Colossians 1 (BOILNTAP)

1 Frá Páli, sem Guð hefur valið til að vera boðberi Jesú Krists, og frá bróður Tímóteusi. 2 Til ykkar, trúuðu vinir – fólks Guðs – í Kólossu.Ég bið þess að Guð faðir úthelli blessun sinni yfir ykkur og fylli ykkur friði sínum. 3 Í hvert sinn sem við biðjum fyrir ykkur þökkum við Guði, föður Drottins Jesú Krists, 4 því að við höfum heyrt um traust ykkar til Drottins og innilegan kærleika til þeirra sem á hann trúa. 5 Það er auðséð að þið hlakkið til að komast til himins! Það var í fagnaðarerindinu sem þið fyrst heyrðuð um þann yndislega stað. 6 Fagnaðarerindið, sem þið heyrðuð, berst nú um allan heim og breytir hvarvetna lífi fólks, alveg eins og það breytti lífi ykkar strax fyrsta daginn sem þið heyrðuð það – þegar ykkur varð ljós sá mikli kærleikur sem Guð ber til syndugra manna. 7 Það var Epafras, okkar heittelskaði samstarfsmaður, sem flutti ykkur gleðiboðskapinn. Nú er þessi þjónn Jesú Krists hér í ykkar stað til að hjálpa okkur. 8 Hann hefur sagt okkur frá kærleika ykkar til annarra manna og þann kærleika hefur heilagur andi gefið ykkur. 9 Þess vegna höfum við haldið áfram að biðja Guð, allt frá því er við fréttum fyrst af ykkur, að hann hjálpi ykkur að skilja vilja sinn og breyta eftir honum. Við höfum beðið hann að auka andlegan skilning ykkar 10 og helga líferni ykkar, svo að þið verðið honum til dýrðar og stundið það eitt sem gott er, öðrum til hjálpar. 11 Þar að auki biðjum við hann að styrkja ykkur og fylla af sínum dýrlega mætti. Þá getið þið haldið áfram, á hverju sem gengur, 12 og þakkað föðurnum, sem hefur gefið okkur hlutdeild í öllum þeim gæðum sem tilheyra ríki ljóssins. 13 Hann hefur hrifið okkur frá valdi myrkursins, úr ríki Satans, og leitt okkur inn í ríki síns elskaða sonar, 14 sem keypti okkur frelsi með krossdauða sínum og fyrirgaf okkur syndirnar. 15 Kristur er sýnileg mynd hins ósýnilega Guðs. Hann var til áður en Guð skapaði heiminn. 16 Það var reyndar hans vegna sem allt var skapað á himni og jörðu, bæði það sem sést og einnig hið ósýnilega – hinn andlegi heimur með tignum sínum og völdum. Krists vegna varð allt þetta til, honum til dýrðar og þjónustu. 17 Hann var á undan öllu öðru og það er hans kraftur sem viðheldur því. 18 Hann er höfuð líkamans, en líkaminn er fólk hans – söfnuðurinn, kirkjan. Kirkjan á upphaf sitt í honum og hann er leiðtoginn – hinn fyrsti sem rís upp frá dauðum. Þannig er hann fremstur í öllu. 19 Það var vilji Guðs að allir eiginleikar guðdómsins væru í syninum. 20 Með lífi Jesú og starfi opnaði Guð allri sköpun sinni – bæði á himni og jörðu – leið til sín. Með krossdauða sínum, blóði sínu, kom hann á friði milli Guðs og alls á himni og jörðu – ykkar líka. 21 Því að þið voruð eitt sinn fjarri Guði og óvinir hans. Þið vilduð ekkert af honum vita. Hugsanir ykkar og verk voru eins og veggur milli ykkar og hans. En þrátt fyrir það hefur Jesús leitt ykkur til sín sem vini sína. 22 Það gerði hann með því að deyja á krossi sem raunverulegur, sannur maður og því næst hefur hann leitt ykkur til samfélags við Guð. Þar standið þið nú, helguð og að fullu sýknuð í hans augum. 23 Það eina sem Guð krefst, er að þið trúið sannleikanum eins og hann er. Standið föst og óhagganleg í þeirri sannfæringu að gleðiboðskapurinn um að Jesús hafi dáið fyrir ykkur sé sannur og að þið hvikið aldrei frá þeirri trú að hann hafi frelsað ykkur. Þennan undursamlega boðskap fenguð þið að heyra hvert og eitt og nú breiðist hann út um allan heiminn, og hef ég, Páll, verið svo gæfusamur að fá að taka þátt í því. 24 Einn þáttur í starfi mínu er að þjást ykkar vegna og ég gleðst yfir að fá að gera það, því að þannig hjálpa ég til við að fullkomna það, sem enn vantar á þjáningar Krists, vegna líkama hans, safnaðarins. 25 Guð hefur sent mig til að hjálpa söfnuði sínum – kirkjunni – og birta ykkur fyrirætlun sína, sem enginn þekkti. 26 26,27 Aldir liðu, kynslóðir komu og fóru, og hann gætti leyndarmálsins; en nú hefur honum þóknast að segja það þeim sem elska hann og lifa fyrir hann. Þið voruð heiðingjar en hans dýrlega áætlun nær einnig til ykkar! Og þetta er leyndarmálið: Kristur, sem nú lifir í hjörtum ykkar, er ykkar eina von um eilíft líf. 28 Þess vegna segjum við líka öllum sem vilja hlusta, hvar sem er, frá Kristi og leiðbeinum þeim og fræðum eins vel og við getum. Við þráum að geta leitt hvern mann fullkominn fram fyrir Guð og það er hægt vegna þess sem Kristur gerði. 29 Að þessu erfiða ég og kraftinn – og hann er ekki lítill – fæ ég frá Kristi.

In Other Versions

Colossians 1 in the ANGEFD

Colossians 1 in the ANTPNG2D

Colossians 1 in the AS21

Colossians 1 in the BAGH

Colossians 1 in the BBPNG

Colossians 1 in the BBT1E

Colossians 1 in the BDS

Colossians 1 in the BEV

Colossians 1 in the BHAD

Colossians 1 in the BIB

Colossians 1 in the BLPT

Colossians 1 in the BNT

Colossians 1 in the BNTABOOT

Colossians 1 in the BNTLV

Colossians 1 in the BOATCB

Colossians 1 in the BOATCB2

Colossians 1 in the BOBCV

Colossians 1 in the BOCNT

Colossians 1 in the BOECS

Colossians 1 in the BOGWICC

Colossians 1 in the BOHCB

Colossians 1 in the BOHCV

Colossians 1 in the BOHLNT

Colossians 1 in the BOHNTLTAL

Colossians 1 in the BOICB

Colossians 1 in the BOITCV

Colossians 1 in the BOKCV

Colossians 1 in the BOKCV2

Colossians 1 in the BOKHWOG

Colossians 1 in the BOKSSV

Colossians 1 in the BOLCB

Colossians 1 in the BOLCB2

Colossians 1 in the BOMCV

Colossians 1 in the BONAV

Colossians 1 in the BONCB

Colossians 1 in the BONLT

Colossians 1 in the BONUT2

Colossians 1 in the BOPLNT

Colossians 1 in the BOSCB

Colossians 1 in the BOSNC

Colossians 1 in the BOTLNT

Colossians 1 in the BOVCB

Colossians 1 in the BOYCB

Colossians 1 in the BPBB

Colossians 1 in the BPH

Colossians 1 in the BSB

Colossians 1 in the CCB

Colossians 1 in the CUV

Colossians 1 in the CUVS

Colossians 1 in the DBT

Colossians 1 in the DGDNT

Colossians 1 in the DHNT

Colossians 1 in the DNT

Colossians 1 in the ELBE

Colossians 1 in the EMTV

Colossians 1 in the ESV

Colossians 1 in the FBV

Colossians 1 in the FEB

Colossians 1 in the GGMNT

Colossians 1 in the GNT

Colossians 1 in the HARY

Colossians 1 in the HNT

Colossians 1 in the IRVA

Colossians 1 in the IRVB

Colossians 1 in the IRVG

Colossians 1 in the IRVH

Colossians 1 in the IRVK

Colossians 1 in the IRVM

Colossians 1 in the IRVM2

Colossians 1 in the IRVO

Colossians 1 in the IRVP

Colossians 1 in the IRVT

Colossians 1 in the IRVT2

Colossians 1 in the IRVU

Colossians 1 in the ISVN

Colossians 1 in the JSNT

Colossians 1 in the KAPI

Colossians 1 in the KBT1ETNIK

Colossians 1 in the KBV

Colossians 1 in the KJV

Colossians 1 in the KNFD

Colossians 1 in the LBA

Colossians 1 in the LBLA

Colossians 1 in the LNT

Colossians 1 in the LSV

Colossians 1 in the MAAL

Colossians 1 in the MBV

Colossians 1 in the MBV2

Colossians 1 in the MHNT

Colossians 1 in the MKNFD

Colossians 1 in the MNG

Colossians 1 in the MNT

Colossians 1 in the MNT2

Colossians 1 in the MRS1T

Colossians 1 in the NAA

Colossians 1 in the NASB

Colossians 1 in the NBLA

Colossians 1 in the NBS

Colossians 1 in the NBVTP

Colossians 1 in the NET2

Colossians 1 in the NIV11

Colossians 1 in the NNT

Colossians 1 in the NNT2

Colossians 1 in the NNT3

Colossians 1 in the PDDPT

Colossians 1 in the PFNT

Colossians 1 in the RMNT

Colossians 1 in the SBIAS

Colossians 1 in the SBIBS

Colossians 1 in the SBIBS2

Colossians 1 in the SBICS

Colossians 1 in the SBIDS

Colossians 1 in the SBIGS

Colossians 1 in the SBIHS

Colossians 1 in the SBIIS

Colossians 1 in the SBIIS2

Colossians 1 in the SBIIS3

Colossians 1 in the SBIKS

Colossians 1 in the SBIKS2

Colossians 1 in the SBIMS

Colossians 1 in the SBIOS

Colossians 1 in the SBIPS

Colossians 1 in the SBISS

Colossians 1 in the SBITS

Colossians 1 in the SBITS2

Colossians 1 in the SBITS3

Colossians 1 in the SBITS4

Colossians 1 in the SBIUS

Colossians 1 in the SBIVS

Colossians 1 in the SBT

Colossians 1 in the SBT1E

Colossians 1 in the SCHL

Colossians 1 in the SNT

Colossians 1 in the SUSU

Colossians 1 in the SUSU2

Colossians 1 in the SYNO

Colossians 1 in the TBIAOTANT

Colossians 1 in the TBT1E

Colossians 1 in the TBT1E2

Colossians 1 in the TFTIP

Colossians 1 in the TFTU

Colossians 1 in the TGNTATF3T

Colossians 1 in the THAI

Colossians 1 in the TNFD

Colossians 1 in the TNT

Colossians 1 in the TNTIK

Colossians 1 in the TNTIL

Colossians 1 in the TNTIN

Colossians 1 in the TNTIP

Colossians 1 in the TNTIZ

Colossians 1 in the TOMA

Colossians 1 in the TTENT

Colossians 1 in the UBG

Colossians 1 in the UGV

Colossians 1 in the UGV2

Colossians 1 in the UGV3

Colossians 1 in the VBL

Colossians 1 in the VDCC

Colossians 1 in the YALU

Colossians 1 in the YAPE

Colossians 1 in the YBVTP

Colossians 1 in the ZBP