Romans 2 (BOILNTAP)

1 „Ja, hérna,“ segir þú ef til vill, „hvers konar úrþvætti ertu eiginlega að tala um?“ En sjáðu til! Þú ert ekkert betri! Þegar þið lýsið vanþóknun ykkar á þessu fólki og segið að það eigi skilið hegningu, þá eruð þið að tala um ykkur sjálf, því að þið gerið sjálf það sama. 2 Við vitum að Guð mun dæma sérhvern þann sem slíkt gerir, því að hann er réttlátur. 3 Haldið þið að Guð dæmi suma sem þannig lifa og refsi þeim, en geri síðan enga athugasemd við ykkur þegar þið gerið það sama? 4 Sjáið þið ekki hve mikla þolinmæði hann hefur sýnt ykkur? Eða er ykkur ef til vill alveg sama? Skiljið þið ekki að ástæða þess að hann hefur ekki refsað ykkur, er sú að hann gefur ykkur tækifæri til að snúa baki við syndinni? Góðsemi hans ætti að leiða ykkur til iðrunar. 5 Þrátt fyrir það viljið þið ekki hlusta og þar með kallið þið yfir ykkur hræðilega hegningu, því þið eruð þrjósk og viljið ekki snúa ykkur frá syndinni. Dagur reiðinnar mun renna upp og þá mun Guð dæma allan heiminn af réttvísi. 6 Hann mun gjalda sérhverjum eins og hann á skilið samkvæmt verkum sínum: 7 Þeim sem af þrautseigju gera Guðs vilja, mun hann gefa eilíft líf, það er að segja þeim sem leita ósýnilegrar dýrðar, heiðurs og ódauðleika. 8 Þeim hins vegar, sem berjast gegn sannleika Guðs og ganga á vegi illskunnar, mun hann refsa hræðilega – hann mun úthella reiði sinni yfir þá. 9 Menn munu uppskera sorg og þjáningar haldi þeir áfram í syndinni, 10 en hlýði þeir Guði, mun þeim hlotnast dýrð, heiður og friður Guðs. Þetta á bæði við um Gyðinga og heiðingja, 11 því Guð fer ekki í manngreinarálit. 12 12-15 Guð mun refsa fyrir synd, hvar sem hún finnst. Hann mun refsa heiðingjunum þegar þeir syndga, jafnvel þótt þeir hafi aldrei þekkt hin skráðu lög Guðs, því að innra með sér þekkja þeir muninn á réttu og röngu. Lög Guðs eru skráð í vitund þeirra. Stundum dæmir samviskan þá og stundum afsakar hún þá. En Guð mun einnig refsa Gyðingum. Hann mun refsa þeim fyrir syndir þeirra, því að þeir eiga lög hans skráð í bók en hlýða þeim þó ekki. Þeir vita hvað er rangt, en breyta gegn betri vitund. Þegar öllu er á botninn hvolft er hjálpræðið ekki þeirra sem þekkja mun á réttu og röngu, heldur hinna sem gera það sem rétt er. 16 Sá dagur mun vissulega koma, er Jesús Kristur mun að boði Guðs dæma líferni sérhvers manns og líka dýpstu hugsanir hans og viðhorf. Allt er þetta hluti hinnar miklu fyrirætlunar Guðs, sem ég boða. 17 Gyðingar, þið haldið að allt sé á hreinu milli ykkar og Guðs vegna þess að þið eruð Gyðingar og vegna þess að hann gaf ykkur lög sín. Þið gortið af því að vera í sérstöku uppáhaldi hjá Guði! 18 Ekki neita ég því að þið þekkið vilja hans; þið þekkið mun á réttu og röngu og hafið vit á að velja hið rétta, því að ykkur hafa verið kennd lög Guðs frá blautu barnsbeini. 19 Þið eruð svo vissir um leiðina til Guðs að þið gætuð jafnvel bent blindum manni á hana. Þið álítið ykkur vera leiðarljós sem leiðbeina þeim til Guðs, sem villst hafa í myrkrinu. 20 Þið teljið ykkur geta leiðbeint hinum lítilmótlegu og frætt börnin um verk Guðs, því að þið þekkið lög hans, vísdóm og sannleika. 21 Þið fræðið aðra um lög hans, en hvers vegna farið þið ekki sjálfir eftir þeim? Þið segið fólki að rangt sé að stela – en stelið þið ekki sjálfir? 22 Þið segið að rangt sé að drýgja hór, en hvað með ykkur? Þið segið: „Tilbiðjið ekki skurðgoðin,“ en svo gerið þið peningana að guði ykkar. 23 Þið eruð ákaflega stoltir af því að þekkja lög Guðs en síðan lítilsvirðið þið Guð með því að brjóta þau. 24 Ekki undrar mig þótt Gamla testamentið segi að heimurinn tali illa um Guð ykkar vegna. 25 Það er kostur fyrir ykkur að vera Gyðingar ef þið hlýðið lögum Guðs, en ef ekki, þá eruð þið engu betur settir en heiðingjarnir. 26 Mun Guð ekki veita heiðingjunum alla þá blessun sem hann ætlaði Gyðingunum, ef þeir hlýða lögum hans? 27 Staðreyndin er sú að betur mun fara fyrir heiðingjunum en ykkur, Gyðingum, sem þekkið Guð og eigið loforð hans, því að þið hlýðið þeim ekki. 28 Þið eruð ekki sannir Gyðingar fyrir það eitt að foreldrar ykkar voru Gyðingar eða vegna þess að þið hlutuð hina gyðinglegu vígslu, umskurnina. 29 Nei, sá einn er sannur Gyðingur sem hefur rétta afstöðu til Guðs. Guð sækist ekki eftir þeim sem skera í líkama sinn samkvæmt gyðinglegri venju, heldur þeim sem hafa breytt hugarfari sínu og endurnýjað samband sitt við Guð. Hver sem þannig tekur upp nýja lífsstefnu, hlýtur blessun Guðs, jafnvel þótt hann láti sér fátt um finnast.

In Other Versions

Romans 2 in the ANGEFD

Romans 2 in the ANTPNG2D

Romans 2 in the AS21

Romans 2 in the BAGH

Romans 2 in the BBPNG

Romans 2 in the BBT1E

Romans 2 in the BDS

Romans 2 in the BEV

Romans 2 in the BHAD

Romans 2 in the BIB

Romans 2 in the BLPT

Romans 2 in the BNT

Romans 2 in the BNTABOOT

Romans 2 in the BNTLV

Romans 2 in the BOATCB

Romans 2 in the BOATCB2

Romans 2 in the BOBCV

Romans 2 in the BOCNT

Romans 2 in the BOECS

Romans 2 in the BOGWICC

Romans 2 in the BOHCB

Romans 2 in the BOHCV

Romans 2 in the BOHLNT

Romans 2 in the BOHNTLTAL

Romans 2 in the BOICB

Romans 2 in the BOITCV

Romans 2 in the BOKCV

Romans 2 in the BOKCV2

Romans 2 in the BOKHWOG

Romans 2 in the BOKSSV

Romans 2 in the BOLCB

Romans 2 in the BOLCB2

Romans 2 in the BOMCV

Romans 2 in the BONAV

Romans 2 in the BONCB

Romans 2 in the BONLT

Romans 2 in the BONUT2

Romans 2 in the BOPLNT

Romans 2 in the BOSCB

Romans 2 in the BOSNC

Romans 2 in the BOTLNT

Romans 2 in the BOVCB

Romans 2 in the BOYCB

Romans 2 in the BPBB

Romans 2 in the BPH

Romans 2 in the BSB

Romans 2 in the CCB

Romans 2 in the CUV

Romans 2 in the CUVS

Romans 2 in the DBT

Romans 2 in the DGDNT

Romans 2 in the DHNT

Romans 2 in the DNT

Romans 2 in the ELBE

Romans 2 in the EMTV

Romans 2 in the ESV

Romans 2 in the FBV

Romans 2 in the FEB

Romans 2 in the GGMNT

Romans 2 in the GNT

Romans 2 in the HARY

Romans 2 in the HNT

Romans 2 in the IRVA

Romans 2 in the IRVB

Romans 2 in the IRVG

Romans 2 in the IRVH

Romans 2 in the IRVK

Romans 2 in the IRVM

Romans 2 in the IRVM2

Romans 2 in the IRVO

Romans 2 in the IRVP

Romans 2 in the IRVT

Romans 2 in the IRVT2

Romans 2 in the IRVU

Romans 2 in the ISVN

Romans 2 in the JSNT

Romans 2 in the KAPI

Romans 2 in the KBT1ETNIK

Romans 2 in the KBV

Romans 2 in the KJV

Romans 2 in the KNFD

Romans 2 in the LBA

Romans 2 in the LBLA

Romans 2 in the LNT

Romans 2 in the LSV

Romans 2 in the MAAL

Romans 2 in the MBV

Romans 2 in the MBV2

Romans 2 in the MHNT

Romans 2 in the MKNFD

Romans 2 in the MNG

Romans 2 in the MNT

Romans 2 in the MNT2

Romans 2 in the MRS1T

Romans 2 in the NAA

Romans 2 in the NASB

Romans 2 in the NBLA

Romans 2 in the NBS

Romans 2 in the NBVTP

Romans 2 in the NET2

Romans 2 in the NIV11

Romans 2 in the NNT

Romans 2 in the NNT2

Romans 2 in the NNT3

Romans 2 in the PDDPT

Romans 2 in the PFNT

Romans 2 in the RMNT

Romans 2 in the SBIAS

Romans 2 in the SBIBS

Romans 2 in the SBIBS2

Romans 2 in the SBICS

Romans 2 in the SBIDS

Romans 2 in the SBIGS

Romans 2 in the SBIHS

Romans 2 in the SBIIS

Romans 2 in the SBIIS2

Romans 2 in the SBIIS3

Romans 2 in the SBIKS

Romans 2 in the SBIKS2

Romans 2 in the SBIMS

Romans 2 in the SBIOS

Romans 2 in the SBIPS

Romans 2 in the SBISS

Romans 2 in the SBITS

Romans 2 in the SBITS2

Romans 2 in the SBITS3

Romans 2 in the SBITS4

Romans 2 in the SBIUS

Romans 2 in the SBIVS

Romans 2 in the SBT

Romans 2 in the SBT1E

Romans 2 in the SCHL

Romans 2 in the SNT

Romans 2 in the SUSU

Romans 2 in the SUSU2

Romans 2 in the SYNO

Romans 2 in the TBIAOTANT

Romans 2 in the TBT1E

Romans 2 in the TBT1E2

Romans 2 in the TFTIP

Romans 2 in the TFTU

Romans 2 in the TGNTATF3T

Romans 2 in the THAI

Romans 2 in the TNFD

Romans 2 in the TNT

Romans 2 in the TNTIK

Romans 2 in the TNTIL

Romans 2 in the TNTIN

Romans 2 in the TNTIP

Romans 2 in the TNTIZ

Romans 2 in the TOMA

Romans 2 in the TTENT

Romans 2 in the UBG

Romans 2 in the UGV

Romans 2 in the UGV2

Romans 2 in the UGV3

Romans 2 in the VBL

Romans 2 in the VDCC

Romans 2 in the YALU

Romans 2 in the YAPE

Romans 2 in the YBVTP

Romans 2 in the ZBP