John 17 (BOILNTAP)

1 Að svo mæltu leit Jesús til himins og sagði: „Faðir, stundin er komin. Gerðu nú son þinn dýrlegan, svo að hann geti vegsamað þig. 2 Þú hefur gefið honum vald yfir sérhverjum manni á þessari jörð. Öllum þeim, sem þú hefur gefið mér, hef ég gefið eilíft líf. 3 Eilíft líf er það að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. 4 Ég vegsamaði þig hér á jörðinni, með því að gera allt sem þú bauðst mér. 5 Faðir, þegar ég stend frammi fyrir þér, veittu mér þá hlut í dýrðinni, sem við áttum saman áður en heimurinn varð til. 6 Ég hef sagt þessum mönnum allt um þig. Þeir voru í heiminum og þú gafst mér þá. Þeir tilheyrðu þér, og þú gafst mér þá, og þeir hafa hlýðnast orðum þínum. 7 Nú vita þeir að allt sem tilheyrir mér, er gjöf frá þér, 8 því að fyrirmælin sem þú gafst mér, flutti ég þeim og þeir tóku við þeim. Nú vita þeir með vissu að ég kom frá þér og trúa að þú hafir sent mig. 9 Ég bið ekki fyrir heiminum, heldur fyrir þeim sem þú gafst mér úr heiminum, því að þeir eru þínir. 10 Og nú er ég orðinn dýrlegur í þeim. 11 Nú yfirgef ég þennan heim og ég skil þá eftir og kem til þín. Heilagi faðir, varðveittu alla þá sem þú hefur gefið mér, svo þeir séu sameinaðir, rétt eins og við, og enginn verði þar undanskilinn. 12 Þann tíma sem ég hef verið hér hef ég gætt allra þeirra sem þú gafst mér. Ég stóð vörð um þá, svo að enginn þeirra týndist, nema sá sem hlaut að glatast, eins og ritningin hafði sagt fyrir um. 13 Faðir, nú kem ég til þín. Þennan tíma, sem ég hef verið með þeim, hef ég sagt þeim margt, svo að gleði mín gagntæki þá. 14 Ég hef flutt þeim fyrirmæli þín. Þeir tilheyra ekki heiminum fremur en ég og þess vegna hatar heimurinn þá. 15 Ekki bið ég þig að taka þá burt úr heiminum, heldur að þú varðveitir þá frá illu. 16 Þeir tilheyra ekki þessum heimi frekar en ég. 17 Helgaðu þá með sannleikanum, þitt orð er sannleikur. 18 Ég sendi þá út í heiminn, eins og þú sendir mig í heiminn, 19 og ég helga sjálfan mig, svo að þeir geti vaxið í sannleika og helgun. 20 Ég bið ekki aðeins fyrir þessum mönnum, heldur einnig fyrir þeim sem síðar munu trúa á mig fyrir orð þeirra. 21 Faðir, þeir eiga allir að vera eitt eins og við – þú og ég – erum eitt. Þú ert í mér og ég í þér, og þannig eiga þeir einnig að vera í okkur, til þess að heimurinn trúi að þú hafir sent mig. 22 Dýrðina, sem þú gafst mér, hef ég gefið þeim – svo að þeir séu eitt eins og við – 23 ég í þeim og þú í mér – allir fullkomlega sameinaðir þannig að heimurinn komist að raun um að þú hafir sent mig og sjái að þú elskar þá, jafn heitt og þú elskar mig. 24 Faðir, ég vil að þeir sem þú hefur gefið mér, séu hjá mér, svo að þeir sjái dýrð mína, dýrðina sem þú af elsku þinni gafst mér, áður en heimurinn varð til. 25 Réttláti faðir, heimurinn þekkir þig ekki, en ég þekki þig og þessir lærisveinar vita að þú hefur sent mig. 26 Ég hef sýnt þeim þig og ég mun halda því áfram, svo að bæði ég og kærleikurinn, sem þú berð til mín, séu í þeim.“

In Other Versions

John 17 in the ANGEFD

John 17 in the ANTPNG2D

John 17 in the AS21

John 17 in the BAGH

John 17 in the BBPNG

John 17 in the BBT1E

John 17 in the BDS

John 17 in the BEV

John 17 in the BHAD

John 17 in the BIB

John 17 in the BLPT

John 17 in the BNT

John 17 in the BNTABOOT

John 17 in the BNTLV

John 17 in the BOATCB

John 17 in the BOATCB2

John 17 in the BOBCV

John 17 in the BOCNT

John 17 in the BOECS

John 17 in the BOGWICC

John 17 in the BOHCB

John 17 in the BOHCV

John 17 in the BOHLNT

John 17 in the BOHNTLTAL

John 17 in the BOICB

John 17 in the BOITCV

John 17 in the BOKCV

John 17 in the BOKCV2

John 17 in the BOKHWOG

John 17 in the BOKSSV

John 17 in the BOLCB

John 17 in the BOLCB2

John 17 in the BOMCV

John 17 in the BONAV

John 17 in the BONCB

John 17 in the BONLT

John 17 in the BONUT2

John 17 in the BOPLNT

John 17 in the BOSCB

John 17 in the BOSNC

John 17 in the BOTLNT

John 17 in the BOVCB

John 17 in the BOYCB

John 17 in the BPBB

John 17 in the BPH

John 17 in the BSB

John 17 in the CCB

John 17 in the CUV

John 17 in the CUVS

John 17 in the DBT

John 17 in the DGDNT

John 17 in the DHNT

John 17 in the DNT

John 17 in the ELBE

John 17 in the EMTV

John 17 in the ESV

John 17 in the FBV

John 17 in the FEB

John 17 in the GGMNT

John 17 in the GNT

John 17 in the HARY

John 17 in the HNT

John 17 in the IRVA

John 17 in the IRVB

John 17 in the IRVG

John 17 in the IRVH

John 17 in the IRVK

John 17 in the IRVM

John 17 in the IRVM2

John 17 in the IRVO

John 17 in the IRVP

John 17 in the IRVT

John 17 in the IRVT2

John 17 in the IRVU

John 17 in the ISVN

John 17 in the JSNT

John 17 in the KAPI

John 17 in the KBT1ETNIK

John 17 in the KBV

John 17 in the KJV

John 17 in the KNFD

John 17 in the LBA

John 17 in the LBLA

John 17 in the LNT

John 17 in the LSV

John 17 in the MAAL

John 17 in the MBV

John 17 in the MBV2

John 17 in the MHNT

John 17 in the MKNFD

John 17 in the MNG

John 17 in the MNT

John 17 in the MNT2

John 17 in the MRS1T

John 17 in the NAA

John 17 in the NASB

John 17 in the NBLA

John 17 in the NBS

John 17 in the NBVTP

John 17 in the NET2

John 17 in the NIV11

John 17 in the NNT

John 17 in the NNT2

John 17 in the NNT3

John 17 in the PDDPT

John 17 in the PFNT

John 17 in the RMNT

John 17 in the SBIAS

John 17 in the SBIBS

John 17 in the SBIBS2

John 17 in the SBICS

John 17 in the SBIDS

John 17 in the SBIGS

John 17 in the SBIHS

John 17 in the SBIIS

John 17 in the SBIIS2

John 17 in the SBIIS3

John 17 in the SBIKS

John 17 in the SBIKS2

John 17 in the SBIMS

John 17 in the SBIOS

John 17 in the SBIPS

John 17 in the SBISS

John 17 in the SBITS

John 17 in the SBITS2

John 17 in the SBITS3

John 17 in the SBITS4

John 17 in the SBIUS

John 17 in the SBIVS

John 17 in the SBT

John 17 in the SBT1E

John 17 in the SCHL

John 17 in the SNT

John 17 in the SUSU

John 17 in the SUSU2

John 17 in the SYNO

John 17 in the TBIAOTANT

John 17 in the TBT1E

John 17 in the TBT1E2

John 17 in the TFTIP

John 17 in the TFTU

John 17 in the TGNTATF3T

John 17 in the THAI

John 17 in the TNFD

John 17 in the TNT

John 17 in the TNTIK

John 17 in the TNTIL

John 17 in the TNTIN

John 17 in the TNTIP

John 17 in the TNTIZ

John 17 in the TOMA

John 17 in the TTENT

John 17 in the UBG

John 17 in the UGV

John 17 in the UGV2

John 17 in the UGV3

John 17 in the VBL

John 17 in the VDCC

John 17 in the YALU

John 17 in the YAPE

John 17 in the YBVTP

John 17 in the ZBP