Matthew 5 (BOILNTAP)

1 Dag nokkurn þegar fólkið þyrptist að honum fór hann upp á fjallið ásamt lærisveinum sínum, 2 settist þar niður og kenndi: 3 „Sælir eru auðmjúkir, því að þeirra er himnaríki. 4 Sælir eru sorgmæddir, því að þeir munu huggaðir verða. 5 Sælir eru hógværir, því að þeir munu eignast landið. 6 Sælir eru þeir sem þrá réttlætið, því að það mun falla þeim í skaut. 7 Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. 8 Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu sjá Guð. 9 Sælir eru þeir sem vinna að friði, því að þeir munu kallaðir verða synir Guðs. 10 Sælir eru þeir sem ofsóttir eru fyrir trú sína á mig, því að þeirra er himnaríki. 11 Gleðjist og fagnið þegar fólk talar illa um ykkur, ofsækir ykkur eða ber lognar sakir á ykkur vegna þess að þið fylgið mér, 12 því að mikil laun bíða ykkar á himnum!Minnist þess að hinir fornu spámenn þoldu einnig ofsóknir. 13 Þið eruð salt jarðarinnar, þið eigið að bæta heiminn! Hvernig færi ef þið misstuð seltuna? Þið yrðuð einskis nýt eins og rusl sem fleygt er út og fótum troðið. 14 Þið eruð ljós heimsins. Allir sjá borg sem reist er á fjalli. 15 15,16 Felið því ekki ljósið ykkar heldur látið það skína til að allir sjái það! Leyfið öllum að sjá góðverk ykkar, svo að þeir þakki föður ykkar á himnum. 17 Misskiljið mig ekki. Ég kom ekki til að afnema lög Móse og viðvaranir spámannanna. Nei, ég kom til að uppfylla hvort tveggja og staðfesta það. 18 Ég segi ykkur satt: Hver einasta grein lögbókarinnar mun standa óhögguð uns tilgangi hennar hefur verið náð. 19 Þar af leiðir að sá sem brýtur hið minnsta boðorð og hvetur aðra til þess að gera hið sama verður minnstur í himnaríki. En sá sem kennir lög Guðs og fer eftir þeim mun verða mikill í himnaríki. 20 Ég vil benda ykkur á eitt: Ef góðverk ykkar verða ekki fremri góðverkum faríseanna og annarra leiðtoga þjóðarinnar, þá komist þið alls ekki inn í guðsríkið. 21 Þannig segir í lögum Móse: „Drepir þú mann, verður þú sjálfur að deyja.“ 22 En ég bæti við: Ef þú reiðist – jafnvel þótt það sé aðeins við bróður þinn á þínu eigin heimili – vofir dómurinn yfir þér! Ef þú kallar vin þinn fífl, átt þú á hættu að þér verði stefnt fyrir réttinn! Og bölvir þú honum áttu eld helvítis yfir höfði þér. 23 Ef þú stendur frammi fyrir altarinu í musterinu og ert að færa Guði fórn, og minnist þess þá allt í einu að vinur þinn hefur eitthvað á móti þér, 24 skaltu skilja fórn þína eftir hjá altarinu, fara og biðja hann fyrirgefningar og sættast við hann. Komdu síðan aftur og berðu fram fórnina. 25 Flýttu þér að sættast við óvin þinn áður en það er um seinan, því að annars mun hann draga þig fyrir rétt. Þá verður þér varpað í skuldafangelsi, 26 þar sem þú verður að dúsa uns þú hefur greitt þinn síðasta eyri. 27 Boðorðið segir: „Þú skalt ekki drýgja hór.“ 28 En ég segi: Sá sem horfir á konu með girndarhug, hefur þegar drýgt hór með henni í huga sínum. 29 Ef það sem þú sérð með auga þínu verður til þess að þú fellur í synd, skaltu stinga augað úr þér og fleygja því. Betra er að hluti af þér eyðileggist en að þér verði öllum kastað í víti. 30 Ef hönd þín – jafnvel sú hægri – kemur þér til að syndga, þá er betra að höggva hana af og fleygja henni en að lenda í helvíti. 31 Í lögum Móse segir svo: „Sá sem vill skilja við konu sína verður að fá henni skilnaðarbréf.“ 32 En ég segi: Skilji maður við konu sína af annarri ástæðu en þeirri að hún hafi verið honum ótrú, veldur hann því að hún drýgir hór, og sá sem síðar kvænist henni drýgir einnig hór. 33 Þið þekkið líka þessa gömlu reglu: „Þú skalt ekki sverja rangan eið, og haltu þau heit sem þú hefur gefið Guði.“ 34 Ég segi: Sverjið ekki, hvorki við himininn, því að hann er hásæti Guðs, 35 né jörðina, því hún er fótskör hans. Sverjið ekki við Jerúsalem, því hún er borg hins mikla konungs. 36 Þú mátt ekki heldur sverja við höfuð þitt, því þú getur ekki einu sinni breytt háralit þínum, hvað þá meira. 37 Látið nægja að segja: Já, ég vil… eða: Nei, ég vil ekki! Það á að vera hægt að treysta því sem þú segir. Þurfir þú að staðfesta orð þín með eiði er ekki allt með felldu. 38 Í lögum Móse stendur: „Stingi maður auga úr öðrum manni, skal hann sjálfur gjalda fyrir það með eigin auga. Brjóti einhver tönn úr þér, skaltu brjóta tönn úr honum í staðinn.“ 39 Ég segi hins vegar: Launið ekki ofbeldi með ofbeldi! Slái einhver þig á aðra kinnina, snúðu þá einnig hinni að honum. 40 Höfði einhver mál gegn þér þannig að þú tapar skyrtunni þinni, skaltu líka láta yfirhöfn þína af hendi. 41 Ef hermenn skipa þér að bera varning sinn eina mílu, þá skaltu bera hann tvær. 42 Gefðu þeim sem biðja þig, og snúðu ekki bakinu við þeim sem vilja fá lán hjá þér. 43 Sagt hefur verið: „Elskaðu vini þína og hataðu óvini þína.“ 44 En ég segi: Elskið óvini ykkar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja ykkur. 45 Ef þið gerið það, komið þið fram eins og hæfir sonum hins himneska föður. Hann lætur sólina skína jafnt á vonda sem góða. Hann lætur einnig rigna jafnt hjá réttlátum sem ranglátum. 46 Hvaða góðverk er það að elska þá eina sem elska ykkur? Jafnvel skattheimtumennirnir gera það. 47 Eruð þið nokkuð frábrugðin heiðingjunum, ef þið eruð einungis vinir vina ykkar? Nei! 48 Verið því fullkomin eins og ykkar himneski faðir er fullkominn.

In Other Versions

Matthew 5 in the ANGEFD

Matthew 5 in the ANTPNG2D

Matthew 5 in the AS21

Matthew 5 in the BAGH

Matthew 5 in the BBPNG

Matthew 5 in the BBT1E

Matthew 5 in the BDS

Matthew 5 in the BEV

Matthew 5 in the BHAD

Matthew 5 in the BIB

Matthew 5 in the BLPT

Matthew 5 in the BNT

Matthew 5 in the BNTABOOT

Matthew 5 in the BNTLV

Matthew 5 in the BOATCB

Matthew 5 in the BOATCB2

Matthew 5 in the BOBCV

Matthew 5 in the BOCNT

Matthew 5 in the BOECS

Matthew 5 in the BOGWICC

Matthew 5 in the BOHCB

Matthew 5 in the BOHCV

Matthew 5 in the BOHLNT

Matthew 5 in the BOHNTLTAL

Matthew 5 in the BOICB

Matthew 5 in the BOITCV

Matthew 5 in the BOKCV

Matthew 5 in the BOKCV2

Matthew 5 in the BOKHWOG

Matthew 5 in the BOKSSV

Matthew 5 in the BOLCB

Matthew 5 in the BOLCB2

Matthew 5 in the BOMCV

Matthew 5 in the BONAV

Matthew 5 in the BONCB

Matthew 5 in the BONLT

Matthew 5 in the BONUT2

Matthew 5 in the BOPLNT

Matthew 5 in the BOSCB

Matthew 5 in the BOSNC

Matthew 5 in the BOTLNT

Matthew 5 in the BOVCB

Matthew 5 in the BOYCB

Matthew 5 in the BPBB

Matthew 5 in the BPH

Matthew 5 in the BSB

Matthew 5 in the CCB

Matthew 5 in the CUV

Matthew 5 in the CUVS

Matthew 5 in the DBT

Matthew 5 in the DGDNT

Matthew 5 in the DHNT

Matthew 5 in the DNT

Matthew 5 in the ELBE

Matthew 5 in the EMTV

Matthew 5 in the ESV

Matthew 5 in the FBV

Matthew 5 in the FEB

Matthew 5 in the GGMNT

Matthew 5 in the GNT

Matthew 5 in the HARY

Matthew 5 in the HNT

Matthew 5 in the IRVA

Matthew 5 in the IRVB

Matthew 5 in the IRVG

Matthew 5 in the IRVH

Matthew 5 in the IRVK

Matthew 5 in the IRVM

Matthew 5 in the IRVM2

Matthew 5 in the IRVO

Matthew 5 in the IRVP

Matthew 5 in the IRVT

Matthew 5 in the IRVT2

Matthew 5 in the IRVU

Matthew 5 in the ISVN

Matthew 5 in the JSNT

Matthew 5 in the KAPI

Matthew 5 in the KBT1ETNIK

Matthew 5 in the KBV

Matthew 5 in the KJV

Matthew 5 in the KNFD

Matthew 5 in the LBA

Matthew 5 in the LBLA

Matthew 5 in the LNT

Matthew 5 in the LSV

Matthew 5 in the MAAL

Matthew 5 in the MBV

Matthew 5 in the MBV2

Matthew 5 in the MHNT

Matthew 5 in the MKNFD

Matthew 5 in the MNG

Matthew 5 in the MNT

Matthew 5 in the MNT2

Matthew 5 in the MRS1T

Matthew 5 in the NAA

Matthew 5 in the NASB

Matthew 5 in the NBLA

Matthew 5 in the NBS

Matthew 5 in the NBVTP

Matthew 5 in the NET2

Matthew 5 in the NIV11

Matthew 5 in the NNT

Matthew 5 in the NNT2

Matthew 5 in the NNT3

Matthew 5 in the PDDPT

Matthew 5 in the PFNT

Matthew 5 in the RMNT

Matthew 5 in the SBIAS

Matthew 5 in the SBIBS

Matthew 5 in the SBIBS2

Matthew 5 in the SBICS

Matthew 5 in the SBIDS

Matthew 5 in the SBIGS

Matthew 5 in the SBIHS

Matthew 5 in the SBIIS

Matthew 5 in the SBIIS2

Matthew 5 in the SBIIS3

Matthew 5 in the SBIKS

Matthew 5 in the SBIKS2

Matthew 5 in the SBIMS

Matthew 5 in the SBIOS

Matthew 5 in the SBIPS

Matthew 5 in the SBISS

Matthew 5 in the SBITS

Matthew 5 in the SBITS2

Matthew 5 in the SBITS3

Matthew 5 in the SBITS4

Matthew 5 in the SBIUS

Matthew 5 in the SBIVS

Matthew 5 in the SBT

Matthew 5 in the SBT1E

Matthew 5 in the SCHL

Matthew 5 in the SNT

Matthew 5 in the SUSU

Matthew 5 in the SUSU2

Matthew 5 in the SYNO

Matthew 5 in the TBIAOTANT

Matthew 5 in the TBT1E

Matthew 5 in the TBT1E2

Matthew 5 in the TFTIP

Matthew 5 in the TFTU

Matthew 5 in the TGNTATF3T

Matthew 5 in the THAI

Matthew 5 in the TNFD

Matthew 5 in the TNT

Matthew 5 in the TNTIK

Matthew 5 in the TNTIL

Matthew 5 in the TNTIN

Matthew 5 in the TNTIP

Matthew 5 in the TNTIZ

Matthew 5 in the TOMA

Matthew 5 in the TTENT

Matthew 5 in the UBG

Matthew 5 in the UGV

Matthew 5 in the UGV2

Matthew 5 in the UGV3

Matthew 5 in the VBL

Matthew 5 in the VDCC

Matthew 5 in the YALU

Matthew 5 in the YAPE

Matthew 5 in the YBVTP

Matthew 5 in the ZBP