Mark 4 (BOILNTAP)

1 Seinna, þegar mikill fjöldi hafði safnast að honum á strönd Galíleuvatnsins, fór hann út í bát og talaði þaðan til fólksins. 2 Hann var vanur að kenna fólkinu í dæmisögum og hér er ein þeirra: 3 „Takið eftir! Bóndi nokkur fór út á akur að sá korni. 4 Er hann sáði féll sumt af sáðkorninu á götuna og fuglarnir komu og átu það upp. 5 5,6 Sumt féll í grýtta jörð, þar sem jarðvegur var grunnur. Það korn spratt fljótt, en skrælnaði fyrr en varði í hitanum og dó, því það hafði nær engar rætur. 7 Annað lenti meðal þyrna sem uxu yfir það og kæfðu það. 8 En sumt af útsæðinu féll í góða jörð og gaf af sér þrítugfalda, sextugfalda eða jafnvel hundraðfalda uppskeru. 9 Sá sem hefur eyru til að heyra, taki eftir þessu.“ 10 Þegar Jesús var orðinn einn með lærisveinunum spurðu þeir hann: „Hvað þýðir sagan sem þú sagðir áðan?“ 11 11,12 Jesús svaraði: „Þið fáið að læra margt um guðsríkið, sem hulið er þeim er utan við það standa. Jesaja spámaður sagði: „Þótt þeir sjái og heyri, skilja þeir ekki, né snúa sér til Guðs til þess að fá syndir sínar fyrirgefnar.“ 13 Hvernig fer um allar hinar dæmisögurnar, ef þið skiljið ekki þessa einföldu sögu. 14 Bóndinn, sem ég sagði ykkur frá, er sá sem flytur öðrum boðskap Guðs. Hann reynir að sá góðu sæði í hjörtu fólksins. 15 Troðni stígurinn, þar sem sumt af korninu féll, lýsir hörðum hjörtum, sem heyra orð Guðs, en Satan kemur þegar í stað og reynir að fá þau til að gleyma því. 16 Grýtti jarðvegurinn lýsir hjörtum þeirra sem hlusta með ánægju, 17 en það fer fyrir þeim eins og fyrir ungum plöntum í slíkum jarðvegi, ræturnar ná ekki djúpt og þó allt gangi vel í byrjun, þá visna þær – þeir gefast upp jafnskjótt og andstaða og erfiðleikar byrja. 18 Þyrnarnir lýsa hjörtum þeirra sem hlusta á gleðitíðindin og taka við þeim. 19 En fyrr en varir hefur athygli þeirra beinst að því sem heimurinn hefur að bjóða og að táli auðæfanna. Löngun í metorð og alls kyns gæði gagntekur hug þeirra, svo þar verður ekkert rúm fyrir orð Guðs. Afleiðingin verður sú að fræið ber engan þroskaðan ávöxt. 20 Góði jarðvegurinn táknar hjörtu þeirra sem í sannleika hlusta á Guðs orð og taka við því heils hugar og bera ríkulegan ávöxt – þrjátíu, sextíu eða jafnvel hundrað sinnum meira en upphaflega var sáð til í hjörtu þeirra.“ 21 Jesús sagði við lærisveinana: „Á að byrgja ljósið, þegar kveikt hefur verið á lampanum eða setja hann undir bekk? Nei, auðvitað ekki, því þá kæmi ljósið að engum notum! Lampinn er látinn á góðan stað til að lýsa sem best. 22 Dag einn mun allt sem nú er hulið koma í ljós. 23 Hlustið, þið sem eyru hafið! 24 Gætið þess um fram allt að gera eins og ég segi ykkur, leggið ykkur fram við að skilja orð mín. 25 Þeim sem hefur, mun verða gefið, en frá þeim sem ekkert á, mun jafnvel verða tekið það sem hann hefur. 26 Hér er önnur líking um guðsríki: Bóndi sáði í akur sinn. 27 Tíminn leið og kornið óx dag og nótt án þess að maðurinn hjálpaði þar nokkuð til. 28 Moldin gaf vöxtinn. Fyrst skutu kímblöðin upp kollinum og síðar mynduðust öxin á kornstönglunum og að lokum þroskaðist kornið. 29 Þá kom bóndinn með sigðina og skar kornið.“ 30 Síðan spurði Jesús: „Hverju líkist guðsríki? Hvaða dæmisögu eigum við að nota til að lýsa því? 31 31,32 Það er eins og örlítið sinnepsfræ! Þótt þetta fræ sé minnsta allra frækorna, þá vex upp af því jurt sem verður öllum jurtum stærri og ber langar greinar þar sem fuglarnir geta byggt hreiður sín og leitað skjóls.“ 33 Þannig fræddi Jesús fólkið með dæmisögum sem voru í samræmi við skilning þess, 34 dæmisögulaust talaði hann ekki til þess. Þegar hann var orðinn einn með lærisveinum sínum eftir slíkar stundir, útskýrði hann dæmisögurnar fyrir þeim. 35 Þegar kvöldaði sagði Jesús við lærisveinana: „Við skulum fara yfir vatnið.“ 36 Þá yfirgáfu þeir fólkið á ströndinni og lögðu af stað. Nokkrir bátar fylgdu á eftir þeim. 37 Skyndilega gerði mikið rok og gaf mjög á bátinn, svo við lá að hann fyllti. 38 Jesús svaf í skutnum og hafði kodda undir höfðinu. Lærisveinarnir vöktu hann skelfingu lostnir og hrópuðu: „Meistari, sérðu ekki að við erum að farast?“ 39 Þá hastaði Jesús á vindinn og sagði við vatnið: „Hafðu hægt um þig.“ Þá lygndi og allt varð kyrrt og hljótt! 40 Síðan sneri hann sér að þeim og spurði: „Hvers vegna voruð þið svona hræddir? Hafið þið ekki enn lært að treysta mér?“ 41 Hræddir, en fullir lotningar, sögðu þeir hver við annan: „Hver er þessi maður? Bæði vindur og vatn hlýða honum.“

In Other Versions

Mark 4 in the ANGEFD

Mark 4 in the ANTPNG2D

Mark 4 in the AS21

Mark 4 in the BAGH

Mark 4 in the BBPNG

Mark 4 in the BBT1E

Mark 4 in the BDS

Mark 4 in the BEV

Mark 4 in the BHAD

Mark 4 in the BIB

Mark 4 in the BLPT

Mark 4 in the BNT

Mark 4 in the BNTABOOT

Mark 4 in the BNTLV

Mark 4 in the BOATCB

Mark 4 in the BOATCB2

Mark 4 in the BOBCV

Mark 4 in the BOCNT

Mark 4 in the BOECS

Mark 4 in the BOGWICC

Mark 4 in the BOHCB

Mark 4 in the BOHCV

Mark 4 in the BOHLNT

Mark 4 in the BOHNTLTAL

Mark 4 in the BOICB

Mark 4 in the BOITCV

Mark 4 in the BOKCV

Mark 4 in the BOKCV2

Mark 4 in the BOKHWOG

Mark 4 in the BOKSSV

Mark 4 in the BOLCB

Mark 4 in the BOLCB2

Mark 4 in the BOMCV

Mark 4 in the BONAV

Mark 4 in the BONCB

Mark 4 in the BONLT

Mark 4 in the BONUT2

Mark 4 in the BOPLNT

Mark 4 in the BOSCB

Mark 4 in the BOSNC

Mark 4 in the BOTLNT

Mark 4 in the BOVCB

Mark 4 in the BOYCB

Mark 4 in the BPBB

Mark 4 in the BPH

Mark 4 in the BSB

Mark 4 in the CCB

Mark 4 in the CUV

Mark 4 in the CUVS

Mark 4 in the DBT

Mark 4 in the DGDNT

Mark 4 in the DHNT

Mark 4 in the DNT

Mark 4 in the ELBE

Mark 4 in the EMTV

Mark 4 in the ESV

Mark 4 in the FBV

Mark 4 in the FEB

Mark 4 in the GGMNT

Mark 4 in the GNT

Mark 4 in the HARY

Mark 4 in the HNT

Mark 4 in the IRVA

Mark 4 in the IRVB

Mark 4 in the IRVG

Mark 4 in the IRVH

Mark 4 in the IRVK

Mark 4 in the IRVM

Mark 4 in the IRVM2

Mark 4 in the IRVO

Mark 4 in the IRVP

Mark 4 in the IRVT

Mark 4 in the IRVT2

Mark 4 in the IRVU

Mark 4 in the ISVN

Mark 4 in the JSNT

Mark 4 in the KAPI

Mark 4 in the KBT1ETNIK

Mark 4 in the KBV

Mark 4 in the KJV

Mark 4 in the KNFD

Mark 4 in the LBA

Mark 4 in the LBLA

Mark 4 in the LNT

Mark 4 in the LSV

Mark 4 in the MAAL

Mark 4 in the MBV

Mark 4 in the MBV2

Mark 4 in the MHNT

Mark 4 in the MKNFD

Mark 4 in the MNG

Mark 4 in the MNT

Mark 4 in the MNT2

Mark 4 in the MRS1T

Mark 4 in the NAA

Mark 4 in the NASB

Mark 4 in the NBLA

Mark 4 in the NBS

Mark 4 in the NBVTP

Mark 4 in the NET2

Mark 4 in the NIV11

Mark 4 in the NNT

Mark 4 in the NNT2

Mark 4 in the NNT3

Mark 4 in the PDDPT

Mark 4 in the PFNT

Mark 4 in the RMNT

Mark 4 in the SBIAS

Mark 4 in the SBIBS

Mark 4 in the SBIBS2

Mark 4 in the SBICS

Mark 4 in the SBIDS

Mark 4 in the SBIGS

Mark 4 in the SBIHS

Mark 4 in the SBIIS

Mark 4 in the SBIIS2

Mark 4 in the SBIIS3

Mark 4 in the SBIKS

Mark 4 in the SBIKS2

Mark 4 in the SBIMS

Mark 4 in the SBIOS

Mark 4 in the SBIPS

Mark 4 in the SBISS

Mark 4 in the SBITS

Mark 4 in the SBITS2

Mark 4 in the SBITS3

Mark 4 in the SBITS4

Mark 4 in the SBIUS

Mark 4 in the SBIVS

Mark 4 in the SBT

Mark 4 in the SBT1E

Mark 4 in the SCHL

Mark 4 in the SNT

Mark 4 in the SUSU

Mark 4 in the SUSU2

Mark 4 in the SYNO

Mark 4 in the TBIAOTANT

Mark 4 in the TBT1E

Mark 4 in the TBT1E2

Mark 4 in the TFTIP

Mark 4 in the TFTU

Mark 4 in the TGNTATF3T

Mark 4 in the THAI

Mark 4 in the TNFD

Mark 4 in the TNT

Mark 4 in the TNTIK

Mark 4 in the TNTIL

Mark 4 in the TNTIN

Mark 4 in the TNTIP

Mark 4 in the TNTIZ

Mark 4 in the TOMA

Mark 4 in the TTENT

Mark 4 in the UBG

Mark 4 in the UGV

Mark 4 in the UGV2

Mark 4 in the UGV3

Mark 4 in the VBL

Mark 4 in the VDCC

Mark 4 in the YALU

Mark 4 in the YAPE

Mark 4 in the YBVTP

Mark 4 in the ZBP