians 3 in the TOMA

Galatians 3 in the TTENT

Galatians 3 in the UBG

Galatians 3 in the UGV

Galatians 3 in the UGV2

Galatians 3 in the UGV3

Galatians 3 in the VBL

Galatians 3 in the VDCC

Galatians 3 in the YALU

Galatians 3 in the YAPE

Galatians 3 in the YBVTP

Galatians 3 in the ZBP