Mark 12 (BOILNTAP)

1 Hér eru nokkrar af dæmisögunum sem Jesús sagði fólkinu þessa daga: „Maður nokkur gerði sér víngarð. Hann hlóð vegg umhverfis garðinn, bjó til þró til að pressa í vínberin og reisti eftirlitsturn. Að því búnu leigði hann vínyrkjubændum garðinn og fluttist sjálfur í annað land. 2 Þegar uppskerutíminn kom, sendi hann einn af mönnum sínum til að ná í sinn hluta uppskerunnar. 3 En bændurnir börðu manninn og sendu hann heim tómhentan. 4 Eigandinn sendi þá annan mann, en sá fékk jafnvel enn verri útreið, því að þeir börðu hann í höfuðið og særðu hann. 5 Sá þriðji sem hann sendi, var drepinn, og seinna voru fleiri ýmist barðir eða drepnir. 6 Nú átti víngarðseigandinn aðeins einkason sinn eftir. Hann ákvað að senda hann, því hann taldi að þeir myndu áreiðanlega sýna honum virðingu. 7 En þegar bændurnir sáu hann koma, sögðu þeir hver við annan: „Þessi er sonur víngarðseigandans og hann mun erfa víngarðinn þegar faðir hans deyr. Komið, við skulum drepa hann – og þá eigum við garðinn.“ 8 Og þeir gripu hann og myrtu og fleygðu líkinu út fyrir vegginn. 9 Hvað haldið þið að eigandinn geri þegar hann fær fréttirnar? Hann kemur og drepur þá alla og leigir öðrum víngarðinn. 10 Munið þið eftir þessu versi í Biblíunni: „Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, var gerður að hornsteini og hlaut þar með mesta heiður allra steina í byggingunni.“ 11 Þetta gerði Drottinn og það er stórkostlegt að vita.“ 12 Leiðtogar þjóðarinnar vildu nú ólmir handtaka Jesú, því þeir skildu að dæmisagan var um þá – þeir voru bændaófétin í sögunni. Þeir þorðu samt ekki að taka hann, af ótta við uppþot. Þeir fóru því burt, 13 en sendu aðra í staðinn – menn úr hópi faríseanna og flokki Heródesarsinna. Þessir reyndu nú að fá hann til að segja eitthvað sem hægt væri að handtaka hann fyrir. 14 „Meistari, við vitum að þú segir sannleikann, hver sem í hlut á!“ sögðu þeir. „Þú lætur þig engu varða skoðanir eða viðhorf annarra, þú kennir veg Guðs í sannleika. Segðu okkur eitt: Er rétt af okkur að greiða Rómverjum skatta?“ 15 Jesús sá slægð þeirra og sagði: „Sýnið mér peninginn sem þið borgið skattinn með og þá skal ég segja ykkur það.“ 16 Þeir réttu honum myntina og hann spurði: „Hvaða mynd og nafn er á henni?“ „Keisarans,“ svöruðu þeir. 17 „Nú, já“ svaraði hann, „gjaldið þá keisaranum það sem keisarinn á og Guði það sem Guð á.“ Þeir urðu undrandi. Á slíku svari áttu þeir síst von. 18 Þá gengu saddúkearnir fram. Þeir álíta að upprisa dauðra sé ekki til. Spurning þeirra var á þessa leið: 19 „Meistari! Móse setti lög sem segja að deyi maður barnlaus, skuli bróðir hans kvænast ekkjunni og eignast börn sem beri nafn látna bróðurins. 20 20-22 Einu sinni voru sjö bræður. Sá elsti kvæntist og dó barnlaus. Annar bróðirinn kvæntist ekkjunni, en dó líka barnlaus stuttu síðar. Þriðji bróðirinn gekk einnig að eiga ekkjuna, en hann dó einnig barnlaus, og þannig gekk það koll af kolli þar til allir bræðurnir voru dánir, en enginn hafði látið eftir sig barn. Að lokum dó konan líka. 23 Nú langar okkur að vita hver þeirra muni fá hana fyrir eiginkonu í upprisunni, fyrst hún var gift þeim öllum!“ 24 Jesús svaraði: „Vandi ykkar er sá að þið þekkið ekki Biblíuna og skiljið því ekki mátt Guðs. 25 Konan og bræðurnir sjö munu ekki ganga í hjónaband, þegar þau rísa upp frá dauðum, heldur munu þau verða eins og englarnir. 26 En varðandi það hvort um upprisu verði að ræða, vil ég spyrja: Hafið þið aldrei lesið um logandi þyrnirunnann í annarri Mósebók? Guð sagði við Móse: „Ég er Guð Abrahams, ég er Guð Ísaks, og ég er Guð Jakobs.“ 27 Guð var að undirstrika fyrir Móse að þessir menn væru lifandi, enda þótt þeir hefðu dáið mörgum öldum áður, því væru þeir ekki á lífi, hefði hann ekki sagt: „Ég er Guð þeirra.“ Þið hafið misskilið þetta hrapallega.“ 28 Lögfræðingi nokkrum, sem þar stóð og hlustað hafði á samræðurnar, fannst Jesús hafa svarað vel. Hann spurði því Jesú: „Hvaða boðorð er mikilvægast?“ 29 „Þetta,“ svaraði Jesús: „ „Heyr Ísrael! Drottinn, Guð þinn, er hinn eini og sanni Guð, 30 þú skalt elska hann af öllu hjarta þínu og allri sálu þinni, huga þínum og mætti.“ 31 Því næst er þetta: „Þú skalt elska meðbræður þína eins og sjálfan þig.“ Þetta eru æðstu boðorðin.“ 32 „Þetta var gott svar, herra,“ sagði fræðimaðurinn. „Og satt er það að aðeins er til einn Guð og enginn annar. 33 Ég veit, að það að elska hann af öllu hjarta, huga og mætti og elska aðra eins og sjálfan sig, er langtum mikilvægara en færa allar þessar fórnir á altari musterisins.“ 34 Þegar Jesús sá hve skilningsríkur maðurinn var, sagði hann: „Þú ert ekki fjarri guðsríkinu.“ Eftir þetta þorði enginn að spyrja hann neins. 35 Seinna, þegar Jesús var að kenna fólkinu á musterissvæðinu, sagði hann: „Segið mér eitt. Hvers vegna segja fræðimenn ykkar að Kristur verði að vera afkomandi Davíðs konungs? 36 Davíð sagði fyrir áhrif heilags anda: „Guð sagði við minn Drottin, sittu mér til hægri handar, uns ég legg alla óvini þína að fótum þér.“ 37 Fyrst Davíð kallar hann „sinn Drottin“ hvernig getur hann þá verið sonur hans?“Mannfjöldanum líkaði vel að heyra slíkar röksemdir og hlustaði á Jesú af miklum áhuga. 38 Jesús hélt áfram að fræða fólkið og sagði: „Gætið ykkar á fræðimönnunum! Þeir hafa unun af að klæðast skikkjum að hætti ríkra menntamanna, og þegar þeir ganga um bæinn, vilja þeir að allir hneigi sig fyrir þeim. 39 Þeir sækjast eftir að sitja í heiðurssætum samkomuhúsanna og við háborðið í veislunum. 40 Þeir flæma ekkjur út af heimilum þeirra og þykjast guðræknir með því að biðja langar bænir á almannafæri. Þess vegna munu þeir fá enn þyngri dóm.“ 41 Að því búnu fékk Jesús sér sæti hjá söfnunarbaukunum í musterinu og virti fyrir sér fólkið sem var að leggja í þá gjafir sínar. Sumir auðmenn gáfu mikið. 42 Þá kom fátæk ekkja og gaf tvo smápeninga í samskotin. 43 43,44 Jesús kallaði þá á lærisveina sína og sagði: „Þessi fátæka ekkja gaf meira en allir auðmennirnir samanlagt! Þeir gáfu aðeins lítið brot af eigum sínum, en hún gaf aleiguna.“

In Other Versions

Mark 12 in the ANGEFD

Mark 12 in the ANTPNG2D

Mark 12 in the AS21

Mark 12 in the BAGH

Mark 12 in the BBPNG

Mark 12 in the BBT1E

Mark 12 in the BDS

Mark 12 in the BEV

Mark 12 in the BHAD

Mark 12 in the BIB

Mark 12 in the BLPT

Mark 12 in the BNT

Mark 12 in the BNTABOOT

Mark 12 in the BNTLV

Mark 12 in the BOATCB

Mark 12 in the BOATCB2

Mark 12 in the BOBCV

Mark 12 in the BOCNT

Mark 12 in the BOECS

Mark 12 in the BOGWICC

Mark 12 in the BOHCB

Mark 12 in the BOHCV

Mark 12 in the BOHLNT

Mark 12 in the BOHNTLTAL

Mark 12 in the BOICB

Mark 12 in the BOITCV

Mark 12 in the BOKCV

Mark 12 in the BOKCV2

Mark 12 in the BOKHWOG

Mark 12 in the BOKSSV

Mark 12 in the BOLCB

Mark 12 in the BOLCB2

Mark 12 in the BOMCV

Mark 12 in the BONAV

Mark 12 in the BONCB

Mark 12 in the BONLT

Mark 12 in the BONUT2

Mark 12 in the BOPLNT

Mark 12 in the BOSCB

Mark 12 in the BOSNC

Mark 12 in the BOTLNT

Mark 12 in the BOVCB

Mark 12 in the BOYCB

Mark 12 in the BPBB

Mark 12 in the BPH

Mark 12 in the BSB

Mark 12 in the CCB

Mark 12 in the CUV

Mark 12 in the CUVS

Mark 12 in the DBT

Mark 12 in the DGDNT

Mark 12 in the DHNT

Mark 12 in the DNT

Mark 12 in the ELBE

Mark 12 in the EMTV

Mark 12 in the ESV

Mark 12 in the FBV

Mark 12 in the FEB

Mark 12 in the GGMNT

Mark 12 in the GNT

Mark 12 in the HARY

Mark 12 in the HNT

Mark 12 in the IRVA

Mark 12 in the IRVB

Mark 12 in the IRVG

Mark 12 in the IRVH

Mark 12 in the IRVK

Mark 12 in the IRVM

Mark 12 in the IRVM2

Mark 12 in the IRVO

Mark 12 in the IRVP

Mark 12 in the IRVT

Mark 12 in the IRVT2

Mark 12 in the IRVU

Mark 12 in the ISVN

Mark 12 in the JSNT

Mark 12 in the KAPI

Mark 12 in the KBT1ETNIK

Mark 12 in the KBV

Mark 12 in the KJV

Mark 12 in the KNFD

Mark 12 in the LBA

Mark 12 in the LBLA

Mark 12 in the LNT

Mark 12 in the LSV

Mark 12 in the MAAL

Mark 12 in the MBV

Mark 12 in the MBV2

Mark 12 in the MHNT

Mark 12 in the MKNFD

Mark 12 in the MNG

Mark 12 in the MNT

Mark 12 in the MNT2

Mark 12 in the MRS1T

Mark 12 in the NAA

Mark 12 in the NASB

Mark 12 in the NBLA

Mark 12 in the NBS

Mark 12 in the NBVTP

Mark 12 in the NET2

Mark 12 in the NIV11

Mark 12 in the NNT

Mark 12 in the NNT2

Mark 12 in the NNT3

Mark 12 in the PDDPT

Mark 12 in the PFNT

Mark 12 in the RMNT

Mark 12 in the SBIAS

Mark 12 in the SBIBS

Mark 12 in the SBIBS2

Mark 12 in the SBICS

Mark 12 in the SBIDS

Mark 12 in the SBIGS

Mark 12 in the SBIHS

Mark 12 in the SBIIS

Mark 12 in the SBIIS2

Mark 12 in the SBIIS3

Mark 12 in the SBIKS

Mark 12 in the SBIKS2

Mark 12 in the SBIMS

Mark 12 in the SBIOS

Mark 12 in the SBIPS

Mark 12 in the SBISS

Mark 12 in the SBITS

Mark 12 in the SBITS2

Mark 12 in the SBITS3

Mark 12 in the SBITS4

Mark 12 in the SBIUS

Mark 12 in the SBIVS

Mark 12 in the SBT

Mark 12 in the SBT1E

Mark 12 in the SCHL

Mark 12 in the SNT

Mark 12 in the SUSU

Mark 12 in the SUSU2

Mark 12 in the SYNO

Mark 12 in the TBIAOTANT

Mark 12 in the TBT1E

Mark 12 in the TBT1E2

Mark 12 in the TFTIP

Mark 12 in the TFTU

Mark 12 in the TGNTATF3T

Mark 12 in the THAI

Mark 12 in the TNFD

Mark 12 in the TNT

Mark 12 in the TNTIK

Mark 12 in the TNTIL

Mark 12 in the TNTIN

Mark 12 in the TNTIP

Mark 12 in the TNTIZ

Mark 12 in the TOMA

Mark 12 in the TTENT

Mark 12 in the UBG

Mark 12 in the UGV

Mark 12 in the UGV2

Mark 12 in the UGV3

Mark 12 in the VBL

Mark 12 in the VDCC

Mark 12 in the YALU

Mark 12 in the YAPE

Mark 12 in the YBVTP

Mark 12 in the ZBP