Hebrews 6 (BOILNTAP)

1 Sleppum því nú að rifja enn einu sinni upp undirstöðukenningar kristindómsins. Stígum heldur feti framar, svo að skilningur okkar og þroski aukist eins og kristnum mönnum sæmir. Það ætti að vera óþarfi að ræða frekar um hvað það er að iðrast og trúa á Guð. 2 Og frekari fræðslu um skírn, handayfirlagningu, upprisu dauðra og eilífan dóm þurfið þið ekki. 3 Sem sagt, snúum okkur að öðru, ef Drottinn vill, því að ekki er eftir neinu að bíða. 4 4-6 Ef þið hafið snúið baki við Drottni eftir að hafa öðlast skilning á gleðiboðskapnum, fengið forsmekkinn af gæðum himnanna, öðlast hlutdeild í heilögum anda, reynt blessunina af orði Guðs og fundið mátt hins komandi heims, þá er þýðingarlaust að reyna að leiða ykkur aftur til Drottins. Þið getið ekki iðrast á ný, ef þið hafið krossfest son Guðs í annað sinn með því að hafna honum og hæða hann í allra áheyrn. 7 Þegar rignt hefur yfir akur og hann borið mikinn ávöxt, þá hefur hann fengið að reyna blessun Guðs. 8 En ef þar vex aðeins illgresi endalaust og ekkert annað þá er akurinn talinn ónothæfur og bíður þess eins að eldur verði látinn eyða honum. 9 Kæru vinir, þótt ég segi þetta, álít ég ekki að þessi orð mín eigi við ykkur, því að ég hef þá trú að þið berið hinn góða ávöxt hjálpræðisins. 10 Þetta segi ég vegna þess að Guð er ekki ósanngjarn. Hvernig ætti hann að geta gleymt erfiði ykkar og kærleikanum sem þið sýnduð honum, og sýnið enn, er þið hjálpið þeim sem á hann trúa? 11 Okkur er mjög umhugað að þið haldið áfram að sýna öðrum kærleika, já, meðan ævi ykkar endist. Þá munuð þið líka hljóta full laun. 12 Nú vitið þið á hverju þið eigið von og því munuð þið ekki þreytast í trúnni né heldur verða andlega sljó og rænulaus. Ykkur mun verða umhugað að fylgja fordæmi þeirra, sem fá að höndla allt sem Guð hefur heitið þeim, vegna sterkrar trúar þeirra og þolinmæði. 13 Dæmi um þetta er loforðið sem Guð gaf Abraham. Guð sór við sitt eigið nafn, þar eð ekki var annað æðra, sem hægt var að sverja við, 14 og loforð hans var að hann skyldi blessa Abraham ríkulega, gefa honum son og gera hann að ættföður mikillar þjóðar. 15 Og Abraham beið í þolinmæði þar til Guð að lokum efndi loforðið og gaf honum son – Ísak. 16 Þegar maður sver eið, þá skírskotar hann til einhvers annars, sem honum er voldugri, svo að sá geti neytt hann til að standa við orð sín eða þá refsað honum, rjúfi hann heit sitt. 17 Þannig batt Guð sjálfan sig með eiði, svo að þeir sem hann hafði lofað hjálp, þyrftu engu að kvíða né ættu það á hættu að hann skipti um skoðun. 18 Guð hefur gefið okkur loforð og þar að auki lagt eið við. Þessu tvennu getum við áreiðanlega treyst, því að það er útilokað að Guð segi ósatt. Eftir að hafa nú heyrt um þessa tryggingu Guðs, geta allir verið vissir um að öðlast hjálpræðið, sem hann lofaði þeim. 19 Þessi vissa um að við munum frelsast, er akkeri fyrir sálir okkar, traust og öruggt, sem nær inn fyrir heilagt fortjald himnanna og tengir okkur sjálfum Guði! 20 Þessa leið fór Kristur á undan okkur, til að biðja fyrir okkur sem æðsti prestur, líkur Melkísedek að mætti og dýrð.

In Other Versions

Hebrews 6 in the ANGEFD

Hebrews 6 in the ANTPNG2D

Hebrews 6 in the AS21

Hebrews 6 in the BAGH

Hebrews 6 in the BBPNG

Hebrews 6 in the BBT1E

Hebrews 6 in the BDS

Hebrews 6 in the BEV

Hebrews 6 in the BHAD

Hebrews 6 in the BIB

Hebrews 6 in the BLPT

Hebrews 6 in the BNT

Hebrews 6 in the BNTABOOT

Hebrews 6 in the BNTLV

Hebrews 6 in the BOATCB

Hebrews 6 in the BOATCB2

Hebrews 6 in the BOBCV

Hebrews 6 in the BOCNT

Hebrews 6 in the BOECS

Hebrews 6 in the BOGWICC

Hebrews 6 in the BOHCB

Hebrews 6 in the BOHCV

Hebrews 6 in the BOHLNT

Hebrews 6 in the BOHNTLTAL

Hebrews 6 in the BOICB

Hebrews 6 in the BOITCV

Hebrews 6 in the BOKCV

Hebrews 6 in the BOKCV2

Hebrews 6 in the BOKHWOG

Hebrews 6 in the BOKSSV

Hebrews 6 in the BOLCB

Hebrews 6 in the BOLCB2

Hebrews 6 in the BOMCV

Hebrews 6 in the BONAV

Hebrews 6 in the BONCB

Hebrews 6 in the BONLT

Hebrews 6 in the BONUT2

Hebrews 6 in the BOPLNT

Hebrews 6 in the BOSCB

Hebrews 6 in the BOSNC

Hebrews 6 in the BOTLNT

Hebrews 6 in the BOVCB

Hebrews 6 in the BOYCB

Hebrews 6 in the BPBB

Hebrews 6 in the BPH

Hebrews 6 in the BSB

Hebrews 6 in the CCB

Hebrews 6 in the CUV

Hebrews 6 in the CUVS

Hebrews 6 in the DBT

Hebrews 6 in the DGDNT

Hebrews 6 in the DHNT

Hebrews 6 in the DNT

Hebrews 6 in the ELBE

Hebrews 6 in the EMTV

Hebrews 6 in the ESV

Hebrews 6 in the FBV

Hebrews 6 in the FEB

Hebrews 6 in the GGMNT

Hebrews 6 in the GNT

Hebrews 6 in the HARY

Hebrews 6 in the HNT

Hebrews 6 in the IRVA

Hebrews 6 in the IRVB

Hebrews 6 in the IRVG

Hebrews 6 in the IRVH

Hebrews 6 in the IRVK

Hebrews 6 in the IRVM

Hebrews 6 in the IRVM2

Hebrews 6 in the IRVO

Hebrews 6 in the IRVP

Hebrews 6 in the IRVT

Hebrews 6 in the IRVT2

Hebrews 6 in the IRVU

Hebrews 6 in the ISVN

Hebrews 6 in the JSNT

Hebrews 6 in the KAPI

Hebrews 6 in the KBT1ETNIK

Hebrews 6 in the KBV

Hebrews 6 in the KJV

Hebrews 6 in the KNFD

Hebrews 6 in the LBA

Hebrews 6 in the LBLA

Hebrews 6 in the LNT

Hebrews 6 in the LSV

Hebrews 6 in the MAAL

Hebrews 6 in the MBV

Hebrews 6 in the MBV2

Hebrews 6 in the MHNT

Hebrews 6 in the MKNFD

Hebrews 6 in the MNG

Hebrews 6 in the MNT

Hebrews 6 in the MNT2

Hebrews 6 in the MRS1T

Hebrews 6 in the NAA

Hebrews 6 in the NASB

Hebrews 6 in the NBLA

Hebrews 6 in the NBS

Hebrews 6 in the NBVTP

Hebrews 6 in the NET2

Hebrews 6 in the NIV11

Hebrews 6 in the NNT

Hebrews 6 in the NNT2

Hebrews 6 in the NNT3

Hebrews 6 in the PDDPT

Hebrews 6 in the PFNT

Hebrews 6 in the RMNT

Hebrews 6 in the SBIAS

Hebrews 6 in the SBIBS

Hebrews 6 in the SBIBS2

Hebrews 6 in the SBICS

Hebrews 6 in the SBIDS

Hebrews 6 in the SBIGS

Hebrews 6 in the SBIHS

Hebrews 6 in the SBIIS

Hebrews 6 in the SBIIS2

Hebrews 6 in the SBIIS3

Hebrews 6 in the SBIKS

Hebrews 6 in the SBIKS2

Hebrews 6 in the SBIMS

Hebrews 6 in the SBIOS

Hebrews 6 in the SBIPS

Hebrews 6 in the SBISS

Hebrews 6 in the SBITS

Hebrews 6 in the SBITS2

Hebrews 6 in the SBITS3

Hebrews 6 in the SBITS4

Hebrews 6 in the SBIUS

Hebrews 6 in the SBIVS

Hebrews 6 in the SBT

Hebrews 6 in the SBT1E

Hebrews 6 in the SCHL

Hebrews 6 in the SNT

Hebrews 6 in the SUSU

Hebrews 6 in the SUSU2

Hebrews 6 in the SYNO

Hebrews 6 in the TBIAOTANT

Hebrews 6 in the TBT1E

Hebrews 6 in the TBT1E2

Hebrews 6 in the TFTIP

Hebrews 6 in the TFTU

Hebrews 6 in the TGNTATF3T

Hebrews 6 in the THAI

Hebrews 6 in the TNFD

Hebrews 6 in the TNT

Hebrews 6 in the TNTIK

Hebrews 6 in the TNTIL

Hebrews 6 in the TNTIN

Hebrews 6 in the TNTIP

Hebrews 6 in the TNTIZ

Hebrews 6 in the TOMA

Hebrews 6 in the TTENT

Hebrews 6 in the UBG

Hebrews 6 in the UGV

Hebrews 6 in the UGV2

Hebrews 6 in the UGV3

Hebrews 6 in the VBL

Hebrews 6 in the VDCC

Hebrews 6 in the YALU

Hebrews 6 in the YAPE

Hebrews 6 in the YBVTP

Hebrews 6 in the ZBP