John 19 (BOILNTAP)

1 Þá lét Pílatus húðstrýkja Jesú. 2 Og að því loknu bjuggu hermennirnir til kórónu úr þyrnum, settu hana á höfuð hans og færðu hann síðan í purpurarauða skikkju. 3 „Lengi lifi konungur Gyðinga!“ hrópuðu þeir í hæðnistóni og börðu hann. 4 Pílatus fór nú aftur út og sagði við Gyðingana: „Ég ætla að leiða hann fram fyrir ykkur, en gerið ykkur ljóst að ég finn enga sök hjá honum.“ 5 Jesús gekk þá út í skikkjunni rauðu og með þyrnikórónuna á höfði. Þá sagði Pílatus: „Sjáið manninn!“ 6 Þegar æðstu prestarnir og embættismennirnir sáu Jesú, æptu þeir og sögðu: „Krossfestu! Krossfestu hann!“„Krossfestið þið hann sjálfir,“ svaraði Pílatus, „ég finn alls enga sök hjá honum.“ 7 Þá svöruðu þeir: „Samkvæmt okkar lögum á hann að deyja, því að hann sagðist vera sonur Guðs.“ 8 Þegar Pílatus heyrði þetta, varð hann enn hræddari. 9 Aftur fór hann með Jesú inn í höllina og spurði: „Hvaðan ertu?“ Jesús svaraði engu. 10 „Svaraðu mér!“ sagði Pílatus ógnandi. „Veistu ekki að ég hef vald til að láta þig lausan og ég hef einnig vald til að krossfesta þig?“ 11 Jesús svaraði: „Þú hefðir ekkert vald yfir mér, ef þér væri ekki gefið það að ofan og því er synd þeirra, sem leiddu mig hingað, meiri en þín.“ 12 Pílatus reyndi enn að fá hann lausan, en þá sögðu leiðtogar Gyðinga við hann: „Ef þú sleppir honum, þá ertu óvinur keisarans, því sá sem segist vera konungur, rís gegn keisaranum!“ 13 Þegar Pílatus heyrði þetta, leiddi hann Jesú aftur fram fyrir þá og settist í dómarasætið. 14 Þetta var um sexleytið að morgni, daginn fyrir páskahátíðina.Pílatus sagði nú við Gyðingana: „Hér er konungur ykkar!“ 15 „Burt með hann!“ æptu þeir, „burt, með hann – krossfestu hann!“„Hvað þá? Krossfesta konung ykkar?“ spurði Pílatus.„Við höfum engan konung nema keisarann,“ hrópuðu æðstu prestarnir. 16 Þá lét Pílatus Jesú í hendur þeirra að hann yrði krossfestur. 17 Loksins höfðu Gyðingar Jesú á sínu valdi. Þeir fóru með hann út úr borginni og hann bar kross sinn til staðar sem kallast Hauskúpa eða Golgata á hebresku. 18 Þar krossfestu þeir hann og tvo aðra með honum, Jesú í miðið, en hina sinn til hvorrar handar. 19 Pílatus lét setja skilti á krossinn uppi yfir Jesú, þar sem stóð: „Jesús frá Nasaret, konungur Gyðinga.“ 20 Staðurinn þar sem Jesús var krossfestur, var nálægt borginni og því lásu margir það sem á skiltinu stóð. Áritunin var á hebresku, latínu og grísku. 21 Æðstu prestarnir sögðu þá við Pílatus: „Breyttu þessu og láttu standa: „Hann sagði: Ég er konungur Gyðinga.“ “ 22 Pílatus svaraði: „Það sem ég hef skrifað, það hef ég skrifað. Því verður ekki breytt.“ 23 23,24 Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú, skiptu þeir fötum hans í fjóra hluta, svo að hver fékk sinn hlut. Síðan sögðu þeir: „Við skulum ekki skipta kyrtlinum í fernt, því að hann er prjónaður og hvergi samsettur, við skulum heldur varpa hlutkesti um hann.“ Þar með rættist ritningarstaður sem segir svo: „Þeir skiptu með sér klæðum mínum og vörpuðu hlutkesti um kyrtil minn.“ 25 Það var einmitt þetta sem þeir gerðu. Nálægt krossi Jesú stóð María móðir hans, María móðursystir hans, kona Kleófasar og María Magdalena. 26 Þegar Jesús sá móður sína standa þar hjá nánasta vini sínum, sagði hann við hana: „Hann er sonur þinn.“ 27 Síðan sagði hann við mig: „Hún er móðir þín.“ Frá þeirri stundu tók ég hana inn á heimili mitt. 28 Nú vissi Jesús að öllu var lokið og því sagði hann, til þess að uppfylla spádóm Biblíunnar: „Mig þyrstir.“ 29 Rétt þar hjá stóð krukka með súru víni. Svampur var vættur í víninu og festur á ísópsgrein, sem síðan var rétt upp að vörum hans. 30 Eftir að Jesús hafði bragðað á víninu sagði hann: „Það er fullkomnað!“ Síðan hneig höfuð hans og hann gaf upp andann. 31 Menn vildu ekki láta fangana hanga þarna næsta dag, sem var helgidagur (mesti helgidagur ársins – páskarnir). Þeir báðu því Pílatus að skipa svo fyrir að fótleggir mannanna skyldu brotnir, og þannig flýtt fyrir dauða þeirra, svo að hægt yrði að taka líkin niður. 32 Hermennirnir komu því og brutu beinin í mönnunum tveimur, sem krossfestir höfðu verið með Jesú. 33 En þegar að honum kom, sáu þeir að hann var þegar dáinn og brutu því ekki bein hans. 34 Einn hermannanna stakk spjóti í síðu Jesú og rann þá út blóð og vatn. 35 Ég sá þetta allt sjálfur og skýri hér satt frá, svo að þið getið einnig trúað. 36 36,37 Þetta gerðu hermennirnir til að rættist ritningarstaður sem þannig hljóðar: „Ekkert af beinum hans mun brotið verða,“ og „þeir munu horfa á þann sem þeir stungu“. 38 Jósef frá Arímaþeu, sem var lærisveinn Jesú á laun, af ótta við leiðtoga Gyðinga, bað Pílatus um leyfi til að taka líkama Jesú niður og leyfði Pílatus honum það. 39 Nikódemus, maðurinn sem eitt sinn hafði komið til Jesú seint um kvöld, kom einnig og hafði með sér fimmtíu kíló af smyrslum sem gerð voru úr myrru og alóe. 40 Þeir hjálpuðust síðan að við að vefja líkama Jesú í léreftsdúk, smurðan ilmsmyrslum, en slíkt er venja við greftranir hjá Gyðingum. 41 Rétt hjá aftökustaðnum var trjálundur. Þar var ný gröf, sem aldrei hafði verið notuð. 42 Vegna hátíðarinnar, sem hófst klukkan sex síðdegis, þurftu mennirnir að hafa hraðan á og vegna þess hve gröfin var nálægt, lögðu þeir hann þar.

In Other Versions

John 19 in the ANGEFD

John 19 in the ANTPNG2D

John 19 in the AS21

John 19 in the BAGH

John 19 in the BBPNG

John 19 in the BBT1E

John 19 in the BDS

John 19 in the BEV

John 19 in the BHAD

John 19 in the BIB

John 19 in the BLPT

John 19 in the BNT

John 19 in the BNTABOOT

John 19 in the BNTLV

John 19 in the BOATCB

John 19 in the BOATCB2

John 19 in the BOBCV

John 19 in the BOCNT

John 19 in the BOECS

John 19 in the BOGWICC

John 19 in the BOHCB

John 19 in the BOHCV

John 19 in the BOHLNT

John 19 in the BOHNTLTAL

John 19 in the BOICB

John 19 in the BOITCV

John 19 in the BOKCV

John 19 in the BOKCV2

John 19 in the BOKHWOG

John 19 in the BOKSSV

John 19 in the BOLCB

John 19 in the BOLCB2

John 19 in the BOMCV

John 19 in the BONAV

John 19 in the BONCB

John 19 in the BONLT

John 19 in the BONUT2

John 19 in the BOPLNT

John 19 in the BOSCB

John 19 in the BOSNC

John 19 in the BOTLNT

John 19 in the BOVCB

John 19 in the BOYCB

John 19 in the BPBB

John 19 in the BPH

John 19 in the BSB

John 19 in the CCB

John 19 in the CUV

John 19 in the CUVS

John 19 in the DBT

John 19 in the DGDNT

John 19 in the DHNT

John 19 in the DNT

John 19 in the ELBE

John 19 in the EMTV

John 19 in the ESV

John 19 in the FBV

John 19 in the FEB

John 19 in the GGMNT

John 19 in the GNT

John 19 in the HARY

John 19 in the HNT

John 19 in the IRVA

John 19 in the IRVB

John 19 in the IRVG

John 19 in the IRVH

John 19 in the IRVK

John 19 in the IRVM

John 19 in the IRVM2

John 19 in the IRVO

John 19 in the IRVP

John 19 in the IRVT

John 19 in the IRVT2

John 19 in the IRVU

John 19 in the ISVN

John 19 in the JSNT

John 19 in the KAPI

John 19 in the KBT1ETNIK

John 19 in the KBV

John 19 in the KJV

John 19 in the KNFD

John 19 in the LBA

John 19 in the LBLA

John 19 in the LNT

John 19 in the LSV

John 19 in the MAAL

John 19 in the MBV

John 19 in the MBV2

John 19 in the MHNT

John 19 in the MKNFD

John 19 in the MNG

John 19 in the MNT

John 19 in the MNT2

John 19 in the MRS1T

John 19 in the NAA

John 19 in the NASB

John 19 in the NBLA

John 19 in the NBS

John 19 in the NBVTP

John 19 in the NET2

John 19 in the NIV11

John 19 in the NNT

John 19 in the NNT2

John 19 in the NNT3

John 19 in the PDDPT

John 19 in the PFNT

John 19 in the RMNT

John 19 in the SBIAS

John 19 in the SBIBS

John 19 in the SBIBS2

John 19 in the SBICS

John 19 in the SBIDS

John 19 in the SBIGS

John 19 in the SBIHS

John 19 in the SBIIS

John 19 in the SBIIS2

John 19 in the SBIIS3

John 19 in the SBIKS

John 19 in the SBIKS2

John 19 in the SBIMS

John 19 in the SBIOS

John 19 in the SBIPS

John 19 in the SBISS

John 19 in the SBITS

John 19 in the SBITS2

John 19 in the SBITS3

John 19 in the SBITS4

John 19 in the SBIUS

John 19 in the SBIVS

John 19 in the SBT

John 19 in the SBT1E

John 19 in the SCHL

John 19 in the SNT

John 19 in the SUSU

John 19 in the SUSU2

John 19 in the SYNO

John 19 in the TBIAOTANT

John 19 in the TBT1E

John 19 in the TBT1E2

John 19 in the TFTIP

John 19 in the TFTU

John 19 in the TGNTATF3T

John 19 in the THAI

John 19 in the TNFD

John 19 in the TNT

John 19 in the TNTIK

John 19 in the TNTIL

John 19 in the TNTIN

John 19 in the TNTIP

John 19 in the TNTIZ

John 19 in the TOMA

John 19 in the TTENT

John 19 in the UBG

John 19 in the UGV

John 19 in the UGV2

John 19 in the UGV3

John 19 in the VBL

John 19 in the VDCC

John 19 in the YALU

John 19 in the YAPE

John 19 in the YBVTP

John 19 in the ZBP