John 16 (BOILNTAP)

1 „Þetta segi ég ykkur, svo að þið hrasið ekki þegar andstaðan mætir ykkur. 2 Ykkur mun verða bannað að sækja samkomuhúsin og þess er ekki langt að bíða að þeir lífláti ykkur í þeirri trú að þeir séu að gera Guði greiða. 3 Ástæðan er sú, að þeir hafa hvorki þekkt föðurinn né mig. 4 Ég segi ykkur þetta núna, svo að þið munið eftir aðvörun minni þegar það kemur fram. Ég hef ekki sagt ykkur þetta fyrr, því að nú fyrst er það tímabært, þar eð ég er á förum. 5 Nú er komið að því að ég fari til hans sem sendi mig; en enginn ykkar virðist hafa áhuga á að spyrja hvers vegna ég fari. 6 Þess í stað eruð þið sorgmæddir. 7 Ég segi ykkur satt, það er ykkur til góðs að ég fari, því að fari ég ekki, þá mun hjálparinn ekki koma. En ef ég fer, þá kemur hann, því að ég mun senda hann til ykkar. 8 Þegar hann kemur, mun hann sannfæra heiminn um synd hans, um að Guð réttlæti syndara og um að dómurinn sé staðreynd. 9 Hann mun sannfæra heiminn um að syndin felist í því, að þeir trúi ekki á mig. 10 Það að ég fer til föðurins, mun sannfæra menn um að réttlæti Guðs standi þeim til boða. 11 Hann mun einnig sannfæra menn um að hægt sé að umflýja dóminn, því að höfðingi þessa heims, Satan, hefur þegar verið dæmdur. 12 Það er svo margt sem ég vildi segja ykkur, en þið skiljið það ekki enn. 13 En þegar heilagur andi, sannleiksandinn, kemur, mun hann leiða ykkur í allan sannleikann. Hann mun ekki tala af sjálfum sér, heldur skýra ykkur frá því sem hann hefur heyrt. Hann mun fræða ykkur um framtíðina. 14 Hann mun heiðra mig og vegsama, með því að sýna ykkur dýrð mína. 15 Öll dýrð föðurins tilheyrir mér og þess vegna sagði ég að hann heiðri mig og vegsami. 16 Eftir skamma stund verð ég farinn og þið munuð ekki sjá mig, en áður en langt um líður munuð þið sjá mig á ný.“ 17 17,18 „Hvað á hann við?“ spurðu lærisveinarnir hver annan. „Hvað táknar það að „fara til föðurins“? Þetta skiljum við ekki.“ 19 Jesús varð þess var að þeir vildu spyrja hann og sagði því: „Þið spyrjið hver annan við hvað ég eigi. 20 Heimurinn mun fagna örlögum mínum, en þið munuð gráta. En hryggð ykkar mun snúast í fögnuð, þegar þið sjáið mig á ný. 21 Það verður líkt og hjá konu sem fæðir barn – angist hennar og kvíði hverfur fyrir fögnuði, þegar hún hefur eignast barnið. 22 Nú eruð þið harmi slegnir, en ég mun hitta ykkur á ný og þá munuð þið fagna. Þeirri gleði mun enginn geta rænt ykkur! 23 Þá munuð þið ekki þurfa að biðja mig neins, heldur getið þið snúið ykkur beint til föðurins og beðið hann. Og hann mun gefa ykkur það sem þið biðjið um, vegna þess að þið biðjið í mínu nafni. 24 Þið hafið aldrei reynt þetta áður en nú er komið að því. Biðjið í mínu nafni því að þá munuð þið verða bænheyrðir og fyllast ólýsanlegri gleði! 25 Þetta hef ég sagt ykkur í líkingum, en nú nálgast sá tími, er þess gerist ekki lengur þörf. Þá mun ég tala opinskátt við ykkur um föðurinn, 26 og þið munuð biðja í mínu nafni. Það er óþarfi fyrir mig að biðja föðurinn um að svara bænum ykkar, 27 því sjálfur elskar hann ykkur, af því að þið elskið mig og trúið að hann hafi sent mig. 28 Þegar ég kom í þennan heim, þá kom ég frá föðurnum. Ég yfirgef heiminn á ný og fer aftur til föðurins.“ 29 „Nú talar þú berum orðum en ekki í líkingum,“ sögðu lærisveinar hans. 30 „Nú vitum við að þú veist allt og þarft ekki að láta neinn segja þér neitt. Þess vegna trúum við líka að þú sért kominn frá Guði.“ 31 „Trúið þið því loksins?“ spurði Jesús. 32 „Stundin nálgast, hún er reyndar þegar komin, er þið tvístrist og snúið hver til síns heima en skiljið mig einan eftir. Þrátt fyrir það verð ég ekki einn, því að faðirinn verður hjá mér. 33 Þetta hef ég sagt ykkur til þess að þið haldið hugarró. Ykkar bíða þrengingar og sorgir í þessum heimi, en verið hughraustir, ég hef sigrað heiminn!“

In Other Versions

John 16 in the ANGEFD

John 16 in the ANTPNG2D

John 16 in the AS21

John 16 in the BAGH

John 16 in the BBPNG

John 16 in the BBT1E

John 16 in the BDS

John 16 in the BEV

John 16 in the BHAD

John 16 in the BIB

John 16 in the BLPT

John 16 in the BNT

John 16 in the BNTABOOT

John 16 in the BNTLV

John 16 in the BOATCB

John 16 in the BOATCB2

John 16 in the BOBCV

John 16 in the BOCNT

John 16 in the BOECS

John 16 in the BOGWICC

John 16 in the BOHCB

John 16 in the BOHCV

John 16 in the BOHLNT

John 16 in the BOHNTLTAL

John 16 in the BOICB

John 16 in the BOITCV

John 16 in the BOKCV

John 16 in the BOKCV2

John 16 in the BOKHWOG

John 16 in the BOKSSV

John 16 in the BOLCB

John 16 in the BOLCB2

John 16 in the BOMCV

John 16 in the BONAV

John 16 in the BONCB

John 16 in the BONLT

John 16 in the BONUT2

John 16 in the BOPLNT

John 16 in the BOSCB

John 16 in the BOSNC

John 16 in the BOTLNT

John 16 in the BOVCB

John 16 in the BOYCB

John 16 in the BPBB

John 16 in the BPH

John 16 in the BSB

John 16 in the CCB

John 16 in the CUV

John 16 in the CUVS

John 16 in the DBT

John 16 in the DGDNT

John 16 in the DHNT

John 16 in the DNT

John 16 in the ELBE

John 16 in the EMTV

John 16 in the ESV

John 16 in the FBV

John 16 in the FEB

John 16 in the GGMNT

John 16 in the GNT

John 16 in the HARY

John 16 in the HNT

John 16 in the IRVA

John 16 in the IRVB

John 16 in the IRVG

John 16 in the IRVH

John 16 in the IRVK

John 16 in the IRVM

John 16 in the IRVM2

John 16 in the IRVO

John 16 in the IRVP

John 16 in the IRVT

John 16 in the IRVT2

John 16 in the IRVU

John 16 in the ISVN

John 16 in the JSNT

John 16 in the KAPI

John 16 in the KBT1ETNIK

John 16 in the KBV

John 16 in the KJV

John 16 in the KNFD

John 16 in the LBA

John 16 in the LBLA

John 16 in the LNT

John 16 in the LSV

John 16 in the MAAL

John 16 in the MBV

John 16 in the MBV2

John 16 in the MHNT

John 16 in the MKNFD

John 16 in the MNG

John 16 in the MNT

John 16 in the MNT2

John 16 in the MRS1T

John 16 in the NAA

John 16 in the NASB

John 16 in the NBLA

John 16 in the NBS

John 16 in the NBVTP

John 16 in the NET2

John 16 in the NIV11

John 16 in the NNT

John 16 in the NNT2

John 16 in the NNT3

John 16 in the PDDPT

John 16 in the PFNT

John 16 in the RMNT

John 16 in the SBIAS

John 16 in the SBIBS

John 16 in the SBIBS2

John 16 in the SBICS

John 16 in the SBIDS

John 16 in the SBIGS

John 16 in the SBIHS

John 16 in the SBIIS

John 16 in the SBIIS2

John 16 in the SBIIS3

John 16 in the SBIKS

John 16 in the SBIKS2

John 16 in the SBIMS

John 16 in the SBIOS

John 16 in the SBIPS

John 16 in the SBISS

John 16 in the SBITS

John 16 in the SBITS2

John 16 in the SBITS3

John 16 in the SBITS4

John 16 in the SBIUS

John 16 in the SBIVS

John 16 in the SBT

John 16 in the SBT1E

John 16 in the SCHL

John 16 in the SNT

John 16 in the SUSU

John 16 in the SUSU2

John 16 in the SYNO

John 16 in the TBIAOTANT

John 16 in the TBT1E

John 16 in the TBT1E2

John 16 in the TFTIP

John 16 in the TFTU

John 16 in the TGNTATF3T

John 16 in the THAI

John 16 in the TNFD

John 16 in the TNT

John 16 in the TNTIK

John 16 in the TNTIL

John 16 in the TNTIN

John 16 in the TNTIP

John 16 in the TNTIZ

John 16 in the TOMA

John 16 in the TTENT

John 16 in the UBG

John 16 in the UGV

John 16 in the UGV2

John 16 in the UGV3

John 16 in the VBL

John 16 in the VDCC

John 16 in the YALU

John 16 in the YAPE

John 16 in the YBVTP

John 16 in the ZBP