Romans 11 (BOILNTAP)

1 Þá vil ég spyrja: Hefur Guð hafnað þjóð sinni – Gyðingunum – og yfirgefið þá? Nei, alls ekki. Minnist þess að ég er sjálfur Gyðingur. Ég er afkomandi Abrahams og af ættkvísl Benjamíns. 2 2,3 Nei, Guð hefur ekki yfirgefið þjóð sína, sem hann tók að sér í upphafi. Munið þið hvað Gamla testamentið segir um þetta? Spámaðurinn Elía kvartaði við Guð vegna Gyðinganna og sagði að þeir hefðu drepið spámennina og rifið niður ölturu Guðs. Elía hélt því fram að hann væri eini maðurinn í öllu landinu sem enn elskaði Guð, og að nú væri sóst eftir lífi hans. 4 Munið þið hverju Guð svaraði? Hann sagði: „Nei, þú ert ekki sá eini sem eftir er. Ennþá eru sjö þúsund aðrir, sem elska mig og hafa ekki tilbeðið hjáguðina!“ 5 Eins er þetta enn í dag. Ekki hafa allir Gyðingar snúið baki við Guði. Fáeinir hafa frelsast vegna þess að Guð var þeim náðugur og tók þá að sér, 6 og fyrst það er gæsku Guðs að þakka, þá er það ekki vegna þeirra eigin góðverka. Ef svo væri, þá væri lífið með Guði – þessi óverðskuldaða gjöf – ekki lengur óverðskulduð, því að þá gætu menn unnið sér fyrir henni með góðverkum. 7 Sannleikurinn er þessi: Gyðingarnir sóttust eftir velþóknun Guðs, en aðeins fáeinir þeirra öðluðust hana – þeir sem Guð valdi – en augu hinna hafa blindast. 8 Það er þetta sem Gamla testamentið á við þegar það segir að Guð hafi lokað augum þeirra og eyrum, svo að þeir gætu ekki skilið okkur þegar við segjum þeim frá Kristi. Og þannig er þetta enn í dag. 9 Einmitt þetta átti Davíð konungur við þegar hann sagði:„Leyfum þeim að halda að allsnægtir og önnur gæði séu staðfesting þess að Guð hafi velþóknun á þeim. Öll þessi gæði snúist gegn þeim og verði þeim til falls. 10 Augu þeirra lokist og bogni þeir undan sinni eigin byrði.“ 11 Þýðir þetta að Guð hafi hafnað Gyðingaþjóðinni fyrir fullt og allt? Nei, vissulega ekki! Ætlun hans var að gefa heiðingjunum hjálpræði sitt, til þess að Gyðingarnir yrðu afbrýðisamir og tækju að sækjast eftir hjálpræði Guðs fyrir sjálfa sig. 12 Fyrst allur heimurinn hefur notið góðs af því að Gyðingarnir hrösuðu um hjálpræði Guðs og höfnuðu því, þá mun mikil blessun síðar falla heiminum í skaut, þegar Gyðingarnir snúa sér einnig til Krists! 13 Eins og þið vitið, hefur Guð sent mig sem sérstakan erindreka sinn til ykkar heiðingjanna. Á þetta vil ég leggja áherslu og jafnframt minna Gyðinga á það eins oft og ég get, 14 til þess að ég, ef mögulegt er, geti fengið þá til að sækjast eftir því sem þið heiðingjarnir hafið eignast, svo að einhverjir þeirra mættu frelsast. 15 Þegar Gyðingarnir höfnuðu hjálpræðinu sem Guð bauð þeim, sneri hann sér að öðrum þjóðum heimsins og bauð þeim hjálpræði sitt. Þess vegna er það mikið gleðiefni er Gyðingar verða kristnir, það er líkast því að dauður maður lifni við. 16 Abraham og spámennirnir tilheyra þjóð Guðs og það gera afkomendur þeirra einnig – séu rætur trésins heilar, verða greinarnar það líka. 17 Sumar greinarnar á tré Abrahams (sumir Gyðinganna) voru sniðnar af og síðan voruð þið, heiðingjarnir, sem voruð greinar af villtu olíutré, græddir á tré Abrahams. Þið hafið þar með hlotið blessunina sem Guð lofaði Abraham og afkomendum hans, og takið nú til ykkar, ásamt okkur, þá ríkulegu næringu sem útvalda olíutréð gefur. 18 En gætið þess að stæra ykkur ekki af því að hafa verið græddir á tré, í stað greinanna sem skornar voru af. Minnist þess að eina ástæðan fyrir upphefð ykkar er að nú hafið þið verið græddir á tré Guðs. – Munið að þið eruð aðeins greinar en ekki rótin. 19 „Já, en,“ segir þú kannski, „þessar greinar voru skornar af til að rýma fyrir mér og ég hlýt því að hafa eitthvað til míns ágætis.“ 20 Gætið ykkar! Munið að þessar greinar, Gyðingarnir, voru fjarlægðar vegna þess að þær trúðu ekki Guði, en þið trúið honum og þess vegna eruð þið þarna. Verið ekki stolt, verið heldur auðmjúk, þakklát og gætin, 21 því að fyrst Guð hlífði ekki upphaflegu greinunum, þá kann svo að fara að hann hlífi ykkur ekki heldur. 22 Munið að Guð er bæði vægur og strangur. Hann er strangur við þá sem óhlýðnast og sníður þá af, en ef þið haldið áfram að elska hann, þá mun hann miskunna ykkur. 23 Ef Gyðingar snúa sér frá vantrúnni og koma til Guðs, þá mun hann græða þá við stofninn á ný, því að til þess hefur hann mátt. 24 Fyrst Guð er fús að taka ykkur að sér, ykkur sem voruð fjarri honum – voruð greinar á villtu olíutré – og græða ykkur á sitt eigið gæðatré – en slíkt er mjög óvenjulegt – þá hljótið þið að skilja löngun hans til að setja Gyðingana aftur þar sem þeir voru í upphafi. 25 Kæru vinir, ég vil að þetta sé ykkur ljóst svo að stoltið nái ekki tökum á ykkur. Satt er það að sumir Gyðinganna hafa risið gegn gleðiboðskap Krists, en það mun breytast þegar allir heiðingjarnir hafa tekið á móti Kristi. 26 Þá mun allur Ísrael frelsast. Munið þið hvað spámennirnir sögðu um þetta?„Frelsari mun koma fram í Síon og hann mun snúa Gyðingunum frá öllum óguðleika. 27 Þá mun ég nema burt syndir þeirra, eins og ég hafði lofað.“ 28 Margir Gyðingar eru andsnúnir gleðiboðskapnum – þeir hata hann. En hatur þeirra hefur orðið ykkur til gagns, því að þess vegna hefur Guð gefið ykkur heiðingjunum gjafir sínar. En þrátt fyrir þetta elskar Guð Gyðingana, vegna loforðanna sem hann gaf Abraham, Ísak og Jakob. 29 Guð mun aldrei sjá eftir gjöfum sínum, né iðrast köllunar sinnar, því að hann gengur aldrei á bak orða sinna. 30 Áður fyrr voruð þið andsnúnir Guði, en þegar Gyðingarnir höfnuðu gjöfum hans, sneri hann sér að ykkur með miskunn sína. 31 Nú eru Gyðingarnir í uppreisn gegn Guði, en seinna munu þeir njóta með ykkur þeirrar miskunnar hans sem þið hafið öðlast. 32 Guð hefur gefið þá alla syndinni á vald til að hann geti miskunnað þeim öllum. 33 Við eigum undursamlegan Guð! Mikil er viska hans, þekking og auðlegð! Hvernig eigum við að skilja ákvarðanir hans og aðferðir? 34 Hvert okkar þekkir hugsanir Drottins? Hver getur ráðlagt Guði eða leiðbeint honum? 35 Hver hefur að fyrra bragði gefið honum svo mikið að hann geti krafist einhvers í staðinn? 36 Allt er komið frá Guði. Allt er orðið til fyrir mátt hans og allt skal verða honum til vegsemdar. Honum sé dýrð um alla eilífð!

In Other Versions

Romans 11 in the ANGEFD

Romans 11 in the ANTPNG2D

Romans 11 in the AS21

Romans 11 in the BAGH

Romans 11 in the BBPNG

Romans 11 in the BBT1E

Romans 11 in the BDS

Romans 11 in the BEV

Romans 11 in the BHAD

Romans 11 in the BIB

Romans 11 in the BLPT

Romans 11 in the BNT

Romans 11 in the BNTABOOT

Romans 11 in the BNTLV

Romans 11 in the BOATCB

Romans 11 in the BOATCB2

Romans 11 in the BOBCV

Romans 11 in the BOCNT

Romans 11 in the BOECS

Romans 11 in the BOGWICC

Romans 11 in the BOHCB

Romans 11 in the BOHCV

Romans 11 in the BOHLNT

Romans 11 in the BOHNTLTAL

Romans 11 in the BOICB

Romans 11 in the BOITCV

Romans 11 in the BOKCV

Romans 11 in the BOKCV2

Romans 11 in the BOKHWOG

Romans 11 in the BOKSSV

Romans 11 in the BOLCB

Romans 11 in the BOLCB2

Romans 11 in the BOMCV

Romans 11 in the BONAV

Romans 11 in the BONCB

Romans 11 in the BONLT

Romans 11 in the BONUT2

Romans 11 in the BOPLNT

Romans 11 in the BOSCB

Romans 11 in the BOSNC

Romans 11 in the BOTLNT

Romans 11 in the BOVCB

Romans 11 in the BOYCB

Romans 11 in the BPBB

Romans 11 in the BPH

Romans 11 in the BSB

Romans 11 in the CCB

Romans 11 in the CUV

Romans 11 in the CUVS

Romans 11 in the DBT

Romans 11 in the DGDNT

Romans 11 in the DHNT

Romans 11 in the DNT

Romans 11 in the ELBE

Romans 11 in the EMTV

Romans 11 in the ESV

Romans 11 in the FBV

Romans 11 in the FEB

Romans 11 in the GGMNT

Romans 11 in the GNT

Romans 11 in the HARY

Romans 11 in the HNT

Romans 11 in the IRVA

Romans 11 in the IRVB

Romans 11 in the IRVG

Romans 11 in the IRVH

Romans 11 in the IRVK

Romans 11 in the IRVM

Romans 11 in the IRVM2

Romans 11 in the IRVO

Romans 11 in the IRVP

Romans 11 in the IRVT

Romans 11 in the IRVT2

Romans 11 in the IRVU

Romans 11 in the ISVN

Romans 11 in the JSNT

Romans 11 in the KAPI

Romans 11 in the KBT1ETNIK

Romans 11 in the KBV

Romans 11 in the KJV

Romans 11 in the KNFD

Romans 11 in the LBA

Romans 11 in the LBLA

Romans 11 in the LNT

Romans 11 in the LSV

Romans 11 in the MAAL

Romans 11 in the MBV

Romans 11 in the MBV2

Romans 11 in the MHNT

Romans 11 in the MKNFD

Romans 11 in the MNG

Romans 11 in the MNT

Romans 11 in the MNT2

Romans 11 in the MRS1T

Romans 11 in the NAA

Romans 11 in the NASB

Romans 11 in the NBLA

Romans 11 in the NBS

Romans 11 in the NBVTP

Romans 11 in the NET2

Romans 11 in the NIV11

Romans 11 in the NNT

Romans 11 in the NNT2

Romans 11 in the NNT3

Romans 11 in the PDDPT

Romans 11 in the PFNT

Romans 11 in the RMNT

Romans 11 in the SBIAS

Romans 11 in the SBIBS

Romans 11 in the SBIBS2

Romans 11 in the SBICS

Romans 11 in the SBIDS

Romans 11 in the SBIGS

Romans 11 in the SBIHS

Romans 11 in the SBIIS

Romans 11 in the SBIIS2

Romans 11 in the SBIIS3

Romans 11 in the SBIKS

Romans 11 in the SBIKS2

Romans 11 in the SBIMS

Romans 11 in the SBIOS

Romans 11 in the SBIPS

Romans 11 in the SBISS

Romans 11 in the SBITS

Romans 11 in the SBITS2

Romans 11 in the SBITS3

Romans 11 in the SBITS4

Romans 11 in the SBIUS

Romans 11 in the SBIVS

Romans 11 in the SBT

Romans 11 in the SBT1E

Romans 11 in the SCHL

Romans 11 in the SNT

Romans 11 in the SUSU

Romans 11 in the SUSU2

Romans 11 in the SYNO

Romans 11 in the TBIAOTANT

Romans 11 in the TBT1E

Romans 11 in the TBT1E2

Romans 11 in the TFTIP

Romans 11 in the TFTU

Romans 11 in the TGNTATF3T

Romans 11 in the THAI

Romans 11 in the TNFD

Romans 11 in the TNT

Romans 11 in the TNTIK

Romans 11 in the TNTIL

Romans 11 in the TNTIN

Romans 11 in the TNTIP

Romans 11 in the TNTIZ

Romans 11 in the TOMA

Romans 11 in the TTENT

Romans 11 in the UBG

Romans 11 in the UGV

Romans 11 in the UGV2

Romans 11 in the UGV3

Romans 11 in the VBL

Romans 11 in the VDCC

Romans 11 in the YALU

Romans 11 in the YAPE

Romans 11 in the YBVTP

Romans 11 in the ZBP