1 Peter 1 (BOILNTAP)

1 Frá Pétri, sendiboða Jesú Krists.Til ykkar, kristnu Gyðingar, sem hröktust frá Jerúsalem og settust að í Pontus, Galatíu, Kappadókíu, Asíu og Bitýníu. 2 Kæru vinir, Guð valdi ykkur samkvæmt áætlun sinni til að verða börn sín og helgaði ykkur með heilögum anda til að fylgja Jesú Kristi og fá fyrirgefningu syndanna vegna krossdauða hans. Guð blessi ykkur ævinlega og gefi ykkur frið sinn í ríkum mæli. 3 Við skulum þakka Guði, föður Drottins Jesú Krists, sem af mikilli miskunn sinni endurfæddi okkur inn í fjölskyldu sína og gaf okkur lifandi von um nýtt, eilíft líf vegna upprisu Jesú Krists frá dauðum. 4 Guð hefur ætlað okkur börnum sínum dýrlega gjöf, sem er eilíft líf. Þessi gjöf er hrein og flekklaus og hún er geymd ykkur á himnum, þar sem hún mun hvorki skemmast né rýrna. 5 Þetta ætlar Guð ykkur, sem treystið honum. Hann, í mætti sínum, mun gæta þess að ykkur verði að trú ykkar og að þið öðlist hjálpræðið. Á efsta degi mun hann kunngera það öllum. 6 Gleðjist og fagnið, því að okkar bíður dásamleg gleði, enda þótt við um stund þurfum að mæta erfiðleikum hér á jörðu. 7 Erfiðleikar þessir eru aðeins til að reyna trú ykkar – til að prófa hvort hún sé sterk og hrein eins og gull, sem hreinsað hefur verið og reynt í eldi. Trú ykkar er samt miklu dýrmætari en skíragull í augum Guðs. Ef trú ykkar stenst slíka eldraun, mun hún verða ykkur til mikils heiðurs og dýrðar þegar Jesús kemur aftur. 8 Þið hafið aldrei séð hann en elskið hann þó. Og þótt þið hafið aldrei séð hann, trúið þið á hann. Þið munuð fyllast óumræðilegri og himneskri gleði, 9 þegar þið náið takmarkinu með trú ykkar: Frelsun sálna ykkar. 10 Spámennirnir skildu ekki þetta hjálpræði til fulls og þótt þeir hafi skrifað um það, fengu þeir aldrei svör við sumum spurningum sínum. 11 Þeir undruðust það sem heilagur andi, sem í þeim bjó, sagði, því að hann bauð þeim að skrifa niður og lýsa atburðum, sem síðar áttu eftir að gerast í lífi Krists: Þjáningum hans og dýrðinni er hann hlyti að lokum. Þeir hugleiddu hvenær þetta yrði og í lífi hvers. 12 Að lokum fengu þeir að vita að þessir atburðir myndu ekki gerast meðan þeir lifðu, heldur löngu seinna – einmitt á ykkar dögum. Nú loks höfum við fengið að heyra þessi gleðitíðindi flutt á skýran og einfaldan hátt í krafti heilags anda, þess sama anda sem talað hafði til spámannanna. Allt er þetta svo undarlegt og dýrlegt að jafnvel englarnir á himnum þrá að kynnast því betur. 13 Verið því allsgáð og horfið örugg fram til endurkomu Jesú Krists. Þá munuð þið fá að njóta blessunar Guðs í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr. 14 Hlýðið Guði, því að þið eruð börn hans. Gætið þess að lenda ekki aftur í sama farinu – ykkar gamla líferni – þegar þið lögðuð stund á hið illa vegna þess að þið þekktuð ekkert betra. 15 Verið nú heilög í öllu sem þið gerið, rétt eins og Drottinn, sem kallaði ykkur í barnahópinn sinn. 16 Það var hann sem sagði: „Verið heilög, því að ég er heilagur.“ 17 Munið einnig að faðirinn himneski, sem þið biðjið til, fer ekki í manngreinarálit þegar hann kveður upp dóm sinn. Hann mun dæma allt sem þið gerið af fullkominni réttvísi. Lifið því frammi fyrir honum í auðmýkt og ótta, allt þar til þið farið til himna. 18 Guð hefur greitt lausnargjaldið, til þess að leiða ykkur af þeirri vonlausu leið sem feður ykkar reyndu að fara til himins. Lausnargjald þetta var ekki greitt í silfri eða gulli, það vitið þið vel. 19 Guð greiddi fyrir ykkur með dýrmætu lífi guðslambsins, sem var óflekkað – án syndar. 20 Það var einmitt til þess verks, sem Guð valdi Krist löngu áður en veröldin varð til, en það var fyrst nú fyrir stuttu, á þessum síðustu tímum, sem heimurinn fékk að sjá hann og það var ykkar vegna. 21 Af þessari ástæðu getið þið einmitt treyst Guði, sem reisti Krist frá dauðum og hóf hann í dýrð. Nú getið þið sett von ykkar og trú á hann einan. 22 Og við það að trúa að Kristur gæti frelsað ykkur, hafa sálir ykkar hreinsast af eigingirni og hatri og því getið þið elskað hvert annað innilega af hjarta. 23 Nú lifið þið nýju lífi! Þetta nýja líf var ekki gjöf frá foreldrum ykkar, því að það líf sem þau gáfu ykkur, mun fjara út. Nýja lífið mun vara að eilífu, því að það er frá Kristi, honum sem er orð lífsins, boðskapur Guðs til mannanna. 24 Hið jarðneska líf okkar mun visna eins og grasið, sem gulnar og deyr. Jarðnesk fegurð er eins og blóm, sem visnar og fellur, 25 en orð Drottins mun vara að eilífu. Boðskapur Guðs er fagnaðarerindið, sem þið hafið fengið að heyra.

In Other Versions

1 Peter 1 in the ANGEFD

1 Peter 1 in the ANTPNG2D

1 Peter 1 in the AS21

1 Peter 1 in the BAGH

1 Peter 1 in the BBPNG

1 Peter 1 in the BBT1E

1 Peter 1 in the BDS

1 Peter 1 in the BEV

1 Peter 1 in the BHAD

1 Peter 1 in the BIB

1 Peter 1 in the BLPT

1 Peter 1 in the BNT

1 Peter 1 in the BNTABOOT

1 Peter 1 in the BNTLV

1 Peter 1 in the BOATCB

1 Peter 1 in the BOATCB2

1 Peter 1 in the BOBCV

1 Peter 1 in the BOCNT

1 Peter 1 in the BOECS

1 Peter 1 in the BOGWICC

1 Peter 1 in the BOHCB

1 Peter 1 in the BOHCV

1 Peter 1 in the BOHLNT

1 Peter 1 in the BOHNTLTAL

1 Peter 1 in the BOICB

1 Peter 1 in the BOITCV

1 Peter 1 in the BOKCV

1 Peter 1 in the BOKCV2

1 Peter 1 in the BOKHWOG

1 Peter 1 in the BOKSSV

1 Peter 1 in the BOLCB

1 Peter 1 in the BOLCB2

1 Peter 1 in the BOMCV

1 Peter 1 in the BONAV

1 Peter 1 in the BONCB

1 Peter 1 in the BONLT

1 Peter 1 in the BONUT2

1 Peter 1 in the BOPLNT

1 Peter 1 in the BOSCB

1 Peter 1 in the BOSNC

1 Peter 1 in the BOTLNT

1 Peter 1 in the BOVCB

1 Peter 1 in the BOYCB

1 Peter 1 in the BPBB

1 Peter 1 in the BPH

1 Peter 1 in the BSB

1 Peter 1 in the CCB

1 Peter 1 in the CUV

1 Peter 1 in the CUVS

1 Peter 1 in the DBT

1 Peter 1 in the DGDNT

1 Peter 1 in the DHNT

1 Peter 1 in the DNT

1 Peter 1 in the ELBE

1 Peter 1 in the EMTV

1 Peter 1 in the ESV

1 Peter 1 in the FBV

1 Peter 1 in the FEB

1 Peter 1 in the GGMNT

1 Peter 1 in the GNT

1 Peter 1 in the HARY

1 Peter 1 in the HNT

1 Peter 1 in the IRVA

1 Peter 1 in the IRVB

1 Peter 1 in the IRVG

1 Peter 1 in the IRVH

1 Peter 1 in the IRVK

1 Peter 1 in the IRVM

1 Peter 1 in the IRVM2

1 Peter 1 in the IRVO

1 Peter 1 in the IRVP

1 Peter 1 in the IRVT

1 Peter 1 in the IRVT2

1 Peter 1 in the IRVU

1 Peter 1 in the ISVN

1 Peter 1 in the JSNT

1 Peter 1 in the KAPI

1 Peter 1 in the KBT1ETNIK

1 Peter 1 in the KBV

1 Peter 1 in the KJV

1 Peter 1 in the KNFD

1 Peter 1 in the LBA

1 Peter 1 in the LBLA

1 Peter 1 in the LNT

1 Peter 1 in the LSV

1 Peter 1 in the MAAL

1 Peter 1 in the MBV

1 Peter 1 in the MBV2

1 Peter 1 in the MHNT

1 Peter 1 in the MKNFD

1 Peter 1 in the MNG

1 Peter 1 in the MNT

1 Peter 1 in the MNT2

1 Peter 1 in the MRS1T

1 Peter 1 in the NAA

1 Peter 1 in the NASB

1 Peter 1 in the NBLA

1 Peter 1 in the NBS

1 Peter 1 in the NBVTP

1 Peter 1 in the NET2

1 Peter 1 in the NIV11

1 Peter 1 in the NNT

1 Peter 1 in the NNT2

1 Peter 1 in the NNT3

1 Peter 1 in the PDDPT

1 Peter 1 in the PFNT

1 Peter 1 in the RMNT

1 Peter 1 in the SBIAS

1 Peter 1 in the SBIBS

1 Peter 1 in the SBIBS2

1 Peter 1 in the SBICS

1 Peter 1 in the SBIDS

1 Peter 1 in the SBIGS

1 Peter 1 in the SBIHS

1 Peter 1 in the SBIIS

1 Peter 1 in the SBIIS2

1 Peter 1 in the SBIIS3

1 Peter 1 in the SBIKS

1 Peter 1 in the SBIKS2

1 Peter 1 in the SBIMS

1 Peter 1 in the SBIOS

1 Peter 1 in the SBIPS

1 Peter 1 in the SBISS

1 Peter 1 in the SBITS

1 Peter 1 in the SBITS2

1 Peter 1 in the SBITS3

1 Peter 1 in the SBITS4

1 Peter 1 in the SBIUS

1 Peter 1 in the SBIVS

1 Peter 1 in the SBT

1 Peter 1 in the SBT1E

1 Peter 1 in the SCHL

1 Peter 1 in the SNT

1 Peter 1 in the SUSU

1 Peter 1 in the SUSU2

1 Peter 1 in the SYNO

1 Peter 1 in the TBIAOTANT

1 Peter 1 in the TBT1E

1 Peter 1 in the TBT1E2

1 Peter 1 in the TFTIP

1 Peter 1 in the TFTU

1 Peter 1 in the TGNTATF3T

1 Peter 1 in the THAI

1 Peter 1 in the TNFD

1 Peter 1 in the TNT

1 Peter 1 in the TNTIK

1 Peter 1 in the TNTIL

1 Peter 1 in the TNTIN

1 Peter 1 in the TNTIP

1 Peter 1 in the TNTIZ

1 Peter 1 in the TOMA

1 Peter 1 in the TTENT

1 Peter 1 in the UBG

1 Peter 1 in the UGV

1 Peter 1 in the UGV2

1 Peter 1 in the UGV3

1 Peter 1 in the VBL

1 Peter 1 in the VDCC

1 Peter 1 in the YALU

1 Peter 1 in the YAPE

1 Peter 1 in the YBVTP

1 Peter 1 in the ZBP