Hebrews 13 (BOILNTAP)

1 Haldið áfram að elska hvert annað með fórnfúsum kærleika. 2 Gleymið ekki gestrisninni því að sumir hafa, óafvitandi, tekið á móti englum. 3 Gleymið ekki föngunum, heldur takið þátt í þjáningum þeirra eins og þið sjálf væruð í þeirra sporum. Samhryggist þeim sem illt þola, því að sjálf hafið þið líkama. 4 Hjónabandið sé í heiðri haft og öll þau heit sem því fylgja. Lifið siðferðislega hreinu lífi, því að Guð mun sannarlega refsa öllum sem lifa í siðleysi og drýgja hór. 5 Varist alla ágirnd og látið ykkur nægja það sem þið hafið. Guð hefur sagt: „Ég mun aldrei, aldrei bregðast þér né yfirgefa þig.“ 6 Við getum því sagt, óttalaust og án efasemda: „Drottinn hjálpar mér og því óttast ég hvorki mennina né verk þeirra.“ 7 Minnist leiðtoga ykkar, sem hafa frætt ykkur um orð Guðs. Hugsið um allt hið góða, sem þeir komu til leiðar, og reynið að treysta Drottni á sama hátt og þeir. 8 Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og að eilífu. 9 Látið því engar nýjar og framandi kenningar hafa áhrif á ykkur. Styrkur ykkar kemur frá Guði, en ekki vissum reglum um mataræði – sú leið hefur reynst gagnslaus þeim er hana fóru. 10 Við höfum okkar altari – kross Krists – en það kemur þeim ekki að gagni, sem reyna að frelsast með hlýðni við lög Gyðinga. 11 Samkvæmt lögum Gyðinga, bar æðsti presturinn blóðið úr fórnardýrunum inn í helgidóminn – hið allra helgasta – sem syndafórn, og síðan voru hræin af þeim brennd fyrir utan borgina. 12 Þetta skýrir hvers vegna Jesús þjáðist og dó fyrir utan borgina. Þar afmáði hann syndir okkar með blóði sínu. 13 Göngum því út til hans, út fyrir borgina (það er að segja snúum baki við því sem heimurinn hefur mætur á og verum reiðubúin að þola fyrirlitningu) til að þjást þar með honum og bera smán hans. 14 Við erum aðeins gestir á þessari jörð, sem horfa fram á veginn til himins, því að þar munum við eiga heima að eilífu. 15 Með hjálp Jesú munum við enn bera lofgjörðarfórn fram fyrir Guð, með því að játa nafn hans meðal fólksins. 16 Gleymið ekki að gera öðrum gott og deila eigum ykkar með þeim sem þurfandi eru, slíkar fórnir eru Guði mjög að skapi. 17 Hlýðið ykkar andlegu leiðtogum með glöðu geði. Hlutverk þeirra er að vaka yfir sálum ykkar og Guð mun dæma þá eftir gerðum þeirra. Stuðlið að því að þeir geti minnst ykkar með gleði frammi fyrir Drottni, en ekki með hryggð, því að það yrði ykkur til ógagns. 18 Biðjið fyrir okkur að við höfum góða samvisku og breytum vel í öllum hlutum. 19 Ég þarfnast fyrirbæna ykkar á sérstakan hátt, einmitt nú, til þess að ég geti komist til ykkar sem fyrst. 20 20,21 Guð friðarins, sem vakti Drottin Jesú upp frá dauðum, annist allar þarfir ykkar, svo að þið getið gert vilja hans. Ég bið hann, hinn mikla hirði sauðanna, sem undirritaði eilífan sáttmála milli ykkar og Guðs með blóði sínu, að hann fullkomni ykkur í öllu góðu fyrir kraft Krists, svo að þið gerið hans vilja og séuð honum þóknanleg. Honum sé dýrðin að eilífu. Amen. 22 Vinir, ég bið ykkur að lokum að fara eftir því sem ég hef sagt í þessu bréfi. Það er ekki langt og ætti því að vera fljótlesið. 23 Ég vil gjarnan að þið vitið að bróðir Tímóteus er laus úr fangelsinu. Ef hann kemur hingað bráðlega, munum við verða samferða til ykkar. 24 24,25 Skilið kveðjum frá mér til leiðtoga ykkar og annarra trúaðra. Mennirnir frá Ítalíu, sem hér eru ásamt mér, senda ykkur kærar kveðjur. Náð Guðs sé með ykkur öllum. Amen.

In Other Versions

Hebrews 13 in the ANGEFD

Hebrews 13 in the ANTPNG2D

Hebrews 13 in the AS21

Hebrews 13 in the BAGH

Hebrews 13 in the BBPNG

Hebrews 13 in the BBT1E

Hebrews 13 in the BDS

Hebrews 13 in the BEV

Hebrews 13 in the BHAD

Hebrews 13 in the BIB

Hebrews 13 in the BLPT

Hebrews 13 in the BNT

Hebrews 13 in the BNTABOOT

Hebrews 13 in the BNTLV

Hebrews 13 in the BOATCB

Hebrews 13 in the BOATCB2

Hebrews 13 in the BOBCV

Hebrews 13 in the BOCNT

Hebrews 13 in the BOECS

Hebrews 13 in the BOGWICC

Hebrews 13 in the BOHCB

Hebrews 13 in the BOHCV

Hebrews 13 in the BOHLNT

Hebrews 13 in the BOHNTLTAL

Hebrews 13 in the BOICB

Hebrews 13 in the BOITCV

Hebrews 13 in the BOKCV

Hebrews 13 in the BOKCV2

Hebrews 13 in the BOKHWOG

Hebrews 13 in the BOKSSV

Hebrews 13 in the BOLCB

Hebrews 13 in the BOLCB2

Hebrews 13 in the BOMCV

Hebrews 13 in the BONAV

Hebrews 13 in the BONCB

Hebrews 13 in the BONLT

Hebrews 13 in the BONUT2

Hebrews 13 in the BOPLNT

Hebrews 13 in the BOSCB

Hebrews 13 in the BOSNC

Hebrews 13 in the BOTLNT

Hebrews 13 in the BOVCB

Hebrews 13 in the BOYCB

Hebrews 13 in the BPBB

Hebrews 13 in the BPH

Hebrews 13 in the BSB

Hebrews 13 in the CCB

Hebrews 13 in the CUV

Hebrews 13 in the CUVS

Hebrews 13 in the DBT

Hebrews 13 in the DGDNT

Hebrews 13 in the DHNT

Hebrews 13 in the DNT

Hebrews 13 in the ELBE

Hebrews 13 in the EMTV

Hebrews 13 in the ESV

Hebrews 13 in the FBV

Hebrews 13 in the FEB

Hebrews 13 in the GGMNT

Hebrews 13 in the GNT

Hebrews 13 in the HARY

Hebrews 13 in the HNT

Hebrews 13 in the IRVA

Hebrews 13 in the IRVB

Hebrews 13 in the IRVG

Hebrews 13 in the IRVH

Hebrews 13 in the IRVK

Hebrews 13 in the IRVM

Hebrews 13 in the IRVM2

Hebrews 13 in the IRVO

Hebrews 13 in the IRVP

Hebrews 13 in the IRVT

Hebrews 13 in the IRVT2

Hebrews 13 in the IRVU

Hebrews 13 in the ISVN

Hebrews 13 in the JSNT

Hebrews 13 in the KAPI

Hebrews 13 in the KBT1ETNIK

Hebrews 13 in the KBV

Hebrews 13 in the KJV

Hebrews 13 in the KNFD

Hebrews 13 in the LBA

Hebrews 13 in the LBLA

Hebrews 13 in the LNT

Hebrews 13 in the LSV

Hebrews 13 in the MAAL

Hebrews 13 in the MBV

Hebrews 13 in the MBV2

Hebrews 13 in the MHNT

Hebrews 13 in the MKNFD

Hebrews 13 in the MNG

Hebrews 13 in the MNT

Hebrews 13 in the MNT2

Hebrews 13 in the MRS1T

Hebrews 13 in the NAA

Hebrews 13 in the NASB

Hebrews 13 in the NBLA

Hebrews 13 in the NBS

Hebrews 13 in the NBVTP

Hebrews 13 in the NET2

Hebrews 13 in the NIV11

Hebrews 13 in the NNT

Hebrews 13 in the NNT2

Hebrews 13 in the NNT3

Hebrews 13 in the PDDPT

Hebrews 13 in the PFNT

Hebrews 13 in the RMNT

Hebrews 13 in the SBIAS

Hebrews 13 in the SBIBS

Hebrews 13 in the SBIBS2

Hebrews 13 in the SBICS

Hebrews 13 in the SBIDS

Hebrews 13 in the SBIGS

Hebrews 13 in the SBIHS

Hebrews 13 in the SBIIS

Hebrews 13 in the SBIIS2

Hebrews 13 in the SBIIS3

Hebrews 13 in the SBIKS

Hebrews 13 in the SBIKS2

Hebrews 13 in the SBIMS

Hebrews 13 in the SBIOS

Hebrews 13 in the SBIPS

Hebrews 13 in the SBISS

Hebrews 13 in the SBITS

Hebrews 13 in the SBITS2

Hebrews 13 in the SBITS3

Hebrews 13 in the SBITS4

Hebrews 13 in the SBIUS

Hebrews 13 in the SBIVS

Hebrews 13 in the SBT

Hebrews 13 in the SBT1E

Hebrews 13 in the SCHL

Hebrews 13 in the SNT

Hebrews 13 in the SUSU

Hebrews 13 in the SUSU2

Hebrews 13 in the SYNO

Hebrews 13 in the TBIAOTANT

Hebrews 13 in the TBT1E

Hebrews 13 in the TBT1E2

Hebrews 13 in the TFTIP

Hebrews 13 in the TFTU

Hebrews 13 in the TGNTATF3T

Hebrews 13 in the THAI

Hebrews 13 in the TNFD

Hebrews 13 in the TNT

Hebrews 13 in the TNTIK

Hebrews 13 in the TNTIL

Hebrews 13 in the TNTIN

Hebrews 13 in the TNTIP

Hebrews 13 in the TNTIZ

Hebrews 13 in the TOMA

Hebrews 13 in the TTENT

Hebrews 13 in the UBG

Hebrews 13 in the UGV

Hebrews 13 in the UGV2

Hebrews 13 in the UGV3

Hebrews 13 in the VBL

Hebrews 13 in the VDCC

Hebrews 13 in the YALU

Hebrews 13 in the YAPE

Hebrews 13 in the YBVTP

Hebrews 13 in the ZBP