Hebrews 12 (BOILNTAP)

1 Virðum nú fyrir okkur þessar trúarhetjur og látum þær verða okkur til hvatningar. Losum okkur við allt, sem hindrar okkur og fjötrar. Þá á ég sérstaklega við syndir, sem vafist hafa um fætur okkar og hindrað okkur í að ganga áfram veg trúarinnar. Hlaupum þolgóð skeiðið, sem Guð hefur ætlað okkur. 2 Horfum stöðugt á Jesú, höfund og leiðtoga trúar okkar. Hann var fús að deyja smánardauða á krossi, vegna gleðinnar, sem hann vissi að biði hans, og nú situr hann í heiðurssæti við hástól Guðs. 3 Ef þið viljið komast hjá því að missa kjarkinn og gefast upp, minnist þá þolinmæði hans er hann þjáðist af völdum syndugra manna. 4 Enn hafið þið ekki þurft að berjast svo gegn synd og freistingum að sviti ykkar hafi orðið að blóðdropum. 5 Hafið þið alveg gleymt þessum hvatningarorðum sem Guð sagði við ykkur, börnin sín: „Sonur minn, reiðstu ekki þótt Drottinn refsi þér. Misstu ekki kjarkinn, þótt hann bendi þér á mistök þín, 6 því að refsing hans sannar að hann elskar þig. Ef hann hirtir þig, þá sýnir það aðeins að þú ert í raun og veru barn hans.“ 7 Leyfðu Guði að aga þig, því að það gera allir feður sem elska börnin sín. Hafið þið nokkru sinni heyrt talað um son sem aldrei hlaut umvöndun? 8 Ef Guð lætur hjá líða að refsa ykkur, þegar þið eigið það skilið – eins og feður almennt refsa börnum sínum – þá er það merki þess að þið séuð alls ekki hans börn og tilheyrið þar af leiðandi ekki fjölskyldu hans. 9 Við virðum okkar jarðnesku feður, enda þótt þeir refsi okkur, ættum við þá ekki enn frekar að taka ögun Guðs, svo við lærum að lifa lífinu á réttan hátt? 10 Okkar jarðnesku feður öguðu okkur aðeins í nokkur ár og aðeins í góðum tilgangi. Ögun Guðs er alltaf rétt og okkur fyrir bestu, því að hún veitir okkur hlutdeild í heilagleika hans. 11 Refsing er óþægileg meðan á henni stendur, og jafnvel sársaukafull! En hver er árangurinn? Persónuleiki og skilningur mannsins vex og þroskast. 12 Herðið nú tökin, þið lúnu hendur, og réttið úr ykkur, magnþrota hné! 13 Ryðjið öllum hindrunum úr vegi svo að þeir sem á eftir koma, veikir og vanmegna, hrasi ekki á göngunni, heldur styrkist í hverju skrefi. 14 Forðist allar deilur og leitist við að lifa hreinu og heilögu lífi, því að án helgunar mun enginn sjá Drottin. 15 Gefið gætur hvert að öðru, svo að þið missið ekki af blessun Guðs. Gætið þess að verða ekki beisk hvert við annað, því að beiskjan er trúnni til mikils tjóns. 16 Hafið gát a að enginn lifi lauslæti eða fjarlægist Guð, eins og Esaú. Hann mat frumburðarrétt sinn til jafns við einn málsverð. 17 Síðar, þegar hann vildi endurheimta réttindi sín, var allt um seinan og beisk iðrunartár hans fengu engu breytt. Munið þetta og gætið ykkar vel. 18 Þið hafið ekki þurft að horfast í augu við ógnir, æðandi eld, sorta, myrkur og óveður, eins og Ísraelsmenn á Sínaífjalli, þegar Guð gaf þeim lögmálið. 19 Þá kvað við skær lúðurhljómur og rödd sem flutti þvílíkan boðskap að fólkið bað Guð að hætta að tala. 20 Og þegar Guð sagði að sérhver skepna sem snerti fjallið myndi deyja, þá hopaði fólkið á hæl. 21 Sjálfur Móse varð svo hræddur við þessa sýn að hann skalf af ótta. 22 Nú eruð þið komin að Síonfjalli, til borgar lifandi Guðs, hinnar himnesku Jerúsalem, til fundar við óteljandi engla, 23 til kirkju Krists, sem telur alla sem skráðir eru á himnum, til Guðs, sem alla dæmir, til hinna endurleystu anda, sem fullkomnir eru orðnir, 24 til sjálfs Jesú, sem færði okkur nýjan og dásamlegan sáttmála sinn, og til blóðsins, sem úthellt var og veitir náð og fyrirgefningu í stað þess að hrópa á hefnd, eins og blóð Abels. 25 Gætið þess að hlýða honum, sem talar til ykkar. Ísraelsmönnum varð ekki bjargað eftir að þeir neituðu að hlýða á Móse, sem þó var aðeins maður. Við erum ekki síður í skelfilegri hættu, ef við óhlýðnumst Guði, sem talar til okkar frá himnum. 26 Þegar Guð talaði frá Sínaífjalli var rödd hans svo sterk að jörðin skalf. „En næst,“ segir hann, „mun ég ekki aðeins hrista jörðina, heldur einnig himininn!“ 27 Með þessu á hann við að hann muni fjarlægja allt, sem ekki fær staðist, svo einungis það sem stenst verði eftir. 28 Fyrst ríki okkar er ósigrandi, skulum við þóknast Guði með því að þjóna honum með þakklátum hjörtum, heilögum ótta og lotningu, 29 því að Guð er eyðandi eldur.

In Other Versions

Hebrews 12 in the ANGEFD

Hebrews 12 in the ANTPNG2D

Hebrews 12 in the AS21

Hebrews 12 in the BAGH

Hebrews 12 in the BBPNG

Hebrews 12 in the BBT1E

Hebrews 12 in the BDS

Hebrews 12 in the BEV

Hebrews 12 in the BHAD

Hebrews 12 in the BIB

Hebrews 12 in the BLPT

Hebrews 12 in the BNT

Hebrews 12 in the BNTABOOT

Hebrews 12 in the BNTLV

Hebrews 12 in the BOATCB

Hebrews 12 in the BOATCB2

Hebrews 12 in the BOBCV

Hebrews 12 in the BOCNT

Hebrews 12 in the BOECS

Hebrews 12 in the BOGWICC

Hebrews 12 in the BOHCB

Hebrews 12 in the BOHCV

Hebrews 12 in the BOHLNT

Hebrews 12 in the BOHNTLTAL

Hebrews 12 in the BOICB

Hebrews 12 in the BOITCV

Hebrews 12 in the BOKCV

Hebrews 12 in the BOKCV2

Hebrews 12 in the BOKHWOG

Hebrews 12 in the BOKSSV

Hebrews 12 in the BOLCB

Hebrews 12 in the BOLCB2

Hebrews 12 in the BOMCV

Hebrews 12 in the BONAV

Hebrews 12 in the BONCB

Hebrews 12 in the BONLT

Hebrews 12 in the BONUT2

Hebrews 12 in the BOPLNT

Hebrews 12 in the BOSCB

Hebrews 12 in the BOSNC

Hebrews 12 in the BOTLNT

Hebrews 12 in the BOVCB

Hebrews 12 in the BOYCB

Hebrews 12 in the BPBB

Hebrews 12 in the BPH

Hebrews 12 in the BSB

Hebrews 12 in the CCB

Hebrews 12 in the CUV

Hebrews 12 in the CUVS

Hebrews 12 in the DBT

Hebrews 12 in the DGDNT

Hebrews 12 in the DHNT

Hebrews 12 in the DNT

Hebrews 12 in the ELBE

Hebrews 12 in the EMTV

Hebrews 12 in the ESV

Hebrews 12 in the FBV

Hebrews 12 in the FEB

Hebrews 12 in the GGMNT

Hebrews 12 in the GNT

Hebrews 12 in the HARY

Hebrews 12 in the HNT

Hebrews 12 in the IRVA

Hebrews 12 in the IRVB

Hebrews 12 in the IRVG

Hebrews 12 in the IRVH

Hebrews 12 in the IRVK

Hebrews 12 in the IRVM

Hebrews 12 in the IRVM2

Hebrews 12 in the IRVO

Hebrews 12 in the IRVP

Hebrews 12 in the IRVT

Hebrews 12 in the IRVT2

Hebrews 12 in the IRVU

Hebrews 12 in the ISVN

Hebrews 12 in the JSNT

Hebrews 12 in the KAPI

Hebrews 12 in the KBT1ETNIK

Hebrews 12 in the KBV

Hebrews 12 in the KJV

Hebrews 12 in the KNFD

Hebrews 12 in the LBA

Hebrews 12 in the LBLA

Hebrews 12 in the LNT

Hebrews 12 in the LSV

Hebrews 12 in the MAAL

Hebrews 12 in the MBV

Hebrews 12 in the MBV2

Hebrews 12 in the MHNT

Hebrews 12 in the MKNFD

Hebrews 12 in the MNG

Hebrews 12 in the MNT

Hebrews 12 in the MNT2

Hebrews 12 in the MRS1T

Hebrews 12 in the NAA

Hebrews 12 in the NASB

Hebrews 12 in the NBLA

Hebrews 12 in the NBS

Hebrews 12 in the NBVTP

Hebrews 12 in the NET2

Hebrews 12 in the NIV11

Hebrews 12 in the NNT

Hebrews 12 in the NNT2

Hebrews 12 in the NNT3

Hebrews 12 in the PDDPT

Hebrews 12 in the PFNT

Hebrews 12 in the RMNT

Hebrews 12 in the SBIAS

Hebrews 12 in the SBIBS

Hebrews 12 in the SBIBS2

Hebrews 12 in the SBICS

Hebrews 12 in the SBIDS

Hebrews 12 in the SBIGS

Hebrews 12 in the SBIHS

Hebrews 12 in the SBIIS

Hebrews 12 in the SBIIS2

Hebrews 12 in the SBIIS3

Hebrews 12 in the SBIKS

Hebrews 12 in the SBIKS2

Hebrews 12 in the SBIMS

Hebrews 12 in the SBIOS

Hebrews 12 in the SBIPS

Hebrews 12 in the SBISS

Hebrews 12 in the SBITS

Hebrews 12 in the SBITS2

Hebrews 12 in the SBITS3

Hebrews 12 in the SBITS4

Hebrews 12 in the SBIUS

Hebrews 12 in the SBIVS

Hebrews 12 in the SBT

Hebrews 12 in the SBT1E

Hebrews 12 in the SCHL

Hebrews 12 in the SNT

Hebrews 12 in the SUSU

Hebrews 12 in the SUSU2

Hebrews 12 in the SYNO

Hebrews 12 in the TBIAOTANT

Hebrews 12 in the TBT1E

Hebrews 12 in the TBT1E2

Hebrews 12 in the TFTIP

Hebrews 12 in the TFTU

Hebrews 12 in the TGNTATF3T

Hebrews 12 in the THAI

Hebrews 12 in the TNFD

Hebrews 12 in the TNT

Hebrews 12 in the TNTIK

Hebrews 12 in the TNTIL

Hebrews 12 in the TNTIN

Hebrews 12 in the TNTIP

Hebrews 12 in the TNTIZ

Hebrews 12 in the TOMA

Hebrews 12 in the TTENT

Hebrews 12 in the UBG

Hebrews 12 in the UGV

Hebrews 12 in the UGV2

Hebrews 12 in the UGV3

Hebrews 12 in the VBL

Hebrews 12 in the VDCC

Hebrews 12 in the YALU

Hebrews 12 in the YAPE

Hebrews 12 in the YBVTP

Hebrews 12 in the ZBP