James 2 (BOILNTAP)

1 Kæru vinir, hvernig getið þið sagst tilheyra Jesú Kristi, Drottni dýrðarinnar, ef þið upphefjið ríka á kostnað fátækra? 2 Segjum svo að inn í kirkjuna ykkar komi maður, ríkmannlega klæddur, með dýrmæta gullhringi á fingrum sér, og um leið kæmi annar fátækur og illa til fara. 3 Þá dekrið þið við ríka manninn og látið hann setjast á besta stað, en segið við þann fátæka: „Þú getur staðið þarna fjær ef þú vilt eða setið úti í horni.“ 4 Þið farið í manngreinarálit ef þið vegið og metið menn eftir eigum þeirra. 5 Takið eftir, kæru vinir: Guð hefur valið hina fátæku til að auðgast í trúnni og erfa ríki himnanna. Það er gjöfin, sem Guð hefur heitið öllum þeim sem elska hann. 6 En í dæminu um mennina tvo, hafið þið lítilsvirt fátæka manninn. Vitið þið ekki að það eru venjulega þeir ríku, sem troða á rétti ykkar og draga ykkur fyrir dómstóla? 7 Það eru oftast þeir sem hæðast að Jesú Kristi og hans göfuga nafni, sem nefnt var yfir ykkur. 8 Vissulega er gott að þið hlýðið þannig þessari skipun Drottins: „Elskið og hjálpið meðbræðrum ykkar eins og þið elskið og annist ykkur sjálfa,“ 9 en ef þið farið í manngreinarálit, þá brjótið þið þetta boðorð og syndgið. 10 Þótt einhverjum tækist að halda allt lögmálið, en hrasaði í einu atriði, þá yrði hann jafnsekur þeim sem brýtur þau öll. 11 Sá Guð, sem sagði að þið mættuð ekki ganga að eiga gifta konu, sagði einnig að óheimilt væri að fremja morð. Og þótt þú hafir ekki brotið hjúskaparlögin með því að drýgja hór, en þess í stað myrt einhvern, þá hefur þú fótum troðið lög Guðs. 12 Þið verðið dæmd eftir því hvort þið gerið, eða látið ógert, það sem Kristur býður ykkur. Gætið því að hvað þið hugsið og gerið, 13 því að þeim sem er miskunnarlaus við aðra, verður engin miskunn sýnd. En ef þið miskunnið, þurfið þið ekki að óttast dóm Guðs. 14 Kæru vinir, hvað gagnar það þótt þið segist eiga trú og vera kristnir, ef það sést ekki í hjálpsemi við aðra? Mun slík trú geta frelsað nokkurn? 15 Þú segir við vin þinn, sem skortir bæði fæði og klæði: 16 „Hafðu það gott og borðaðu þig saddan. Vertu sæll og Guð blessi þig!“ Hvaða gagn er í slíku, ef þú gefur honum hvorki föt né mat? 17 Þið skiljið af þessu að trúin ein nægir ekki. Þið verðið einnig að gera öðrum gott til þess að sanna að þið eigið trúna. Trú, sem ekki birtist í góðum verkum, er alls engin trú. Slík trú er dauð og gagnslaus. 18 Þú segir kannski: „Já, en trúin er eina leiðin til Guðs.“ Því svara ég: „Góð verk eru líka mikilvæg, því að án þeirra getur þú ekki sýnt að þú trúir. Verkin sanna trúna.“ 19 Eru fleiri á meðal ykkar, sem segja að það nægi „bara að trúa“? Trúa hverju? Því að aðeins sé til einn Guð? Því trúa illu andarnir líka og skjálfa við tilhugsunina! 20 Fávísi maður! Hvenær ætlar þú að láta þér skiljast, að trúin er gagnslaus nema þú gerir Guðs vilja? Trú, sem ekki birtist í góðum verkum, er dauð trú. 21 Þið munið að Abraham, faðir okkar, var einmitt úrskurðaður réttlátur vegna þess sem hann gerði, eftir að hann ákvað að hlýða Guði, jafnvel þótt það fæli í sér að hann þyrfti að fórna Ísaki syni sínum. 22 Skiljið þið þetta? Abraham bar slíkt traust til Guðs að hann var fús að hlýða honum í einu og öllu. Trú hans fullkomnaðist í verkum hans. 23 Gamla testamentið orðar þetta svo: Abraham trúði Guði og það réttlætti hann í augum Guðs. Abraham var meira að segja kallaður „vinur Guðs“. 24 Af þessu sjáið þið að maðurinn frelsast af verkum, sem hann vinnur í trú. 25 Skækjan Rahab er enn eitt dæmið um þetta. Hún bjargaðist vegna þess sem hún gerði. Hún faldi sendiboðana og kom þeim síðan undan. 26 Eins og líkaminn deyr þegar andinn yfirgefur hann, þannig er trúin líka dauð, ef hún birtist ekki í góðum verkum.

In Other Versions

James 2 in the ANGEFD

James 2 in the ANTPNG2D

James 2 in the AS21

James 2 in the BAGH

James 2 in the BBPNG

James 2 in the BBT1E

James 2 in the BDS

James 2 in the BEV

James 2 in the BHAD

James 2 in the BIB

James 2 in the BLPT

James 2 in the BNT

James 2 in the BNTABOOT

James 2 in the BNTLV

James 2 in the BOATCB

James 2 in the BOATCB2

James 2 in the BOBCV

James 2 in the BOCNT

James 2 in the BOECS

James 2 in the BOGWICC

James 2 in the BOHCB

James 2 in the BOHCV

James 2 in the BOHLNT

James 2 in the BOHNTLTAL

James 2 in the BOICB

James 2 in the BOITCV

James 2 in the BOKCV

James 2 in the BOKCV2

James 2 in the BOKHWOG

James 2 in the BOKSSV

James 2 in the BOLCB

James 2 in the BOLCB2

James 2 in the BOMCV

James 2 in the BONAV

James 2 in the BONCB

James 2 in the BONLT

James 2 in the BONUT2

James 2 in the BOPLNT

James 2 in the BOSCB

James 2 in the BOSNC

James 2 in the BOTLNT

James 2 in the BOVCB

James 2 in the BOYCB

James 2 in the BPBB

James 2 in the BPH

James 2 in the BSB

James 2 in the CCB

James 2 in the CUV

James 2 in the CUVS

James 2 in the DBT

James 2 in the DGDNT

James 2 in the DHNT

James 2 in the DNT

James 2 in the ELBE

James 2 in the EMTV

James 2 in the ESV

James 2 in the FBV

James 2 in the FEB

James 2 in the GGMNT

James 2 in the GNT

James 2 in the HARY

James 2 in the HNT

James 2 in the IRVA

James 2 in the IRVB

James 2 in the IRVG

James 2 in the IRVH

James 2 in the IRVK

James 2 in the IRVM

James 2 in the IRVM2

James 2 in the IRVO

James 2 in the IRVP

James 2 in the IRVT

James 2 in the IRVT2

James 2 in the IRVU

James 2 in the ISVN

James 2 in the JSNT

James 2 in the KAPI

James 2 in the KBT1ETNIK

James 2 in the KBV

James 2 in the KJV

James 2 in the KNFD

James 2 in the LBA

James 2 in the LBLA

James 2 in the LNT

James 2 in the LSV

James 2 in the MAAL

James 2 in the MBV

James 2 in the MBV2

James 2 in the MHNT

James 2 in the MKNFD

James 2 in the MNG

James 2 in the MNT

James 2 in the MNT2

James 2 in the MRS1T

James 2 in the NAA

James 2 in the NASB

James 2 in the NBLA

James 2 in the NBS

James 2 in the NBVTP

James 2 in the NET2

James 2 in the NIV11

James 2 in the NNT

James 2 in the NNT2

James 2 in the NNT3

James 2 in the PDDPT

James 2 in the PFNT

James 2 in the RMNT

James 2 in the SBIAS

James 2 in the SBIBS

James 2 in the SBIBS2

James 2 in the SBICS

James 2 in the SBIDS

James 2 in the SBIGS

James 2 in the SBIHS

James 2 in the SBIIS

James 2 in the SBIIS2

James 2 in the SBIIS3

James 2 in the SBIKS

James 2 in the SBIKS2

James 2 in the SBIMS

James 2 in the SBIOS

James 2 in the SBIPS

James 2 in the SBISS

James 2 in the SBITS

James 2 in the SBITS2

James 2 in the SBITS3

James 2 in the SBITS4

James 2 in the SBIUS

James 2 in the SBIVS

James 2 in the SBT

James 2 in the SBT1E

James 2 in the SCHL

James 2 in the SNT

James 2 in the SUSU

James 2 in the SUSU2

James 2 in the SYNO

James 2 in the TBIAOTANT

James 2 in the TBT1E

James 2 in the TBT1E2

James 2 in the TFTIP

James 2 in the TFTU

James 2 in the TGNTATF3T

James 2 in the THAI

James 2 in the TNFD

James 2 in the TNT

James 2 in the TNTIK

James 2 in the TNTIL

James 2 in the TNTIN

James 2 in the TNTIP

James 2 in the TNTIZ

James 2 in the TOMA

James 2 in the TTENT

James 2 in the UBG

James 2 in the UGV

James 2 in the UGV2

James 2 in the UGV3

James 2 in the VBL

James 2 in the VDCC

James 2 in the YALU

James 2 in the YAPE

James 2 in the YBVTP

James 2 in the ZBP